Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1997, Page 46

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1997, Page 46
54 LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997 JjV Unnur Abildgaard Unnur Abildgaard húsmóðir, Solsortvej 74, Fredriksberg, 2000, Kaupmannahöfn, er áttræð í dag. Starfsferill Unnur fæddist á ísafirði, ólst upp í Kaupmannahöfn frá sex ára aldri og fram að fermingu. Hún var búsett á íslandi á unglingsárunum og stundaði þá nám í Gagnfræðaskóla Reykjavíkur og lærði hárgreiðslu- iðn. Unnur flutti síðan aftur til Kaup- mannahafnar um tvítugt og hefur átt þar heima síðan. Fjölskylda Fyrri maður Unnar var Arne Ped- ersen lyfjafræðingur en þau skildu eftir skamma sambúð. Sonur Unnar og Ame var Tómas Árnason (Tom Pedersen), f. 1940, d. 1977, sjómaður á Seltjarnarnesi en sonur hans er Kristinn Tómasson. Seinni maður Unnar var Ove Abildgaard, f. í Lenvig á Jótlandi 17.9.1917, d. 11.10.1990, skáld og dag- skrárstjóri hjá danska ríkisútvarp- inu en hann var í hópi virtustu ljóð- skálda Dana í seinni tíð. Börn Unnar og Ove eru Rúna Katrín Abildgaard, f. 1948, sjúkraliði í Kaup- mannahöfn; Claus Juli- us Abildgaard, f. 1949, listmálari í Kaup- mannahöfn; Ulver Skúli Abildgaard, f. 1955, leik- ari í Kaupmannahöfn. Hálbróðir Unnar, sammæðra, er Skúli Ax- elsson, f. 26.1. 1925, flug- stjóri. Foreldrar Unnar voru Skúli Skúlason Thoroddsen, f. 24.3.1890, d. 23.7. 1917, alþm. og yfírdómslög- maður í Reykjavík, og unnusta hans, Guðrún Skúladóttir, f. 6.11. 1896, d. 6.6. 1950, síðar húsmóðir í Reykjavík. Ætt Systkini Skúla voru Unnur, móð- ir Skúla Halldórssonar tónskálds; Guðmundur læknaprófessor, afi Guðmundar myndlistarmanns; Kristín Ólína, skólastjóri og yfír- hjúkrunarkona; Katrín yfirlæknir; Jón Thoroddsen, lögfræðingur og skáld; Ragnhildur, kona Pálma Hannessonar rektors; Bolli borgar- verkfræðingur; faðir Bolla hagræðingarráðu- nauts; Sigurður verk- fræðingur, faðir Dags skálds; Sverrir deildar- stjóri, og María Kristín, móðir Jóns Thors Har- aldssonar sagnfræð- ings. Skúli var sonur Skúla Thoroddsen, sýslumanns, alþm. og ritstjóra, bróður Þor- valds náttúrufræðings; Sigurðar verkfræðings, föður Gunnars forsætisráðherra, og bróður Þórðar læknis, fóður Emils tónskálds og Þorvalds forstjóra. Skúli var sonur Jóns Thoroddsen, skálds og sýslumanns í Haga á Barðaströnd og á Leirá, sonar Þórð- ar, beykis á Reykhólum Þóroddsson- ar. Móðir Jóns sýslumanns var Þórey Gunnlaugsdóttir. Móðir Skúla ritstjóra vau- Kristín Ólína Þorvalds- dóttir, alþm. og umboðsmanns í Hrappsey á Breiðafirði Sigurðsson- ar Sívertsen. Móðir Kristínar Ólínu var Ragnhildur Skúladóttir, sýslu- manns á Skarði Magnússonar, sýslumanns á Skarði Ketilssonar. Móðir Magnúsar var Guðrún Magn- úsdóttir, systir Skúla fógeta. Móðir Skúla yngri var Theodóra skáldkona, systir Ásthildar, móður Muggs. Theodóra var dóttir Guð- mundar, prófasts og alþm. á Breiða- bólstað Einarssonar, bróður Þóru, móður Matthíasar Jochumssonar skálds. Móðir Theodóru var Katrín Ólafsdóttir Sívertsen, prófasts í Flat- ey, bróður Þorvalds í Hrappsey. Guðrún var systir Amalíu, móður Halls Hallssonar yngri, tannlæknis. Guðrún var dóttir Skúla, kaup- manns og útgerðarmanns á ísafirði, sonar Einars Sörenssonar og Guð- leifar Magnúsdóttur. Móðir Guðrúnar var Sigrún, syst- ir Jónasar, tónskálds og bæjarfull- trúa á ísafirði, föður Ingvars fiðlu- leikara. Systir Sigrúnar var Tómasína Ingibjörg, amma Stefáns Hermannssonar borgarverkfræð- ings og Tómasar Inga Olrich alþm. Sigrún var dóttir Tómasar, leikrita- skálds og fræðimanns á Hróarsstöð- um Jónassonar og Bjargar Emilíu Þorsteinsdóttur, b. á Hlíðarenda í Köldukinn Torfasonar. Unnur Abildgaard. Anna Oddsdóttir Anna Oddsdóttir hús- móðir, Furugerði 1, Reykjavík, er níutíu og fimm ára í dag. Starfsferill Anna fæddist í Stykk- ishólmi, ólst þar upp og stundaði þar skóla- göngu. Þá var hún við nám við Hússtjórnar- skóla Reykjavíkur 1926. Eftir að Anna gifti sig stundaði hún húsmóð- urstörf. Hún var búsett í Stykkishólmi til 1951. Þá flutti hún til Reykjavíkur og hefur átt þar heima síðan. Fjölskylda Anna giftist 28.8. 1926 Sigurði Steinþórssyni, f. 11.10. 1899, d. 29.4. 1966, kaupfélagsstjóra. Hann var sunui Steinþórs Bjöms- sonar og Sigrúnar Jóns- dóttur sem bjuggu á Litluströnd í Mývatns- sveit. , Börn Önnu og Sigurð- ar eru Steinþór Sigurðs- son, f. 14.2.1933, listmál- ari en kona hans er Ema Guðmarsdóttir myndmenntakennari; Gunnar D. Sigurðsson, f. 20.2. 1935, deildar- stjóri en kona hans er Margrét Þórðardóttir skrifstofumaður; Haraldur Sigurðs- son, f. 31.5. 1939, jarðfræðingur og prófessor; Sigrún G. Sigurðardóttir, f. 7.5. 1943, bankamaður en maður hennar er Árni Þ. Kristjánsson bankamaður. Fósturdætur Önnu og Sigurðar eru Ingibjörg Þorvaldsdóttir, f. 25.6. 1925, vefnaðarkennari en maður hennar var Sverrir Júlíusson út- gerðarmaður sem lést 30.4. 1990; Anna Þorvaldsdóttir, f. 4.4. 1929, skrifstofumaður en maður hennar var Bragi Kristjánsson vaktmaður sem lést 5.10. 1985. Systkini Önnu: Gróa Oddsdóttir, f. 2.9.1898, d. 29.12.1985; Svava Odds- dóttir, f. 6.12. 1900, búsett í Stykkis- hólmi; Hallgímur Oddsson, f. 1.10. 1905, d. 25.10.1982; Júlíana Oddsdótt- ir, f. 26.6. 1904, d. 19.3. 1980; Sigur- borg Oddsdóttir, f. 5.7. 1908, d. 18.5. 1995. Hálfbróðir Önnu er Geir Ólafur Oddsson, f. 7.1. 1931. Foreldrar Önnu voru hjónin Odd- ur Valentínusson, f. 3.6. 1876, d. 12.12. 1965, hafsögumaður í Stykkis- hólmi, og Guðrún Lilja Hallgrims- dóttir, f. 23.9.1875, d. 18.12.1950, hús- móðir. Ætt Oddur var sonur Valentínusar, formanns í Stykkishólmi Sigmunds- sonar. Móðir Valentínusar var Vil- borg Pétursdóttir, b. í Höskuldsey Péturssonar. Móðir Vilborgar var Valgerður, langamma Jóns, afa Þór- unnar Valdimarsdóttur rithöfundar. Valgerður var dóttir Einars, hrepp- stjóra í Hrisakoti í Helgafellssveit Einarssonar. Móðir Odds var Gróa Davíðsdótt- ir, b. í Rimabæ Bjamasonar, læknis á Hnausum Jónssonar. Móðir Dav- íðs var Guðfinna Jónsdóttir Hjalta- líns, prests á Breiðabólstað Ödds- sonar, lrm. á Rauðará Jónssonar Hjaltalíns, sýslumanns í Reykjavík og ættfóður Hjaltalínsættarinnar. Anna verður stödd í bústað bama sinna að Silfurgötu 31, Stykkis- hólmi, á afmælisdaginn. Anna Oddsdóttir. Halldór Guðnason Halldór Guðnason, fyrrv. kaup- maður, Lindargötu 64, Reykjavík, er áttræður í dag. Starfsferill Halldór fæddist í Þverdal í Aðal- vík og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Héraðsskólann á Núpi í Dýrafirði í einn vetur, stundaði nám við Bændaskólann á Hólum og lauk þaðan búfræðiprófi. Halldór hélt bú með móður sinni eftir lát föður síns til 1952 er hann flutti til Reykjavíkur. Hann var því síðasti ábúandinn i Sléttu- hreppi í Norður-lsa- fiarðarsýslu, áður en hreppurinn lagðist í eyði. Halldór var fanga- vörður á Litla-Hrauni í fimm ár, var kaupmað- ur í Reykjavík á áran- um 1959-66, var síðan dyravörður, lengst af við Árbæjarskóla eða Halldór Guönason. þar til hann hætti störf- um fyrir aldurs sakir. Fjölskylda Sonur Halldórs er Ari Reynir Halldórsson, f. 25.6.1954, kvæntur Guð- laugu Eygló Elliðadótt- ur og eru synir þeirra Viðar Arason, f. 30.10. 1982, og Atli Valur Ara- son, f. 20.6. 1988. Alsystir Halldórs er Pálína Guðnadóttir, bú- sett í Hafnarfirði. Hálfsystir Halldórs er Þórunn Friðriksdóttir, búsett á Akranesi. Uppeldissystkini Halldórs era Sigrún Guðlaugsdóttir, búsett í Reykjavík; Marteinn Árnason, bú- settur í Reykjavík. Foreldrar Halldórs voru Guðni ís- leifsson, bóndi í Þverdal í Aðalvík, og Veronika Borgarsdóttir, hús- freyja í Þverdal. Kristbjörg María Einarsdóttir Kristbjörg María Einarsdóttir snyrtifræðingur, Birtingakvísl 12, Reykjavík, er fertug í dag. Starfsferill Kristbjörg fæddist í Rauðbarða- holti í Dalasýslu og ólst þar upp. Hún var í Bama- og unglingaskólan- um að Laugum í Dalasýslu, stundaði nám við Ármúlaskólann í Reykjavík 1972-73, stundaði nám við Hús- mæðraskólann að Staðarfelli 1973-74 og lærði síðan snyrtifræði hjá Mar- íu Dalberg á snyrtistofunni Mæju. Fjölskylda Kristbjörg Maria giftist 12.9. 1981 Ragnari Antonssyni, f. 13.12. 1957 bifreiðastjóra. Hann er sonur Ant- ons Guðjónssonar leigubílstjóra sem lést 13.6. 1995, og Guðrúnar Matthí- asdóttur húsmóður. Sonur Kristbjargar Maríu frá því áður er Amar Páll, f. 27.11. 1976, nemi. Börn Kristbjargar Maríu og Ragn- ars eru Björgvin Sævar, f. 31.5.1982; Rúnar Freyr, f.13.1. 1989; Sandra María, f. 7.10. 1991. Systkini Kristbjargar Maríu eru Monika Björk, f. 23.2.1955, húsfreyja að Rauðbarðaholti II; Jóhanna Bjamey, f. 28.2. 1962, hárgreiðslu- meistari í Búðardal; Anna Berglind, f. 30.6. 1963, tækniteiknari á Akra- nesi; Georg Bragi Vernharður, f. 12.8. 1964, verkamaður að Fannborg I; Ásta Bima, f. 11.3.1970, verkakona að Rauðbarðaholti. Foreldrar Kristbjargar Maríu em Einar Kristmundsson, f. 4.12. 1920, bóndi að Rauðbarðaholti í Hvammssveit í Dölum, og k.h., Guðrún Jóhann- esdóttir, f. 26.4.1932, hús- móðir. Ætt Einar er sonur Krist- mundar, b. í Rauðbarða- holti Eggertssonar, b. í Gröf í Laxárdal Guð- mundssonar. Móðir Kristmundar var Guð- laug Guðmundsdóttir. Móðir Einars var Salóme María Einars- dóttir, b. á Hróðnýjarstöðum Þor- kelssonar, b. á Dunk í Hörðudal Ein- arssonar. Móðir Einars á Hróðnýjar- stöðum var Sigríður Jónsdóttir. Móðir Salóme Maríu var Ingiríður Hansdóttir, irá Gauta- stöðum Ólafssonar. Guðrún er dóttir Jó- hannesar, b. á Merki- gili Bjarnasonar, frá Þorsteinsstaðakoti Jó- hannessonar. Móðir Jóhannesar var Elín Finnbogadóttir. Móðir Guðrúnar var Monika Sigurlaug Helgadóttir, frá Ánastöðum Björns- sonar. Móðir Moniku var Margrét Sigurðar- dóttir. Kristbjörg Marla og Ragnar taka á móti gestum að heim- ili sínu í kvöld. Kristbjörg María Einarsdóttir. lil hamingju með afmælið 12. júlí 90 áxa_____________________ Guðbjörg Pálsdóttir, Háaleitisbraut 50, Reykjavík. Guðbjörg er að heiman. Þóra Guðmundsdóttir, Fossheiði 52, Selfossi. Laufey Þórðardóttir, frá Borgarholti í Miklaholtshreppi, áöur búsett að Bifröst í Ólafsvík, nú aö Hrafnistu í Reykjavík. Hún verður að heiman. 80 ára____________________ Ólafur T. Hjaltalín, Tangagötu 5, Stykkishólmi. Gísli Guðmundsson, fyrrv. lögreglumaður, Skúlagötu 40, Reykjavík. Hann er að heiman. 75 ára Júlíus Pálsson, vélstjóri, Hraunbrún 3, Hafnarfirði. Kona hans er Gunnhildur Ingibjörg Georgsdóttir húsmóðir. Júlíus er að heiman. Helga Indriðadóttir, Höfða, Akranesi. Magnús P. Sumarliðason, Víðilundi 2 E, Akureyri. Guðný Nikulásdóttir, Keldulandi 3, Reykjavik. 70 ára___________________ Sigurbjöm Kristinsson, Stigahlíð 44, Reykjavík. Jón Þ. Benediktsson, Vikurbraut 11, Höfn í Hornafirði. 50 ára Þorlákur Ari Ágústsson, Hjaltabakka 6, Reykjavík. Lea Björnsdóttir, Hagalandi 6, Mosfellsbæ. Karólína Stefánsdóttir, Munkaþverárstræti 24, Akureyri. Aliza Haya Líf Kjartansdóttir, Réttarholtsvegi 79, Reykjavík. Ástríður Ingimarsdóttir, Lundarbrekku 14, Kópavogi. 40 áxa Thongsuk Phuangburee, Hátúni 1, Reykjavík. Guðni Sigurbjamason, Amarsmára 28, Kópavogi. Vemharður Skarphéðinsson, Þóroddakoti 8, Bessastaðahreppi. Ólafur Guðbrandsson, Lokastíg 16, Reykjavík. Anders Kr. Oppheim, Eskihlíð 22, Reykjavík. Öm Benedikt Sverrisson, Túngötu 19, Njarðvík. Mats Ame Jonsson, Langholtsvegi 152, Reykjavík. aukaafslátt af smáauglýsingum DV Smáauglýsingar 0531 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.