Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1997, Side 28
2> ihélgarviðtalið
LAUGARDAGUR 12. JULI 1997
í faömi fjölskyldunnar á Skaganum. Guöjón og eiginkona hans, Hrönn Jónsdóttir, meö synina Atla, 9 ára, og Tjörva, 7 ára, á milli sín. Að baki þeim stendur
Leó Jóhannsson, 16 ára, fóstursonur Guöjóns og sonur Hrannar. DV-myndir PÖK
Spurning um ráttu
blönduna
Ekki hefur skort spekingana í stúk-
una þegar landsliðið hefur spilað og
þjálfaramir í raun mörg hundruð.
Meðal þeirra kenninga sem hafa verið
uppi er að íslenska landsliðið geti
ekki stjórnað leik gegn sér lakara liði
eða álíka að getu. Því gangi best gegn
stóru þjóðunum. Guðjón blæs á þetta
og vitnar til sinnar reynslu með fé-
lagslið í Evrópukeppni. íslenskt lands-
lið geti hæglega verið í hlutverki leik-
stjórnanda. Þetta sé fyrst og fremst
spurning um rétta blöndu leikmanna
í liðinu og hugarfar þeirra.
„Máli skiptir að þeir sem eru vald-
ir í liðið séu tilbúnir að vinna þá
vinnu sem beðið er um. Meiningar
geta komið upp um hvort þessi eða
hinn eigi heima í landsliðinu eða
ekki. Það ræður úrslitum að þeir
menn sem inn á völlinn fara séu til-
búnir að vinna saman, hjálpa hver
öðrum og gera sitt allra besta,“ segir
Guðjón og telur okkur eiga nóg af góð-
um leikmönnum sem uppfyUa þessar
kröfur.
Stöðnun í landsliðinu
Guðjóni finnst ákveðin stöðnun
hafa ríkt í síðustu leikjum landsliðs-
ins. Hann segist ekki vera í aðstöðu
til að útskýra af hverju. Eitthvað
hafi greinilega verið að.
„Það er mitt verkefni að kafa ofan
í það mál. Komast inn í kollinn á
strákunum til að skynja hvert
ástandið er. Eitthvað er þess eðlis að
þeir hafa margir hverjir ekki náð að
sýna sitt besta. Ef menn eru beygðir
yfir því hvernig þeir hafa verið að
spila þá verð ég að reyna að byggja
upp sjálfstraustið. Koma þeim í
skilning um að það sé hægt að spila
betri fótbolta en þeir hafa verið að
gera.“
„Mér líst ágætlega á þetta nýja
verkefni. Ljóst er að það verður mjög
kreíjandi. Þetta er stærsti hópur
leikmanna sem ég hef getað valið til
þessa. Jafnframt því að hafa mikið
úrval manna þá eru margir erflðleik-
ar því samfara. Margir eru mjög
jafnir að getu. Ákveðinn hópur leik-
manna stendur jöfnum fæti og þess
vegna er það happdrætti að velja þá
réttu í þann farveg sem ég vil. Mikil-
vægt er að vel takist til og það er
ljóst að menn eru ekki mjög þolin-
móðir. Jafnframt er ljóst að verkefn-
ið er stórt. Það er ekki hægt að
klappa saman lófunum og segja
„hott, hott, allir mínir menn“ og að
þar með verði allt klárt," segir Guð-
jón Þórðarson, nýráðinn landsliðs-
þjálfari i knattspymu.
Helgarblaðsmenn hittu hann í vik-
unni þar sem hann var að koma sér
í gang á nýrri og glæsilegri skrif-
stofu KSÍ undir stóru stúkunni á
Laugardalsvelli. Að mörgu er að
hyggja því um næstu helgi fer fram
fyrsti landsleikur undir hans stjórn,
gegn eigi ómerkara liði en Norð-
mönnum. Leikurinn er háður i til-
efni af 50 ára afmæli KSÍ á árinu.
Hann segist ekki vera búinn að velja
liðið, það verði tilkynnt eftir helgi,
eftir að hann hefur séð nokkra leiki
hér heima, síðast stórleik fA og ÍBV
á morgun. Guðjón segir það sérlega
ánægjulegt að fá Norðmenn til lands-
ins. Við getum margt af þeim lært i
boltanum, sem og fleiri Norður-
landaþjóðum.
Guðjón tekur sem kunnugt er við
af Loga Ólafssyni sem sagt var upp á
dögunum. Þegar Logi var ráðinn á
sínum tíma var nafn Guðjóns einnig
í umræðunni sem arftaka Ásgeirs El-
íassonar. Guðjón neitar því ekki að
forráðamenn KSÍ hafi þá rætt við
sig. Logi hafi einfaldlega þótt betri
kostur og verið ráðinn. í dag skipti
þetta sig engu.
Hindrun rutt úr vegi
Mikið gekk á í viðræðum Guðjóns
við KSÍ áður en hann var ráðinn um
síðustu helgi. í veginum var óútkljáð
deila um starfslok Guðjóns hjá
Skagamönnum en þar var honum
sagt upp í fyrra. Guðjón telur ÍA
ekki hafa staðið við þann samning
sem hann gerði við félagið. Hindrun-
inni var rutt úr vegi með því að
skipa sérstakan gerðardóm með full-
Guðjón Þórðarson, nýráðinn landsliðsþjálfari, segist veri
fjölskylda hafi ekki orðið fyrir neinu
áreiti og þeim líði vel á Skaganum.
Sit á grillteini
Guðjón gerir sér fyllilega grein fyr-
ir að í stöðu landsliðsþjálfara, þar sem
áhangendumir em í raun landsmenn
aOir, séu kröfúrnar mun meiri en í fé-
lagsliði. Hann orðar þetta svo að hann
sitji nánast á grillteini.
„Forverar mínir í starfmu hafa að
sumu leyti fengið að vera í friði. Ég
veit ekki hvort gerðar verða meiri
kröfur til mín en þeirra. Það er bara
þannig að miklar kröfur hafa
ætíð verið gerðar til
mín í starfi. Menn
verða að gera sér grein
fyrir að vinnan er ekki
auðunnin og hún skiptir
miklu máli. Einnig skiptir
máli að það sé skilningur á
hvernig verið er að reyna að
vinna. Segja má að ég sé að
þessu leyti ólíkur bæði Loga
og Ásgeiri. Ég hef ákveðinn stíl
sem ég mun áreiðanlega reyna
að framfylgja. Allir erum við ólík-
ir, mennirnir, og nýjum manni
fylgir ný áhersla.“
Aðspurður um stílinn segist Guð-
jón hafa reynt að sameina ákveðna
kosti í fótbolta, einkum ánægjuna og
árangurinn. Ekki verði stefnt að ár-
angri öðruvísi en að hafa gaman af
hlutunum.
„Ég hef lagt áherslu á að kenna
mínum mönnum að leika fallega
knattspyrnu, að gleðja augu áhorfan-
dans, og tel mér hafa tekist þetta
ágætlega á köflum. Þetta ætla ég að
hafa að leiðarljósi í landsliðinu sem
hingað til. Fara með fullu sjálfstrausti
í leikina," segir Guðjón.
trúum beggja aðila, með KSÍ-mann
sem oddaaðila. Niðurstaða dómsins
verður endanleg. Guðjón segist vera
fyllilega sáttur við þessa lausn á mál-
inu.
„Ef ég hefði verið með striðsöxina
á lofti hefði ég fyrir löngu verið bú-
inn að leita réttar míns fyrir dóm-
stólum. Ég var alltaf að vonast til að
menn gætu sest niður og klárað sín
mál í friði og ró. Miklu skiptir að
þessi fótboltaheimur standi saman,
ekki bara í fótbolta heldur íþrótta-
vinir almennt. Við vitum hvað
íþróttir gera fyrir land og þjóð. í
litlum heimi sem fótboltinn hér á
landi er þá þurfum við að geta
unnið saman,“ segir Guðjón.
legur. Ég er búinn að eiga glæstan
feril hjá ÍA, líklega glæstari en þeir
menn í félaginu sem stóðu að upp-
sögn minni. Auðvitað voru þetta viss
vonbrigði en allir verða fyrir von-
brigðum í lífinu. Ef maður væri
alltaf að velta því fyrir sér þá kæm-
ist maður ekkert áfram.“
Hann segist eiga fullt af góðu fólki
að á Akranesi. Þögli meirihlut-
inn láti ekki alltaf í sér
heyra. Hann og
hans
Varð fyrir von-
brigðum
Hann vill svo sannar-
lega leggja deiluna við
ÍA til hliðar; telur
reyndar að það hafi
verið gert. Hann við-
urkennir hins vegar
af hreinskilni, að-
spurður, að fram-
koma stjórnar ÍA
hafi valdið sér
vonbrigðum
miðað við þá
vinnu sem
hann hefur
skilað til fé-
lagsins. ÍA sé
enn að njóta
góðs af þeirri vinnu.
„Allir vita að stjórnar-
menn í félögunum koma og fara líkt
og leikmennirnir. Upp úr stendur
fótboltinn sjálfur. Enginn er ódauð-
Ekki tengilið í bakvörð
Stundum hefur það sætt gagnrýni í
landsliðinu að leikmenn hafa verið
settir i aðrar stöður en þeir leika
með sínum félagsliðum. Guðjón segir
þetta ekki einfalt mál en hann muni
hins vegar ekki fara að velja mann í
bakvarðarstöðu vegna þess að við- ,
komandi sé góður tengiliður í sínu
félagsliði.
„Stundum þarf að stilla upp stórri
og öflugri varnarlínu og stundum
léttleikandi mönnum í bland. Þetta
fer oftast eftir andstæðingunum.
Sama gildir um atvinnumennina.
Þeir eiga ekki fast sæti í liðinu bara
fyrir það að vera atvinnumenn. Þeir
veröa að sýna að þeir séu þess verð-
ugir að vera fulltrúar þjóðarinnar. Ef
við erum með stráka sem eru að spila
vel í deildinni hér heima þá finnst
mér nauðsynlegt að skoða af alvöru
hvort þeir eigi ekki að fá tækifæri.
Ég er á því að þeir sem ætla að spila
fyrir land og þjóð verði að vera í
formi allt árið. Leikmenn hér heima
verða að styrkja sinn þjálfunarþátt.
Það er ekki nóg að vera í toppformi
svo sem 2-3 mánuði á ári. Við verð-
um að breikka flóruna og auka kröf-
ur gagnvart líkamlegu atgervi. í al-
þjóðlegri knattspyrnu verður þú að
vera í alþjóðlegu formi ef svo má að
orði komast," segir Guðjón og bætir
við að hann muni ekki einblína á at-
vinnumennina eingöngu heldur fylgj-
ast vel með heimamönnum.
Spenna í vesturbænum
Varðandi það að fylgjast með leik-
mönnum hér heima þá þarf Guðjón