Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1997, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1997, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 28. APRÍL 1997 7 DV Fréttir Byggð stendur traustum fótum á Bakkafirði: Félagslegu íbúðirnar björg- uðu staðnum frá auðn - segir Steinar Hilmarsson oddviti DV, Bakkafirði: „Það hefur mikið verið bölsótast út í félagslegu ibúðirnar sem sagðar eru sliga mörg sveitarfélög. Eins og þetta snýr að staðnum hér þá hefur þetta fyrirkomulag bjargað honum og hefðu ekki kom- ið til félagslegar íbúðir er- hætt við að staðurinn hefði lagst í eyði,“ segir Steinar Hilmarsson, odd- viti á Bakkafirði, í samtali við DV. Steinar, sem einnig gegnir starfi sem sveitarstjóri, launalaust, segir að sveitarfélagið standi vel fjárhagslega. Hann segir nokkrar fram- kvæmdir fyrirhugaðar við höfnina þar sem viðlegu- kantur verður lengdur og bundið slitlag lagt á hafn- arsvæðið. Steinar segir að fólks- fjöldi á Bakkafirði standi nokkuð í stað og á síðasta manntali hafi búið á staðn- Steinar Himarsson oddviti með Bakkafjörð í baksýn. DV-mynd GVA um 142. Hann segir muna um þá einstaklinga sem búa þar á vegum Ratsjár- stofnunar. „Það eru átta hús á veg- um Ratsjárstofnunar hér og þeir starfsmenn sem hing- að komu eru sveitarfélag- inu verðmætir. Þetta eru hálaunamenn sem gefa góð- ar útsvarstekjur. Þá höfum við verið heppnir með fólk og það tekur fulian þátt i fé- lagslífinu hér og hefur að- lagast samfélaginu," segir Steinar. Hann segir vera bjart fram undan hjá Bakkfirð- ingum og þeir hafi séð mun erfiðari tíma. „Byggð hér stóð mjög höllum fæti á síldarleysis- árunum. Nú er allt annað upp á teningnum og það sem helst veldur áhyggjum er hversu búskapur hefur dregist saman og bæir þess vegna farið í eyði,“ segir Steinar. -rt * Q Tiempo 500 Tiempo Premier Verð kr. 12.990. Tiempo Team Verð kr. 9.990. Tiempo Pro Verð kr. 7.990. Fullorðinsstærðir. Verð kr. 4.990. Barnastærðir. Verð kr. 2.990. Þeir spila í Ronaldo Eric Cantona R. Fowler Patric Berger Guðni Bergsson David Ginola NIKE skóm: Rui Costa Maldini David James lan Wright Patrick Kluivert o.fl. (Stite íímar,,s.©föSSS&, og spyrðu um NIKE-söluaðila Tiempo series Samba-bolti með Ronaldo, Brasilíu og Gumma Ben! Eins og flestir hafa séð eru mjög margir leikmenn í Englandi og víðar famir að sjást í NIKE skóm. NIKE er búið að gera langtímasamninga við landslið Brasilíu (HM-meistara), Ítalíu, Rússland, Portúgal, Hol- land, Pólland, USA, Suður-Kóreu og Nigeríu (ÓL-meistarar). Gummi Ben er búinn að skrifa undir NIKE-samning. Hann mun spila í NIKE skóm með íslenska landsliðinu og klæðast NIKE fatnaði. Knatt- spymumaður fslands 1996, Gunnar Oddsson ieikmaður og þjálfari Keflavíkur, skrifaði einnig undir NIKE-samning á dögunum. ★ M=fastir og D=skrúfaðir takkar. ★ Dynamic-Fit reimakerfi. ★ Team Ultrasoft full-grain leather. ★ Léttur polyurethan sóli. D-týpan með álagsplötu undir tökkunum. ★ Premier Pittards-The finest leather on earth. Ronaldo kosinn besti knattspyrnumaður ársins 1996 Fréttir og upplýsingar-apríl 1997 Fótbolti: ★ Takkaskór ★ Gervigrasskór. ★ Synthetic leather og „foldover" tunga. ★ Gúmmísóli, gefur góða mýkt á hörðum malarvöllum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.