Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1997, Side 18
18
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997
dagurílífi
Landsleiksdagur í lífi Bjarna Jóhannssonar, þjálfara ÍBV:
Jómfrúarferðin
„Sunnudagurinn fyrir
tæpri viku var viðburðaríkur
og líflegur en innst inni
þrunginn spennu sem allir
þjáifarar elska og lifa fyrir.
Ég er staddur á Hótel Örk,
þátttakandi í lokaundirbún-
ingi knattspymulandsliðsins
fyrir afmælisleikinn við
Norðmenn.
Vantaði
Saxa lækni
Eftir að hafa leikið nokkra
knattspyrnuleiki í drauma-
landi - var vaknað kl. 8.30.
Við tók morgunmatur í ró-
legu og afslöppuðu umhverfi
á Hótel Örk. Strákarnir vora
mættir við morgunverðar-
borðið á tilsettum tíma enda
sektir ef menn klikka á tíma-
setningunni. Gaui Þórðar var
sestur við hollan morgunmat
og Guðmundur R. (Gassi)
búningavörður og Raggi
sjúkraþjálfari vora mættir.
Það vantaði bara Sigurjón
(Saxa) lækni. Hann hafði
bragðið sér bæjarleið kvöldið
áður á 50 ára afmælishóf KSÍ.
Eftir morgunverð tók við
fundur þar sem Guðjón lagði
upp þá leikaðferð sem beita
átti á móti frændum vorum
og Smuguvinum. Skilaboðin
voru skýr og einfóld og leik-
menn fylgdust vel með.
Lokaæfíngin var kl. 10.30
og enn og aftur var farið yfir
hlutina þannig að ekkert færi
úrskeiðis þegar á hólminn væri
komið. Ég sá um markverðina með
dyggri aðstoð Ragga, Gassa og
Saxa.
var lagður á leikaðferð og
hugarfar. Gaui Þórðar talaði
af festu og ákveðni og gerði
mönnum grein fyrir alvöru
leiksins. Af hverju þessi leik-
mannahópur hefði verið val-
inn og til hvers væri ætlast af
hverjum leikmanni, hvort
sem hann væri í byrjunarliði
eða sæti á bekknum.
Gassi
klikkar ekki
Bjarni ásamt fjölskyldunni, konunni Ingigeröi Sæmundsdóttur og tvíburadætrunum
Og að sjálfsögðu eru allir klæddir ÍBV-treyjum.
Brynju og Bryndísi sem verða 7 ára í haust.
DV-mynd Ómar Garðarsson
Kjúklingur og pasta
Hádegisverðurinn
fram um eittleytið.
var borinn
Kjúklingur,
pasta, hrisgrjón og kartöflur. Kol-
vetnihlaðin máltíð því ekki má
klikka á smáatriðum. Nú var kom-
ið að hvíld og menn lögðu sig fram
til kl. 16.30.
Hressing var fram borin efir
ljúfan blund. Fundur var að hress-
ingu lokinni þar sem lokahnykkur
Menn gengu nú frá herbergj-
um sínum og rútan lagði af
stað í bæinn þar sem komið
var að þjóðarleikvanginum
um hálfsjö. Gassi bún-
ingasjeff hafði farið fyrr frá
hópnum til að gera allt klárt
í klefanum. Eins og hans er
von og vísa var allt klappað
og klárt, karlinn klikkar
ekki.
Leikmenn gáfú sér góðan
tima til að gera sig klára og
burstuðu að sjálfsögðu allir
skóna sína. Þögnin í klef-
anum var dæmi um einbeit-
ingu hvers og eins. Baráttu-
orðin voru kveðin með látum
rétt fyrir þjóðsönginn. Leik-
urinn hófst og allir vita gang
mála í honum. Eftir leikinn
var boðið í afmæliskaffí i nýj-
um og glæsilegum húsakyn-
um KSÍ í Laugardal.
Jómfrúarferð Gaua Þórðar
var senn á enda. Um leið og
ég óska KSÍ til hamingju
með 50 ára afmælið þakka ég fyrir
það tækifæri að vera hluti af
áhöfninni í þessum afmælisleik."
Finnur þú fimm breytingar? 421
Vinningshafar fyrir fjögur hundruðustu og nítjándu
getraun reyndust vera:
Nafn:.
Heimili:-
Arngrímur Fríðgeirsson.
Faxabraut 42d
230 Keflavík.
Guðlaugur Þór Böðvarsson,
Viðarrima 5
112 Reykjavík
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í Ijós að á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum veriö breytt. Finnir þú
þessi Fmun atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Aö tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
Kalimar-Spirit AF, 35 mm myndavél
frá Radíóbæ, Ármúla 38, að verðmæti
3.995 kr.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1570, Sekur eftir Scott Turow.og Kóli-
brísúpan eftir David Parry og Patrick
Withrow.
Vinningamir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú flmm breytingar? 421
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík