Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1997, Qupperneq 22
42
MIÐVIKUDAGUR 9. JULI 1997
Afmæli
Guðjón Runólfsson
Guðjón Runólfsson, bókbands-
meistari, til heimlis að Minni-
Grund, Blómvallagötu 10, Reykja-
vík, er níræður í dag.
Starfsferill
Guðjón fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann stundaði nám
við Iðnskólann í Reykjavík, lærði
bókband hjá foður sínum og lauk
sveinsprófi 1931. Þá stundaði hann
framhaldsnám í Fagskólanum í
Kaupmannahöfn 1937.
Guðjón starfaði hjá Sophus
Serensen í Kaupmannahöfn 1937 en
eftir að hann kom heim hóf hann
störf við Landsbókasafnið þar sem
hann starfaði síðan allan sinn
starfsaldur.
Guðjón var gjaldkeri ÍR 1938, rit-
ari Félags bókbandsiðnrekenda í
eitt ár og sat í prófnefnd í bókbandi
um árabil og var formað-
ur hennar.
Fjölskylda
Guðjón kvæntist 16.5.
1931, Kristínu Maríu
Gísladóttur, f. 1.9. 1909, d.
31.8.1972, húsmóður. Hún
var dóttir Gísla Kaprasí-
ussonar trésmiðs, og
Guðnýjar Eiríksdóttur
húsmóður.
Börn Guðjóns og Krist-
ínar Maríu eru Gísli
Hauksteinn, f. 12.7. 1931,
flugumferöarstjóri í Garðabæ,
kvæntur Þuríði Jónsdóttur, umsjón-
arkonu Listdansskóla íslands og
eiga þau fimm böm; Margrét, f. 19.8.
1932, húsmóðir í Reykjavík, gift
Herði Ágústssyni, verkstjóra við ál-
verið í Straumsvik og eiga þau sex
böm; Runólfur, f. 13.11.
1935, forstjóri í Vogum á
Vatnsleysuströnd en
kona hans er Inger Gréta
Stefánsdóttir húsmóðir
og á hann tvö böm frá
fyrra hjónabandi með
Steinþóru Jóhannesdótt-
ur.
Systkini Guðjóns: Guð-
mundur Runólfsson, f.
6.6. 1906, d. 23.8. 1966,
lengst af trésmiðameist-
ari í Reykjavík en síðast
á ísafirði; Sigriður Sól-
veig Runólfsdóttir, f. 16.5. 1909, d.
1967, búsett á ísafirði og í Reykja-
vík; Guðný Runólfsdóttir, f. 3.10.
1913, d. 2.2. 1980, húsmóðir í Reykja-
vik; Unnur Runólfsdóttir, f. 19.5.
1918, búsett í Reykjavík; Sigurbjörg
Runólfsdóttir, f. 4.2. 1921, búsett í
Reykjavík.
Foreldrar Guðjóns voru Runólfur
Guðjónsson, f. 7.4. 1877, d. 23.2.1942,
bókbindari og forstöðumaður í
Reykjavík, og k.h., Margrét Guðrún
Guðmundsdóttir, f. 4.2. 1880, d. 5.6.
1942, húsmóðir.
Ætt
Foreldrar Runólfs vom Guðjón
Jónsson, bóndi í Laxárholti og í
Hjörsey á Mýrum, og f.k.h., Guðný
Jóhannsdóttir.
Foreldrar Margrétar vom Guð-
mundur Guðmundsson, b. á Brúar-
enda, og k.h., Sigríður Eyjólfsdóttir
frá Snorrastöðum en þau bjuggu í
Melshúsum í Reykjavík.
Guðjón verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Guðjón Runólfsson.
Sigurður Óskarsson
Sigurður Óskarsson, lög-
giltur fasteigna- og skipa-
sali, Stakkhömmm 17,
Reykjavík, er sextugur í
dag,
Starfsferill
Sigurður fæddist að
Seljavöllum undir Austur-
Eyjafjöllum og ólst þar upp
til sextán ára aldurs. Hann
lauk landsprófi frá Héraðs-
skólanum að Skógum 1953,
stundaði nám í Finnlandi
1955-56, lauk stúdentsprófi
frá Fjölbrautaskóla Suðurlands 1990
og prófi sem löggiltur fasteigna- og
skipasali 1993.
Sigurður stundaði verslunarstörf
hjá Kaupfélagi Rangæinga og Kaup-
félagi Hafnfirðinga 1956-61. Hann
stofnaði þá, ásamt Sigurði Marinós-
syni, Sælgætisgerðina
Mónu, og var fram-
kvæmdastjóri hennar
til 1965. Þá flutti Sigurð-
ur á Hellu á Rangárvöll-
um þar sem hann stofn-
aði og rak Efhagerðina
NeU til 1971.
Sigurður varð fram-
kvæmdastjóri verka-
lýðsfélaganna í Rangár-
vaUasýslu 1974, var for-
maður Verkalýðsfélags-
ins Rangæings 1986-92
og formaður Alþýðu-
sambands Suðurlands 1986-91.
Hann rekur nú, ásamt fjölskyldu
sinni, fasteingasöluna Eignaval,
Suðurlandsbraut 16.
Sigurður sat í miðstjórn ASÍ
1988-92, var fyrsti varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Suðurlands-
kjördæmi 1979-83, sat í miðstjóm
flokksins 1978-89, var m.a. formaður
Verklýðsráðs Sjálfstæðisflokksins
1978-89, formaður atvinnumála-
nefndar RangárvaUasýslu 1977-87
og situr í stjórn HoUustuvemar
ríkisins frá 1988.
Fjölskylda
Eiginkona Sigurðar er Eygló Guð-
mundsdóttir, f. 23.9. 1935. Hún er
dóttir Guðmundar Magnússonar,
bónda i Austurhlíð í Biskupstung-
um, og k.h., Elínar Ólafsdóttur hús-
freyju.
Synir Sigurðar og Eyglóar eru
Sveinn Óskar, f. 27.7. 1968; Elís Ant-
on, f. 15.3. 1971, báðir búsettir í
Reykjavík.
Synir Sigurðar af fyrra hjóna-
bandi era Stefán, f. 25.1.1957, búsett-
ur í Garðabæ og á hann tvo syni;
Róbert Friðþjófur, f. 18.9. 1960, bú-
settur á Akureyri og á hann tvær
dætur.
Stjúpbörn Sigurðar era Guð-
mundur Ingi, f. 31.3.1954, búsettur í
Reykjavik og á hann fimm böm;
Ragnheiður Guðný, f. 12.4. 1960, bú-
sett i Reykjavík og á hún þrjú böm.
Bræður Sigurðar: Rútur, f. 3.3.
1930, nú látinn; Jón, f. 11.6.1932, bú-
settur á Hellu; Ásbjörn Rúnar, f.
12.3. 1946, búsettur í Fosstúni undir
Austur-Eyjafjöllum; Ástvar Grétar,
f. 22.4.1950, búsettur að Seljavöllum.
Foreldrar Siguröar vora hjónin
Óskar Ásbjörnsson, f. 11.9. 1902,
bóndi á Seljavöllum, og Anna Jóns-
dóttir, f. 16.10.1907, húsfreyja.
Sigurður verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Sigurður
Óskarsson.
Agnar Þór Hjartar
Agnar Þór Hjartar, sölustjóri hjá
Bílanausti hf., Hvassaleiti 157,
Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Agnar fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í Smáíbúðahverfinu. Hann
lauk gagnfræðaprófi frá Réttarholts-
skóla, stundaði síðan nám við Versl-
unarskólann og lauk þaðan prófum.
Agnar hóf störf hjá Véladeild SÍS
í Ármúla 1965 og starfaði hjá SÍS í
tuttugu og sjö ár, lengst af sem
deildarstjóri i varahlutadeild. Hann
starfaði síöan skamma hríð hjá Vél-
um og þjónustu, síðan
hjá Bilaumboðinu, stund-
aði eigin rekstur um
skeið en hóf síðan störf
hjá Bílanausti hf. þar
sem hann starfar enn.
Fjölskylda
Agnar Þór kvæntist
19.4. 1969 Guðrúnu Önnu
Antonsdóttur, f. 21.12.
1948, bankastarfsmanni
við Landsbanka íslands.
Hún er dóttir Antons
Högnasonar sem lést 1973 og Önnu
Katrínar Jónsdóttur, hús-
móður í Reykjavík.
Synir Agnars Þórs og
Guðrúnar Önnu era
Hörður, f. 14.8. 1969, raf-
virki í Reykjavík; Hauk-
ur, f. 21.6. 1977, mennta-
skólanemi i Reykjavík.
Hálfsystur Agnars Þórs,
sammæðra, búsettar hér
á landi, eru Magnea Sig-
rún, f. 18.4. 1951, búsett i
Kópavogi; Hanna Þórunn,
f. 7.7. 1966, búsett í
Reykjavík; Áróra Hrönn, f. 5.10.
Agnar Þór Hjartar.
1970, búsett í Reykjavík.
Þá á hann tvo hálfbræður og eina
hálfsystur, samfeðra, sem búsett eru
í Bandaríkjunum.
Foreldrar Agnars Þórs: William
R. Catron, f. 14.8.1926, d. í nóvember
1962, tannlæknir frá Kentucky í
Bandaríkjunum, og Birna Björns-
dóttir, f. 16.9. 1927, húsmóðir,
Agnar Þór og Guðrún Anna era
erlendis á afmælisdaginn.
Einar Sigurjón Bjarnason
Einar Sigurjón Bjamason flug-
virki, Tungubakka 12, Reykjavík, er
fertugur í dag.
Starfsferill
Einar Sigurjón fæddist í Reykja-
vik. Hann stundaði barnaskólanám
í Kársnesskóla, lauk gagnfræðaprófi
frá Þinghólsskóla í Kópavogi, stund-
aði nám í málmiðnaðardeild Iðn-
skólans I Reykjavík í eitt ár, stund-
aði nám í flugvirkjun við Spartan
School of Aeronautics í Tulsa í
Bandaríkjunum og lauk þaðan próf-
um 1979.
Einar Siguijón var til sjós 1973,
Nýr umboðsmaður
Skagaströnd
Kjartann Bjarnason - Eyri - Sími 452-2636
1974 og 1979, starfaði í
Bandaríkjunum að námi
loknu til 1981, vann í
hlaðdeild Flugleiða
1981- 82, var flugvirki hjá
Landhelgisgæslunni
1982- 86, var tlugvirki hjá
Flugleiðum 1986-89 og
siðan aftur hjá Landhelg-
isgæslunni 1989 þar sem
hann hefur starfað síðan.
Fjölskylda
Eiginkona Einars er El-
ín Þóra Sverrisdóttir, f. 24.5. 1959,
húsmóðir og starfsmaður Reykja-
víkurborgar. Hún er dóttir Sverris
Gíslasonar múrarameistara og Ólaf-
íu B. Bjarnadóttur húsmóður.
Börn Einars og Elínar Þóru era
Birna María Einarsdóttir, f. 1981;
Einar Sigurjón
Bjarnason.
Karen Inga Einarsdóttir,
f. 1985; Bjami Einarsson,
f. 1988;Einar Valur Ein-
arsson, f. 1991.
Systkini Sigurjóns eru
Ingibjörg Bjarnadóttir, f.
1952, skrifstofumaður,
búsett í Kópavogi; Amdís
Bjarnadóttir, f. 1955,
sjúkraþjálfari, búsett í
Reykjavík; Guðrún Björk
Bjarnadóttir, f. 1962,
hjúkrunarfræðingur í
Kópavogi; Ásmundur
Bjamason, f. 1966, tölvun-
arfræðingur í framhalds-
námi í Álaborg.
Foreldar Einars Sigurjóns: Bjami
Einarsson, f. 1923, d. 1990, leigu-
bífreiðastjóri hjá BSR, og María Sig-
urjónsdóttir, f. 1928, sjúkraliði í
Kópavogi.
Til hamingju
með afmælið
9. júlí
85 ára
Soffia Þorsteinsdóttir,
Birkimel 6 A, Reykjavík.
Lára Ágústsdóttir,
Lönguhlíð 3, Reykjavík.
75 ára
Björn G. Bergsson,
Austurbyggð 17, Akureyri.
70 ára
Sigursteinn Marinósson,
Faxastíg 9, Vestmannaeyjum.
Þóra Þorvaldsdóttir,
Suðurhólum 4, Reykjavík.
Haukur Ingimarsson,
Engimýri 4, Akureyri.
Guðmundur Bjarnason,
Hólabraut 4,
Höfn í Homafirði.
Sigríður Þórðardóttir,
Bergstaðastræti 73, Reykjavik.
60 ára
Fanney Sumarliðadóttir,
Víkurbakka 4, Reykjavík.
Bjarnar Kristjánsson,
Skipholti 9, Reykjavík.
Katrín Björk Friðjónsdóttir,
Hraunsvegi 13, Njarðvík.
Magnús Ólafsson,
Grundargötu 2, ísafirði.
50 ára
Ólafur V. Sigurðsson,
Asparfelli 8, Reykjavík.
Sigurður Þórðarson,
Álfheimum 28, Reykjavík.
Gígja Snædal,
Dagverðareyri,
Glæsibæjarhreppi.
40 ára
Úlfur Þórarinn Ólafsson,
Barmahlíð 35, Reykjavík.
Kristján Björn Bjamason,
Grænumýri 4, Akureyri.
Sigurjóns Ámason,
Dalalandi 8, Reykjavík.
Benedikt Hjartarson,
Freyjugötu 42, Reykjavik.
Gunnar Jakobsson,
Stapasíðu 15 E, Akureyri.
Hafdis Hrönn Ottósdóttir,
Lækjarhjalla 16, Kópavogi.
Oddur Ólafsson,
Skipasundi 69, Reykjavík.
Sigríður Sigurðardóttir,
Mánatröð 5, Egilsstöðum.
Eygló Haraldsdóttir,
Akurholti 14, Mosfellsbæ.
Marel Nycz,
Kríuhólum 4, Reykjavík.
Þorsteinn Karl Eyland,
Vitastíg 11, Reykjavík.
staögreiösiu-
og greiðslukorta-
afsláttur og
stighœkkandi
birtingarafsláttur
Smáauglýsingar
550 5000