Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1997, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1997, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997 JLlV dagur i lífi Frumsýningardagur í lífi leikkonunnar Sóleyjar Elíasdóttur: Dórótea réð ferðinni „Ég opnaði augun um klukkan tíu og uppgötvaði að ég hafði sofið fyrstu heilu nóttina í marga daga. Lék samt kvöldið áður í Hinu ljúfa lífi. Álagið hefur verið mikið að undanfórnu og lítið um svefn. Ég lagðist aftur á koddann og vaknaði endanlega um hálfellefu- leytið þegar vinkona mín hringdi og var svo yndisleg að bjóða mér í „brunch“. Sokkabuxur handa dætrunum Fyrst þurfti ég að fara út í búð og kaupa sokkabuxur handa dætr- um mínum, Eygló og Gígju. Þær vildu nefnilega vera finar á frum- sýningunni og í nýjum sokkabux- um. Keypti svartar og hvítar sokkabuxur við finu kjólana þeirra. Síðan fór ég í „brunch" til Bjark- ar Jakobsdóttur og Gunnars Helga- sonar leikara. Þetta var frábært boð og veitingamar æðislegar; heitt kakó, egg, salat og nýbakað brauð. Ég kom í Borgarleikhúsið um klukkan tólf. Var mjög afslöppuð og hlakkaði virkilega til. Ekki með hnút í maganum eins og maður fær oft fyrir frumsýningar. Vissi að sýningin er skemmtileg enda er Dórótea svo bjartsýn og kjarkmik- il stelpa. Hún réð ferðinni þennan daginn. í Alexandersslökun Ég byrjaði á því að fara í hár- greiðslu og fórðun og setti í mig rúllurnar. Framkall var æft um eittleytið. Þegar því lauk fórum við nokkrir leikaramir inn í herbergi Sóley í hlutverki Doroteu ásamt sínum nánasta félaga þessa dagana, tikinni Tönju sem „leikur“ Tótó í Galdra- karlinum í Oz. til mín að hita upp. Ég hitti líka hana Tönju, tíkina sem leikur Tótó. Við erum orðnir miklir perluvinir. Stuttu fyrir sýningu fór ég í Alexandersslökun sem Sverrir Guðjónsson hefur verið að kenna okkur meðfram raddþjálfuninni. Þetta er mjög góð aðferð til að tengja sjálfan sig! Sýningin byrjaði síðan klukkan tvö með góðri stemningu. Gekk mjög vel fyrir sig og ekkert óvænt sem kom upp. Við fengum meira að segja „bravó" úr salnum þegar hléið kom. Þetta voru yndislegar móttökm- í lokin, klöppuð marg- sinnis fram. Pitsuveisla fyrir börnin Að sýningu lokinni um hálf- fimmleytið var haldin pitsuveisla fyrir börnin í leikritinu. Þórhildur leikhússtjóri hélt ræðu og var af- skaplega ánægð með frumsýning- una, eins og reyndar allir í kring- um okkur. Þá var farið í sturtu og klætt sig upp fyrir fordrykk heima hjá El- ínu Eddu búningahönnuði og Svgrri Guðjónssyni. Þangað var öllum „stóru börnunum" í sýning- unni boðið. MyWayíf-dúr Þaðan fórum við á Café Óperu að borða. Stemningin þar var mjög góð og maturinn eftir þvi. Það var voða gaman hjá okkur. Leikstjór- inn, Ken Oldfield, fór að spila á pí- anó og við sungum með. Tók með- al annars My Way í f-dúr! Okkur fannst við mjög skemmtileg en ég veit ekki um aðra gesti hússins. Síðan var aftur farið í partí nið- ur í Borgarleikhús. Klukkan var þá farin að nálgast ellefu um kvöldið. Þar var gleðskapur til klukkan fimm um morguninn, mikið dansað og hlegið, en ég fór hins vegar heim um eittleytið. Ég var gjörsamlega búin að vera, enda rosaleg töm að undanfömu. Var þreytt en mjög ánægð með dag- inn.“ Finnur þú fimm breytingar? 433 Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáö kem- ur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni tO hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfh sigurvegar- anna. 1. verðlaun: Hitachi-útvarpsverkjari frá Sjón- varpsmiðstöðinni, Síðiunúla 2, að verðmæti kr. 3.490,- „Ég hef lagaö bílinn. Nú tekur hann ekki eins mikiö pláss og áöur.“ Nafn: _ Heimili: Vínningshafar fyrir getraun nr. 431 eru: Vigdís Þorsteinsdóttir, Erla Ingvarsdóttír, Lækjargötu 10, Hafnargötu 71, 530 Hvammstangi. 230 Keflavík. 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr. 1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli- brísúpan eftir David Parry og Patrick Withrow. Vinningarnir verða sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 433 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.