Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1997, Síða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1997, Síða 55
DV LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997 afmæli - Til hamingju með afmælið 19. október 95 ára Guðný Helgadóttir, Kleppsvegi 64, Reykjavik. 85 ára Guðbjörg Franklínsdóttir, Suðurgötu 12, Siglufirði. 80 ára Emilía K. Kristjánsdóttir, Hringbraut 50, Reykjavík. Þorvarður Guðmundsson, Stífluseli 14, Reykjavík. Hörður Davíðsson, Víghólastíg 5, Kópavogi. 75 ára Halldóra Sigurjónsdóttir, Móabarði 6 B, Hafnarfírði. 70 ára Jón Björgvin Stefansson, Skólavegi 22, Keflavík. Rósmundur Stefánsson, Skíðabraut 9, Dalvík. Guðrún Ingibjörg Sigurðardóttir, Þinghólsbraut 38, Kópavogi. 60 ára Auður Ketilsdóttir, Lambanesi, Fljótahreppi. Jóna Kristín Haraldsdóttir, Grýtubakka 2, Reykjavík. Birgir Hartmannsson, Álftarima 6, Selfossi. Eiginkona hans er Lára Bjamadóttir. Þau taka á móti gestum að heimili sínu sunnud. 19.10. eftir kl. 16.00. 50 ára Jóhann G. Óskarsson, Brekkustíg 3, Sandgerði. Áslaug Ármannsdóttir, Látraströnd 52, Seltjamamesi. Jóhanna Ólafsdóttir, Hraunbraut 19, Kópavogi. Bjarni Hallfreðsson, Torfufelli 23, Reykjavík. 40 ára Hrafnhildur Óskarsdóttir, Digranesvegi 48, Kópavogi. Sigmar Þormar, Hlíðarhjalla 76, Kópavogi. Ásta Sigrún Erlingsdóttir, Kirkjuvegi 49, Vestmannaeyjum. Björg M.L. Ragnarsdóttir, Nýbýlavegi 100, Kópavogi. Páll Skúlason, Suðurhvammi 7, Hafnarfirði. Guðmundur Þórður Ragnarsson, Huldubraut 19, Kópavogi. Jóhanna Birgisdóttir, Laugavegi 126, Reykjavik. Kristín Halla Sigurðardóttir, Kelduhvammi 13, Hafnarfirði. Margrét Beatrice Guido, Tunguvegi 18, Reykjavík. Smáauglýsingar 550 5000 Kristinn Morthens Guðbrandur Kristinn Morthens listmálari, Fjallkofanum við Meðal- fellsvatn, er áttræður í dag. Starfsferill Kristinn fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í stómm systkinahópi á Grímsstaðaholtinu. Þessi timi í sögu landsins var fátæku verkafólki erfiður og möguleikar til að sinna öðm en brauðstriti litlir. Snemma varð Kristinn því að hefja vinnu til að létta undir með heimilinu og í kreppunni varð að taka þá vinnu sem gafst. Lífsviðhorf Kristins mótuðust á þessum árum og jafnffamt baráttan við að láta kjörin ekki hlekkja sig. Af þrautseigju braust Kristinn und- an oki umhverfisins og hlýddi kalli löngunar sinnar til myndlistar. Hann fékk tilsögn ágætra málara og hefur helgað sig myndlistinni í meira en hálfa öld. Náttúra íslands er honum jafnan hugleikin og þang- að sækir hann efnivið málverka sinna. Kristinn hefur haldið mál- verkasýningar um allt land og er verk hans að finna á fjölda heimila um land- ið. Um miðja öldina nam Kristinn sumarbústað- arland í grýttum hlíð- um Meðalfells við Með- aifellsvatn sem hann hefur ræktað upp með þeim hætti að aðdáun vekur. í Fjallakofanum hefur listmálarinn dval- ið síðustu áratugi í skjóli fjallsins og Kjós- inni. Fjölskylda Fyrri kona Kristins var Gíslína Guðrún Ágústsdóttir. Börn Kristins og Gíslinu Guðrúnar eru Hjördís Emma, f. 26.10. 1936, húsmóðir í Reykjavík; Ágúst Rósmann, f. 5.1. 1943, verslunarmaður og málari á Selfossi.. Seinni kona Kristins var Grethe Skotte Pedersen, f. 18.3. 1928 á Lá- landi í Danmörku, nú látin. Þau skildu. Synir Kristins og Grethe eru Arthúr Willy, f. 27.1. 1948, forstöðumaður á Fræðslumiðstöð Reykjvíkur; Sveinn All- an, f. 10.6. 1951, forstöðumaður Svæðistjórnar um málefhi fatlaðra á Norðurlandi vestra; Þorlákur Hilmar, f. 3.10. 1953, myndlistarmaður að Álafossi í Mosfellsbæ; Ásbjöm, f. 6.6. 1956, tónlistarmaður, búsettur á Seltjamarnesi. Fóstursonur Kristins og Grethe er Bergþór, f. 22.8. 1959, hljómlistarmaður og bílaviðgerðarmaður, búsettur í Hafnarfirði. Barnsmóðir Kristins er Hlíf Ólafsdóttir, f. 14.2. 1924. Sonur þeirra er Ævar Hólm Guðbrands- son, f. 28.9. 1946, myndmennta- kennari við Fellaskóla í Reykjavík. Systkini Kristins era, Carla • Magnea Morthens Colding, f. 23.10. 1913, nú látin, var búsett í Asker í Noregi; Esther Morthens Elliot, f. 10.8. 1916, búsett í Englandi; Emilía Ruth Morthens Mason, f. 6.9. 1919, látin, búsett í Englandi; Emanúel Morhens, f. 14.1. 1921, búsettur i Reykjavík; Haukur Morthens, f. 17.5. 1924, látinn, söngvari i Reykjavík; Húbert Morthens, f. 26.2. 1926, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Kristins voru Rósa Guðbrandsdóttir, f. 28.10. 1892 á Tjörvastöðum í Landsveit, og Ed- vard Wiig Morthens, f. 15.5. 1882 í <- Nærð í Noregi. Ætt Foreldrar Edvards vora Morten Hofstad Viig og Emilie Lovise Sofie Jakobsen. Foreldrcir Rósu vora Guðbrandur Sæmundsson og Margrét Hinriks- dóttir, Tjörvastöðum i Landsveit. Kristinn Morthens. Helgi Rögnvaldsson Helgi Rögnvaldsson, smurverkstæðismaður hjá Samskipum, Öldu- götu 44, Hatharfirði, verður fimmtugur á morgim. Starfsferill Helgi fæddist á Gils- stöðum í Staðarhreppi en ólst upp á Borðeyri við Hrútaíjörð. Hann stundaði nám við Grunnskólann á Borð- eyri. Helgi vann um skeið hjá flutningum og hjá Kúdógleri. hóf störf hjá Samskip- um 1972 og hefúr starf- að þar síðan, nú á smurverkstæði fyrir- tækisins. Fjölskylda Eiginkona Helga er Helga Jónsdóttir, f. 13.7. 1944, starfsmaður við gæsluvöll og ræsti- tæknir. Þau hófu sam- búð 1969 en giftu sig *"*elgi 13.6.1971. Helga er dótt- Rögnvaldsson. jóns Eyjólfssonar, Land- sem er látinn, og Huldu Guðbjöms- Hann dóttur sem búsett er í Reykjavík. Börn Helga og Helgu eru Hulda Helgadóttir, f. 28.3. 1972, húsmóðir og ræstitæknir í Hafnarfirði, gift Haraldi Hafsteini Haraldssyni og era synir þeirra Anton Haralds- son, f. 6.10. 1992, og Fannar Öm Haraldsson, f. 4.4.1997; Rögnvaldur Helgason, f. 11.4. 1974, starfsmaður hjá Bifreiðum og landbúnaðarvél- um, i foreldrahúsum; Smári Helga- son, f. 22.4. 1982, nemi í Öldutúns- skóla. Alsystkini Helga era Dagmar Rögnvaldsdóttir, f. 21.11. 1946, bóndi að Bæ í Hrútafirði; Anna Inga Rögnvaldsdóttir, f. 8.12. 1950, starfsmaður við Hótel Sögu, búsett i. í Reykjavík; Valgerður Ásta Rögn- valdsdóttir, f. 24.3. 1953, kaupmað- ur í Kópavogi; Ingólfur Kristinn Rögnvaldsson, f. 20.5. 1959, húsa- smiður á Hellu. Hálfsystur Helga, samfeðra, era Gunnhildur Rögnvaldsdóttir, f. 29.8. 1935, húsmóðir á Seltjamar- nesi; Ester Rögnvaldsdóttir, f. 31.12.1936, húsmóðir í Reykjavík. Foreldrar Helga: Rögnvaldur Ingvar Helgason, f. 17.6.1911, d. 4.1. 1990, húsasmiður á Borðeyri, og Sigríður Jóna Ingólfsdóttir, f. 22.10. 1922, lengst af húsmóöir á Borðeyri, nú búsett í Borgarnesi. Ragnar Kjærnested, verkstjóri hjá Eimskipafélagi íslands, Engja- seli 64, Reykjavík, verður fertugur á morgun. Starfsferill Ragnar fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í Laugarneshverfinu. Hann lauk grunnskólaprófi frá Laugamesskóla, gagnfræðaprófi frá Laugalækjarskóla og prófum frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Ragnar hóf störf hjá Eimskipafé- lagi íslands 1974 og sigldi á skipum félagsins til 1981. Þá kom hann í land og hefur síðan stundað skrif- stofustörf og verið verkstjóri hjá Ragnar Kjærnested Eimskipafélaginu en hann er nú verkstjóri hjá Eimskipafélaginu í Hafnarfirði. Fjölskylda Ragnar kvæntist 27.8.1983 Ástríði Jóhönnu Jensdóttur, f. 18.6. 1960. Þau hófu sambúð 1980. Ástríður Jó- hanna er verslunarmaður, dóttir Jens Jónssonar, f. 1.5. 1921, og Sól- veigar Ásbjamardóttur, f. 26.1. 1926 í Reykjavík. Böm Ragnars og Ástríðar Jó- hönnu era Jens Pétur Kjærnested, f. 16.8. 1981, framhaldsskólanemi; Sólveig Lára Kjærnested, f. 3.11. 1985, nemi; Guðrún Helga Kjærnested, f. 13.12. 1991, nemi. Systkini Ragnars: Magnús Kjæmested, f. 29.1. 1947, stýrimaður á Seltjarnarnesi; Emilía Kjæmested, f. 24.3. 1951, skrifstofumaður í Reykjavík; Sigrún Kjæmested, f. 5.3. 1955, húsmóðir og listakona í Reykjavík. Foreldrar Ragnars Ragnar Kjærnested. era Láras Lúðvík Kjærnested, f. Sigrúnar 20.3. 1920, fyrrv. verkstjóri hjá Málningarverksmiðjunni Hörpu, búsettur í Reykjavík, og Guðrún Kjæmested, f. 4.12. 1918, húsmóðir. Lárus er sonur Magnúsar Kjærnested skipstjóra og k.h., Emilíu Lárusdóttur húsmóður. Guðrún er dóttir Egils Marbergs Guðjónssonar málarameistara og k.h., Sigurðardóttur húsmóður. fólk Álftageröisbræöur eru komnir til Reykjavíkur til aö halda sína fyrstu söngskemmtun á Hót- el (slandi. Hér eru þeir á hagyröingamóti á Vopnafiröi í sumar. DV-mynd GVA Alftagerflisbræður á Hótel íslandi Hinir síkátu, skagfirsku söngbræður frá Álftagerði skemmta á Hótel íslandi núna um helgina. Komu fram fyrir fullu húsi í gær- kvöldi og verða aftur á staðn- um í kvöld. Hljómsveit Geir- mundar leikur fyrir dansi eins og henni er einni lagið. Stemmningin því skagfirsk frá toppi til táar! Álftagerðisbræður eru sem kunnugt er Óskar, Pétur, Sig- fús og Gísli Péturssynir og undirleikari þeirra er Stefán Gíslason, stjómandi Karla- kórsins Heimis með meira. Með þeim köppum í för til Reykjavíkur eru sr. Pétur Þórarinsson í Laufási og Gísli Sigurgeirsson frétta- maður sem sjá um kynningu og gamanmál á milli söngat- riða. Söngdagskráin er afar fjöl- breytt. Meðal laga má nefna Undir dalanna sól, Caprí Kat- arína, Hamraborgin, O sole mio, í Hallormsstaðaskógi og einnig flytja þeir syrpu af „barber- shop“ lögum. Hótel ísland er opnað fyrir matargesti kl. 19 í kvöld og skemmtunin hefst kl. 21.30.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.