Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1997, Blaðsíða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1997, Blaðsíða 49
TX%T LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997 )gsonn 57 Listakonan Elísabet Ó. Guö- mundsdottir ásamt máluöum konum. Myndlist á Nellys Café Nú stendur yflr málverkasýn- ing á veitingahúsinu Nelly’s Café. Það er ung listakona að nafni Elísabet Ó. Guðmundsdótt- ir sem stendur fyrir sýningunni sem ber heitið Stundarbrjálæði. í kvöld verður einnig haldið ljóða- kvöld á Nelly’s Café. Þar koma fram listamennimir Mike Poll- ock, Birgitta Jónsdóttir, Andri Snær, Davíð Stefánsson, Magnús Geirsson, Björgvin ívar Guð- brandsson og Sigtryggur Magna- son. Þýsk list í Hafnarborg í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarijarðar, hefur verið opnuð myndlistarsýning á verkum þýska listmannsins Wulfs Kirschners. Wulf Kirschner hefur haldið sýningar víða um heim, m.a. í Bandaríkj- unum, Kína, Japan, Póllandi, Frakklandi og Ástralíu. Sýningin í Hafnarborg var fyrst sett upp í Oldenburg í Þýskalandi á síðast- liðnu ári. Á sýningunni má m.a. finna verk sem unnin eru úr list- um úr abakviði sem lagðir eru lag við lag. Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 12 til 18 fram til 21. júlí. Myndlist Norsk list í Sverrissal í Sverrissal Hafnarborgar eru sýnd verk Nönnu Paalgard Pape. Nanna er lektor í list- og hand- verksgreinum við kennaradeild Óslóarháskóla. Á sýningunni notar hún trommur likar þeim sem Shamanar nota við seið sinn. Nanna vill endurvekja grundvallaratriði og heimssýn gömlu völvanna og byggir starf sitt á gildum þeirra. Með henni í fór er hópur kvenna sem ásamt Nönnu munu beita trommunum við seið í tengslum við víkinga- hátíðina í Hafnarfirði. Myndlist á Stokkseyri í dag verður opnuð myndlist- arsýning á kaffihúsinu Við fjöru- borðið á Stokkseyri. Þar mun listamaðurinn Gunnar Gránz sýna tuttugu myndverk sín. Verkin eru unnin með olíu, vatnslitum og akrýl. Sýningin er opin á sama tíma og kaffihúsið. Gengið Almennt gengi LÍ 11. 07. 1997 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollpenfli Dollar 70,290 70,650 71,810 Pund 118,630 119,240 116,580 Kan. dollar 51,150 51,470 51,360 Dönsk kr. 10,4860 10,5410 10,8940 Norsk kr 9,5710 9,6230 10,1310 Saensk kr. 9,0630 9,1130 9,2080 Fi. mark 13,4560 13,5360 13,8070 Fra. franki 11,8380 11,9060 12,3030 Belg. franki 1,9346 1,9462 2,0108 Sviss. franki 48,0000 48,2600 48,7600 Holl. gyllini 35,4600 35,6700 36,8800 Þýskt mark 39,9300 40,1400 41,4700 it. líra 0,041000 0,04126 0,04181 Aust. sch. 5,6750 5,7100 5,8940 Port. escudo 0,3956 0,3980 0,4138 Spá. peseti 0,4729 0,4759 0,4921 Jap. yen 0,623000 0,62670 0,56680 írskt pund 107,030 107,690 110,700 SDR 97,180000 97,76000 97,97000 ECU 78,6900 79,1600 80,9400 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270 Vætusamt sunnanlands í dag má búast við suðaustanátt, víðast golu eða kalda - súld eða rignmgu um sunnanvert landið, en úrkomulitlu veðri og öllu bjartara um landið norðanvert. Hiti 10 til 15 Veðrið í dag stig sunnanlands en allt að 20 stig á Norðausturlandi að deginmn. Á höf- uðborgarsvæðinu er gert ráð fyrir austan- og suðaustangolu - rigningu eða súld í kvöld og nótt en úrkomu- litlu á morgun. Hiti á bilinu 10 tO 15 stig. Almennt séð verður fremur vætu- samt sunnanlands og vestan um helgina en fremur hlýtt og lengst af sæmilega bjart veður norðaustan til. Framan af næstu viku lítur út fyrir hæglætisveður víða með þoku eða súld við sjóinn. Inn til landsins verður víðast úrkomulaust og sums staðar léttskýjað. Sólarlag i Reykjavík: kl. 23.56. Sól- arupprás í Reykjavík: kl. 03.00. Síð- degisflóð í Reykjavík: kl. 22.48. Ár- degisflóð á morgun: kl. 12.20. Veðrið kl. 12 á hádegi í gær: Akureyri skýjaö 17 Akurnes v skýjaö 15 Bergsstaðir rigning 15 Bolungarvík skýjaö 11 Egilsstaöir skýjaö 20 Keflavíkurflugv. rigning 11 Kirkjubkl. alskýjað 11 Raufarhöfn skýjaö 13 Reykjavíic súld 12 Stórhöföi þokumóöa 10 Helsinki skýjaö 18 Kaupmannah. léttskýjaö 22 Ósló skýjaö 24 Stokkhólmur skýjaö 17 Þórshöfn þoka 10 Amsterdam skýjaö 25 Barcelona rign. á síð.kls. 24 Chicago skýjaö 17 Frankfurt skýjaö 25 Glasgow mistur 17 Hamborg léttskýjaö 24 London skýjaö 19 Lúxemborg léttskýjaö 24 Malaga heiöskírt 27 Mallorca skýjaö 27 París léttskýjaö 27 Róm léttskýjaö 25 New York hálfskýjaö 21 Orlando skýjað 24 Nuuk rign. á síö.kls. 8 Vín rigning 18 Winnipeg heiöskírt 20 Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns hóf tónleikaferð sína um landið um síðustu helgi með tón- leikum í Ýdölum í Aðaldal. Nú liggur leiðin hins vegar á Suður- landið. í kvöld mun Sálin leika á stóra sviðinu í Inghóli á Selfossi. | Reggae on lce Hljómsveitin Reggae on Ice er komin aftur til landsins okkar kalda eftir að hafa sólað sig og Skemmtanir spilað á hinni sólríku eyju Mall- orca um síðustu helgi. í kvöld geta ungmenni á Hvammstanga glaðst því Reggae on Ice mun í kvöld leika á unglingadansleik þar. Viðar Jónsson á Kringlukránni Stefán Hilmarsson þenur raddböndin í kvöld. í kvöld milli kl. 22 og 3 leikur trúbadorinn Viðar Jónsson í leik- stofu Kringlukrár. í aðalsal sveitin Léttir sprettir uppi ekta Kringlukrárinnar heldur hljóm- kráarstemningu í kvöld. Ýta frá landi Myndgátan hér aö ofan lýsir lýsingarorði. Aðalleikendurnir í Moröi í Hvíta húslnu. Morð í Hvíta húsinu Bióborgin hefur tekið til sýn- : ingar spennumyndina Morð í Hvíta húsinu. Söguþráður mynd- arinnar er á þá leiö að lögreglu- ; maðm-inn Harlan Regis, sem leik- inn er af Wesley Snipes, er kallað- ur til Washington eftir að kona fmnst myrt í Hvíta húsinu. í leit sinni að lausn málsins er Regis : blekktur, leiddur í gildru og ýms- ir háttsettir embættismenn innan ríkisstjórnarinnar vilja hann feigan. Svo virðist sem forsetafjöl- skyldan sé flækt í málið sem snýst um spillingu, samsæri og svik. En Regis ætlar sér að kom- ast til botns í málinu og allt í einu berst honum óvænt hjálp frá Kvikmyndir leyniþjónustukonunni Ninu Chance sem leikin er af Diane Lane. Með hennar hjálp tekst Regis loks að svipta hulunni af svikurum sem halda hlífiskildi : yfir morðingjanum. Þar með hef- ur hann stofnað lífi sínu og leyni- I þjónustukonunnar í hættu og eiga þau fótum sínum fjör að launa. Aðalleikari myndarinnar, Wesley Snipes, er m.a. þekktur fyrir leik sinni í háspennumynd- unum Demolition Man, Passen- ger 57, Rising Sun og The Fan. Leikstjóri er Dwight Little. Nýjar myndir: Háskólabíó: Skotheldir Laugarásbíó: Men in Black Kringlubfó: Ýktir endurfundir Saga-bíó: One Fine Day Bíóhöllin: One Fine Day Bíóborgin: Morö í Hvíta húsinu Regnboginn: One Fine Day Stjörnubió: Men in Black Sjóvár-Almennra deildin í dag eru tveir leikir í fyrstu deild kvenna. Leiknir Fáskrúðs- flrði og Höttur eigast við á Fá- skrúðsfjarðarvelli kl. 14 og Ein- herji og Sindri á Vopnafjarðar- velli kl. 14. í annarri deild karla er einn leikur. Það keppa lið Ægis og Þróttar Neskaupstað á Þorlákshafnarvelli kl. 14. Einnig má minna á að í dag leikur Leift- ur frá Ólafsfirði við tyrkneska liðið Samsunspor i Evrópukeppni félagsliða. Leikurinn fer fram í Tyrklandi. Iþróttir Á morgun eru fjórir leikir í Sjóvár-Almennra deildinni. ÍA og ÍBV leika á Akranesi, Grindavík og Valur í Grindavík, Fram og Keflavík í Laugardalnum og Stjarnan og KR á Stjörnuvelli. Einn leikur er í kvennaknatt- spyrnunni á morgtm. Lið ÍBA og KR leika í Stofndeildinni á Akur- eyrarvelli. Allir leikimir hefjast kl. 20.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.