Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1997, Side 64
í. vmrungur
X__
I D V 0
xO
1 LU
f 20
■3 s LfO <
vi O
h* _
H O
-> s LO
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta frétt’askotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnieyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Unglæknar:
Meginþorri
hefur sagt
* upp
Um fimmtíu af sextíu unglækn-
um, sem starfa á Landspítalanum,
hafa sagt upp störfum. Að sögn
Ólafs Más Bjömssonar deildarlækn-
is er það meginþorri þeirra sem
vinna á stærstu deildunum, þ.e. á
lyflækningadeild, skurðdeild,
bama- og kvennadeildum og bráða-
móttöku.
Þeir læknar sem ekki hafa sagt
upp munu hins vegar ekki vinna
meiri yfirvinnu en lögboðin er sam-
kvæmt EES-vmnulöggjöfinni eða 48
klukkustundir á mánuði. í samningi
unglækna er þeim gert að vinna yfir
stundir í yfirvinnu á mánuði.
Deilu ríkisins og sjúkrahúslækna
var vísað til sáttasemjara í fyrradag.
Ljóst er að neyðarástand mun skap-
ast á Landspítalanum í desember
þegar uppsagnir unglækna ganga í
gildi verði ekki samið fyrir þann
tíma. -sól
Hæstiréttur:
Hanes-hjónin
ekki framseld
Hæstiréttur staðfesti 1 gær úr-
skurð Héraðsdóms Reykjavíkur
þess efnis að Connie Jean og Donald
Hanes skyldu ekki framseld til
Bandaríkjanna eins og þarlend yfir-
völd höfðu óskað. Héraðsdómur
komst að þeirri niðurstöðu fyrir
nokkru að lagaskilyrðum fyrir
framsal hefðu ekki verið fullnægt og
það staðfestist í gær. Mannúðarsjón-
armið munu hafa ráðið miklu um
niðurstöðuna.
Að sögn Ragnars Tómasar Árna-
sonar, hæstaréttarlögmans og verj-
anda Hanes-hjónanna, vinnur
bandarískur lögfræðingur að lausn
málsins ytra. -sv
. >Veisluskipiö Árnes
Þegar veislu skal halda
MERKILEGA MERKIVELIN
brother pt-2qq_
Islenskir stafir
5 leturstæröir
8 leturgeröir
6, 9 og 12 mm prentborðar
Prentar í tvær Ifnur
Verð kr. 6.995
Nýbýlavegi 28 Stmi 554 4443
PAÐ FER AÐ
VERÐA ÍSKALT
HJÁ SH!
^ Harkaleg átök SH og ÍS um sölumál:
IS ber víurnar í
fleiri fyrirtæki SH
Ekki sér fyrir endann á átök-
um Sölumiðstöðvar hraðfrystihú-
sanna og íslenskra sjávarafurða.
Á undanfömum misserum hefur
ÍS átt í viðræðum við eitt þeirra
fiskvinnslufyrirtækja sem eru
innan vébanda SH. Um er að
ræða frystihús úti á landi með
veltu upp á rúmlega hálfan millj-
arð króna. Sterkar líkur eru á því
að fyrirtækið, sem er af meðal-
stærð frystihúsa, muni skipta
yfir til ÍS á næstunni. DV ræddi
við einn forsvarsmanna fyrirtæk-
isins sem staðfesti að viðræðurn-
ar hefðu átt sér stað og líklegt
væri að fyrirtækið skipti um út-
flutningsaðila á næstunni. Hann
neitaði þó að staðfesta slíkt opin-
berlega.
„Vlið erum i viðskiptum við
SH og störfum innan þeirra vé-
banda meðan svo er,“ segir hann.
Hann sagði ástæður þess aö
hugað væri að skiptum fyrst og
fremst þær að ÍS væri framsækn-
ara fyrirtæki og menn þar á bæ
væru vakandi fyrir nýjungum.
„Hjá ÍS eru ungir menn sem
opnir eru fyrir nýjungum. Þeir
eru í stöðugri sókn á meðan for-
ystumenn SH halda kyrru fyrir
og fara í fýlu bæði innan- og ut-
anlands þegar eitthvað bjátar á,“
segir hann. Þetta er enn einn
kaflinn í átakasögu fyrirtækj-
anna innanlands. Áður hafði SH
náð að verja viðskipti sin við Út-
gerðarfélag Akureyringa og ÍS
náði að verja viðskiptin við Fisk-
iðjusamlag Húsavíkur. Nokkur
blóðtaka varð hjá SH þegar Bása-
fell á ísafirði varð til með sam-
runa nokkurra fyrirtækja. Þar á
meðal voru viðskiptavinir SH
sem undir nýju merki fóru yfir
til ÍS. Þá fór fyrirtækið Tros hf. í
Keflavík, sem er umsvifamikið á
sviði ferskfiskútflutnings, nýlega
yfir til ÍS.
Kaupin á meirihluta ÍS í
franska fyrirtækinu Gelmer hafa
enn ekki verið staðfest af for-
svarsmönnum ÍS. Samkvæmt
heimildum DV mun þó ætlun
þeirra með kaupunum vera að
tryggja stöðu sína í Evrópu. Stað-
setning í Frakklandi þykir væn-
leg fyrir þær sakir að miðja Evr-
ópu er að færast sunnar og með
starfsemi í Frakklandi telur ÍS
sig vera með kjörstaðsetningu,
m.a. vegna Ítalíumarkaðar.
-rt
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, gangsetti í gær svokallaða hlelfavél vegna stækkunar álversins f Straumsvík.
Um 1.500 manns voru viðstaddir vígslu þriðja kerskálans sem þar með var tekinn í notkun. Alls er nú hægt að framleiða
162 þúsund tonn af áli á ári í stað 100 þúsunda áður. Þetta þykja tfðindi í álheiminum. Rannveig Rist, forstjóri álversins,
var að sjálfsögðu viðstödd vígsluna. DV-mynd Hilmar Þór
Sjoppuræn-
ingjar
gómaðir
Lögreglan í Reykjavík handtók í
fyrrakvöld fjóra unga menn, þrjá
17 ára og einn 18 ára, í húsi i aust-
urborginni skömmu eftir vopnað
rán sem framið var í sölutumi við
Sundlaugaveg í fyrrakvöld.
Fimmti maðurinn var síðan hand-
tekinn síðdegis í gær. Farið hefur
verið fram á gæsluvarðhald yfir
fjórum mannanna vegna þessa
máls.
Samkvæmt heimildum DV eru
a.m.k. sumir mannanna vel þekkt-
ir hjá lögreglunni og hafa ítrekað
komið við sögu hennar undanfarin
misseri. Rannsókn máls þeirra er
ekki lokið en þeir eru grunaðir um
að eiga aðild að fleiri ránum sem
framin hafa verið í borginni und-
anfamar vikur; búi a.m.k. yfir vit-
neskju um þau. Meðal umræddra
mála er þegar gömul kona var
rænd í Öskjuhlíðinni í vikunni.
Lögreglan hvetur til þess að aðeins
fullorðnir vinni við afgreiðslu í
söluturnum á kvöldin. -sv
Veðrið á morgun og á mánudaginn:
Vægt frost á morgun
Á morgun er gert ráð fyrir hægri breytilegri átt og vægu frosti norðan til anátt og dálítilli súld um landið vestanvert en vestanátt og léttskýjuðu norð-
en hita á bilinu 1 til 6 stig sunnan til. Á mánudaginn er gert ráð fyrir suðvest- an og austan til. Hiti verður á bilinu 4 til 9 stig. Veðrið í dag er á bls. 65.
Upplýsfngar frá Veöurstofu íslands
Sunnudagur
Mánudagur