Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1997, Blaðsíða 27
jLlV LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997
fpéttaljós 21
Arum saman hefur Camilla Park-
er Bowles verið hötuð í Bretlandi.
Bretar hafa sakað hana um að
hafa breytt hjónabandi Díönu
prinsessu og Karls Breta-
prins, sem hófst með ævin-
týralegu brúðkaupi, í
martröð skilnaðar.
Camilla, sem verður
fimmtug í næsta
mánuði, hefur verið
svívirt í fjölmiðl-
um. Ástarsamband
Camillu og Karls
skelft
þjóðina
hrifið
hefur
bresku
en þó
hana um leið.
Og nú kann að
vera að þjóð-
in fari að
vingast við
Camillu.
í tveim-
ur þáttum
í breska
Þáttaskil
sjonvarpmu
um síðustu
helgi var mögu-
leikinn á hjóna-
bandi Karls og
Camillu ræddur
af alvöru.
„Það er ekki það ákjósanleg-
asta að Karl og Camilla gangi í
hjónaband en það væri betra
en samband utan hjóna-
bands,“ sagði erkidjákninn
af Jórvík, Georg Austen, í
umræðuþætti breska sjón-
varpsins BBC um framtíð
sambands Karls og
Camillu. „Ég held að
það sé grundvöllur fyr-
ir því að menn sætti
sig við að Karl kvænist
á ný, jafnvel þó að það
sé ekki til fyrirmyndar
þegar konungur á í hlut,‘
hætti Austen við.
Jákvæður tónn í breskum fjölmiðlum í garð ástkonu Karls Bretaprins:
Oskipulöpð
og blátt
áfram
- möguleikinn á hjonabandi Camillu og Karls ræddur af alvöru
I umræðuþætti BBC tóku þátt
stjórnmálamenn, stjórnarskrársér-
fræðingar og kirkjunnar menn. Um-
ræðuþættinum var sjónvarpað
sama kvöld og klukkustundarlang-
ur heimildarþáttur um Camillu var
sýndur og var litið á hann sem
þáttaskil.
Þó svo að engar afhjúpanir hafi
verið gerðar og að engin samvinna
hafi verið við Camillu eða nána vini
hennar brá þátturinn upp mynd af
Hittust fyrst 1971
Camilla og Karl hittust fyrst 1971
en eftir tveggja ára ástarsamband
þeirra giftist hún liðsforingjanum
Andrew Parker Bowles. í örlagariku
sjónvarpsviðtali árið 1994 játaði
Karl að þau hefðu endurnýjað ástar-
samband sitt. Hann sagði það hins
vegar ekki hafa verið fyrr en hjóna-
band hans og Díönu hefði verið far-
Ástarsamband sem
skók heimsveldið
Ekki hafa heyrst neinar getgátur
um að Karl muni afsala sér krún-
unni til að geta gengið að eiga ást-
konu sína eins og föðurbróðir hans
gerði fyrir rúmum sex áratugum.
Ástarsamband Játvarðs VIII. og
Wallis Warfield
Simpson skók þá
breska heimsveld-
ið. Hún var banda-
rísk og hafði verið
tvigift. Játvarður
varð konungur í
janúar 1936 eftir lát
föður síns, Georgs
V. Hann sat þó
ekki lengi í hásæt-
inu. í desember
sama ár afsalaði Játvarður sér
krúnunni vegna andstöðu stjórn-
málamanna og almennings við fyr-
irhugað hjónahand hans og Simp-
son. í júní árið eftir gengu Játvarð-
ur og Simpson, sem fengu titlana
hertoginn og hertogaynjan af
Windsor, í hjónaband og fluttu til
Parísar.
Bretar voru rækilega minntir á
þetta fræga ástarsamband í vikunni
er uppboðsfyrirtækið Sotheby’s til-
kynnti að innanstokksmunir heim-
ilis þeirra i París og meira að segja
fatnaður og ástarbréf færu á uppboð
í New York í september. Eigandi
safnsins er Egyptinn Mohamad A1
Fayed, eigandi Harrodsverslunar-
innar i London og Ritzhótelsins í
París.
Hafa gengið
í gegnum helvíti
Það virðist sem tímarnir hafi
ekki mikið breyst frá því að Ját-
varður og Wallis Simpson stóðu í
haráttu sinni. Charles Benson, eini
„vinur“ Camillu, sem þátt tók í um-
ræðuþætti BBC um síðustu helgi,
hvatti Breta til að láta af hræsni
sinni og gera ekki aðrar kröfur til
Karls og Camillu en þeir gera til
sjálfra sin. „Mér finnst að þau eigi
rétt á því að eigast. Þau hafa gengið
í gegnum helvíti. Hvers vegna mega
þau ekki njóta hamingju?" spurði
Benson.
Karl og Camilla halda áfram að
hittast. Þau halda kvöldverðarhoð
saman fyrir vini sína og fjölmiðlar
hafa greint frá því að Karl ætli í
fyrsta sinn í frí með Camillu síðar á
árinu.
Byggt á Reuter
Játvarður VIII. afsalaði sér krúnunni til að ganga að eiga ástkonu sína, Wall-
is Warfield Simpson.
konu sem almenningur, sem enn er
miklu fúsari til að umfaðma hina
glæsilegu Díönu, er sagður hafa gert
rangt til.
Á mánudaginn kvað svo við nýj-
an tón í bresku dagblöðunum í garð
Camillu sem aldrei hefur tjáð sig op-
inberlega um ást sína á Karli eða
kvartað undan umfjöllun fjölmiðla.
Hagar sér af háttprýði
Einn greinahöfunda, Ingrid
Seward, sem ritstýrir tímaritinu
Majesty magazine, skrifaði í Daily
Mail að vissulega væri kominn tími
til að skoða málið í nýju ljósi. Menn
ættu að gera sér grein fyrir því að
Camilla væri eina manneskjan í ást-
arþríhyrningnum sem hefði hagað
sér af háttprýði.
Seward vísaði því á bug að sjón-
varpsþættirnir væru liður í tilraun
Karls og vina hans til að koma Cam-
illu í mjúkinn hjá almenningi.
„Það er líklegra að það hafi verið
orðið tímahært að fjalla um þessa
skemmtilegu, sterku konu sem er
miðpunktur ástar Karls,“ skrifaði
Seward jafnframt.
ið út um þúfur.
Þó svo að Díana hefði sjálf ári
seinna játað á sig hjúskaparbrot
með liðsforingjanum James Hewitt
dugði það ekki til að milda reiði
bresks almennings í garð Karls og
Camillu. Karl og Diana skildu fyrir
ári og Camilla er einnig skilin.
Hingað til hefur Díana átt alla sam-
úð þjóðarinnar.
Penny Junor, sem ritað hefur
ævisögu Karls, segir fáar konur
hafa verið jafn alvarlega og ódrengi-
lega dæmdar og Camilla.
„Hin raunverulega Camilla lætur
skoðanir sínar í ljós og hlær hátt og
lengi þegar henni þykir eitthvað
skemmtilegt. Hún er ekki með
neina sýndarmennsku eða klæki.
Hún er svolítið. óskipulögð,
skemmtilega blátt áfram í öllu sínu
æði og hefur engan áhuga á tísku.“
Karl hefur gefið til kynna að
hann hafi alls ekki i hyggju að gefa
Camillu upp á hátinn þrátt fyrir að
niðurstöður skoðanakannana hafi
hingað til sýnt að almenningur sé
andvígur því að hún verði drottn-
ing.
Nýtt úrval mfedifjö I dann
allan af fróölegu ógf^^
rskempitilegu efni m.a.:
*aÁ^7fá bónjjann í