Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1997, Page 2
LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997 DV"
★ *
fréttir
Klæðning hf. stendur í ýmsum framkvæmdum:
Höfuðstöðvarnar
seldar á uppboði
- reksturinn er í góðum málum, segir Gunnar Birgisson framkvæmdastjóri
Uppboð á höfuðstöðvum Klæðn-
ingar hf. fór fram í síðustu viku.
Húseignin, sem er við Vesturhraun
5 i Garðabæ, var slegin fjármögnun-
arfyrirtækinu Lýsingu hf. fyrir 61,5
milljónir króna. Lýsing var með veð
í 5. og 6. veðrétti hússins en þar fyr-
ir aftan er fjöldi veðhafa sem nú
missir þær tryggingar.
Brunabótamat Vesturhrauns 5,
sem er 1500 fermetrar að flatarmáli,
er samkvæmt upplýsingum frá VÍS
rúmar 120 milljónir króna. Líklegt
söluverð hússins er þó talið vera
um eða innan við helming þeirrar
upphæðar ef miðaö er við fermetra-
verð sem er á bilinu 30 til 40 þúsund
krónur. Til marks um það má nefna
að íslandsbanki býður ekki í sinn
veðrétt sem er næstur á eftir Lýs-
ingu. Þar er um að ræða milljón
króna skuld sem trygging dettur nú
undan. Meðal þeirra veðréttarhafa
sem missa veð sín, verði nauðung-
arsalan samþykkt, eru stórir aðilar
á borð við Búnaðarbankann,
Byggðastofnun, íslandsbanka og
Iðnlánasjóð.
Höfuðstöövar Klæöningar hf. í Garðabæ hafa veriö seldar á nauöungaruppboöi. Fjármögnunarfyrirtækiö Lýsing hf.
hreppti hnossið þegar þaö bauö í sinn veörétt. Eftir stendur aö fjöldi veöréttarhafa missa nú tryggingar sínar.
DV-mynd ÞÖK
Meðlagaskuldir
Innheimtustofnun sveitarfélaga
er meðal þeirra sem nú missa sitt
veð. Þar er um að ræða gamlar með-
lagaskuldir sem nema samkvæmt
heimildum DV allt að tveimur millj-
ónum króna. Um er að ræða fjár-
muni sem Klæðning hf. hefur dreg-
ið af starfsmönnum, eða svokallað
vörslufé.
Guðmundína Ragnarsdóttir, lög-
maður stofnunarinnar, staðfestir að
ekki séu lengur tryggingar fyrir
skuldum fyrirtækisins nema að litlu
leyti.
„Við munum reyna nýtt íjámám
til að tryggja okkur. Fari fram ár-
angurslaust fjámám þá er orðinn
grandvöllur til að krefjast gjald-
þrotaskipta,“ segir hún.
Gunnar I. Birgisson, fram-
kvæmdastjóri Klæðningar, segir
uppboðið engan veginn tU marks
um að fyrirtækið eigi í erfiðleikum.
Þvert á móti sé reksturinn í góðu
lagi.
í góöum málum
„Það er allur okkar rekstur í góð-
um málum. Mér sýnist eftir fyrstu 6
mánuðina að það stefni í hagnað,“
segir Gunnar. Hann kvaðst ekki
vUja tjá sig um uppboðið sérstak-
lega en ítrekaði að rekstur Klæðn-
ingar væri nú kominn í lag eftir að
hafa gengið í gegnum svokaUaða
frjálsa nauðasamninga.
„Við emm búnir að borga okkar
samninga og ég held að við séum á
góðri siglingu,“ segir Gunnar.
Nauðasamningar þeir sem
Klæðning gekk í gegnum byggjast á
því að samið er í frjálsum samning-
um við einstaka lánardrottna. Það
sem um semst fer ekki tU þinglýs-
ingar eins og gerist þegar um er að
ræða nauðasamninga. Þannig er
það einkamál viðskiptavinar og lán-
ardrottins um hvað semst.
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði stóð
fyrir uppboði hússins en kærufrest-
ur rennur út þann 21. júlí.
Tvö stórverkefni
Klæöning hf. er með tvö stór-
verkefni í gangi á vegum ríkis og
sveitarfélaga. Annars vegar er um
að ræða þvemn GUsfjarðar en hins
vegar snjóUóðavamir ofan Flateyr-
ar. Gunnar segir bæði verkin vera í
góðum gangi og unnið sé aUan sól-
arhringinn við þveran Gilsfjarðar.
„Við eram á undan áæUun með
GUsfjörðinn og vel gengur með snjó-
Uóðavarnir ofan Flateyrar. Það
verður hleypt umferð á Gilsfjörð 1.
desember en ég reikna með að hægt
verði að aka þessa leið um helgar og
þegar við erum ekki að vinna við
framkvæmdina," segir Gunnar.
Ólafur Helgi Ólafsson, fram-
kvæmdastjóra Lýsingar, sagöist, að-
spurður um uppboðið, ekki geta tjáð
sig um einstök málefni fyrirtækis-
ins.
-rt
„Víkingarnir" notuðu vélarafl
DV, Höfn:
„Það var vont í sjóinn þeg-
ar við fórum frá Þórshöfri í
Færeyjum en batnaði þegar
komið var norður fyrir eyjam-
ar. EUir það var sléttur sjór,
aðeins undiralda en enginn
vindur. Skipin urðu að sigla
fyrir vélaraUi aUa leið og þeg-
ar 30-40 mUur voru eftir voru
seglin tekin niður," sagði
Svein Atii Hove, skipstjóri á
norska seglskipinu Draumen,
við komuna til Hafhar í
Homafirði.
Skipalestin sem sigldi inn á
Homafjörð í gærmorgun var
Vlkingarnir Svein Atli Hove, Johann Fögerheim og leiö-
angursstjórinn Ole Stenbakk viö komuna til Hafnar.
DV-mynd Júlfa
talsvert minni en í upphafr var
áætiað. Aðeins 11 skip komust
alla leið en í fyrstu var talað um
100 skip. Svein Atli sagði að
ferðin hefði gengið vel og engin
óhöpp orðið. Um sex manns em
á hveiju skipi og af þeim tóku 25
sér far með Norrænu frá Þórs-
höfn til Seyðisfjarðar. Þar um
borð vom margir ættingjar
skipveijanna ásamt hópi Norð-
manna sem ætia á Víkingahátíð.
Flest em skipin frá V-Noregi,
eitt skráð í Svíþjóð og eitt
danskt. Þau munu væntanlega
fara frá Homafirði nk. þriðju-
dag áleiðis til Þórshafnar í Fær-
eyjum. ji
4-liða úrslit bikarkeppninnar:
KR-ingar fara til
Akureyri:
Tígri á
göngugöt-
unni í dag
í tilefni Bamadaga á Akur-
eyri verður Tígri staddur í
göngugötunni á Akureyri í
dag. Hann verður þar ásamt
Umferðarráði og sýnir nýja
reiðhjólahjálminn og býður
hressum krökkum upp á ýmis-
legt góðgæti. Það veröur mikið
um að vera í göngugötunni,
meðal skemmtilegra uppá-
koma era atriði úr Latabæ,
: kassabílarallí, söngvakeppni,
„spinning“keppni, ratleikur og
margt fleira.
Dregið var í undanúrslitum Coca-
Cola-bikarkeppni karla og kvenna á
hótel Loftleiðum í gær. Það verður
spennandi að fylgjast með þessum
leikjum og fróðlegt að sjá hvort um
annað eins markaregn verður að
ræða líkt og í 8-liða úrslitunum.
ÍBV-KR
Hjá körlunum fá KR-ingar það erf-
iða hlutskipti að fara til Eyja og spila
við heimamenn.
„Við sættum okkur fyllilega við
þetta. Samkvæmt þessu verðum við
bara að klára þetta mót á útivelli og fá
engan heimaleik. Það er enginn beyg-
ur í KR-ingum, við unnum þá úti síð-
ast og gerum það bara aftur,“ sagði
Kristján Finnbogason, fyrirliöi KR-
liðsins, en leikurinn hefur verið sett-
ur á þann 9. ágúst kl. 16.00 en það gæti
þó breyst í samræmi við gengi KR-
inga í Evrópukeppninni.
Keflavík-Leiftur
Hinn leikurinn hjá körlunum verð-
ur viðureign heimamanna í Keflavík
og Leifturs.
„Við erum ánægðir meö að fá loks-
ins heimaleik, það er fyrir öllu. Ég
hefði síst viljað lenda i því að fara til
Ólafsfjarðar eða Eyja. Það er fint að
fá Leiftur í heimsókn en við komum
til með að spila nánast þijá leiki í röð
við þá þar sem liðin eiga saman
frestaðan leik,“ sagði Ólafur Gott-
skálksson, markvörður Keflvíkinga.
Leikurinn verður 10. ágúst kl.
17.00.
Ræningj-
arnir gáfu
sig fram
Mennimir tveir úr 10-11 rán-
inu sem höfðu verið eftirlýstir
hjá lögreglu í vikunni gáfú sig
fram í Hegningarhúsinu við
Skólavörðustíg i gær. Annar
kom um hádegisbil en hinn
skömmu síöar. Þeir kváðust
undanfarið hafa verið að sinna
fjölskyldumálum. Hins vegar
hafi þeir gefið sig fram þegar
þeir fréttu það um og fyrir há-
degi í gær að fjölmiðlar væra
að lýsa eftir þeim. Samkvæmt
upplýsingum DV voru þeir
fluttir austur á Litla-Hraun
síðdegis í gær.
Mönnunum var sleppt úr
gæsluvarðhaldi vegna 10-11
ránisins í fyrri hluta síðustu
viku þegar héraðsdómur ákvað
að skilyrði væra ekki fyrir
hendi um að framlengja gæslu-
varðhald þeirra. Á fostudag
fyrir síðustu helgi ákvað
Hæstiréttur hins vegar að þeir
skyldu sitja inni. Eftir það var
gefin út handtökuskipun á
hendur þeim. Að sögn Geir
Jóns Þórissonar, talsmanns
lögreglunnar í Reykjavík,
barst handtökuskipunin ekki
til embættisins fyrr en á mið-
vikudag. -Ótt
stuttar fréttir
Norrænn stjörnukíkir
íslendingar eru orðnir meðeig-
endur að norræna stjömusjónauk-
anum, en hann er á eynni La Palma
í Kanaríeyjaklasanum. Háskóla-
rektor undirritaði nýlega samstarfs-
samning um sjónaukann.
Sýningu flýtt
Ákveðiö hefúr verið að flýta ís-
lensku sjávarútvegssýningunni
vegna þess hve vel hún hefúr geng-
ið síðan henni var hleypt af stokk-
unum 1984. Sýningin hefur veriö
haldin á þriggja ára fresti og næsta
sýning átti að verða 1999 en verður
þess í stað 1998.
Mannfjöldadagur
Mannfjöldadagur SÞ var í gær en
kjörorð dagsins var heilsuvemd og
réttur til kynlífs og tengdist eyðni-
smithættu og ótímabærum bam-
eignum unglinga.
Landsmót ungliða
Um helgina fer fram landsmót
ungliðadeilda Slysavamafélagsins í
Grindavík. Um 470 ungmenni taka
þátt í mótinu og æfa m.a. fjölbreytt
björgunarstörf og leitaraðferðir.
Skeljungur styrkir
Skeljungur hefúr veitt um 140
skógræktarstyrki til skógræktar-
félaga og einstaklinga. Þeir ein-
staklingar sem styrk hljóta eru
að rækta skóglendi sem samtals
er yfir 5000 hektarar að flatar-
máli.
Nýtt farsimakerfi
Póstur og simi hf. hefúr í haust
tilraunir með nýtt farsímakerfi fyr-
ir þéttbýli sem taliö er að verði
ódýrara í rekstri en GSM-kerfið.
-SÁ
Eyja
Bikarmeistarar fá heimaleik
„Þetta gæti ekki verið betra og ég
held að það verði toppleikur á milli
Blika og KR-inga í úrslitum. Við
lentum í því að tapa um daginn og
ætium aö láta það duga næstu
árin,“ sagði Sigfríður Sophusdóttir,
fyrirliði Blikastelpna, þegar ljóst
var að bikarmeistaramir fá lið ÍBV
í heimsókn. í hinum leiknum mæt-
ast lið Vals og KR á Hliðarenda en
báðir leikirnir fara fram 29. júlí kl.
19.00. -ÖB