Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1997, Side 33
LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997
imm
41
Hjólaði frá Akureyri til Reykjavíkur að loknu Pollamóti:
Glíma bakhlutans við
hnakkinn var strembin
- Gunnar þakklátur íslenskum ökumönnum fyrir að drepa sig ekki
„Mér fannst þetta ögrandi verk-
efni og skellti mér þess vegna í að
hjóla frá Akureyri til Reykjavíkur,"
sagði Gunnar V. Andrésson, ljós-
myndari og mikill áhugamaður
knattspymu, sund, hlaup og hvers
konar líkamsrækt, að ógleymdri
skíðaíþróttinni. Hann býr í Reykja-
vík en var staddur á Pollamótinu í
knattspyrnu sem haldið var nyrðra
á dögunum.
72 stundir með svefni og
hvíldum
Hvernig gekk svo ferðin á hjólinu?
„Þetta gekk alveg eftir vonum og
samtals var ég 72 klukkustundir og
er þá meðtalinn sá tími sem ég svaf
og hvíldi mig i Varmahlíð í Skaga-
firði, í Miðflrði og á Ferstiklu í Hval-
firði. Ég er ánægður með að hafa lát-
ið verða af því að fara en eftir á séð
var ég ekki nægilega vel undirbúinn
líkamlega,“ sagði Gunnar. „Þó ég sé
í góðri þjálfun bæði úr sundi, hlaup-
um og knattspyrnunni þá reyna hjól-
reiðarnar á aðra vöðva og líkams-
hluta og fyrir því fann ég hæði í við-
ureign bakhlutans við hnakkinn og
einnig í hásinunum. Ferðin sjálf var
í raun dásamleg, ein samfelld nátt-
úruskoðun alla leið, og fuglasöngur-
inn yfirgnæfði umferðarþytinn yfír-
leitt.
- Þú stundar mikið alls konar lík-
amsrækt - af hverju?
„Ég greindist með mjólkurof-
næmi um þritugsaldurinn og gekk á
milli lækna og rannsóknarstofnana
þess vegna lengi vel án árangurs. Að
lokum sagði læknirinn minn að
eina raunhæfa leiðin væri sú að
sneiða hjá mjólkurafurðum og
styrkja líkamann eftir mætti,
þannig að hann yrði sem hæfastur
til að takast á við þennan sjúkdóm.
Ég fór eftir þessum ráðum og hef
farið nánast daglega í sund og syndi
yfírleitt allt að 1000 metrum. Skokk
og götuhlaup var um árabil einhver
helsta tómstundaiðja mín og er að
hluta til enn þá, að ógleymdri knatt-
spyrnunni sem ég hef verið iðinn
við ásamt félögum mínum í Lunch
United."
- Hvað svo, er þetta skemmtilegt
eða árangursríkt?
„Já, svo sannarlega, þetta er í
fyrsta lagi bráðskemmtilegt og síðan
ég byrjaði að hreyfa mig markvisst
og reglulega hef ég hreinlega ekki
kennt mér neins meins. Og mjólku-
rofnæmið hefúr ekki angrað mig á
neinn hátt.“
- Svo við snúum okkar aftur að
ferðinni á hjólinu. Er þetta ekki
stórhættulegt eða sýna ökumenn
hjólreiðamönnum almennt tillits-
semi?
Takk fyrir að drepa mig ekki
„Ég tók fljótlega eftir því að þær
bifreiðir þar sem erlendir ökumenn
voru undir stýri sýndu fulla tillits-
semi og tóku mig á mínu hjóli eins
og hvem annan sjálfsagðan vegfar-
anda með full réttindi og skyldur í
umferðinni. Um íslensku ökumenn-
ina marga hverja var hins vegar
ekki hægt að segja það sama. Að
vísu má segja að ef það telst tillits-
semi að drepa mig ekki þá voru þeir
svo sem tillitssamir. En þeir drógu
allt of oft ekkert úr hraðanum þeg-
ar þeir fóru fram úr mér og oft kom
það fyrir að þeir óku fram hjá um
leið og þeir mættu bifreið úr gagn-
stæðri átt eða jafnvel í sama mund
og þeir voru að fara fram úr
annarri bifreið. Sá ökumaður sem
er mér þó minnisstæðastur er sá
sem ók mig uppi þar sem ég var að
fara yfír brú. Hann kom nokkuð
hratt fast að mér á brúnni og flaut-
aði frekjulega. Ekki veit ég hvort
hann ætlaðist til að ég lyfti mér upp
þannig að hann kæmist strax áfram
eða taldi eðlilegt að ég varpaöi mér
samstundis yfir brúarriðið og í
ána,“ sagði Gunnar V. Andrésson
að lokum.
Gunnar V. Andrésson á reiðhjólinu að lokinni 72 stunda ferð frá Akureyri til
Reykjavíkur. DV- mynd E.ÓI.
55 km ofurmaraþon um „Laugaveginn" 26. júlí nk.:
Ævintýraferð um snjó,
ís og jarðhitasvæði
- mikill alþjóðlegur áhugi og sannir þolhlaupakappar af báðum kynjum bíða óþreyjufullir
//l(U!l)háfci ll!lí
fyrir Reykjavíkur maraþon 1997
Vika 5 10 km 21 km 42 km
7.til 13. júlí Mánudagur 8 km rólega 10 km rólega 12 km rólega
Priðjudagur Hraöaleikur eöa Hraöaleikur eöa Hraöaleikur eöa
áfangaþjálfun áfangaþjálfun áfangaþjálfun
Miðvikudagur Hvíld 8 km rólega 10 km rólega
Fimmtudagur 10 km vaxandi 14 km vaxandi 18 km vaxandi
Föstudagur Hvíld eöa Hvild eöa Hvíld eöa
6 km rólega 8 km rólega 8 km rólega
Laugardagur 20 mín.rólega 20 mín.rólega 30 mín.rólega
og hraðaæfing og hraðaæfing og hraðaæfing
Sunnudagur 8-14 km rólega 12-20 km rólega 20-26 km rólega
Hra&aleikur: Hlaupa rólega í 10 mín., síöan til skiptis hraöar í 3 mín. og rólegt skokki í 3 mín. endurtekiö
5 sinnum, rólega 10 mín. í lokin(hraöari kaflarnir séu á 10 km keppnishraöa eöa hraöar).
Vaxandi: byrja rólega en auka hraöann eftir u.þ.b. 10 mín. og, halda góöum hraöa.
Hraöaœfing: 5 x 300 m meö 300 m rólegu skokki á milli. Hraöinn sé talsvert meiri en
langhlaupshraöi en alls ekki sprettur fullri ferö.
Áfangaþjáifun: Rólegt upphitunarskokk í 15 mín og 6x600 m meö 200 m skokkhvíld _
(Hraöi: 10 km keppnishraöi eöa hraöar). j
Islenskt ofurmaraþonhlaup er á
dagskrá 26. júlí nk. í fyrsta skipti.
Er það alþjóðlegt fjallahlaup frá
Landmannalaugum í Þórsmörk -
rétt um 55 km hlaup og farið er um
ruddan stíg þar sem undirlag er að
mestu sandur, möl, gras, snjór, ís og
vatnsfóll. Þama er verkefni þraut-
þjálfaðra hlaupara hvaðanæva úr
veröldinni orðið að veruleika hér á
landi. Á alþjóðlegan mælikvarða er
ofurmaraþonið um „Laugaveginn“,
eins og þessi leið er gjaman kölluð,
fyllilega jafngildi Reykjavíkurmara-
þonsins. Ef vel tekst til um kynn-
ingu og markaðssetningu megum
Æfingar fyrir
byrjendur
Ganga/skokka í 30 mín.
Hvíld
Ganga/skokka í 30 mín.
Hvíld eða sund
Hvíld
Ganga/skokka í 50 mín.
Hvíld
Miðað við byrjendur sem
hafa engan gi-unn. Aðrir mega
allt að tvöfalda vegalengdir
Við höfum svigrúm í æfingaáætluninni
við því búast við stórum hópi er-
lendra hlaupara til að taka þátt. En
árlega koma 500 til 600 útlendingar
til að taka þátt í Reykjavíkurmara-
þoninu.
Sveinn Ernstson á besta tímann,
6,28
Hlauparar hafa farið Laugaveg-
inn nokkrum sinnum og kannað að-
stæður og mælt tímann. Besti kunni
tíminn er 6,28 klukkustundir og þar
var Sveinn Ernstson ÍR-ingur á ferð
en Sighvatur Dýri Guðmundsson,
félagi hans, fór þá á 6,46 klst.
Fyrsti áfangi leiðarinnar er frá
Landmannalaugum í Hrafntinnu-
sker. Loftlína er um 10 km og lóð-
rétt hækkun er tæpir 500 metrar.
Þetta er erfiðasti hluti leiðarinnar
vegna þess hve stór hluti er á fót-
inn. Hlauparar eru því hvattir til að
fara rólega af stað. Farið er um snjó
og ís skammt frá Hrafhtinnuskeri
og aðgát þarf að hafa vegna jarð-
hitasvæða.
„Þetta er ævintýraferð fyrir þjálf-
aða hlaupara," sagði Ágúst Þor-
steinsson, framkvæmdastjóri
Reykjavíkur maraþonsins, sem ann-
ast einnig ofurmaraþonið. Erlendis
hefm- keppnin hlotið góðar viðtökur
og við vitum þegar af nokkrum þátt-
takendum þaðan. Hlaupið er opið
öllum 18 ára og eldri. Einu takmörk-
in er þau að þeir hlauparar sem
koma að Emstrum (Botnum) eftir
átta klukkustundir eða síðar verða
að hætta hlaupinu og fá akstur það-
an í Þórsmörk. í Emstrum er lokið
um 42 km og því um 13 km eftir.
Stuttbuxur, ullarhúfa og vettling-
ar verða að vera með í farangrinum
Ofurmaraþonið er þriggja stjömu
hlaup með drykkjar- og hressingar-
stöðvum með ávöxtum og vökva. Að
ógleymdum óteljandi fjallalækjum
og ám. Heilsugæsla og sjúkrahjálp
verður til reiðu á drykkjarstöðvum
og gæsla á allri leiðinni. Skráning
fer fram á skrifstofu Reykjavíkur
maraþons fram til 18. júlí nk. Allar
upplýsingar fást í síma 588 3399.
Þátttökugjald er 5000 krónur og þá
er innifalið fæði, gisting, rútuferðir,
peysa hlaupsins, verðlaun, sturtu-
aðstaða í lokin og drykkir. Bæði
verður einstaklingskeppni og
sveitakeppni.
Hlauparar þurfa að huga vel að
skóm, fatnaði og öðrum búnaði.
Hlaupaskór verða að vera með
þykkum sóla og búið að hlaupa þá
tÚ. Fatnaður þarf að vera eftir veðri
en meðalhiti á „Laugaveginum" er
7-8 stig í júlí. Þess vegna verður að
reikna með þeim möguleika að
klæðast þurfi langermabol, æfmga-
buxum, vettlingum og húfu. En auð-
vitað getur líka verið glampandi
sólskin, sæla og hiti alla leið.
Eins og sjá má á æfmgaáætlun Gunnars Páls íþrótta-
þjálfara er hægt að velja á milli áfangaþjálfunar og
hraðaleiks í einni lykUæfinga vikunnar. Ástæðan er sú
að áfangaþjálfun fer yfirleitt fram á hlaupabraut á
íþróttaveUi þar sem auðvelt er að fylgjast með að hraða
sé haldið. Hins vegar hafa ekki aUir tækifæri tU að vera
á formlegri braut á veUi og að auki finnst mörgum betra
að hlaupa á öðru undirlagi en þar er. Þess vegna er líka
boðið upp á hraðaleikinn í stað áfangaþjálfunar. Óhætt
er að reikna með því að þessar æfingar geti gefið sama
arangur.
#Þegar boðið er upp á val um vegalengdir er ágætt að
hafa þá reglu í huga að hlaupari á ávaUt að reyna að
fara eftir og hlusta á líkama sinn. Vera ýmist við efri
eða neðri mörk hverrar æfingar. Til dæmis má taka að
ef við höfum misst úr æfingu vegna annarra verkefna,
fjarveru, sumarleyfis eða þess háttar, þá er rétt að æfa
tvær tU þrjár vikur við neðri mörkin og síðan reynt að
æfa við efri mörk um það bil aðra hverja viku.
er styrktaraðili Reykjavíkurmaraþons
m
m
FLUGLEIÐIR
Traustur íslenskur feróafélagi
VOLVO