Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1997, Blaðsíða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1997
Viðskipti
Farsímafélagiö:
Áformar
rekstur
íslenska farsímafélagið ehf.,
ÍSFAR, áformar rekstur GSM-
farsímakerfis á íslandi. Fyrir-
tækið var eini aðilinn sem í síð-
asta mánuði skilaði inn tilboði
til samgönguráðuneytisins í upp-
byggingu og rekstur GSM-far-
símakerfls í samkeppni við Póst
og síma hf. Búist er við úrskurði
ráðuneytisins um starfsleyfi ÍS-
FAR í júní nk. Gert er ráð fyrir
að hefja farsímaþjónustu niu
mánuðum eftir að starfsleyfíð er
fengið. í fyrsta áfanga er gert ráð
fyrir þjónustusvæði á suðvestur-
horni landsins. Heildarfjárfest-
ing til ársins 2006 er áætluð um
l, 5 milljarðar króna.
Avis á íslandi:
Selt Norðmönn-
um
Liva Bil AS, norskt fyrirtæki
sem starfrækt hefur Avis í Nor-
egi og Svíþjóð, hefur keypt
Stjömubíla ehf. Fyrirtækið hetúr
starfaö sem umboðsaðili Avis
bílaleigunnar á íslandi síðan
1989. Yfir háannatímann hefur
bílaleigan verið með hartnær 200
bíla. Átta starfsmenn hafa unniö
hjá fyrirtækinu. Tekjur félagsins
árið 1996 námu um 100 milljón-
um. Pálmar Sigurðsson, sem
starfað hefur sem framkvæmda-
stjóri hjá Stjömubílum síðan
1992, tekur viö stöðu fyrri eig-
anda og forstjóra, Hafsteins J.
Reykjalín.
SÍF:
117 milljóna
hagnaður
Árið 1996 var heildarvelta
samstæðu Sölusambands ís-
lenskra fiskframleiöenda 10.305
m. kr., samanborið við 9.474 m.
kr. 1995. Aukning í heildarveltu á
milli ára var 9% en hagnaður eft-
ir reiknaða skatta 117 milljónir
króna, samanborið við 169 milfj-
ónir 1995. Þrátt fyrir minni hagn-
að nú jókst veltufé frá rekstri úr
230 milljónum árið 1995 í 263 m.
kr. í fyrra.
V erkefnastj ómunar-
félagið:
Fýrstu verkefn-
isstjórarnir
Verkefnastjórnunarféleg ís-
lands vinmu- nú markvisst að
undirbúningi fyrir vottun fyrstu
alþjóðlegu verkefnisstjóranna
hér á landi. Stefht er að því að
formleg afhending skírteina til
fyrstu verkefnisstjóranna verði
tengd ráðstefnu um gæði í verk-
efnastjómun sem haldin verður
hér á landi í september í haust.
Klaus Pannenbácker, núverandi
forseti IPMA-ráðsins, er nú
staddur hér á landi vegna þessa
og mun hann leiða votttunarferl-
ið við fyrstu umferð.
V erðbréfamarkaðir:
Engin kreppa
„Það er engin kreppa í vænd-
um á íslenskum hlutabréfamark-
aði. Hins vegar kann að vera
varasamt þegar tilfinning fólks er
sú að kaup á hlutabréfamarkaði
sé leikur einn og ekki síður þegar
sala þeirra er það einnig," segir
Þór Sigfússon hagfræðingur í
skrifum um verðbréfaviðskipti í
nýjast hefti Vísbendingar. Hann
segist ekki ætla aö halda því fram
að íslenskir verðbréfamiðlarar
misnoti aðstöðu sína og leiki
sama leik og dæmi eru um í van-
þróaðri ríkjum. Hins vegar þurfi
allir aðilar á þessum markaði að
hafa vakandi auga meö því að
óprúttnir einstaklingar misnoti
ekki það andrúmsloft sem sé á
okkar litla og tiltölulega veik-
burða markaði. -sv
DV
Viöskiptahagsmunir í hættu vegna verkfalla á VestQöröum:
„Staðan er orðin
hrikaleg. Hér eru um 200
manns í verkfalli og við
horfum upp á tugmillj-
óna tjón vegna þessa.
Viðskiptahagsmunir eru
vissulega í hættu þar
sem menn eru víða að
falla á tíma með samn-
inga við erlenda kaup-
endur sem ekki hefur
náðst að framleiða upp í.
Við erum búnir að missa
samning vegna verkfalls-
ins og nú er t.d. verið að
vinna rækju í öðrum
byggðarlögum upp í
samning sem við höfðum
gert. Hvort um varanlegt
tap viðskipta er að ræða
verður að koma í ljós,“
segir Amar Kristinsson,
framkvæmdastjóri Bása-
fells á ísafirði, en ljóst er
að fyrirtæki, einstakling-
ar og byggðarlög eru að
tapa tugum og hundruð-
um milljóna vegna verk-
hundruð milljóna hagnaði. Ég veit
hins vegar ekki hvert fólkið hér ætl-
ar að sækja þessa hækkun. Það er að
fara fram á meira en fyrirtækin ráða
við,“ sagði Arnar við DV í gær.
Hljóðið var almennt þungt í
stjórnendum þeirra fyrirtækja sem
DV hafði samband við i gær og fæst-
ir voru bjartsýnir á að verkfallið
leystist á næstunni. Fyrir verkfallið
an er vissulega mjög erfið
víða en þegar ekkert er vit-
að um hversu lengi verk-
fallið mun vara getum við
engu spáð. Menn hafa haft
annað að gera en að velta
sér upp úr tjóninu. Dæmið
verður gert upp í heild
þegar fyrir liggur hvemig
og hvenær þetta endar,“
segir Ingimar Halldórsson,
stjórnarformaður Freyju
og framkvæmdastjóri
Frosta hf. í Súðavík.
Ingimar segir Frosta
þegar vera orðinn of sein-
an með að vinna upp í
samning vegna rækjunnar.
Enn sé ekki ljóst hvað
muni gerast en allt eins
megi búast við því að við-
skiptavinurinn muni snúa
sér eitthvað annað næst.
Allir tapa
„Þetta er mjög alvarlegt
fyrir byggðarlagið í heild og
ég reyni að vera bjartsýnn
var því haldið fram að sum fyrir-
tæki myndu ekki þola tekjumissinn
í verkfalli og að hugsanlega yrði
ekki hægt að opna aftur eftir verk-
fall. Meðal fyrirtækja sem nefnd
hafa verið í því sambandi er Fisk-
iðjan Freyja á Suðureyri.
Seinir með samning
„Því er ómögulegt að svara. Stað-
Vinna hefur nú legið niðri í frystihúsum á Vestfjörðum á fjórðu viku. Fiskvinnslan hefur átt erfitt
uppdráttar og ekki minnkar vandi hennar meö þeim tekjumissi sem er þegar orðinn staðreynd.
fallsins sem nú hefur
staðið yfir á fjórðu viku.
Margþættur vandi
Arnar segir að öll skip fyrirtækis-
ins séu á sjó en kvótinn sé færður í
önnur byggðarlög til vinnslu. Vandi
Vestfirðinga sé því margþættur.
„Ég hefði skilið það ef þessar kröf-
ur fólksins hefðu komið fyrir austan
þar sem fyrirtækin eru að skila
a að þetta leysist á næst-
unni. I þessu verkfalli tapa allir,"
segir Ingimar.
„Það er ljóst að við erum að tapa
milljónum á þessu verkfalli. Skuld-
sett fyrirtæki munu án efa fara illa
út úr þessu og sum vart lifa þetta
af,“ sagði Konráð Jakobsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihússins í
Hnífsdal, við DV í gær. -sv
Hundruð milljóna tjón
- hugsanlegt að einhver fyrirtæki þoli ekki ástandið
Forkólfar verkalýðsfélaganna fyrir vestan hvika hvergi frá kröfum sínum.
Þeir voru einbeittir þegar DV festi þá á mynd á dögunum. Á myndinni eru
Helgi Ólafsson, Verkalýðsfélagi Hólmavíkur, Pétur Sigurösson, Alþýðusam-
bandi Vestfjaröa, Lilja Rafney Magnúsdottir, Verkalýðs- og sjómannafélag-
inu Súganda á Suöureyri, og Eiríkur Ragnarsson, Verkalýðs- og sjómanna-
félagi Alftfiröinga í Súöavík. DV-mynd Hilmar Þór
Borgarbyggð:
Tap KB 30
milljónir
DV, Vesturlandi:
Á aðalfundi Kaupfélags Borg-
firðinga 6. maí kom fram að
rekstrarafkoma KB 1996 var tals-
vert verri en 1995 og mun lakari
en áætlanir gerðu ráð fyrir. Tap
af rekstri 1996 varð 29,2 millj.
króna. Þar af var tap hlutdeildar-
félaga 20 milljónir.
Tap af reglulegri starfsemi varð
26 milljónir samanborið við 16
milljóna króna tap árið áður í
sambærilegri starfsemi. -DVÓ
Hlutabréfamarkaðurinn:
Mest selt i Islandsbanka
Sala hlutabréfa á Verðbréfaþingi og Opna til-
boðsmarkaðnum var heldur minni í síðustu viku
en vikunni þar áður. Nú nam hún rúmurn 579
milljónum króna. Mest var selt af bréfum í íslands-
banka, fyrir 86 milljónir, Flugleiðum, Ilaraldi
Böðvarssyni, 85 milljónir tæpar, Flugleiðum, rúm-
ar 70 milljónir, og síðan kom SÍF næst. Þar seldust
bréf fyrir 34,5 milljónir króna í síðustu viku.
Lítil sala var í bréfum annarra stórra fyrirtækja.
Bréf seldust t.a.m. í Eimskip fyrir rúmar 8 milljón-
ir, Olíufélaginu fyrir 1,6 og Olíuversluninni fyrir
1,7 milljónir. í Samherja seldust bréf fyrir um 24
milljónir. Þingvísitala hlutabréfa hefur lækkað lít-
illega síðustu daga.
Gengi dollars og punds hefur lækkað örlitið síð-
ustu daga, dollarinn um tæpa króna og pundið um
tæpar tvær krónur. Álverð hefur hins vegar hækk-
að verulega milli vikna, um tæpa 50 dollara tonn-
ið. Skýringin á hækkuninni mun vera sú að
birgðastaöan er í meira jafnvægi en hún hefur ver-
ið. -sv
ÞingvísiL htutabr.
117 114,470
116 .
113
Olíufélagið
Flugleiðir
Skeljungur
SR-mjöl
43,5
43