Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1997, Blaðsíða 12
12
LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1997 DV
•dja/
Gunnar Helgason leikari er fjórfaldur listamaður - leikur í kvikmynd, býr til leikrit og gefur út bók og plötu:
y
Gunnar Helgason ásamt konu sinni, Björk Jakobsdóttur, syninum Asgrími, 4 ára, og tíkinni Perlu.
barnabók
Gunnars.
Tvær þær
fyrstu fjölluðu
um félagana
Gogga og
Grjóna en þriðja
bókin var skrifuð
í samvinnu við Fel-
ix Bergsson, Ferða-
bók Gunna og Felix
sem kom út sl. vor.
Gunnar segist hafa
virkilega gaman af því
að skrifa.
„Þetta byrjaði þegar
ég vann sem nætur-
vörður á elliheimili
fyrir nokkrum
árum. Þá fór ég að
dunda mér við
skriftir," segir
Gunnar. í nýju
bókinni um
Grýlu segist
DV-mynd S hann vera að
gera tilraun til
Þama var skip í nauð og það þurfti
að bjarga mönnunum," segir Gunn-
ar sem einnig varð að síga í björg á
fyrstu tökudögunum í Vík í Mýrdal
og Dyrhólaey. Síðustu tvær vikur
hafa farið í tökur i Færeyjum. Að
sögn Gunnars er áformað að frum-
sýna Dansinn einhvern tímann á
næsta ári.
Eins og kom fram í inngangi þá
er Gunnar að undirbúa leikgerð á
„Síðasta bænum í dalnum“. Leik-
gerðina vinna þeir Hilmar Jónsson
upp úr bók sem Loftur Guðmunds-
son skrifaði að lokinni gerð sam-
nefndrar kvikmyndar Óskars Gísla-
sonar. Myndin var frumsýnd árið
1950 en sagan hefur aldrei áður ver-
ið færð á leiksvið. Að sögn Gunnars
er stefnt að frumsýningu í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu í janúar á næsta
ári. Vegna kvikmyndarinnar hefur
undirbúningur reyndar lent á herð-
um Hilmars sem mun leikstýra
verkinu. Gunnar verður í tveim-
ur hlutverkum í uppfærslunni.
Um þessar mimdir er
að koma út hjá
Bókaútgáfunni
Hólum bama-
bók eftir
Gunnar sem
nefnist ein-
faldlega
Grýla.
Þetta er
flórða
Gunnar Helgason leikari er með
mörg jám í eldinum um þessar
mundir. Hann er að leika aðalhlut-
verkið í nýrri kvikmynd Ágústs
Guðmundssonar, Dansinum, hann
hefur ásamt Hilmari Jónssyni og
fleirum verið að undirbúa leikgerð
á „Síðasta bænum í dalnum“ fyrir
Hafnarfjarðarleikhúsið, hann er að
gefa út jólaplötu meö Felix Bergs-
syni og síðast en ekki síst er hann
að gefa út sína fjórðu bamabók.
I Dansinum, sem byggður er á
sögu Færeyingsins Williams
Heinesens, leikur hann sögumann-
inn Pétur. Myndin fjallar um brúð-
kaupsveislu í Færeyjum árið 1913
sem flosnar upp vegna skipstrands.
Brúðkaupsgestir fara í það að
bjarga skipbrotsmönnum í miklu
fárviðri. Það tekst að því undan-
skildu að einn skipsbrotsmanna
deyr. Af þeim sökum vilja kirkjunn-
ar menn stöðva dans og aðra gleði í
brúðkaupsveislunni. Brúðurin er
mótfallin þessu og heldur hluti
hópsins veislunni áfram í öðm
húsi. Inn í söguna fléttast ást-
arsambönd sem koma upp á
yfirborðið á óþægilegustu
augnablikum.
„Sagan er einfaldlega mjög góð.
Fjallar um alvörufólk. Ég hef mikla
trú á leikarahópnum, vel valið í öll
hlutverk. Ég var ekki lengi að segja
já þegar Ágúst hringdi í mig og
bauð mér hlutverk. Ég og konan
mín lásum handritið yfir og það
varð úr að hún fékk hlutverk líka,“
segir Gunnar sem kvæntur er Björk
Jakobsdóttur leikkonu. Hún leikur
vinnukonu á bæ brúðgumans í
Dansinum en Gunnar og Björk hafa
oft áöur leikið saman i Hafnarfjarð-
arleikhúsinu.
Gunnar er að leika í sinni
fyrstu kvikmynd. Hann telur þá
varla með stutta inn-
komu í kvik-
myndinni
Punktur,
punktur,
komma,
strik sem
drengur
Kvikmynd um
alvörufólk
Gunnar fullyrð-
ir að þarna sé í
vinnslu ein
besta ís-
lenska
kvik-
myndin
sem
gerð
hefur
verið.
að borða lakkrísrör, þá 13 ára!
Á bjargbrún í roki og
rignmgu
„Þetta er allt annað en að leika á
sviði. Ég var svolítið stressaður
fyrsta tökudaginn. Þá var byrjað
strax á björgun skipsins. Maður
stóð á bjargbrún í roki og rigningu
og var kannski
ekki mikið
spá í
leik-
inn.
að endurvekja kerlinguna og upp-
hega ímynd hennar í huga ungu
kynslóðarinnar.
„Mér finnst Grýla hafa verið eitt-
hvert „tabú“ í uppeldi bama. Það er
eins og megi ekki hræða börn leng-
ur. Þetta er tilraun til að koma
Grýlu á kortið. Til þess varð ég að
milda hana aðeins. Hún er að segja
frá jólunum hjá sér, af hverju hún
þurfti að borða krakka og af hverju
hún hætti þvi og af hverju hún
hætti allt í einu að koma til byggða.
Hún er líka að segja frá mökum sín-
um. Leppalúði var nefnilega þriðji
eiginmaðurinn, hinir voru Boli og
Gustur. í bókinni em einnig visur
og gamlir húsgangar," segir Gunnar
sem vann bókina upp úr gömlum
þjóðháttasögum og spann út frá
þeim. Myndir í bókinni era eftir
Þórarin Gunnarsson Blöndal sem
Gunnar segir að séu stórkostlegar.
„Bókin er ekki komin út en
myndir Þórarins era þegar farnar
að spyrjast út. Hann hefur t.d. verið
beðinn um að gefa myndimar út á
kortum og teikna í fleiri bækur.“
Ný lög á jólaplötu
Þetta er ekki allt því eins og áður
sagði er að koma út geislaplata með
Gunnari. Þar era þeir félagar Gunni
og Felix á ferðinni, þeir sömu og
gáfu út fjórar hljóðsnældur sl. sum-
ar. Á plötunni undirbúa þeir jólin,
segja jólaævintýri og syngja jólalög,
gömul og ný. Þannig eru þrjú ný lög
sem Jón Ólafsson og Ólafur Gaukur
hafa samið í samvinnu við Gunna
og Felix. Platan er væntanleg á
markað en mun einungis fást í
verslunum Hagkaups.
En hvernig skyldi þetta allt vera
hægt? Að skrifa bók, gefa út plötu,
leika í kvikmynd og búa til leikrit.
Eðlilegt að spurt sé, segir Gunnar,
en hér sé fyrst og fremst um skipu-
lagningu að ræða. Þannig hafi allur
tími verið nýttur. T.d. hafi þeir not-
að tímann yfir daginn, á meðan þeir
vora að skemmta á Þjóðhátíð i Eyj-
um að kvöldlagi, til að taka upp lög
á plötuna.
Lagðist á spítala
„Eg skrifaði bókina í sumar, var
oft langt fram á nótt, sólarhring eft-
ir sólarhring. Keyrði mig bók-
staflega út. Þetta var auðvitað
brjálæði sem reyndar endaði með
þvi að ég var veikur í mánuð. Um
leið og mesta stressið var búið
hrundi ég niður. Nýran klikkuðu
eitthvað og í kjölfarið fékk ég
lungnaberkjubólgu og þurfti að
leggjast inn á spítala," segir Gunnar
sem viðurkennir að auðvitað sé
þetta geggjun. Það sé bara svo gam-
an að vera geggjaður!
í framtíðinni vonast hann til að
geta skrifað meira meðfram leiklist-
inni. Einnig muni hann ekki hika ef
fleiri boð um kvikmyndaleik berist.
Loks eigi hann sér þann draum að
gera sína eigin kvikmynd.
„Mér finnst íslensk kvikmynda-
gerð hafa verið á villigötum að und-
anfómu. Síðustu myndir hafa ekki
verið nógu góðar. Minn draumur er
að gera mynd um alvörufólk, líkt og
Dansinn hans Ágústs. Hún fjallar
um fólk, hvernig því líður og hvað
það gerir til að bæta lífið. Það er
ekki verið að fjalla um eiturlyfja-
kappakstur um landið eða inni-
haldslaust grín,“ segir leikarinn og
rithöfundurinn Gunnar Helgason
sem greinilega hefur myndað sér
ákveðnar skoðanir á íslenskri kvik-
myndagerð. -bjb