Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1997, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1997
7
pv Sandkorn
Ekkjan og ráð-
herrann
Frammistaða Kolbrúnar Sverris-
dóttur, ekkju
skipstjórans á
Æsu, hefur vakið
veröskuldaða at-
hygli. Hún hefúr
barist fyrir því
að flak Æsu yrði
rannsakað með
það fyrir augum
að varpa ljósi á
slysið. Það gustar
af Kolbrúnu og
hún hefur verið ófeimin viö að
skamma ráðamenn þjóðarinnar.
Samgönguráðherra mun vera orðinn
nokkuð pirraður á gagnrýni Kol-
brúnar og á mánudag mætti hún í
eigin persónu á Alþingi til að
skamma hann þegar útlit var fyrir
að leit að líki fóður hennar yrði
hætt. Halldór mun hafa hvesst sig
nokkuð við ekkjuna og sagði að
hann væri búinn að gera sitt og að
það væri samkvæmt samkomulagi
við hana. Nokkrir þingmenn voru
áheyrendur að þvi þegar Kolbrún
hóf upp raust sina og tók ráðherr-
ann nánast í nefið. Mönnum var
nokkuð skemmt og fyrir liggm- að
ráðherra hefur heimilaö frekari leit.
Bestu sandalarnir
Víkartindur hefur reynst mörgum
góð matarhola.
Strandgóss hefúr
eflt hag margra
heimila og sögur
fara af því að
heilu fjölskyld-
umar hafi náð að
fata sig upp af
tískufatnaði með-
an gámar fengu
afskiptalaust að
velkjast um í fjör-
unni. Þannig hafði sandkomsritari
spumir af grunnskólaskemmtun í
héraðinu þar sem flestir drengir 10
bekkjar mættu í hátískugallabuxum
frá Jack and Jones. Yngismeyjamar
voru að sama skapi vel fataðar í
flíkum sem kenndar eru við Vero
Moda. Ekki opnuðust þó allir gámar
þannig að almenningi gæfist kostur
á kjarabótum. Þannig slapp skó-
verslun nokkur á Suðurnesjum með
skrekkinn og stór sending af sandöl-
um slapp við að prýða fætur Sunn-
lendinga. Eigendumir ákváðu þá að
markaðssetja vöru sina i samræmi
við ferðalok sandalanna. Þeir aug-
lýstu þvi grimmt í vikunni.„Sandal-
arnir úr Vikartindi komnir". Nú er
viðbúið talið að enginn verði maður
með mönnum nema vera í sandölum
af sandinum.
Skór eða skaflajárn
í blaðin Vestra á Isafirði mátti
lesa frá-
sögn af
Gísla kaup-
manni Ein-
arssyniá
ísafirði.
Gísli, sem
látinn er
fýrir
nokkrum árum, vann á skrifstofu
Kaupfélagsins og annaðist þar pant-
anir til bænda. A þessum tíma var
aðeins sveitasimi og þegar bændur
hringdu i Gísla vom þeir á stimdum
varkárir í orðum til að öll sveitin
vissi ekki hvað verið væri að panta
til heimilisins. Þannig vissi Gísli
hvað hékk á spýtunni þegar Eleníus
bóndi í Heydal læddi því út úr sér
að hann vantaði hóstasaft. Flaska af
brennivíni fór þá með fyrstu ferð
inn eftir.
Gísli vildi allra vanda leysa og
það gat á köflum verið snúið. Þegar
honum barst erindi um hávetur frá
Hörgshlíð í Mjóafirði þess eðlis að
Þorsteinn bóndi vildi fá eitthvað
gott undir fæturnar á konu sinni
hugsaði hann sig vel um. Eftir mikl-
ar vangaveltur tók hann til skafla-
jám og sendi. Rétt er að taka fram
að það var skóleysi sem hijáði hús-
freyju.
Afdjöflaður
Sigurður Óskar Pálsson, fyrrum
kennari á Borgar-
firði eystra, er
hagyrðingur góð-
ur. Hann las á
dögunum
skemmtilegt við-
tal í Helgarblaöi
DV við séra Pétur
Þorsteinsson
prest Óháða safn-
aðarins. Viðtalið
varð kveikjan að eftirfarandi limra.
Sagt er oss frá séra Pétri
og sett á prent meö skýru letri.
Að tumaðist hann og trúna fann,
afdjöflaðist á einum vetri.
Umsjón Reynir Traustason
Fréttir
Verktakar - bændur
sveitarfélög
Uppgerðir hjólavagnar
á frábæru verði.
Burðargeta 1- 6 tonn.
4x4 drif.
2x4 drif.
mm\iá
' Skútuvogl 12A, s. 581 2530
Svínin 25, sem komu til landsins f
gær, voru flutt í rammgeröum köss-
um meö þotu Atlanta. DV-mynd gk
25 kynbóta-
svín komu
frá Finnlandi
DV, Akureyri:
„Þetta er stór dagur íyrir íslenska
svínarækt," sagði Kristinn Gylfl
Jónsson, formaður Svínaræktarfélags
íslands, á Akureyrarflugvelli í gær en
þá komu þangað 25 kynbótasvín sem
flutt voru með þotu Atlanta frá Finn-
landi.
Um er að ræða tvö svínakyn. Ann-
ars vegar 5 gyltur með fangi og 3 gelti
af fmnska Landkyninu og hins vegar
12 gyltur meö fangi og 5 gelti af
Yorkshire-kyni. Svínin voru öll flutt í
einangnmarstöð Svínaræktarfélags
íslands í Hrísey eftir komuna til Ak-
ureyrar.
Reiknað er með að fyrstu gyltumar
muni gjóta um næstu mánaðamót.
Síðan er áformað að gyltumar gjóti
fjórum sinnum og grísimir verða
fluttir u.þ.b. fjögurra mánaða í land
og inn í íslensk svínabú.
Markmiðið með þessum innflutn-
ingi er að efla og bæta íslenska svína-
rækt. „Það snýst allt um hagkvæmni,
það er töfraorðið í dag og með þess-
um innflutningi erum við að vinna að
því markmiði að auka hagkvæmni,"
sagði Kristinn Gylfí Jónsson. -gk
Björk tvisvar í
Bandaríkjunum
DV, Akranesi:
Björk Guðmundsdóttir mun
koma fram á tveimur tónlistarhátíð-
um í þessum mánuði I Bandaríkjun-
um. Þann 25. maí kemur hún fram á
Jamboree-tónlistarhátíðinni og
þann 31. maí kemur hún fram á H
Festival og er uppselt á þá hátíð.
Þann 8. júní mun Björk síðan koma
fram á Frelsum Tíbet tónleikumun í
New York og 13. júní kemur hún
fram í San Francisco. Síðan hefúr
heyrst að Björk muni koma fram á
tónlistarhátíð á Ítalíu í júlí -DVÓ
• Dregur allt að 600 metra
• Rafhlöðuending í biðstöðu: 60 klst.
• Rafhlöðuending í notkun: 12 klst.
• Stór og góður skjár
• Skammvalsminni
• Stillanlegur hljóðstyrkur
• Stillanlegur hringistyrkur
• Talsamband milli móðurstöðvar og símtóls
• Langlínulás
• Þyngd símtóls 240 g
• íslenskur leiðarvísir
• Hægt að læsa hnappaborði
L
SV-65 4 myndhausar long play kr. 35.900.-
SV-120 4 myndhausar long play, stereo kr. 46.900.-
Heimilistæki hf
SAMSUN0
Samsung
Samsung
Geislagata 14 Akureyri sími: 462 1300
Sætúni 8 sími: 569 1500
Kringlan 8-12 Sími 568-1000