Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1997, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1997, Blaðsíða 34
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997 UV Generali EM á Ítalíu 1997: Opnun Guðmundar Páls hleypti lífi í sagnröðina ísland fékk ekki mikið pláss í mótsblaði Evrópumótsins á Ítalíu þrátt fyrir gott gengi. Þegar stóra stundin rann loksins upp var það leikurinn við Spán sem varð fyrir valinu. Sá leikur tapaðist 6-24 þannig að góð spil íslands voru í lágmarki. Guðmundur Páll náði samt að hleypa lífi í sagnröð spilsins í dag með því að opna veikt í fyrstu hönd á hættunni. S/AIlir * D10 * Á642 * KG5 * Á1085 * KG974 K953 ♦ D3 4 72 * - » G1087 ♦ Á109642 4 G93 4 Á86532 4» D 4 87 4 KD64 skák I opna salnum sátu n-s Knap og Wasik en a-v Matthías Þorvaldsson og Aðalsteinn Jörgensen. Þótt hægt sé að vinna fimm tígla á spil a-v þá er erfitt að komast í þá því a-v eiga aðeins helminginn af hápunktun- um. Þar að auki þarf töluverða heppni til þess að hægt sé að vinna geimið. En lítum á sagnröðina. Suður Vestur Norður Austur pass 1G pass 2G pass 34 pass 34 34 pass pass pass Dálkahöfundur mótshlaðsins komst svo að orði að það hefði ver- ið frekar lint hjá íslendingunum að gefa eftir þrjá spaða þegar þeir gátu með heppni unnið fimm tígla og get ég tekið undir það. Matthías er hins vegar i vondri stöðu. Ef Aðalsteinn er með styrk í spaða, sem er ekki ólíklegt, þá er áreiðanlega best að segja pass. Eigi hann hins vegar punktana í hinum litunum (grandið er 13-15) gætu fimm tíglar staðið. N- s gætu líka átt geim í spaða og fimm tíglar væru ef til vill einn niður. Alla vega tók hann þá ákvörðun að passa og n-s unnu þrjá spaða slétt. Það virtist afleitur árangur. Umsjón Stefán Guðjohnsen í lokaða salnum sátu n-s Þorlákur Jónsson og Guömundur Páll Amar- son en a-v Goded og Lanteron. Dálkahöfundur mótsblaðsins telur „að opnun Guðmundar Páls hafi hleypt lifi í sagnröðina" og aftur tek ég undir með honum. Suður Vestur Norður Austur 14 dobl 44 54 54 pass pass pass Eftir að Guðmundur Páll hefir opnað eru sagnir hinna ósköp eðli- legar. Ég býst hins vegar við að Guðmundur hafl ekki hugsað sig mikið um áður en hann fór í fimm Guðmundur Páll náði að hleypa lífi í sagnröð spilsins. spaða, enda slapp hann við doblið Goded hefði áreiðanlega unnið frá sessunaut sínum. Hann fór hins fimm tígla. vegar tvo niður og tapaði 200 en það voru áreiðanlega 400 græddir því r Islenskir skákmenn á ferð og flugi: Góður árangur í Kaupmannahöfn og Kanada íslenskir skákmenn hafa verið iðnir við kolann í sumar, þótt þeir hafi þurft að leita út fyrir land- steina að verðugum tækifærum. Á annan tug Islendinga tefldi á Politiken Cup skákmótinu í Kaup- mannahöfn, sem er nýlokið. í þeim hópi vora mörg okkar efnilegustu ungmenna, auk stórmeistaranna Helga Áss Grétarssonar og Þrastar Þórhallssonar. Unglingamir öðluð- ust góða keppnisreynslu á þessu móti og stóðu sig margir frábærlega vel. Nokkrir snúa heim með spánný alþjóðleg Elo-stig í vasanum og ef- laust hafa allir bætt sig nokkuð. Bestum árangri þeirra náði Jón Viktor Gunnarsson, sem hlaut 7 vinninga úr 11 skákum, og var ár- angur hans talinn jafngilda tafl- mennsku uppá 2427 Elo-stig. Meðal þeirra sem Jón Viktor lagði í valinn var enski stórmeistarinn Christoph- er Ward. Helgi Áss Grétarsson gerði sér lít- ið fyrir og varð efstur á mótinu ásamt heimamönnunum Carsten Höi, Lars Schandorff, Nikolaj Borge og Erling Mortensen. Allir fengu þeir 8,5 vinninga. Helgi Áss gerði jafntefli í síðustu umferðinni við Lars Schandorff og mældist árangin- hans uppá 2591 Elo-stig. Helgi Áss hefur smám saman bætt í sarpinn eftir að hann varð stórmeistari eins Umsjón Jón LÁrnason og hendi væri veifað með sigri sin- um á heimsmeistaramóti unglinga. Nú virðist eljusemin að skila sér og eflaust verður ekki langt aö bíða fleiri sigra. Næstir á eftir sigurvegurunum komu Michael Bezold og Lars Bo Hansen með 8 vinninga en Þröstur Þórhallsson, Pólverjinn Jan Ad- amski og Svíinn Hillarp-Persson fengu 7,5 v. Matthías Kormáksson og Bragi Þorfínnsson fengu 6,5 vinn- inga, Stefán Kristjánsson og Berg- steinn Einarsson fengu 6 v., Hrann- ar B. Amarsson fékk 4,5 v., Ólafur ísherg Hannesson 4 v., Ólafur Kjart- ansson 3,5 og Sveinn Þór Wilhelms- son 2,5 v. Flugleiðir gáfu sérstök verðlaun á mótinu - unglingaverðlaun sem Helgi Áss Grétarsson hreppti og verðlaun fyrir besta frammistöðu Norðurlandabúa en þau féllu Carst- en Höi í skaut, sem hafði örlítið hagstæðari stigatölu í efsta sætinu en Helgi Áss. Þá tóku stórmeistararnir Jóhann Hjartarson og Hannes Hlífar Stef- ánsson þátt í opna kanadíska meist- aramótinu á íslendingaslóðum í Winnipeg, sem lauk í síðustu viku. Þar tefldu 188 keppendur og prýddu 11 stórmeistarar þann flokk. Enski stórmeistarinn Julian Hodgson varð hlutskarpastur, með 8,5 vinninga úr tíu skákum. Kanadíski stórmeistar- innn Kevin Spraggett varð einn í 2. sæti með 8 v., en Jóhann, Hannes Hlífar, Alexander Shabalov, Lev Psakhis, Jakob Murey og Reynaldo Vera fengu allir 7,5 v. og deildu 3. - 8. sæti. Skoðum sýnishom frá afrekum íslendinga í sumar. Fyrstur stígur Þröstur Þórhallsson á sviðið en hann hóf keppni á Politiken Cup með sigur í farteskinu frá öðru móti i Kaupmannahöfn. Þrátt fyrir þessa bráðskemmtilegu skák sem hér fer á eftir, átti hann fremur erfitt upp- dráttar á mótinu - hefur trúlega teflt helst til of djarft á köflum. Hvítt: Þröstur Þórhallsson Svart: Tapio Salo Caro-Kann vörn. 1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rc3 dxe4 4. Rxe4 Rd7 5. Bc4 Rgf6 6. Rg5 e6 7. De2 Rb6 8. Bb3 h6 9. R5f3 a5 10. c3 c5 11. Bf4 a4 12. Bc2 Rbd5 13. Bd2 Dc7 14. a3 Bd7 15. g3 cxd4 16. Rxd4 Bc5 17. Rgf3 Db6 18. 0-0-0 0- 0 19. Dd3 Hfd8 20. g4 Bc6 21. g5 hxg5 22. Bxg5 Bxd4 23. Rxd4 e5 24. Hgl!! exd4 25. Bh6 dxc3 26. bxc3! Lítill en yfirvegaður leikur. Nú er varla að sjá að svartur eigi viðun- andi vöm. Ef 26. - g6 kæmi auðvitað að bragði 27. Hxg6+! og ef 26. - Re7 27. Hxg7+ Kf8 gerir 28. Hg8+! Kxg8 29. Hgl+ Kh8 30. Dh3! útslagið. 26. - Rf4 27. Hxg7+ Kf8 28. Hg6+! Ke7 29. Hel+ Re6 Svarið við 29. - Be4 yrði 30. Dxe4! sem skýrir 28. leik hvits. Nú mætti ætla að svartur væri sloppinn en Þröstur er ekki af baki dottinn. 30. Hxe6+! Kxe6 Ef 30. - fxe6 31. Hh7+ og stutt í mátið. 31. Df5+ Ke7 32. De5+ - og svartur gafst upp, því að eftir 32. - Kd7 33. Bf5 er hann mát. Skoðum síðan eina skáka Jó- hanns frá Winnipeg. Yfirborðið virðist lyngt en undir niðri eru slík þyngsli í taflmennsku Jóhanns að kanadískur andstæöingurinn miss- ir hreinlega fótanna. Hvítt: Jóhann Hjartarson Svart: Fletcher Baragar Enskur leikur. 1. c4 c5 2. Rc3 Rc6 3. g3 g6 4. Bg2 Bg7 5. e3 d6 6. Rge2 Rge7 7. d3 0-0 8. 0-0 Be6 9. Rd5 Dd7 10. Hbl Hae8 11. b4 Rd8 12. Rxe7+ Hxe7 13. Rc3 f5 14. b5 Hef7 15. Db3 g5 16. f4 h6 17. a4 Kh8 18. Bb2 Hg8 19. Re2 De8 20. Hf2 He7 21. Dc2 Bc8 22. Hbfl Dh5 23. c5 Be6 24. cxd6 cxd6 25. fxe5 dxe5 26. Dc5 Hd7 27. Bxe5 Hxd3 28. Rd4 De8 29. Rxf5 Bxf5 30. Hxf5 Bxe5 31. Hxe5 Dd7 32. He7 Dd6 33. Be4! - Og svartur gafst upp. Mig vantaði mann í vinnu og það bara stoppaði ekki síminn! oWt mil/i' hirr)jn<; V. í rj) Smáauglýsingar Œ V 550 5000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.