Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1997, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1997, Side 30
38 LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997 J Jzíjf1 SHM Dalirnir heilla DV, Vesturlandi: Dalasýsla nær frá Gljúfurá á Skógarströnd í GUsfjarðar- botn og eftir vatnaskilum þar á milli. Sýslan er með minni h é r u ð u m landsins að flatarmáli og eitt það mannfæsta. Landbúnaður, einkum kvikfjárrækt, hefur ætíð verið aðal atvinnuvegur Dalamanna. Dalasýslu má nálgast víða að. Frá Snæfellsnesi liggur vegur um Skóg- arströnd að Hörðudal. Frá Borðeyri við Hrútafjörð liggur vegur yfir Lax- árdalsheiði til Laxárdals. Frá Stein- grímsfirði liggur vegur yfír Steinadalsheiði til Gilsfjarð- ar. Frá Borgarfirði liggur vegur um Bröttubrekku í Sökkólfsdal. Nýverið sameinuðust allir hreppar i sýslunni, nema Saurbæjarhreppur, í einn hrepp Dalabyggð. Búðardal- ur er eini þéttbýlisstaðurinn i Dölum. Blágrýti er því næst eina bergtegundin í Dala- sýslu, eldhraun eru engin, fjöll hvorki há né brött nema helst út með Gilsfirði og Skarðssrtrönd og svo upp frá Haukadal og Hörðudal. komu sína á störfum tengdum land- búnaði og þjónustu við nágranna- byggðimar við innanverðan Breiða- fjörð. Listasafn Dalasýslu er í Búð- ardal. Þar er einnig mjólkursamlag og gisti- og veitingahúsið Bjarg. Jörfi í Haukdal er bær sem var landsþekktur fyrir gleðileiki og dansa sem þar voru haldnir fyrr á öldum. Vegna slæms siðferðis á hin- um síðustu áram Jörfagleðinnar var hún bönnuð með dómi á 18. öld. Hvammur er bær, kirkjustaður og prestssetur í Hvammssveit. Hann var eitt mesta höfuðból sýslunnar að fomu. Þar bjuggu meðal annars Auður djúpúðga og Hvamms-Sturla Þórðarson, ættfaðir Sturlunga. Þar fæddist Snorri sonur hans. Ólafsdalur er 5 kílómetra langur dalur á innanverðum Gilsfirði og gengur til suðurs. í dalnum er einn samnefndur bær, sem nú er í eyði. Þar stofnaði Torfi Bjamason fyrsta Ósvífur Helgason faðir Guðrúnar. A Laugum er jarðhiti og þar er Byggðasafn Dalamanna til húsa, stofnað árið 1977. Skarð er bær og kirkjustaður á Skarðsströnd. Hann hefur verið í eigu sömu ættarinnar lengur en nokkurt annað býli á íslandi eða frá því um 1100. Margt stórmenna hefur búið í Skarði þar á meðal Björn Þor- leifsson hirðstjóri, sá er Englending- ar drápu. Niður frá Skarði var talin ein besta höfn í Dalasýslu og þar var rekin verslun um skeið. Saurbæjarhreppur Eftir för um Tjaldaneshlíð undir Tjaldaneshymu (441 m) opnast bú- sældarlegt flatlendið í Saurbæ. Af- leggjari liggur niður að sjónum við Salthólmavík. Utan við víkina era Salthólmar og er talið að þeir dragi nafn af því að þar hafi verið unnið Merkir staðir og minjar Dalirnir hafa upp á ýmis- legt að bjóða fyrir ferða- menn. Náttúran er marg- breytileg, gönguleiðir marg- ar og sogustaðir víða. Veiði, hestamennska og söguganga á Laug- um er meðal þess sem ferðamanni er boðið að njóta í Dölum. Sá sem að ætlar í Dalina ætti að gefa sér góðan tíma til að skoða. Þar eru margir merkir staðir og söguminjar. Búðardalur er kauptún við innan- verðan Hvammsfjörð. Fyrsta íbúð- arhúsið í Búðardal var byggt 1899. íbúum bæjarins fjölgaði hægt á fyrri hluta aldarinnar og á síðustu ámm hefur íbúafjöldi staðið nokkuð í stað. Búðdælingar byggja meginaf- Staðarfell er fornt höfuðból og kirkjustaður á Meöalfellsströnd i Fellsstrandarhreppi. mæðraskóli var þar frá árinu1927 og starfræktur fram um 1976. Nú er rekin í húsum ans endurhæfingarstöð á vegum SAA. búnaðarskólann hér á landi, sem starfaði á árunum 1880-1907. Torfi var mikill forgöngumaður um land- búnað og var þeim hjónum reist minnismerki í Ólafsdal árið 1955. Sælingsdalur er gengur til norð- vesturs frá botni Hvammsfjarðar. Hann er að nokkru leyti vettvangur Laxdæla sögu. Þar eru svokallaðar Bollatóttir, rétt utan við Sælingsdal. Segir sagan að þar hafi Bolli verið veginn til hefnda eftir Kjartan Ólafs- son. Á Laugum í Sælingsdal bjó DV-mynd salt úr sjó. Á fjöm er gengt út í hól- mana og raunar langt út fyrir þá enda mikill munur á flóði og fjöru. Norðan og austan víkurinnar er Söl- vatangi en út frá honum eru einar bestu sölvafjörur landsins. Söl voru áður fyrr nýtt til matar í stóram stíl. í ósinn austan Sölvatanga falla veiðiámar Staðarhólsá og Hvolsá. Veiðileyfi fást í Fóðuriðjunni við mynni Gilsfjarðar norðan við Skriðuland. Á flatlendinu milli ánna stendur kirkja sveitarinnar á svokölluðum Kirkjuhól sem raunar hét Melrakka- hvoll eða Skollhóll áður. Var hún reist árið 1900 eftir sameiningu tveggja sókna. Kirkjan fauk af grunni sínum í ofviðri í febrúar 1981 en var endurreist árið 1982. Meðal merkra gripa kirkjunnar era altari- stafla frá árinu 1750 og sérstæður hringur úr kopar með ljónshöfði. Við kirkjuna er félagsheimilið Tjarnarlundur. Þar býðst svefn- pokapláss og við það era ágæt tjald- stæði. Mikligarður er næsti bær við Staðarhól en þar ólst Steinn Stein- arr skáld upp. Ágæta hringgöngu má velja kringum Þverfell (241 m) sem og upp á það en af Múlahyrnu nyrst á fjallinu er gott útsýni yfir Saurbæ. Fjallið Göltur er fyrir botni Staðarhólsdals. Vestan Galtar er Þverdalsgil en Traðardalsgil austan. Um gil þessi eða dali má halda til göngu á hæsta fjallið á þess- um slóðum, Hafratind (923 m). Þokkalegur vegur er allt að Kjarlaksvöllum sem er innsta býlið í byggð á þessum slóðum. Jeppaslóð heldur hins vegar áfram inn að mynni Hvammsdals en þar era eyðibýlin Hvammsdal- skot og Hvammsdalur. Upp úr Hvammsdal má ganga yfir í Sælingsdal. Er þá haldið upp með Hvammsdalsá og yfír Sælingsdalsheiði til Sæl- ingsdals. Af þessari leið er ekki langur krókur á Hrossa- borg en þaðan er gott útsýni. Að Hrossaborg er einnig jeppafær slóð úr Hvammsdal. Nokkru austan við Staðar- hólskirkju tengist hringleið- in fyrir Klofning þjóðbraut- inni vestur á firði. Bessa- tunga (Bersatunga) undir Bessatunguhyrnu (555 m) er efsti bær í Hvolsdal og því fyrsti bær sem komið er að þegar haldið er norður yfir Svínadal. í Bessatungu era friðlýstar minjar, Hoftótt á ávölum hól neðst í túninu austan til, Blótsteinn neðanundir hólnum og Akurgirðing framan í öðrum hól vestan til í túninu. Skammt norðan við vegamótin við Skriðuland er Efribrunná þar sem ferðaþjónusta er stunduð með hefðbundnum kúabúskap. Þar er leigt út sumarhús. Auk þess bjóðast herbergi á bænum sjálfum. -DVÓ Ur Djúpavík í Kúvíkur Á morgun verður gönguferð frá Djúpavik í Ámeshreppi á Ströndum í Kúvíkur og til baka aftur. Leiðsögumaður verður með í för. Farið verður frá Hót- el Djúpavík kl. 14 og í göngulok verður boðið upp á hressingu á hótelinu. Upplýsingar eru veitt- ar á Hótel Djúpavík í síma 451 4037. Reykjavegurinn Seinni hluti Reykjavegar verður farinn á vegum Útivist- ar dagana 20.-22. júlí. Þessi nýja gönguleið var farin í fyrsta sinn í fyrra í 8 áföngum í samvinnu við Ferðafélag íslands og naut mikilla vinsælda. Leiðin er ein- staklega falleg. Gangan hefst í Bláfjöllum. Fyrsta daginn er gengið að Kolviðarhóli og það- an yfir að Nesjavöllum og að lokum á Þingvelli þar sem göngunni lýkur. Laugavegurinn Útivist mun fara Laugaveg- inn dagana 22.-26. júlí. Brottför er kl. 8 og verður komið í Land- mannalaugar um hádegi. Sam- dægurs verður gengið upp í Hrafntinnusker og gist í skála. Farið verður að íshellunum. Næsta dag verður gengið að Álftavatni og gist þar i skála. Á þriðja degi er gengið suður Emstrur og gist í Botnum. Kvöldganga verður að Markar- fljótsgljúfri. Á fjórða degi er gengið suður Almenninga i Þórsmörk og endað í Básum. -VÁ Skagafjörður: Upplýsingamiðstöðin í nýtt húsnæði DV, Fljótum: Upplýsingamiðstöð fyrir ferða- menn var opnuð í Varmahlíð 17. júni. Upplýsingamiðstöð hefur verið starfrækt á þessum íjölfarna stað i nokkur ár en nú er hún komin í nýtt og sérstakt húsnæði sem byggt var einmitt fyrir þessa starfsemi. Það er Héraðsnefnd Skagfirðinga sem starfrækir upplýsingamiðstöð- ina. Starfsmenn eru tveir. Opið verður alla daga frá kl. 10 árdegis til kl. 9 á kvöldin til loka ágúst. Nýja húsnæðið í Varmahlíö er í þjóðlegum stíl. Helga Fanney Jóhannesdóttir, annar starfsmanna, sagði í samtali við fréttamann að þarna væri hægt að fá upplýsingar um nánast alla þjónustu sem í boði væri í héraðinu. Meðal þess sem nú bættist við frá árinu á undan og kæmi til með að vekja athygli væra Gilsstofan við Byggðasafnið í Glaumbæ, nýr veit- ingastaður á Hofsósi og risatjaldið Hálfdánarhringur við Lónkot í Sléttuhlíð. Auk margvislegra upp- lýsinga um héraðið verður þarna á boðstólum söluvamingur sem hand- verksfólk í Skagafirði og víðar fram- leiðir. Eins og áður er getið er húsnæðið sem verið var að taka í notkun allsérstakt og líklegt til að vekja at- hygli. Þama er um steinsteypt hús að ræða þó hvergi sjái í stein. Fram- hlið er klædd með timbri en aðrir veggir með torfl og sömuleiðis er torf á þaki. Það er Ferðasmiðjan ehf. sem stóð að byggingu hússins. -ÖÞ 4- ? ! ! ! ! ! Helga Jóhannesdóttir, starfsmaður í upplýsingamiðstöðinni í Varmahlið. DV-myndir Örn !

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.