Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1997, Side 52
so |IMkmyndir
LAUGARDAGUR 12. JULI 1997
STÆRSTA
TJALDIÐ MEÐ
Thx
DIGITAL
Þegar FBI getur ekki séö um málið, þegar CIA getur ekki áttað
sig á málinu, eru MIB-menn á kafi í málinu. Þeir eru best
geymda leyndarmálið á jörðinni.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. B.i. 12 ára.
Þegar FBI getur ekki séö um málið, þegar CIA getur ekki áttaö
sig á málinu, eru MIB-menn á kafi í málinu. Þeir eru best
geymda leyndarmálið á jörðinni.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
KUNG FU KAPPINN
I BEVERLY HILLS
Sýnd kl. 5 og 7.
AMÝ OG
VILLIGÆSIRNAR
Sýnd kl. 3
íslensk heimasíða:
WWW.xnet.is/stjornubio
Sími 551 9000
Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.15.
Sýnd kl. 5.
Sýnd 6.50, 9 og
11.10. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.30.
Sýnd kl. 4.40, 6.50, 9 og 11.15.
B.i. 16 ára.
SB? flEgPu'
BE Sp;;: m
Con Air ★★★★
Con Air er ein af þessum pottþéttu hasarmyndum, þéttpökkuð hamagangi og
testosteroni frá upphafi til enda. Formúlan er á sínum staö og ekkert kemur á óvart
og að hætti Amies og Die Hard-myndanna er þetta formúla með húmor þar sem ýkj-
umar eru yfirgengilegar. Hraðar klippingar og hrátt yfírbragð gerir það að verkum
að Con Air virkar bæði alvarleg og hákómisk í senn og fer yfir um á hvorugu.-úd
í nafni móðurinnar ★★★★
I nafni föðurins var dæmigerð óskarsframleiðsla og langt í frá gailalaus mynd. Some
Mother’s Son er mun vandaðra verk og ætti enginn sem ann vönduðum kvikmyndum
að láta hana fram hjá sér fara. Leikstjórnin er afbragðsgóð, tónlistin áhrifamikil, kvik-
myndatakan lævíslega látlaus í áhrifamætti sínum og handritið yfirvegaðra en ég
hefði búist við í mynd sem í raun er pólitísk málsvörn IRA. -GE
Scream ****•
Ein alflottasta og skemmtilegasta hryllingsmynd sem komið hefur fram lengi og
sýnir vel þá möguleika sem búa i hrollvekjunni. Craven sýnir fullkomna þekkingu
og næmi á hrollvekjuna og tekst aö skapa úr þessum kunnuglegu formúlum
hressandi og hrellandi hryllingsmynd. -úd
Enski sjúklingurinn ★ ★★★
Stórbrotin, epísk kvikmynd sem minnir um margt á best heppnuöu stórmyndir fyrri
tíma. Anthony Mingella á hrós skilið, bæði fyrir innihaldsríkt handrit og leikstjóm þar
sem skiptingar í tíma em mjög vel útfærðar. Útgeislun leikaranna er mikil. -HK
Fimmta frumefnið
Ómissandi og án hiks ein alfallegasta og smartasta framtiðarmynd sem ratað hef-
ur á sýningartjald. Samspil hljóðs og myndar er meö eindæmum elegant og til að
njóta þessa alls sem best er vænlegast að búta heilann upp og stýra allri orku á augu
og eyru. -úd
Anaconda ★★★
Anaconda er ein af þessum gölluðu myndum sem ná að heilla með ákveðnum ein-
faldleik eða jafnvel einfeldni. í heild vega kostimir upp galfana og útkoman er
hressileg og skemmtileg mynd sem heldur áhorfandanum fóngnum þessar klassísku
90 mínútur. -úd
Men in Black ★★★
í MIB er eins og yfirfærslan úr teiknimyndasögu í kvikmynd sé aldrei fullfrágeng-
in og kemur þetta sérstaklega niður á plottinu. Áherslan er slík á húmor og stil að
sjálfur hasarinn verður út undan og í raun virkar MIB meira sem grínmynd en has-
ar. En þrátt fyrir alla galla er þessi mynd ómissandi fyrir alla þá sem láta sér ekk-
ert ómannlegt óviökomandi. -úd
The Relic
Á heildina litið er The Relic ágætis afþreying. Ámátlegt sköpulag óvættarins er
lengst af hulið og þegar hann loksins birtist i öllu sínu veldi stendur hann vel und-
ir væntingum.
-GE
First Strike
First Strike (1996) er sú fjórða í Police-Story-syrpunni. 1 henni á Jacki Chan í
höggi við hættulega vopnasmyglara sem eru, eins og svo oft í spennumyndum síö-
ustu ára, útsendarar rússnesku mafiunnar. Viðureignin færist land úr landi, frá
Hong Kong til Rússlands og þaðan til Ástralíu. Frekari lýsing á söguþræðinum er
vonlaus, enda er plottið veikasti hlekkurinn í annars ágætri mynd. Ofangreind lýs-
ing veit kannski ekki á gott en töfr^r Jackies bjarga myndinni frá þeirri meðal-
mennsku sem hún myndi annars falla i. Þessi bráðskemmtilegi og hæfileikaríki bar-
dagaleikari gæðir flestar senur lífi.
-GE
í blíðu og stríðu ★★★
Richard Attenborough hentar vel að gera myndir um þekktar persónur. í slíkum
myndum eru höfundareinkenni hans sterk og í blíðu og striöu eru þau vel sjáanleg.
Hann hefur þó gert betri myndir og er skemmst að minnast Shadowlands. Sandra
Bullock og Chris O’Donnel hafa bæði þá útgeislun sem þarf en ekki að sama skapi
góðan texta. -HK
Verðhólga
hlaupin í
Will Smith
Þeir eru ekki alveg sáttir við sjálfa
sig núna, forráðamenn Paramount.
Þannig er mál með vexti að þegar ver-
ið var að ráða leikara í mynd þeirra
Snake Eyes þá áttu þeir í löngum og
ströngum viöræðum við Will Smith.
Hann heimtaöi þá 12 milljónir dollara
fyrir að leika í myndinni enda nýbú-
inn að leika eitt stærsta hlutverkið i
Independece Day. Paramount vildi
ekki borga fyrir kappann sem nú er
aftur að raka inn peningum, i þetta
sinn fyrir Men in Black. Héðan í frá
mun Will heimta 20 milljónir dollara
fyrir hverja mynd. t ljósi þessa eru
Paramount-menn ekki þeir vinsælustu
í bænum. Á sama tíma eiga þeir í
mestu vandræöum með að fá einhvem
til að leika á móti Nicolas Cage í Sna-
ke Eyes. A1 Pacino hefur nú opinber-
lega neitað því að leika i myndinni eft-
ir að hafa veriö orðaður við hlutverk-
ið mánuðum saman. Snake Eyes er
spennumynd sem fjallar um banatil-
ræði og er leikstýrt af meistara Brian
DePalma. Nú þegar þessar tvær kemp-
ur hvíta tjaldsins eru ekki lengur i
umræðunni um myndina er Para-
mount að svipast um eftir öðrum og
hefur Gary Sinise helst verið nefndur
til sögunnar.
Romy and Michele’s High School Reunion:
Vantar toppstykkið
Romy og Michele eiga 10 ára stúdentsafmæli. Á menntaskólaárum
voru þær hálfutangátta og vilja því endilega sanna sig fyrir því fólki
sem þá taldi sig yfir þær hafið. í þessu skyni klæða þær sig upp sem
konur á framabraut og þykjast vera ríkar. Planið mistekst vandlega,
en eins og í öllum góðum ævintýrum vinna dömumar tvær samt
fyrir að vera bara það sem þær eru. Hins vegar er erfitt að sjá vinn-
ingshliðina á kvikmyndinni. Þrátt fyrir góðar stundir - dansatriðin
í byrjun og lokin era ólýsanleg - þá ná Remy og Michele aldrei að
heilla. Kannski er það vegna þess að myndin klæðir sig í of marga
búninga. R and M minnir ekki bara á Dumb and Dumber, heldur
fyrst og fremst á allan þann aragrúa mynda sem gerðar eru um
menntaskólaárin, s.s. Grease og Carrie, en vandamálið er að það er
erfitt að átta sig á afstöðunni sem hún tekur til þessara fyrirmynda.
Stundum er um að ræða háð og stundum „alvöru“; ýmist er áhersl-
an á hefnd hinna óvinsælu eða það að hinir óvinsælu þurftu aldrei á
hefnd að halda og stundum er eins og þetta sé allt að hverfast inn í
mynd um vináttu. Allt í allt er hér einum of mikill ruglingur til að
vel fari, og þegar ógurlangar innskotssenur bætast við (minningar
og draumar) þá hreinlega hrynur myndin eins og spilaborg.
Ég uppgötvaði í miðri mynd að héma var um mína kynslóð að
ræða, okkur sem vorum unglingar á 9. áratugnum og eigum enn
erfitt með að skilja við hann. Það skemmtilega er að R og M bjóða
ekki upp á „uppgjör“ við 9. áratuginn heldur sýna einmitt hvemig
tíska og músík frá þessum tima er hreint ekki á undanhaldi. Það er
helst þessi stíll sem gerir myndina þó að því sem hún er, auk þess
sem leikkonurnar tvær (sérstaklega Lisa Kudrow) eiga góða spretti.
Það versta er að R and M höfðu upp á margt að bjóða og hér hefði
verið hægt að gera svo miklu betur.
Aðalhlutverk: Mira Sorvino, Lisa Kudrow og Janeane Garofalo.
Leikstjóri: David Mirkin. Handrit: Robin Schiff. -úd
staðgreiðslu- og greiðslu-
kortaafsláttur og stighœkkandi
birtingarafsláttur
=WTW7rWWW¥TWTWWTWWTW*WTW2[
gW milli hirrn^
&
%
Smáautfýiingar
6606000