Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1997, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1997, Blaðsíða 2
LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1997 1 iV 2 i fréttir_______________________ Fjölmiölakönnun Félagsvísindastofnunar: Mánudagsblað og Helgarblað DV í sókn - Fjörkálfur DV á föstudögum mjög vinsæll meöal unga fólksins 50% 45 40 35 30 25 20 15 10 5 0 Helgarblað DV 47% Aukning á lestri rsyi Mánudagsblað DV 48% 44% 47% mars '97 mare '97 Tölur samkv. tjölmlölakönnun Félagsvstofnun Hl. 90% 80 70 60 50 40 30 20 10 0 Fjörkálfur DV 82% lesendum DV 64% 50% mars '97 37% mars '97 12-19 ára 20-24 ára DV er í mikilli sókn hjá ungu fólki samkvæmt niðurstöðum nýrrar fjölmiðlakönnunar Félags- vísindastofnunar. Lestur á Helg- arblaði og mánudagsblaði DV hef- ur aukist. iþróttaumfjöllun blaðs- ins á mánudögum nýtur einnig aukinna vinsælda. Umfjöllun DV um kvikmyndir, Netið, tækni og vísindi hefur slegiö í gegn. Af þessu er ljóst að það átak starfs- manna að gera gott blað betra er að skila árangri. Unnið hefur ver- ið markvisst að breytingum á út- liti blaösins, breytingum á ein- stökum efnisþáttum og öflugri fréttaskrifum. Lestur á DV á mánudögum hef- ur aukist um 3 prósentustig, fer úr 44 í 47 prósent. í aldurshópn- um 20-24 ára er lestur á mánu- dagsblaðinu 59 prósent og hefur aukist um 8 prósentustig frá síð- ustu fjölmiðlakönnum sem fram- kvæmd var í mars. Eins hefur lestur DV á mánudögum í aldurs- hópnum 25-34 ára aukist veru- lega, fer úr 46 prósentum i 53 pró- sent. Lestur íþróttafrétta DV á mánudögum hefur aukist úr 47 prósentum í 50 prósent hjá lesend- um blaðsins. Lestur DV á þriðjudögum hefur avikist úr 39 prósentum í 43 pró- sent eða um fjögur prósentustig. Aukning á lestri Helgarblaðs DV er langmest í aldurshópnum 20-24 ára, fer úr 57 prósentum í 66 prósent. Lestur á helgarblaði DV hefur aukist um eitt prósentustig, úr 47 prósentum í 48 prósent. Lestur á Fjörkálfi DV tekur gríðarlegan kipp upp á við enda rík áhersla lögð á að hafa þar vandaða og líflega umfjöllun um kvikmyndir, myndbönd, tónlist og viðburði helgarinnar. 82 pró- sent lesenda DV á aldrinum 12-19 ára lesa Fjörkálfinn. Lestur í þessum aldurshópi nam 50 pró- sentum í mars svo hér er alls um 32 prósentustiga stökk að ræða. 64 prósent lesenda DV á aldrinum 20-24 ára lesa Fjörkálfinn sem er aukning um 27 prósentustig. -hlh Póstur og sími hf.: Engar nornaveiðar - segir Pétur Reimarsson „Við ætlum ekki að hefja neinar nomaveiðar í fyrirtækinu," sagði Pét- ur Reimarsson, sfjómarformaður Pósts og síma, í gær. Pétur sagði að ekki hefði komið til greina að segja neinum upp i kjölfar átakanna sem staðið hafa vegna gjald- skrárbreytinga fyrirtækisins. Hins vegar íhuguðu fúlltrúar í sfjóm P&S að segja af sér vegna misbrests í kynn- ingu. Pétur sagðist hafa rætt þetta við samgönguráðherra en það hefði verið mat manna að slík afsögn myndi að- eins skaða fyrirtækið. Þá tók stjómin þá ákvörðun á fundi sínum í gær að fela Ríkisendurskoðun að kanna forsendur fyrir hækkun sím- taxta í kjölfar þess að landið varð eitt gjaldsvæði til þess að taka af allan vafa um réttmæti hennar. Stjómin staðfesti á fundi sínum í gær málamiðlunargjaldskrá sem for- sætisráðherra lagði fram í síðustu viku eftir íhlutun í málinu. Nýja gjald- skráin tekur gildi á þriðjudag eða mið- vikudag og verður taxtinn þar með 1,56 kr. mínútan í stað 1,99 kr. Þetta samsvarar um 20% hækkun á staðar- símtölum í stað 40% eins og fyrirhug- að var. -Sól. Pétur Reimarsson, stjórnarformaður Pósts og síma, á blaðamannafundinum f gær. DV-mynd E. Ól. Halldór Kristjánsson prentari, til vinstri, og Sigurjón Magnús Egilsson, rit- stjóri Mánudagsblaðsins, leggja lokahönd á blaðið sem kemur út í dag. DV-mynd Hilmar Þór stuttar fréttir Lækka vexti Bankastjóm íslandsbanka hefur ákveðið að lækka vexti á verðbréfum, inn- og útlánum frá og meö 11. nóvember nk. Vextir bankans lækka um 0,0% á verðtryggðum inn- og útlán- um. Tapið tvöfalt meira Tap ríkissjóðs af raðsmíða- skipum er tvöfalt meira en fjár- málaráðuneytið hefur látið í veðri vaka. Þetta er mat Sig- urðar Þórðarsonar ríkisendur- skoðanda sem segir tapið nema um 1700 milljónum en ekki 800 eins og gefið var til kynna af ráðuneytinu. Stöð 2 sagði frá. Biöjast forláts Reiknistofa hefur sent bréf til þeirra viðskiptavina sem fengu tilkynningu um inn- stæðulausar úttektir án þess að fyrir þeim væri stoð. I bréflnu segist Reiknistofa harma mis- ; tökin. RÚV sagði frá. Lágmarksrefsing Þorsteinn Pálsson telur koma til greina aö setja lág- marksrefsingu fyrir tiltekin af- brot. Margir dómarar og lög- menn, sem nú sitja þing í Reykjavík, telja að dómar eigi eftir að þyngjast verði þetta gert. Stöð 2 sagði frá. Nýtt Mánudagsblað kemur út í dag: Stærsti hlut- hafinn á 12 prósent Nýtt Mánudagsblað kemur út í dag, laugardag. Sigurjón Magnús Egilsson ritstjóri segist bjartsýnn á framtíð blaðsins: „Það hefur komið okkur þægilega á óvart hve vel okkur hefur verið tekið - til dæmis með að fá fjár- magnið inn í blaðið. Margir eru greinilega þeirrar skoðunar að þörf sé á fleiri prentmiðlum. Tvær og hálf milljón króna hafa þegar verið greiddar af hlutafé blaðsins," sagði Sigurjón Magnús Egilsson, ritstjóri blaðsins, í samtali við DV. Sigurjón sagði að stærsti hluthaf- inn ætti 12 prósent í blaðinu: Framhaldsstofnfundur Mánu- dagsblaðsins er í dag. „Hluthafarnir eru nokkuð margir og eignaraðildin því verulega dreifð,“ sagði Sigurjón. „Ég segi til dæmis í leiðara að suma hluthafa hafl ég aldrei séð og enginn hafi sett nein skilyrði fyrir þátttöku sinni. Við erum því eins óháðir eigendum okkar og hugsast getur.“ Mánudagsblaðið er 12 síðm Blaðamennimir eru tveir, Sigurjói og Sæmundur Guðvinsson, báði menn sem hafa viða komið við sögi í fjölmiðlaheiminum. í blaðinu í da: er m.a. greint frá „stórfelldum inr herjaviðskiptum þar sem stjómend ur fyrirtækis misnotuðu trúnaðar upplýsingar". Aðspurður um ritstjórnarstefm blaðsins sagði Sigurjón: „Ætli vi séum ekki einhvers staðar mitt ; milli Pressunnar og DV.“ -Ót Breytt tíma- setning Breyting hefur oröið á tíma- setningu á tónleikum kórs ís- lensku ópemnnar. Tónleikamir verða haldnir í dag kl. 15 í Lang- holtskirkju en ekki á morgun kl. 15. ( .( ( ( ( ( c I ( t ( ( ( ( ( ( c ( ( ( ( I ( ( ( ( ( ( (
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.