Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1997, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1997, Blaðsíða 28
36 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1997 Fimmtíu og tvö spil og jókerar „í svona málum er ekkert sem heitir að leysa einn lið. Það eru fimmtíu og tvö spil í stokknum og jókerar að auki.“ Pétur Sigurðsson verkalýðs- leiðtogi um stöðu í verkfalls- málum, í Alþýðublaðinu. Svo lengi sem elstu menn muna „í ljósi þess að þetta mál hefur verið til umfjöllunar svo lengi sém elstu menn muna þótti stjórnarmeirihlutanum rétt að gefa mönnum svigrúm til að skoða málin betur.“ Halldór Ásgrimsson utanríkis- ráðherra um lífeyrisfrumvarp- ið, í Degi-Tímanum. Ummæli Meiri sátt „Það er meiri sátt um óbreytt frumvarp en þessar breytingar- tillögur." Ágúst Einarsson alþingismað- ur um lífeyrissjóðsfrumvarpið, í Degi-Tímanum. Háværustu og klikkuðustu „Þeir eru þeir háværustu og klikkuðustu sem við höfum spil- að fyrir.“ Mark, trommari Skunk An- ansie, um áhorfendur í Laugar- dalshöll, í DV. Biðtíminn styttist „Það hlýtur að styttast í að sá stóri komi í Frostaskjólið." Þormóður Egilsson, fyrirliði KR, í Morgunblaðinu. Nýjustu sjónvörpin eru svoköll- uö breiösjónvörp og eru þau mjög frábrugöin þeim sem fyrst voru sett á markaöinn. Árdagar sjónvarpsins Skoski verkfræðingurinn John L. Baird (1888-1946) er einn af upphafsmönnum sjónvarps- ins. 1923 tók hann einkaleyfi á notkun Nipkowskífu og gerði til- raunir sínar með vélrænt sjón- varps (8 línur). 1928 sendi Baird myndir frá London til New York á stuttbylgju (45 cm). Þannig fóru myndir yfir Atlantshaf 34 árum fyrir daga gervihnattarins Telstar. 1930 hóf Baird að selja Televisor-tæki sín, fyrstu sjón- varpstæki fyrir almennan mark- að en fáir urðu til að kaupa þau. Blessuð veröldin Fyrstu sjón- varps- útsendingarnar Fyrsta sjónvarpsmyndatöku- vélin var afrakstur af iðju Bandaríkjamannsins Vladimirs Kosma Zworykin sem fæddur var í Rússlandi og fluttist til Bandaríkjanna 1919.1. desember 1923 sótti hann um einkaleyfi á aðferð sinni og kynnti uppfinn- ingu sína í rafeindarannsóknar- stöð RCA. Árið 1933 stóð RCA fyrir fyrstu tilraunaútsending- um með rafeindasjónvarpi (240 línu myndunum) frá sendi sem komið var fyrir uppi á Empire State Building í New York. Áfram norðanátt Norður af Færeyjum er 1.000 mb lægð sem þokast norður en 1.032 mb hæð er yfir Grænlandi. Veðrið í dag Áfram er búist við norðaustan og norðan stinningskalda víða um land með snjókomu fram eftir degi um landið norðaustanvert og éljum á Norðurlandi. Sunnan- og suðvestan- lands verður hins vegar léttskýjað. Heldur hægari norðan- og norðvest- anátt í kvöld og nótt og minnkandi éljagangur. Reikna má með 6 til 11 stiga hita syðra en um eða rétt yfir frostmark á Vestfjörðum og norðan heiða. Á höfuðborgarsvæöinu er norð- ankaldi og bjartviðri. Hiti 7 til 9 stig yfir hádaginn en 1 til 3 stig í nótt. Sólarlag í Reykjavík: 22.35 Sólarupprás á morgun: 04.13 Síðdegisflóð í Reykjavík: 24.32 Árdegisflóð á morgun: 00.32 Veðriö kl. 6 í morgun: Akureyri Akurnes Bergstaóir Bolungarvík Egilsstaðir Keflavíkurflugv. Kirkjubkl. Raufarhöfn Reykjavík Stórhöföi Helsinki Kaupmannah. Osló Stokkhólmur Þórshöfn Amsterdam Barcelona Chicago Frankfurt Glasgow Hamborg London Lúxemborg Malaga Mallorca París Róm New York Orlando Nuuk Vín Washington Winnipeg snjóél 0 skýjaö 4 skýjaö 0 skýjaö -1 snjókoma 1 léttskýjaó 3 skýjaö 4 snjókoma 0 hálfskýjaö 2 skýjað 5 léttskýjaö 15 skúr 11 skýjaö 8 skýjaó 13 skýjaó 7 rigning 11 léttskýjaó 18 alskýjaö 9 skýjaó 15 skúr á síó.kls. 9 skýjaö 14 mistur 8 léttskýjað 14 þokumóöa 16 þokumóöa 16 rigning 12 heiöskírt 19 hálfskýjaó 12 heiöskírt 18 hálfskýjaö 3 skýjaö 17 skýjaó 10 rigning 3 Björn S. Lárusson, nýráðinn markaðs- og ferðamálafulltrúi á Akranesi: Það er ögrandi að takast á við nýtt starf DV, Akranesi: „Þaö er hægt að lýsa því með einu orði hvernig mér líst á nýja starfið, það er ögrun. Það er ögrandi vegna þess að það er gríð- arlega mikið sem er að gerast og feiknalega mörg verkefhi sem þarf að takast á við og það þarf að fara sérstaklega gætilega í að takast á við þau,“ segir Bjöm S. Lárusson, nýráðinn markaðs- og ferðamála- fulltrúi á Akranesi. Bjöm er ekki ókunnugur ferðamálunum því hann stofnaði á sínum tíma Hótel Selfoss, var ferðamálafulltrúi á Suð- urnesjum og Suðurlandi, deildar- stjóri ferðamáladeOdar Fjölbrauta- skóla Suðurlands og síðustu 5 ár hefur Björn stýrt Gestshúsum á Sel- Maður dagsins fossi, jafnframt hefur Bjöm verið fréttaritari Ríkisútvarpsins á Sel- fossi. Björn er heldur ekki ókunn- ugur á Akranesi því hann ólst þar upp til 10 ára aldurs. „Starfið er í fyrsta lagi fólgið í því að koma Akranesi inn á kortið, kynna Akranesbæ sem ferða- mannabæ, í öðra lagi að skoða þá möguleika sem við höfum til at- Björn S. Halldórsson. vinnurekstrar. Ef hingað leita fyrir- tæki sem vUja koma á fót einhvers konar þjónustu þá getum við leið- beint þeim hvert þeir eigi aö snúa sér og við verðum leiðsögumenn þeirra í gegnum bæjarapparatið á Akranesi." En hvemig líst Bimi á tilkomu Hvalfjarðarganganna? „Við getum borið þetta saman við Selfoss, það- an sem ég kem, eftir að Hvalfjarðar- göngin verða opnuð veröur ná- kvæmlega jaín-langt frá Reykjavik tU Akraness ems og frá Reykjavík tU Selfoss. Selfoss bæði nýtur þess og geldur að vera nálægt Reykjavík og Akranes mun njóta þess og gjalda þess. Akranes mun njóta þess á þann hátt að við verðum komin miklu nær markaðssvæðun- um en við munum hins vegar gjalda þess á þann hátt að til skamms tíma litið þá verða ef tU viU þjónustufyrirtæki hér ekki samkeppnisfær við höfuðborgar- svæðið en það er hlutur sem kemur tU með að jafna sig með tímanum. Bjöm er spurður hvernig ferða- þjónustu Akurnesingar vilja byggja upp. „Þegar 98% erlendra ferða- manna fara gegnum Reykjavík þá er augljóst mál að við höfum tvo möguleika, það er annars vegar dagsferðalangar þvi að hér er óvenjumikið að sjá og skoða, hins vegar getum við útbúið hér bæki- stöð; hótel, mótel eða eitthvað slíkt sem ferðamenn ferðast út frá.“ Áhugamál Björns eru bridge. Hann er giftur Önnu Kjartansdóttur og eiga þau saman þrjú böm. Þau eru: Jóhann, 3 ára, Haraldur, 13 ára og Kjartan, 14 ára. Auk þess á Björn eina fósturdóttur, Hönnu Kristínu Sigurðardóttur, 23 ára. -DVÓ Myndgátan Lausn á gátu nr. 1804: •^w- Myndgátan hér aö ofan lýsir nafnoröi. Bryndís Blöndal syngur í Lista- safni Sigurjóns Ólafssonar í kvöld. Burtfarartónleikar í kvöld mun Bryndís Blöndal sópran syngja burtfarartónleika sína frá Nýja Tónlistarskólanum í Listasafni Sigurjóns Ólafsson. Á efnisskránni verða ljóðaflokk- urinn Frauenliebe und Leben eftir Schumann, Kirkjusöngvar Jóns Leifs, frönsk Jjóð eftir Fauré og aríur eftir Hándel og Gounod. Meðleikari Bryndísar á tónleikunum er Bjarni Þór Jón- atansson. Bryndís hefur stundað nám við skólann frá 1993 undir hand- leiðslu Sverris Guðjónssonar og lauk 8. stigi vorið 1995. í vetur hefur hún verið í framhaldsnámi í Vínarborg, þar sem kennari hennar er Svanhvít Egilsdóttir. Burtfararprófið nú er til að setja endapunktinn á námið hér á landi og jafnframt afrakstur vinnu síðustu vikna í Nýja Tón- listarskólanum með Sverri og Bjarna Þór. Tónleikar Bryndis hefur komið fram á ýmiss konar tónleikum, bæði sem söngvari og hljóðfæraleik- ari. Hún hefur tekið þátt í óperu- uppfærslum Nýja tónlistarskól- ans og hjá leikhúsi Frú Emelíu og leikið hlutverk hjá leikfélag- inu Hugleik. Bryndís mun halda áfram námi í Vínarborg. Bridge í apríl síðastliðnum var haldið al- þjóðlegt mót í bænum Estoril sem kallað var Portugese Open. Sigurveg- arar í því móti vora heimamennirn- ir Luis Faria og Miguel Goncalves sem fengu 500.000 peseta verðlaun. Hér er eitt spil úr mótinu sem sýnir snilli Goncalves í úrspilinu. Sagnir gengu þannig, vestur gjafari og allir á hættu: 4 KD94 V G832 4- D3 * Á87 —Í5— 4 ÁG873 V A ♦ Á1096 S * K42 ♦ 5 «4 974 ♦ KG854 * G1063 Vestur Norður Austur Suður pass 1 * 14 pass 2 4 pass 4 4 p/h Útspil suðurs var laufgosinn, held- ur óheppileg byrjun fyrir vömina. Goncalves fékk fyrsta slaginn á kónginn, tók hjartaásinn og svínaði laufníunni. Norður drap á ás og spil- aði tiguldrottningu. Goncalves drap á ás, spilaði laufi á drottningu og henti tveimur tíglum í KD í hjarta. Síðan kom lítið tromp úr blindum og þegar norður setti fjarkann lét Goncalves nægja að setja sjöuna. Hann hafði hugsað sér að reyna þannig að ráða við D9x eða K9x hjá norðri. Þegar sjöan átti slaginn spil- aði Goncalves sig út á tígli. Suður átti slaginn og varð að spila láglit sem trompaður var með sexunni í blindum. Norður, sem átti eftir KD9 í trompi, gerði sitt besta með þvi að henda hjartagosa. Goncalves undirt- rompaði með spaðaþrist heima og spilaði spaðatiunni úr blindum. Norður setti drottninguna sem fékk að eiga slaginn. Hann varð síðan að spila frá K9 upp í ÁG austurs í lokin. ísak Öm Sigurðsson 4 1062 «4 KD1065 ♦ 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.