Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1997, Blaðsíða 2
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997 DV
2 *(%-éttir
Einar K. Guðfinnsson hafnar aflamarki á norsk-íslensku síldina:
Hugsanlegt að senda
landsmönnum kvótann
- vara við hugmyndum um ofsagróða
>1^ Síldarbanki
íslands
ísland | 01611
Einkareikningur nr. .
320.000-
S
Grelölö gegn
tékkaþessum
vísitölufjölskyldunni
ÞrjúhundruÖogtuttuguþúsund-
Islandi
RÁK FYRIR TÖLVULETUR Þaö er mjög érlöandi að hér tyrir neöan sjéist hvorkl skrifl né stimplun
D195691+ 10< 016126>
„Ég tel mjög skoðunarvert að
beita uppboðsaðferð við stjóm veið-
anna á þessum stofni og minni á svo
sem fram hefur komið að það var
ein hugmynda sem Geir H. Haarde,
formaður þingflokks sjálfstæðis-
manna, setti fram á sínum tíma. Ég
tel hins vegar að ekki komi síður til
greina að skoða þann möguleika
sem Pétur H. Blöndal hefur sett
fram; að úthluta þessu til þjóðarinn-
ar beint án þess að ríkið taki neitt í
sinn hlut. Þetta á þó eingöngu viö
um norsk- íslenska síldarstofninn
vegna sérstöðu hans,“ segir Einar
K. Guðfinnsson, alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum,
um framtíðarstjóm veiða úr norsk-
íslenska síldarstofninum. Eins og
DV greindi frá á fimmtudag gæti
hvert kíló af síld lagt sig á 90 krón-
ur í sölu. Leiga á kílóinu er taliö
geta orðið um 9 krónur á kíló ef
miðað er við leiguverð á markaði í
dag. Ef þeim 233 þúsund tonnum
sem íslendingar mega veiða úr
norsk-íslenska síldarstofninum yrði
skipt upp á alla landsmanna kæmu
tæp 900 kíló í hlut hvei-s og eins.
Slík „eign“ gæti lagt sig á um 80
þúsund krónur en árlegur arður
yrði væntanlega 8 þúsund krónur.
Þannig fengi hver fjögurra manna
fjölskylda 320 þúsund króna verð-
mæti í pósti í formi 3.500 kílóa síld-
arkvóta.
Einar, sem þekktur er af and-
stöðu sinni við kvótakerfi sem
stjómtæki á veiðar, segir að reynsl-
an af því að stjóma veiðum meö
sóknarstýringu á síðustu vertíð
sýni ágæti þeirrar stjómunaraðferð-
ar.
„Þegar ákvörðum um frjálsar
veiðar var tekin í sumar vom uppi
hrakspár og alls konar menn mdd-
ust fram á völlinn og sögðu að þetta
myndi enda með ósköpum og leyfi-
legur kvóti yrði veiddur á skömm-
um tíma sem gerði þessa atvinnu-
starfsemi óhagkvæma. Allt reyndist
þetta vitleysa því þegar upp er stað-
ið liggur fyrir að ekki náðist að
veiða upp í leyfilegan hámarksafla.
Þetta segir mér að engin ástæða er
til þess að kvótabinda þessar veiðar
og ég tel að síst komi til greina að
úthluta síldinni á grundvelli afla-
marks eða kvóta," segir Einar.
Hann segist vara við þeim vænt-
ingum sem veiðileyfagjaldsmenn
hafa vakið um þann gróða sem orð-
ið gæti af gjaldtöku vegna veiðanna.
„Talsmenn veiðileyfagjalds hafa
verið að gefa á garðann hér og þar
með þvi að lofa afrakstri sem nýst
gæti til skattalækkana og aukinna
framlaga til velferðarmála og lækk-
unar skulda ríkisins. Þetta tel ég
mjög óábyrgan málflutning," segir
hann.
Einar segist verða var við mikla
og vaxandi andstöðu við kvótakerf-
ið í þjóðfélaginu.
„Mér finnst gæta vaxandi óþols
og andstöðu við ýmsar dökkar hlið-
ar kvótakerfisins," segir Einar K.
Guðfinnsson. -rt
stuttar fréttir
Deilur á Kjalarnesi um hvernig Vallárbóndi dreifir skít:
Lyktandi landgræðsla
- gráir melar við Esjuna í vor nú orðnir iðgrænir
íbúinn í gula húsinu hægra megin á myndinni - handan þjóðvegarins við
Esjuna - hefur kvartað yfir hænsnaskítsdreifingu Geirs Gunnars Geirsson-
ar, til hægri. Þegar myndin var tekin í gær var nýbúið að dreifa skrt á meiinn
sem hann og Þorsteinn Narfason heilbrigðisfulltrúi standa á. Yfirvöld telja
ekki ástæðu til að aðhafast í málinu. DV-mynd ÞÖK
„Ég er dálítið undrandi á þvi að
fólk skuli taka þetta svona nærri sér í
landi víðáttu og tíðra loftskipta. Fólk
sem flytur í sveitina hlýtur væntan-
lega að gera sér grein fyrir að það má
eiga von á lykt. Það tíðkast alls staðar
að nýta þennan áburð. Maður ekur
um djúpa dali í Sviss þar sem minni
loftskipti eru en hér - þar er kúa-,
svína- og hænsnaskítur. Þar lítur fólk
á þetta sem sjálfsagðan hlut. Sama
gildir um Danmörku og önnur land-
búnaðarlönd," sagði Geir Gunnar
Geirsson, eggja- og svínabóndi að
Vallá á Kjalamesi, þegar hann sýndi
DV og heilbrigðisfulltrúa hvar hann
hefur dreift hænsnaskít að undan-
fómu sem nágranni hefur kvartað
yfir.
Hænsnaskít hefur m.a. verið dreift
í þeim tilgangi að rækta upp mela í
landi Saltvíkur sem Geir festi kaup á
fyrir skömmu. íbúinn, sem hefur
kvartað, býr handan þjóðvegarins.
Hann kveðst m.a. uggandi yfir vatns-
bóli sínu.
„Geir er heimilt að dreifa skítnum
tvö tímabil á ári áður en frost kemur
í jörð,“ sagði Þorsteinn Narfason, heil-
brigðisfulltrúi Kjalarness. „Hann
verður hins vegar að taka tillit til ná-
grannanna. Samkvæmt mengunar-
vamareglugerð má hann ekki menga
fyrir öðrum. Það er rosalega mikil
lykt af hænsna- og svínaskít, sérstak-
lega þeim síðamefnda. Þama þarf því
Tveir starfsmenn utanrikisráðu-
neytisins héldu til Kína í dag til fund-
ar við kínverska ráðamenn. Helgi
Ágústsson ráðuneytisstjóri og Jón Eg-
ill Egilsson skrifstofustjóri munu
freista þess að koma á eðlilegum sam-
skiptum á ný á milli ríkjanna. Kín-
verjar hafa hótað refsiaðgerðum
vegna islandsfarar varaforseta Taí-
vans fyrir rúmri viku.
að fara bil beggja. En eins og staðan
er í dag er þetta ekki vandamál. Enn
sem komið er munum við ekki aðhaf-
ast neitt. Þessi dreifing er fimm hund-
mð metra frá umræddu vatnsbóli.
Kvartandinn taki til í eigin
ranni
Heilbrigðisfulltrúinn sagði að fram-
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra segist vona að ferðin muni skila
þeim árangri að Kínverjar láti af hót-
unum sínum. Kínversk stjórnvöld
hafa ítrekað látið þess getið á opinber-
um vettvangi undanfarið að íslending-
ar verði að taka afleiðingunum fyrir
að hafa leyft heimsókn Taívananna en
þeir líta á Taívan sem órjúfanlegan
hluta Kína.
angreindur kvartandi hafi kallað í sig
á miðvikudag - daginn eftir að Geir
hafði dreift hænsnaskít.
„Þessi íbúi kallaði mig til og sýndi
mér ástandið. Þá kom í ljós að það er
verið að dreifa mjög langt frá vatns-
bóli hans. Vatnsbólið er hins vegar
ekki af viðurkenndri gerð. Vatnið er
tekið beint úr grunnvatni en ekki
„Við höfum lagt meira í samskipti
við Kína en nokkur önnur lönd und-
anfarin ár,“ sagði Halldór. „Fleiri ís-
lenskir ráðamenn hafa farið í heim-
sókn þangað en til annarra ríkja."
Halldór segir það alveg ljóst að
ýmsar aðgerðir hafi verið til umræðu
hjá kínverskum ráðamönnum, svo
sem eins og að kalla kínverska sendi-
herrann á Islandi aftur heim. Skaöinn
lind. Sá sem kvartaði þarf því sjálfur
að gera úrbætur hvað það varðar,"
sagði Þorsteinn.
Heppilegt til landgræöslu
Geir Gunnar sýndi blaðamönnum í
gær hvemig hann hefur ræktað upp
mela meðfram þjóðveginum rétt ofan
Grundahverfis. Þar sem í vor var grár
melur eru nú, seinni hluta október,
orðnir iðgrænir blettir.
„Þetta er auðvitað áburður," sagði
Þorsteinn. „Ammoníakið rýkur úr
skítnum á einum sólarhring. Síðan
standa eftir ýmis lífræn efni. Maður
vildi auðvitað sjá þessa dreifingu í
samvinnu við aðra aðila sem eru að
vinna að landgræðslu. Það er meira
og minna að fjúka upp hér i nágrenn-
inu, til dæmis í Mosfellsdalnum,"
sagði Þorsteinn.
Varðandi starfsleyfi Geirs á Vallá
sagði Þorsteinn að honum væri heim-
ilt að dreifa skít á sínum landareign-
um - meira að segja mætti hann
dreifa á landareignum annarra sem
það samþykktu.
„Vandamálið er fyrsti sólarhringur-
inn eftir dreifingu. Það á að vera hægt
að dreifa í réttu vindáttinni, þannig
að lyktin standi frá byggð,“ sagði Þor-
steinn. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
náöi DV ekki sambandi við kvartanda
í gær.
-Ótt
af slíkri aðgerð myndi vara i fjölmörg
ár. Ráðherrann segir þó að Kínverjar
hafi opinberlega einkum minnst á
stöðvun viðskipta við ísland.
„Því er þó ekki að leyna að það hef-
ur valdið okkur vonbrigðum að við-
skipti Kína við ísland hafa lítið auk-
ist, þó svo að íslendingar hafi aukið
mjög viðskipti sín þar.“
-sól
Blindir aka bíl
Ökudagur blindra verður á
morgun, sunnudag, i fyrsta sinn
hérlendis. Blindum og sjónskert-
!um verður gefinn kostur á að
aka bílum undir leiðsögn öku-
kennara inni á lokuðu svæði.
Loftferðasamningur
Utanríkisráðherra og sendi-
1 herra Kanada hafa undirritað
r nýjan loftferðasamning milli ís-
■ lands. og Kanada. Samkvæmt
| honum mega Flugleiðir nú
fljúga þrisvar í viku til Halifax
I auk þess að fljúga tvisvar í viku
| til Montreal, eins og áður.
Vélstjórar í verkfall
Vélstjórar hafa samþykkt að
j boða verkfall á fiskiskipum með
j 1501 kW aðalvél og stærri. 197
| sögðu já við verkfallsboðun. 36
voru á móti en 5 seðlar voru
j auðir og ógildir.
Samframboð A-flokka
Alþýðuflokksfélögin í Reykja-
; nesbæ hafa samþykkt að standa
að sameiginlegu framboði félags-
hyggjuflokka í sveitarstjómar-
| kosningum i vor. Áður hefur Al-
p þýðubandalagið í Reykjanesbæ
; samþykkt það sama.
Prestar þagnarskyldir
Samkvæmt siðareglum presta
ber þeim að greina engum frá
þvi sem þeir verða áskynja í
I starfi sínu. Prestur var hins veg-
j ar lykilvitni i feðemismáli þar
sem maður var dæmdur faðir
| bama sem getin voru með
Itæknifrjóvgun, með sæði annars
manns. RÚV sagði frá.
Rafmagnslækkun
Stefht er að því að lækka raf-
orkuverð í Reykjavík um 1-3%
I við gerð fjárhagsáætlunar borg-
j arinnar. Aðalsteinn Guðjohnsen
S rafveitustjóri segir að lækkunin
| verði m.a. fengin með þvi að
| lækka tekjur Rafveitu Reykja-
á víkur og að Landsvirkjun stilli
! verðlagningu sinni í hóf.
Fundur í deilunni
Fundur var hjá ríkissátta-
| semjara í kennaradeilunni í gær
og nýr ftmdur hefst kl. 10 í dag.
Ekkert hafði í gær þokast í sam-
| komulagsátt, að sögn Eiríks
I Jónssonar, formanns KÍ. Verk-
fall skellur á annan mánudag ef
ekki semst íyrir þann tíma. -SÁ
Tveir sendir til Kína:
Reynt aö tala um fyrir Kínverjum
- utanríkisráöherra bjartsýnn á árangurinn