Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1997, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1997, Blaðsíða 32
Leit að Sverri hætt: Gífurleg 'vonbrigði - segir Kolbrún „Það eru gifurleg vonbrigði að pabbi skuli ekki finnast. Þetta eru þó blendnar tilfinningar þar sem gleðiefnið er að Hörður fannst,“ segir Kolbrún Sverrisdóttir, sam- býliskona Harðar Bjamasonar og dóttir Sverris Sigurðssonar, stýri- manns af Æsu. Bresku kafamir leituðu án ár- angurs að líki Sverris i íbúðum Æsu í gær. Formlegri leit er nú hætt en kafaramir höfðu ekki get- að farið í vélarrúm skipsins vegna » áhættunnar sem því er samfara. " Kolbrún segist vera ánægð með framlag bresku kafaranna og Land- helgisgæslunnar. „Þessir menn gátu ekki gert bet- ur miðað við aðstæður. Það er þó alveg ljóst að botninn er dottinn úr rannsóknarþættinum hafi þeir ekki komist í vélarrúmið," segir Kolbrún. „Undirbúningurinn að þessari aðgerð var alls ekki nógu góður. Það má þó líta til þess að verkið skilar okkur mikilli reynslu og .jthekkingu á rannsóknum sjóslysa. Þess ber að geta að það gat aldrei orðið fullnægjandi árangur af rannsókn nema skipið yrði tekið upp,“ segir hún. -rt Eskiíjörður: Skotar landa síld DV, Eskifirði: Loðnuverksmiðjan á Eskifirði hefur nú tekið á móti rúmlega »6000 tonnum af síld sem veidd hef- ur verið úr norsk-íslenska síldar- stofninum austur af landinu. Auk íslenskra nótaveiðiskipa hefur Norborg frá Færeyjum landað hér 1100 tonnum og í gær komu 2 skoskir bátar með 2.500 tonn. Að sögn sjómanna er mikil síld á svæðinu en stendur djúpt og veiðarnar því erfiðar. Síldin hefur mælst á 100 til 150 faðma dýpi. Síldarnæturnar eru hins vegar ekki dýpri en 100 faðmar. Enn fremur er síldin afar stygg og er hún í ætisleit. Tugir skipa hafa verið á miðunum og þröng á þingi þar sem mesta veiðivonin er. Vel hefur gengið að bræða síld- ^ina, og er hún átulítil. Verð á ^’mjöli og lýsi hefur verið gott. -Regína ÞAÐ HAU^TAÐI SNEMMA I VOR. C3 C_J FRETTASKOTID SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. B8550 5555 Frjálst,óháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 14. MAI 1997 26 ára Eyrbekkingur látinn eftir hrottalega árás: Manndrap á Vegas 26 ára karlmaður frá Eyrar- bakka lést í gærkvöld af völdum alvarlegra höfuðmeiðsla sem hann hlaut er á hann var ráðist á skemmtistaðnum Vegas í fyrr- inótt. Maðurinn komst aldrei til meðvitundar eftir árásina. Árásin virðist með öllu tilefnis- laus, að sögn sjónarvotta á Vegas. Árásarmennimir eru þrír - á aldr- inum um og yfir þrítugt. Þeir eru allir i haldi lögreglu. Sjónarvottar segja einn þeirra hafa mest haft sig í frammi. hræðilegt atvik. Piltarnir segjast aldrei hafa séð árásarmennina áður. Sonur minn og vinur hans eru andlega búnir að vera eftir þennan atburð. Þeir þurfa eflaust á áfallahjálp að halda. Árásar- mönnunum verður að refsa sem skyldi fyrir svona voðaverk,“ sagði faðirinn. Tilefnislaus árás Veröur aö refsa DV náði sambandi við tvo vini hins látna en á þá var einnig ráð- ist á Vegas. Þeir vildu ekki tjá sig en faðir annars þeirra sagði eftir- farandi: „Piltamir fóru þrir saman til Reykjavíkur til að horfa á nektar- danssýningu. Þeir vinna saman á sjónum og ætluðu bara að gera sér glaðan dag. Svo gerist svona „Árásin virðist algerlega tilefn- islaus," sagði starfsmaður skemmtistaðarins Vegas við DV. „Þetta gerðist klukkan rúmlega hálfeitt, rétt fyrir lokun. Starfs- menn staðarins sáu fjóra merm fara að borði þar sem fórnarlamb- ið var og þeir réðust á manninn. Þeir börðu og spörkuðu í höfuð hans. Tveir félagar fómarlambs- ins ætluðu að koma til hjálpar en þeir vom barðir líka. Þetta gerðist mjög snöggt. Dyraverðir komu eins fljótt og þeir gátu og skökk- uðu leikinn en það var um seinan. Svona hræðilegt atvik hefur aldrei gerst áöur hér á staðnum. Við erum felmtri slegnir,“ sagði starfs- maðurinn. Þegar lögreglan kom á staðinn vom árásarmennimir horfnir. Starfsmenn Vegas gátu þó gefið lýsingu á þeim. Fórnarlamb árás- arinnar lá þá meðvitundarlaust i sófa á staðnum. Maðurinn var fluttur í skyndi á gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur. Áverkar á höfði hans voru miklir og blætt hafði inn á heila. Ekki tókst að bjarga lífi mannsins. Tveir vinir hins látna, sem báðir em frá Eyr- arbakka, hlutu minni háttar áverka í andliti. Lögreglan handtók siðdegis í gær einn árásarmannanna. í gær- kvöld vom tveir til viðbótar hand- teknir. Einn þeirra hefur oft kom- ið við sögu lögreglu vegna ofbeld- ismála og fikniefnamisferlis. Hinir tveir era einnig „góðkunningjar" lögreglunnar. -RR Veðrið á morgun: Hlýjast suð- austanlands Á morgun verður norðaustan- gola eða kaldi í fyrstu með smáéljum við norðurströndina en björtu veðri annars staðar. Síðdegis vex vindur af austri og þykknar smám saman upp með suðurströndinni. Hiti verður á bilinu 2-15 stig, hlýjast suðaust- anlands en kaldast norðan til. Veðriö í dag er á bls. 36 ilSSSðsw Götumynd frá Ólafsfiröi um miöjan maí. Svona var ástandiö í bænum í gær. Moka þurfti snjó til þess aö greiða fyrir umferö. Voriö hefur veriö sérlega kalt. DV-mynd HJ ,Draugahúsið“: Skipulagí gildi um að rífa húsið ® á „Það er skipulag í gildi um að rífa eigi húsið enda er það illa farið. Af ýmsum ástæðum hefur það tafist. Mál hússins er búið að vera lengi í kerfinu ef svo má að orði komast. Eins og stað- an er núna þá er það í biðstöðu þar,“ segir Ágúst Jónsson, skrifstofústjóri borgarverkfræðings, aðspurður um „draugahúsið" á homi Bakkastígs og Mýrargötu í Reykjavík. Eins og fram kom í DV í gær em íbúar í hverfinu mjög ósáttir við að húsið skuli enn standa. íbúamir telja húsið með eindæmum ljótt og illa far- ið og að það spilli mjög fyrir hverfinu. Þá er húsið stórhættuleg slysagildra fyrir böm sem oft em þar að leik. „Það var tekin ákvörðun í fyrra um að rifa húsið. Undirbúningur var haf- inn og búið að aftengja rafmagn og fleira. Þá kom ábending frá húsfriðun- amefrid ríkisins um að ef til vill væri vert að skoða þetta nánar. Síðan barst kauptilboð í húsið ffá óþekktum aðila. Þá var borgarskipulagi fahð að fara yfir þetta aftur en ég veit ekki til þess að nokkuð hafi komið út úr þeirri at- hugun ennþá," segir Ágúst. -RR Handbolti: Sigurmark markvarðarins ísland sigraði Portúgal í landsleik í handknattleik í Japan í morgun. 20-19. Reynir Þór Reynisson, mark- vörður, skoraði sigurmarkið á síð- ustu sekúndu leiksins. Valdimar Grímsson var markahæstur ís- lensku leikmannanna með 4 mörk -VS DY Ólafsfirði: Það var harla óvenjuleg sjón að sjá bæjargröfuna moka snjó á götum Ólafsfjarðar í gær, 13. maí. Um 20 sm jafhfallinn snjór þakti norðlenska jörð. Á sama tima vom Reykvíkingar að beijast við sinuelda. Flestir bæjar- búar em að búa sig undir sumarið og verður ekki hægt að segja að Ólafs- firðingar hafa glaðst yfir þessari himnasendingu. Reyndar hefur vorið verið með eindæmum kalt. Þeir sem glöddust vora krakkamir og mátti sjá snjókarla víða í görðum. Snjómokstur kostaði Ólafsfirðinga hátt á fiórðu milljón króna frá ára- mótum, sem er talsverð hækkun frá því i fyrra, þegar snjómokstur kost- aði aðeins tæpa milljón, en sá vetur telst reyndar óvenju snjóléttur. -HJ 4 4 4 4 4 Verð frá 1.199.000. Bílheimar ehf. «n@ Sœvarhöfba 2a Sími:525 9000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.