Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1997, Page 52
60
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997 JO"V
*jbridge________________________________
Heimsmeistaramótið íbridge 1997:
Keppni um Bermúdaskálina hefst á morgun
Heimsmeistaramótið í bridge
hefst í borginni Hammamet í Túnis
á morgun og stendur yfir til mán-
aðamóta. Auk keppni um Bermúda-
skálina og Feneyjabikarinn verður
einnig keppt um fjölþjóðaheims-
meistaratitil þar sem fleiri þjóðir en
ein geta sameinast í sveit.
Frá því að byrjað var að keppa
um Bermúdaskálina, eða frá 1950,
hafa einungis 7 þjóðir unnið: Banda-
ríkin 14 sinnum, Ítalía 12 sinnum,
Bretland, Frakkiand, Brasilía, ís-
land og Holland einu sinni hvert. í
kvennaflokki er spilað um Feneyja-
bikarinn og hafa Bandaríkin unnið
7 sinnum af þeim 10 skiptum sem
keppt hefir verið. Bretar hafa unnið
tvisvar og Þjóðverjar eru að verja
titilinn frá því 1995. Bandaríkja-
menn unnu Bermúdaskálina 1995 og
sveit Freemans, Nickells,
Hammans, Wolffs, Meckstroths og
Rodwells vann sér rétt til þess að
verja titilinn.
Það er erfitt að spá um hverjir
séu líklegir sigurvegarar en sjaldan
hafa jafnmargar góðar bridgesveitir
tekið þátt. Evrópa sendir 5 sveitir:
Evrópumeistarana ítali, Pólverja,
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
Norðmenn, Dani og Frakka. Frá
Bandaríkjunum koma tvær sveitir
og verða báðar að teljast líklegar.
Auk þeirrar fyrrnefndu er sveit
Seymons, Soloways, Rosenbergs,
Zia, Martels og Stanzbys. Zia hefir
þar með náð langþráðu takmarki og
víst er að hann er hungraður í
Bermúdaskálina. Frá þessu svæði
kemur einnig sveit frá Kanada. Frá
S-Ameríku koma Brasilía og Chile,
frá Afríku, Asíu og Miðausturlönd-
um koma Túnis.Indland og Suður-
Afríka, frá Mið-Ameríku Venesúela,
frá Auturlöndum Formósa og Kína
og frá Miðjarðarhafssvæði Ástralía
og Nýja- Sjáland.
Um Feneyjabikarinn spila sveitir
frá sömu löndum, nema frá Evrópu.
Þar spila Bretland, Frakkland, ísra-
el, Þýskaland og Holland.
Um fjölþjóðakeppnina er minna
vitað, enda geta þær þjóðir, sem
ekki ná inn í úrslitakeppnirnar, tek-
ið þátt í henni.
Við skulum skoða eitt spil frá úr-
tökumóti Bandaríkjamanna þar
sem áttust við sveitir Seymons og
Freeman’s.
* G94
VÁK87
♦ 87652
* 5
♦ 1085
¥6
♦ D1094
4 ÁK1086
4 K2
109543
♦ KG
4 9432
í opna salnum sátu n-s Nickell og
Freeman en a-v Martel og Stanzby.
Þeir komust í þremur sögnum í
fjóra spaða og Freeman spilaði út
hjartatíu. Nickell drap á kóng og
spilaði tígli til baka. Martel hleypti
yfir á drottningu og suður fékk slag-
inn á kóng. Freeman spilaði nú
laufafjarka og þegar hann komst
inn á trompkóng spilaði hann meira
laufi sem Nickell trompaði. Einn
niður. Auðvitaö gat Martel unnið
spilið með því að drepa á tígulás og
dúkka tromp en það er ef til vill
ekki alveg upplagt.
í lokaða salnum sátu n-s Rosen-
berg og Zia á móti Rodwell og Mack-
stroth í a-v. Aftur varð lokasamn-
ingurinn fjórir spaðar í austur og
Zia spilaði út hjarta. Norður drap á
kóng en hann spilaði laufi til baka.
Meckstroth drap á blindum og spil-
aði spaðatiu, gosi, drottning og
kóngur. Zia vissi nú að hann gat
gefið makker stungu í laufi en hvað-
an átti fjórði slagurinn að koma?
Hann reyndi því að spila hjarta.
Meckstroth trompaði með áttunni
og spilaði síðan fimmunni. Lítið frá
norðri og Meckstroth svínaði sex-
inu. Fimm undir og 13 impa gróði.
Qiák
Þrír urðu efstir og jafnir á stórmótinu ílilburg:
Kasparov samdi af sér í síðustu umferð
- lokaátökin fram undan í norrænu VISA-bikarkeppninni
Garrí Kasparov getur nagað sig í
handarbökin fyrir að hafa gefið
franska stórmeistaranum Joel
Lautier jafntefli í skák þeirra í síð-
ustu umferð Fontys-stórmeistara-
mótsins í Tilburg í Hollandi. Skákin
var alls ekki að leysast upp i jafn-
tefli, eins og Kasparov virðist hafa
ályktað þegar hann þekktist jafnte-
flisboð Frakkans. f lokastööunni
átti Kasparov einfaldan leik sem
hefði gefið honum peði meira í
endatafli og vinningsstöðu.
Umsjón
Jón L. Ámason
Keppninautar Kasparovs, rúss-
nesku stórmeistararnir Peter
Svidler og Vladimir Krcimnik unnu
skákir sínar í lokaumferðinni. Þar
með komust þeir upp að hlið
Kasparovs og allir þrír deildu efsta
sætinu á mótinu. Svidler var raun-
ar úrskurðaður sigurvegari á stig-
um, Kasparov var í 2. sæti og
Kramnik þriðji.
Mótið taldist af 17. styrkleika-
flokki FIDE og þessi varð lokastað-
an:
I. -3. Svidler, Kasparov og Kramn-
ik (allir Rússlandi) 8 vinningar af 11
mögulegum.
4.-5. Adams (Englandi) og
Leko (Ungverjalandi) 7 v.
6. Judit Polgar
(Ungverjalandi) 6 v.
7. Shírov (Spáni) 5 v.
8. -9. Lautier (Frakklandi) og
Van Wely (Hollandi) 4,5 v.
10. Onichuk (Úkraínu) 4 v.
II. Piket (Hollandi) 2,5 v.
12. Shaked-Tal (Bandaríkin) 1,5 v.
Hvítt: Joel Lautier
Svart: Garrí Kasparov
Enskur leikur.
1. c4 c5 2. Rf3 Rf6 3. Rc3 d5 4. cxd5
Rxd5 5. e4 Rb4 6. Bb5+ R8c6 7. d4
cxd4 8. a3 dxc3 9. Dxd8+ Kxd8 10.
axb4 cxb2 11. Bxb2 e6 12. 0-0 Bd7 13.
Bxc6 Bxc6 14. Re5 Ke8 15. Rxc6 bxc6
16. Ha4 f6 17. Hfal Kf7 18. Hxa7+
í þessari stöðu bauð Lautier jafn-
tefli, sem Kasparov þáði. í lokastöð-
unni getur Kasparov hins vegar
leikið 20. - c5! því að ekki gengur 21.
bxc5 vegna 21. - Hb8 og vinnur bisk-
upinn vegna máthótunar í borðinu.
Og ef hvítur svarar 20. - c5! með 21.
b5 kemur einfaldlega 21. - Hb8 og
peðið fellur. Ótrúleg yfirsjón
Kasparovs, sem kostaði hann sigur-
inn á mótinu.
Róttækan vinstri flokk?
Fimmtíu ár í
fararbroddi.
Þekking og reynsla
tvinnast saman
í gæðaframleiðslu
rúma og dýna ffá
Ragnari Bjömssyni.
Þér líður vel
í rúmi frá
Ragnari Bjömssyni.
RAGNAR BJÖRNSSON ehf.
Dalshrauni 6 • 220 Hafiiarfirði
Símar 555 0397 & 565 1740 • Fax 565 1740
Norræna
bikarkeppnin
f dag, laugardag, er frídagur hjá
keppendum í norrænu VISA bikar-
keppninni á Grand Hótel í Reykja-
vík. Stórmeistaramir munu eflaust
nota tímann vel til þess að safna
kröftum fyrir lokaátökin. Fjórar sið-
ustu umferðir mótsins verða tefldar
á sunnudag, mánudag, þriðjudag og
miðvikudag og hefjast allar kl. 16,
nema lokaumferðin á miðvikudag,
sem hefst kl. 14.
Fyrirfram hefði mátt búast við
því að Norðurlandameistarinn Curt
Hansen, Jóhann Hjartarson og
Hannes Hlífar Stefánsson væru sig-
urstranglegastir. Strax í fyrstu um-
ferðunum tókst þeim Jóhanni og
Curt hins vegar að hrista Hannes af
sér - danski stórmeistarinn lagði
Hannes að velli í 2. umferð og Jó-
hann i þeirri þriðju. Skák Jóhanns
og Hannesar var býsna fjörug. Jó-
hann náði snemma undirtökunum,
með tvo biskupa gegn biskup og
riddara Hannesar á opnu borði.
Hannes varðist hins vegar vel, uns
þar kom að biskup hans lenti í
hremmingum og mannstap varð
ekki umflúið.
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Hannes Hlífar Stefánsson
Spænskur leikur.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4
RfB 5. 0-0 b5 6. Bb3 Bc5 7. a4 Hb8 8.
axb5 axb5 9. Rxe5 Rxe5 10. d4 Bxd4
11. Dxd4 d6 12. f4 Rc6 13. Dc3 Re7 14.
e5 Re4 15. Del Rc5 16. Ba2 0-0 17. b4
Ra4 18. Rc3 dxe5 19. Rxa4 bxa4 20.
fxe5 Rc6 21. c3 De7 22. Bd5 Bd7 23.
Hxa4 Rxe5 24. Ha5 Kh8 25. Dg3 Hfe8
26. Bf4 fB 27. h3 Bb5 28. Hfal Dd7 29.
Bb3 Dc6 30. Khl Hbd8
31. Bxe5! Hd3
Ef 31. - Hxe5 32. c4 Bxc4 33. Hxe5
fxe5 34. Hcl Hd4 og nú virðist bæði
35. Dc3 og 35. Dxe5 leiða til vinn-
ings. T.d. 35. Dxe5 Dd5 36. Hfl!
(skemmtilegur leikur) Da8 37. Bxc4
Hxc4 38. De7 og tjaldið fellur.
32. Dh4 Hd2 33. Hgl fxe5 34. c4
Hd4 35. cxb5 Dd6 36. Dh5 g6 37. Dg5
- Og Hannes gafst upp.
Smáauglýsingadeild DV er opin:
• virka daga kl. 9-22
• laugardaga kl. 9-14
• sunnudaga kl. 16-22
Tekið er á móti
smáauglýsingum
til kl. 22 til birtingar
nœsta dag
Ath. S
aWmilljhirri/ns
Smáauglýsing í
Helgarblað DV
þart þó að berast
okkur fyrir kl. 17
á föstudag
Smáauglýslngar
S50 5000