Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1997, Síða 4
LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997 JLíV
* fréttir
"k '^r
Olíufélögin reka 49 bensínstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og von á fleirum:
Fjárfestingar upp á
tæpan milljarð í fyrra
- mesta hagnaðarvonin sögð liggja í matvöruverslununum
Á síðustu tveimiu- árum hefur
næstum hver einasta bensínstöð
olíufélaganna í landinu verið bætt
og endurbyggð. Nokkrar nýjar
hafa líka bæst við. Síðan hafa oliu-
félögin þrjú verið að setja upp mat-
vöruverslanir í stærstu bensín-
sölustöðvunum.
Á höfuðborgarsvæðinu einu eru
49 bensínstöðvar. Skeljungur rek-
ur 18, síðan á fyrirtækið hlut í
Orkunni sem er með 2 stöðvar og
eina stöð reka Skeljungur og Olís
saman.
Olíufélagið hf. Esso, rekur 14
bensínstöðvar og Olís er með 11
stöðvar undir eigin merki og 3
undir merkinu OB.
Samtals fjárfestu olíufélögin fyr-
ir tæpan einn milljarð króna á ár-
inu 1996 samkvæmt ársreikning-
um þeirra. Olís fyrir um 420 millj-
ónir, Skeljungur 365 milljónir og
Esso fyrir 219 milljónir króna.
Ekkert lát hefur verið á upp-
byggingu bensínstöðva á þessu ári.
Að auki eru fyrirhugaðar nokkrar
nýjar stöðvar. Öll olíufélögin eru
búin að tryggja sér lóðir í Smára-
hverfinu í Kópavogi, þar sem þau
ætla að byggja hvert sína bensín-
stöðina. Ofan á þetta bætist svo
uppsetning á sjálfsafgreiðslustöðv-
um, þar sem um er að ræða dælur
og þak yfir þær. Eina slíka ætlar
Olís að byggja við Snorrabrautina
í Reykjavík.
Talsmenn olíufélaganna, sem
DV hefur rætt við, segja að aliur
þessi flöldi bensínstöðva sé nauð-
synlegur. Viðskiptavinirnir eigi
ekki að þurfa að standa í biðröð
eftir afgreiðslu.
Talsmennirnir segja jafnframt
að svo lítil álagning sé á bensínið
að nauðsynlegt sé að koma upp
matvöruverslunum á bensínstöðv-
unum. Þar sé álagningin í lagi og
því hagnaðarvon.
Spurningunni um hvers vegna
bensínverðið sé upp á krónu það
sama hjá öllum félögunum, þegar
um þjónustustöðvar er að ræða,
segir Einar Benediktsson, forstjóri
Olís, að hvergi í heiminum þekkist
mismunandi verð á bensíni í sama
borgarhluta. Því fari fjarri að um
samræmdar aðgerðir olíufélag-
anna sé að ræða. -S.dór
Fjárfestingar olíufélaganna:
Viðsát-
um eftir
- segir Einar Benediktsson, Olís
„Á liðnum árum hefur Olís dregist aftur úr hvað
varðar endumýjun á og fjölgun bensínstöðva á höf-
uðborgarsvæðinu. Það vita allir að fyrirtækið gekk
í gegnum ákveðna erfiðleiktíma sem urðu þess vald-
andi að það gat ekki haldið í við þróunina hvað við-
kom endurnýjun, endurbætur og tækni. Þess vegna
erum við að vinna okkur nú út úr áralangri við-
haldsþörf. Við sátum eftir,“ segir Einar Benedikts-
son, forstjóri Olís, í samtali við DV um fjölgun bens-
ínstöðva og fjárfestingar Olís.
Hann segir að fyrirtækið hafi byggt eina fullbúna
bensínstöð síðan 1970. Hún er við Sæbraut. Hins
vegar hafi fyrirtækið staðið í endurbótum og breyt-
ingum á eldri bensínstöðvum vegna breyttra
áherslna í rekstri.
„Vegna minnkandi álagningar á bensín og olíu
erum við að efla sölu á almennum neysluvörum í
verslunum stöðvanna. Síðan höfum við verið að
byggja upp OB-benínstöðvar. Þær eru svar við kröf-
um markaðarins um ódýrara besín hjá sjáifsaf-
greiðslustöðvum. Með þeim erum við einnig að
svara því að við höfum verið afskiptir í gegnum
árin hvað varðar lóðaúthlutanir hjá Reykjavíkur-
borg. Það er ekki fyrr en nú síðustu misserin að
okkar hlutur hefur verið réttur,“ segir Einar.
Hvað varðar fjármögnun á þessum miklu fram-
kvæmdum sagði Einar að félagið hefði farið á fjár-
magnsmarkaðinn i fyrra og tekið 300 milljóna króna
lán. Og framkvæmdimar í ár yrðu fjármagnaðar
með nýju láni. -S.dór
Cfi Ódýrt
Olíuverslun íslands hf.
laglö hf. Orkan
bensin
Skeljungur hf. Olíufélaglö hf
Bensínstöðvar
irara
Tilheyrir
nútímanum
- segir Þórir Haraldsson, Skeljungi
„Það má segja að við höfum
verið að vinna við endurbætur á
öllum okkar bensínstöðvum. Hins
vegar er stigsmunur á því hversu
víötækar þær endumýjanir hafa
verið. Við erum að koma upp
verslunum með nauösynjavörum
á nokkmm bensínstöövanna.
Álagning á bensín og olíu er lág
og því fara menn út í verslana-
reksturinn. Þar er álagning allt
önnur og því telja menn að vaxt-
arbroddurinn felist í að selja fólki
vörar með meiri álagningu en er
á bensíni og olíu. Það gerir okkur
kleift að halda uppi þeirri þjón-
ustu sem viö viijum bjóða upp á,“
sagöi Þórir Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri rekstrarsviðs Skelj-
ungs.
Hann bendir á að til þess að
mega setja upp verslanir á bensín-
stöövunum verði olíufélögin að
vera með húsnæði sem uppfylli
allar þær reglur og skyldur sem
opinberir aðilar setja fyrir rekstri
slíkra verslana.
„Ég held að málið snúist ekki
beint um það. Spumingin sem ol-
íufélögin standa frammi fyrir er
hvað þau geta fengið viðskiptavin-
ina til að standa lengi í biðröö eft-
ir bensínafgreiðslu. Þegar maður
horfir á þann bílafjölda sem er á
bak við hverja bensínstöð á
Reykjavíkursvæðinu og ber sam-
an við það sem gerist í nágranna-
löndunum þá eru mun fleiri bílar
bak við hverja bensinstöö hér.
Eins vill fólk geta keypt nauð-
synjavörur um leið og það kaupir
bensín á bílinn. Þetta er bara nú-
tíminn," sagði Þórir Haraldsson.
-S.dór
Bensínverö og matvöruverslun:
Olíufélögin eiga í
mikilli samkeppni
- segir Geir Magnússon, forstjóri Olíufélagsins Esso
„Ef við miðum við önnur lönd
erum við ekki með of margar bens-
ínstöðvar. Við erum enn með um 4
þúsund manns á hverja bensínstöð
en víðast í Evrópu era það um 2.500
manns. Ég skal viðurkenna að ef
leyft verður að byggja allt það sem
talað er um í Smárahvammslandinu
er það um of á einum bletti. Það má
eiginlega tala ym skipulagt stjóm-
leysi að hrúga svona mörgum stöðv-
um saman í þeirri miklu samkeppni
sem er á milli olíufélaganna," sagði
Geir Magnússon, forstjóri Olíufé-
lagsins hf. Esso, í samtali við DV.
Hann segir að Esso hafi ekki
byggt bensínstöð á nýjum stað síðan
1994. Lóðir imdir bensínstöðvar hafi
ekki legið á lausu í Reykjavík. Alla
vega hafi Esso gengið illa að fá þar
lóðir.
Geir var spurður um samkeppn-
ina í ljósi þess að sama bensínverð
væri hjá öllum olíufélögunum á
þjónustustöðvunum?
„Verð í samkeppni leggst alltaf á
lægsta verðið. Við eram með
margs konar verð í innkaupi. Þvi
getur eitt olíufélaganna verið með
mun minni álagningu en annað,
þótt útsöluverðið sé 77,50 kr. á
bensínlítra hjá öllum, hafi inn-
kaupsverðið verið hærra. Þetta
gerist oft,“ segir Geir.
Varðandi þá miklu samkeppni
sem komin er upp milli olíufélag-
anna í matvöruverslim segir Geir
Magnússon:
„Það vita allir sem ferðast til út-
landa að þróun á bensínstöðvum
hér á landi hefúr orðið á eftir. í ná-
grannalöndum okkar eru flestar
bensínstöðvar orðnar eins og
kaupmaðurinn á hominu. Nú hef-
ur orðið sú stefhubreyting hjá heil-
brigðisyfirvöldum að segja við
okkur að við verðum að hafa sama
hreinlæti og aðrar verslanir sem
höndla með matvöra. Þess vegna
þurfti að endumýja húsnæði stöðv-
anna til að mæta þessum kröfum.
Og nú þegar þetta er komið verður
samkeppnin auðvitað harðari en
nokkru sinni,“ segir Geim. -S.dór