Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1997, Blaðsíða 13
UV LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997
13
Myndgátuhöfundur DV selur skopmyndir til útlanda:
Virðist alltaf fá
hugmyndir
- segir Eyþór Stefánsson
„Það er nauðsynlegt að vera sí-
fellt að skrifa hjá sér hugmyndir. Ég
ferðast mikið innanlands á sumrin
og þá er ég alltaf með blokkina til-
búna til þess að rissa upp minnisp-
unkta. Ef ég er of upptekinn við
akstur og vil ekki glata hugmynd
sem ég hef fengið bið ég konuna
gjarna að rita hjá sér einhverjar lín-
ur. Ég er stundum spurður að því
hvort ég verði ekki uppiskroppa
með hugmyndir en svo er ekki. Ég
sest niður ákveðinn í því að setja
eitthvaö á blað og hugmyndimar
virðast bara koma,“ segir Eyþór
Stefánsson, kennari, tónlistarmaður
og myndlistarmaður, í samtali við
DV. Hann er nú farinn að selja
skopteikningar um víða veröld.
kannski myndu vilja hina. PIB sér
svo um að selja myndimar eitthvað
og ég veit ekki enn hvort eitthvað er
farið að birtast,“ segir Eyþór.
Hann var í mörg ár að spila á gít-
ar með Sumargleðinni og í þeim
hópi segir hann að aldrei hafi skort
hugmyndir að góðu efni. Nú er
hann að spila með hljómsveitinni
Vanir menn og siglir á skútu einu
sinni í viku.
Siglingar og gítar
„Það er nauðsynlegt að líta upp úr
teikningunum og spilamennskan og
siglingamar eru góð afslöppun. Mér
sýnist ég vel geta lifað af þessu en það
er líka gefandi að vera í kennslunni
og öllu hinu. Það verður gaman að sjá
hvort eitthvert frekara framhald verð-
ur á sölu á efhi út í heim og ætli ég
bíði ekki bara rólegur eftir því hvern-
ig það verður," segir Eyþór Stefáns-
son, aðspurður hvort hann ætli sér
eitthvað frekar að róa á hin erlendu
mið. -sv
1853 myndgátur í DV
Eyþór hefur í 1853 skipti teiknað
myndgátur í DV, eða í ein sjö ár.
Hann segist ekki muna til þess að
fallið hafi úr dagur.
„Upphafið að þessu var að ég lék
mér að því að rissa upp svona gátur
þegar ég var í námi í Ósló. Þá var
alltaf bunki á borðinu hjá mér og ég
notaði þetta gjama sem gestaþraut.
Síðan eftir að ég byrjaði að kenna í
FB stungu krakkamir upp á því að
ég færi með þetta í blöðin. Það var
þá eitthvert málræktarátak í gangi
og ég hafði þá í nokkurn tíma byrj-
að kennslustundimar á þvi að setja
teikningu á töfluna. Ég bað krakk-
ana að hugsa um hana í tímanum
og stundum náðu þeir að ramba á
rétta orðið."
Tvíræða brandara
Eyþór segist í nokkum tíma hafa
safnað hugmyndum að mynda-
Eyþór Stefánsson er farinn að selja skopmyndir til Danmerkur eftir að hafa
teiknað myndgátu í DV i sjö ár.
€yTHOR-
JÓI ER ÚTI A0 HLAUPA MED
HUNDINN.“
bröndurum og nú fyrir nokkru hafi
hann látið verða af því að senda
eitthvað á annað hundrað stykki út
til Danmerkur til þess að kanna hug
væntanlegra kaupenda.
„Ég sendi bæði saklausa brand-
ara og aðra sem em svona i tvíræð-
ari kantinum. PIB í Danmörku tók
hugmyndum mínum vel, valdi þær
saklausari og benti mér á aðra sem
0 □ f
'
----exThor—*
„ÍSeiRNIR SÝNA OFT MIKLA
HUGKVÆMNI VID VEIDAR.“
„PAP VAR TIMI TIL KOMINN AD ALLT
PETTA RÚGSRAUDSÁT PITT KÆMI
AD NOTUM.“
„HUNDA- OG KATTAATHVARFID,
GÓÐAN DAG!“