Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1997, Side 51
LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997
BH ma ■ ■ a
myndbond
59
Alþjóðlegir leikarar voru eitt af
því sem peningamir öfluðu Peter
Jackson, og þar á meðal aðalstjarna
myndarinnar, Michael J. Fox, sem
sá Heavenly Creatures í Toronto eft-
ir að Zemeckis og Jackson buðu
honum hlutverkið, og samþykkti
umsvifalaust að leika í The
Frighteners. Michael J. Fox sló í
gegn og vann til flölda Emmy-verð-
launa sem Alex P. Keaton í NBC-
sjónvarpsþáttaröðinni Family Ties.
Hann hefur stundað leiklistina síð-
an hann var táningur (og lítur enn
nákvæmlega eins út segja sumir).
Frægastur er hann fyrir Back to the
Future trílógíuna, en hann hefur
m.a. leikið í Teen Wolf, The Secret
of My Success, Bright Lights Big
City, Light of Day, Casualties of
War, The Hard Way, Life with
Mikey, For Love or Money, Greedy
og The American President.
-PJ
Líf Franks Bannisters hefur tekið
miklum breytingum eftir bílslys
sem hann lenti í fyrir fimm árum.
Kona hans dó í bílslysinu og áfallið
hefur leyst úr læðingi skyggnigáfu
hans. Ekki er hægt að segja að hann
noti hana til göfugra verka. Hann
hefur hafið samstarf með þremur
draugmn sem ásækja fólk fyrir
hann. Hann mætir síðan á svæðið
og losar fólk við draugaganginn
gegn þóknun. En loks kemur að því
að hann lendir í alvarlegum vand-
ræðum. Raðmorðingi virðist ganga
laus í bænum og fómarlömbin eiga
aðeins tvennt sameiginlegt. Þau eru
öll númeruð (morðinginn sker tölur
í enni þeirra) og Frank Bannister er
alltaf í grenndinni þegar morðin eru
framin. Grunur fellur á hann og of-
sóknabrjálaði alríkislögreglrunaður-
inn Dammers, sem sérhæfir sig í yf-
irnáttúrulegum fyrirbrigðum, mæt-
ir á svæðið, staðráðinn i að stöðva
Frank Bannister, sem er sjálfan far-
ið að gruna að einhver ill öfl af yfir-
náttúrulegu sortinni standi að baki
morðunum. Meðan líkin hrannast
upp þarf hann að hefla leit að sann-
leikanum svo hann geti hreinsað
mannorð sitt og yfirbugað hin illu
öfl.
Nýsjálensk mynd fyrir
ameríska dollara
Svo hljómar söguþráðurinn í The
Frighteners, nýjustu mynd nýsjá-
lenska leikstjórans Peters Jacksons.
Segja má að myndin sé nýsjálensk,
enda samin og leikstýrt af Nýsjá-
lendingum, tekin í Nýja-Sjálandi að
öllu leyti og flestir starfsmenn
nýsjálenskir, þ.á m. klippari, leik-
myndahönnuður, búningahönnuður
og framleiðendur. Hins vegar sér
Hollywood fyrir tæknibrellumeist-
ara, helstu leikurum og auðvitað
flármunum, og sjálfur Robert Zem-
eckis, sem leikstýrt hefur meðal
annars Forrest Gump, Back to the
Michael J. Fox er í aðalhlutverki í The Frighteners.
Future-myndunum þremur og
Death Becomes Her, er einn af fram-
leiðendum myndarinnar. Eins og
áður sagði situr Peter Jackson í
leikstjórastólnum, en hann er
einnig meðframleiðandi og skrifaði
handritið ásamt Frances Walsh,
samstarfsmanni sínum til margra
ára. í aðalhlutverkinu er Michael J.
Fox, en í öðrum helstu hlutverkum
eru Trini Alvarado (The Perez
Family, Little Women), Peter Dob-
son (sem lék Elvis Presley í Forrest
Gump), John Astin, Dee Wallace
Stone, Jeffrey Combs (Re-Animator)
og Jake Busey, sem er sonur Franks
Buseys. Jake Busey lék nýlega í
Twister og mun næst leika í nýjustu
mynd Pauls Verhoevens, vísinda-
skáldsögunni Starship Troopers.
Á uppruna í ódýrum
splatter-myndum
Peter Jackson tókst að vekja at-
hygli kvikmyndajöfranna í
Hollywood með mynd sinni Heaven-
ly Creatures árið 1994, sem vann
meðal annars silfurljónið á kvik-
myndahátíðinni í Feneyjum og var
tilnefnd til óskarsverðlauna fyrir
besta handritið. Peter Jackson er
sjálfmenntaður kvikmyndagerðar-
maður, sem byrjaði á ungaaldri að
búa til myndir með myndband-
stökuvél foreldra sinna. Hann
keypti sér síðan 16 mm vél og hóf
tökur á stuttmynd, sem þremur
árum seinna var orðin að 75 mín-
útna langri kvikmynd. Myndina
kallaði hann Bad Taste, en hún flall-
aði um baráttu nokkurra
byssuglaðra manna við geimverur
sem komu utan úr geimnum til að
ná í mannakjöt fyrir skyndibita-
keðju sína. Síðasta mynd hans á
undan Heavenly Creatures var i
svipuðum dúr og Bad Taste, þ.e.
geggjuð grínmynd í formi blóðugrar
splatter-hrollvekju, en það var
Braindead
(sem í Banda-
ríkjunum var
gefin út undir
nafninu Dead
Alive) sem
vann til alls 16
alþjóðlegra
verðlauna.
Meðal verka
hans er einnig
Meet the
Feebles, eins
konar prúðu-
leikaramynd
fyrir fullorðna.
Uppruni Peters
Jacksons ligg-
ur í gaman-
sömum hryll-
ingsmyndum
(eða hrollvekj-
andi gaman-
myndum) og
má þvi segja að
með The
Frighteners sé hann á heimavelli,
en í þetta skiptið með nóg af pening-
um.
The Frighteners
Tekist á við ill öfl
UPPÁHALDS MYNDBANDIÐ MITT
Hilmar Oddsson
listin yndisleg.
Maður hefur
drama, þriller og
ástarsögu í sömu myndinni.
Saman
mynda þessir
pólar einstak-
lega sterkt
andrúmsloft
og í því liggur
helsti styrkur
myndarinnar,
ásamt Vínar-
borg sem
gegnir miklu
hlutverki í
henni. Meðal
leikara í
myndinni má
nefna Orson
Welles og
Harry Lime,
en Carol Reed
leikstýrði.
Handritið
skrifaði síðan
Graham
Greene.“
„Þetta er erfið
spuming, enda er flöldinn
allur af kvikmyndum sem
eru í miklu
mér. En til þess
að nefna eina af
tuttugu myndi
ég segja Þriðji
maðurinn.
Myndin var
gerð skömmu
eftir seinni
heimsstyrjöld-
ina og var að
mestu leyti tek-
in í rústum Vín-
arborgar. Að-
stæðurnar við
gerð myndar-
innar voru þvi
einstakar og
ekki hægt að
endurtaka. Kost-
ir þessarar
myndar eru
óteljandi; hún er
falleg, spenn-
andi, dulúðleg,
leikaramir em
frábærir og tón-
Power 98
Karlin Pickett (Eric Roberts) er
útvarpsmaður með eigin þátt á stöð í
Los Ang-
eles sem
nefnist
Power 98.
Pickett er
ekkert
heilagt og
nýtur
hann
þess að
hneyksla
áheyr-
endur
sína með
orðavali
sínu. Af
þessum
sökum
njóta þættimir mikillar hlustunar,
bæði hjá þeim sem þykja þeir
skemmtilegir og líka hjá þeim sem
býður við þeim. Allir eiga áheyrend-
urnir það þó sameiginlegt að vilja
verða vitni að næsta hneyksli sem
Pickett dregur fram í dagsljósið.
Kvöld eitt kemst Pickett í síma-
samband við mann sem segist bera
ábyrgð á morðum nokkurra kvenna
sem fundist hafa illa útleiknar. Hann
lýsir því flálglega hvemig hann
myrti konumar. Frá sjónarhóli lög-
reglunnar bendir þetta til þess að
þetta sé hinn raunverulegi morðingi.
Eða er þessi persóna bara til í huga
Picketts?
Aðalhlutverk eru í höndum Erics
Roberts og Jasons Gedricks. Leik-
stjóri er Jamie Hellman.
Eds Next Move
Þegar kærasta Eds Broskys segir
honum upp ákveður hann að flytja
frá heima-
bæ sínum
í Wiscons-
in til New
York og
byrja þar
nýtt líf.
Eftir
verulega
viðburða-
ríkt ferða-
lag kemst
hann loks
á áfang-
astað og
byrjar að -■,
aðlaga sig “ -
borgarlíf-
inu. Fljótlega stefnir hugur hans aft-
ur að ástamálunum og kvensamur
meðleigjandi hans hvetur Ed til að
lifa lífí kvennabósans. En Ed er
ekki þess konar maður því hann
leitar hinnar einu réttu. Hann er
hlédrægur og frekar feiminn og á
því í nokkmm erfiðleikum með að
leika sömu leikina og hinn kven-
sami meðleigjandi hans. Ed lendir
því í ýmsum spaugilegum aðstæð-
um í konuleit sinni, t.d. þegar hann
hittir fyrir unga tónlistarkonu sem
hann verður yfir sig hrifrnn af þótt
stúlkan sú sé af allt öðm sauðahúsi
en hann.
Aðalhluverk leika Matt Ross og
Callie Thorne. Leikstjóri er John
Walsh.
Her Costly Affair
Diane Weston er háskólakennari
sem er ekki fullkomlega sátt við
hjónaband
sitt. Þegar
nýr og
myndarleg-
ur nemandi,
Jeff Dante,
tekur að
gefa henni
undir fótinn
lætur hún
undan freist-
ingunni.
Hún gerir
sér þó strax
grein fyrir
því að hún
hefur gert
mistök. Þegar hún reynir að segja Jeff
að ekkert geti orðið úr sambandinu
neitar hann að sleppa henni. Hann
vekur með henni ótta sem magnast
þegar hún kemst að því að hann er
grunaður um morð á fyrrum ástkonu
sinni sem einnig var háskólakennari.
Henni tekst þó að lokum að losna við
hann - eða það heldur hún alla vega.
Dag einn tilkynnir dóttir Diane henni
að hún muni koma með nýja kærast-
ann sinn í kvöldverð heim til flöl- -
skyldunnar. Sér til mikillar skelfíngar
uppgötvar Diane að nýi tengdasonur- ■
inn er enginn annar en Jeff. Það er \
því ljóst að hann gerir hvað sem er til ;
þess að fá sinu framgengt.
Aðalhlutverk era í höndum Bonnie j
Bedela og Brians Austins Greens. 1
Leikstjóri er John Patterson.