Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1997, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1997
13
DV
Fréttir
Reiðvegir í Eyjafjarðarsveit:
Málið í algjörum hnút
eftir illindi og deilur
innifalinn í verði eftir gerð
18 eða 21 gira
Grip Shift
efta Quick Shift
Shimano gírar Shimano brcmsur
^ ChroMoly eða AluTec stell
ExtraWide Tuhe
VERSLUN FYRIR ÞA SEM VIUA
GERA HAGSTÆÐ KAUP !
Sigfús Ólafur Helgason, formaöur Hestamanna-
félagsins Léttis á Akureyri, viö giröingu bóndans
á Ytragili yfir gamla þjóöveginn miili Akureyrar
og Hrafnagils. Þessi girðing varð til þess að end-
anlega sauð upp úr í áratugalangri deilu um reiö-
leiðir í Eyjafjarðarsveit. DV-mynd GK
DV, Akureyri:
Deilan um reiðveg
hestamanna frá Akur-
eyri að Melgerðismelum
í Eyjafjarðarsveit virð-
ist í hörðum og óleysan-
legum hnút eftir að
bóndinn á Ytragili
skammt innan Akureyr-
ar lokaði gamla þjóðveg-
inum sem verið hefur
reiðvegur hestamanna
frá Akureyri að Hrafna-
gili undanfarin ár.
Hestamenn vildu marg-
ir hverjir láta hart
mæta hörðu og rífa nið-
ur girðingar bóndans
yfir veginn en niður-
staðan af fundi Hesta-
mannafélaganna Léttis
á Akureyri og Funa,
sem er hestamannafélag
í Eyjafjaröarsveit, varð
sú að fara dómstólaleið-
ina. Það athæfi bóndans
að loka gamla þjóðveg-
inum með girðingum
hefur þegar verið kært
og einnig hefúr verið
lögð fram stjórnsýslu-
kæra vegna aðalskipu-
lags Eyjafjarðarsveitar.
Þessir atburðir hafa
virkað sem olía á eld og
var þó ekki á bætandi
eftir áralangar deilur
þessara aðila um reið-
leiðir frá Akureyri að
Melgerðismelum. Þær
deilur má rekja allt aft-
ur til ársins 1974 og oft
hefur skorist illilega í
odda milli hestamanna,
bænda og sveitarstjórn-
armanna í framanverð-
um Eyjafirði á þessum
tíma.
Vaöa yfir allt
Hestamenn hafa undir höndum
bréf frá Vegagerð ríkisins sem heim-
ilar þeim afnot af gamla þjóðvegin-
um frá Akureyri að Hrafnagili en
þar er leiðin að Melgerðismelum
u.þ.b. hálfnuð. Afnot hestamanna af
gamla þjóðveginum hefur verið
bændum þyrnir í augum og það hef-
ur komið fyrir að hestamenn hafa
misst hross sín inn á tún bændanna.
„Sumir hesta-
mannanna telja
sig geta vaðið yfír
allt og alla, þeir
eru fáir á ferðinni
með mörg hross
sem þeir ráða ekki
við og hafa ítrekað
misst þau inn á tún,“ segir viðmæl-
andi DV úr röðum bænda en yfir
höfuð hafa bændur ekki viljað ræða
þessi mál við fjölmiðla og alls ekki
láta hafa neitt eftir sér undir nafni.
Deilan um þennan hluta reiðleið-
arinnar snýst um reiðleið þann hluta
ársins sem ekki er fært með hross
um austurbakka Eyjafjarðarár frá
brúnum yfir ána skammt frá Akur-
eyrarflugvelli að Hrafnagili en hesta-
menn segjast ekki geta notað þá reið-
leið nema yfir hásumarið og það
muni kosta milljónir, ef ekki milljón-
atugi, að byggja þá leið upp sem
heilsársleið. Þeir verði því að nota
gamla þjóðveginn að Hrafnagili á
þeim árstíma þegar leiðin með bökk-
um Eyjafjarðarár sé ófær.
Óvild bænda
Frá Hrafnagili að Melgerðismelum
er hægt að ríða eftir bökkum Eyja-
fjaröarár en bændur sem eiga land
að ánni þar hafa harðneitað hesta-
mönnum um leyfi til að fara þar um
og hefur oft komið til snarpra orða-
skipta þar vegna þess. „Það er ekkert
annað en óvild bænda gagnvart
hestamönnum sem ræður þessari af-
stöðu þeirra, þarna væri auðvelt að
girða af reiðleið meðfram ánni og
myndi engan skaða,“ segir einn við-
mælandi DV úr röðum hestamanna.
Hestamenn eiga
því ekki annarra
kosta völ en að
fara um þjóðveg-
inn frá Hrafnagili
að Melgerðismel-
um, annaðhvort
að austan- eða
vestanverðu í firðinum, með tilheyr-
andi slysahættu.
Kraumar í mönnum
Báðir aðilar hafa lagt fram tillögur
að lausn á hluta deilunnar. A.m.k.
sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hef-
ur lagt til að opinber reiðvegur frá
Akureyri að Laugalandi verði með-
fram Eyjafjarðará að austanverðu,
þaðan verði síðan farið fram fjörðinn
að austanverðu. Hestamenn harð-
neita þessu, segja þessa leið ekki
færa nema yfir hásumarið. Þeir hafa
á móti boðist til að fara aðeins um
gamla þjóðveginn með „bundin
hross" en ekki rekstra. Tillögur um
lausnir á leiðinni frá Hrafnagili að
Melgerðismelum eru hins vegar fáar
ef nokkrar.
Þetta mál er allt hið erfiðasta enda
kraumar nú í mönnum eftir áralang-
ar deilur og illindi. Ýmislegt hefur
verið reynt til að bæta samskiptin og
Fréttaljós
Gylfi Kristjánsson
Litir: Metalic Silve
Blá/svart MetalÍC ViÖFellsmúla
Rautt Metalic Sími 588 7332
Mánud.
OPIÐ:
- föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14
koma á einhverjum sáttaum-
leitunum. M.a. er vitað um bein
afskipti einstakra ráðherra af
málinu en árangurinn er ná-
kvæmlega enginn. Þessi deila
virðist í fastari hnút en nokkru
sinni fyrr og úr þessu ekki ann-
að líklegra en að dómstólar og
e.t.v. önnur yfirvöld muni
þurfa að beita sér í málinu.
Landsmót að ári
Hestamenn í Eyjafirði verða
gestgjafar á Landsmóti hesta-
manna á Melgerðismelum á
næsta ári. Reiðvegadeilan getur
ekki komið í veg fyrir það móts-
hald en gæti vissulega sett strik
í reikninginn hjá mörgum þeim
sem vilja koma ríðandi til móts-
ins.
„Það mun verða sveitar-
stjórnarmönnum í Eyjafirði og
einstaka bændum þar tU ævar-
andi skammar og háðungar ef
ekki tekst að leysa þessa deUu
þannig að reiðleiðamálin verði
komin í lag þegar að mótinu
kemur. Það er óskiljanlegt að
sveitarstjómin, sem hefur lagt
fram fjórar miUjónir króna tU
uppbyggingarinnar á Melgerð-
ismelum vegna mótsins, ætli
um leið að bregða fæti fyrir
okkur með óbUgjarnri afstöðu
sinni í þessu reiðvegamáli og
halda áfram að ala á andúð í
garð hestamanna," sagði einn
hestamanna sem DV ræddi við.
Þessi orð lýsa e.t.v. betur en
margt annað þeirri hörku sem
er í málinu. -gk
iFjaltahjól 97
Sérstakt sumartilboð!