Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1997, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1997, Side 14
14 LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1997 fyrir 15 árum Sagði frá því í DV er hönd var grædd á hana eftir slys: Vinimir létu sig hverfa - segir Ragnhildur Guðmundsdóttir meðal annars um afleiðingar slyssins „Vegna handarmissisins þótti mér einsýnt að ég gæti ekki unnið hvaða starf sem er og því ákvað ég að drífa mig í nám. Ég fór í kvöldskóla og kláraði stúdentsprófið á átta árum. Þegar ég lauk því vorið 1993 tók ég 1. stig í söng en ákvað síðan að fara í félagsfræði í H.í. 1995. Þar er Ragnhildur hefur þurft að læra að skrifa með vinstri hendinni en lætur það ekki aftra sér frá náminu. Stúdentshúf- una fékk hún 1993. 1981 að missa hönd í fisk- vinnsluvél í Sandgerði. Höndin var grædd á og sagði Ragnhildur við DV nóvember fyrir fimmtán árum, einu og hálfu ári eftir slysið, að eftir ágræðsl- una gæti hún gert helmingi meira en ef höndin hefði ekki verið grædd á. ég nú á þriðja ári og vonast til þess að ljúka BA-prófi um jólin 1998 meö hagnýta fjölmiðlun sem aukafag," segir Ragnhildur Guðmundsdóttir í Keflavík. Ragnhildur varð fyrir því í maí Ragnhildur hefur heldur betur staðið í stór- ræðum frá því að viðtalið var tekið viö hana á sínum tíma. Þá var birt mynd af henni ásamt unnusta henn- ar, Rögnvaldi Helga Helga- syni, sem nú er eiginmaður hennar, og syni þeirra á fyrsta ári, Guðmundi Helga. Þau hjón eiga nú fjögur böm, Guömund Helga, 15 ára, Daníel Frey, 14 ára, Eyrúnu Sif, 10 ára, og Sig- mar Þór, 4 ára. „Mestur tími hefur auðvit- að farið í börnin en vitaskuld hef ég verið að fást við ýmis- legt annað. Ég hef mikið unn- ið með Alþýðubandalaginu hér í bæ og á m.a. sæti í stjórn þess. Ragnhildur segir að vita- skuld hafi slysið haft mikil Svona leit fjölskyldan út í DV fyrir fimmtán árum, einu og hálfu ári eftir að Ragnhildur missti höndina í slysi. Rögn- valdur Helgi, Ragnhildur og sonurinn Guðmundur Helgi. DV-mynd GVA Ragnhildur og Rögnvaldur Helgi Helgason eiga nú orðið fjögur börn. Þau eru Guð- mundur Helgi, 15 ára, Danfel Freyr, 14 ára, Eyrún Sif, 10 ára, og Sigmar Þór, 4 ára. Myndin var tekin þegar Daníel Freyr var fermdur sl. vor. áhrif á líf hennar, lífsviðhorfið sé allt annað á eftir. „Mér finnst ég vera miklu meiri félags- og jafnaðarvera í dag. Ég horfi meira á hvem- ig aðrir hafa það og vil láta gott af mér leiða. Starfið með Al- þýðubandalaginu er liður í því að taka þátt og hafa áhrif.“ En slysið hafði líka önnur áhrif. Sex ára á ný „Það sem mér fannst kannski sér- kennilegast við slysið var að þeir sem maður hafði kallað vini síni og v erfitt að t£ kunningja létu sig alveg hverfa. Ég var aðeins sextán ára þegar þetta gerðist og mér fahnst afar sárt að upplifa þennan kunningjaflótta. Æskuvinkonan stóð með mér og síðan fjölskyldan, sem betur fer,“ segir Ragnhild- ur. Ragnhildur segir að vissu- lega hafi verið takast á við slys- ið á sínum tíma. Hún hafi þurft að læra að skrifa með vinstri hendinni og það hafi verið eins og að verða sex ára á nýjan leik. „Ég hef svo sem ekki mikla hreyfigetu í hendinni en hún veitir mér mikinn stuðning," segir Ragn- hildur Guðmundsdóttir. -sv bókaormurinn_______________ Jón Ormar Ormsson. leikari. fræðimaður oy grúskari: Les einkenniíega „Ég er alæta á bækur. Á yngri ámm las ég feiknin öll af skáldskap; ljóðum, skáldsögum og leikritum, og ég hugsa að ég hafi fylgst vel með því sem var að gerast á þeim vett- vangi. Á seinni ámm hafa bækur sagnfræðilegs eðlis og ævisögur meira og minna fangaö mig til lest- urs,“ segir Jón Ormar Ormsson á Sauðárkróki, leikari, fræðimaður, og grúskari með meiru. Hann er bókaormur að þessu sinni og ætti náttúrulega með réttu að hafa við- umefnið Bóka-Ormar! Hann segist hafa í tengslum við undirbúning afmælishalds á Sauð- árkróki sl. tvö ár þurft að lesa mik- ið af ævisögum og skáldskap, þá jafh ólíkra höfunda og t.d. Gyrðis Elíassonar, Hannesar Péturssonar, Guðrúnar frá Lundi og Geirlaugs Magnússonar. „Flestir em þetta gamlir kunn- ingjar. Margt af því sem ég les reglu- lega eru einmitt gamlir kunningjar. Varðandi ævisögur þá kemur upp í hugann sú einstaka ævisaga Indriða Einarssonar, Séð og lifað, sem ég glugga alltaf reglulega í. Ég hugsa að ævisaga tengdasonar hans, Ólafs Thors, eftir Matthias Johannessen sé nú eiginlega komin í þann hóp.“ Jón Ormar segist lesa „einkenn- ilega". Hann sé með margar bækur undir í einu, raði þeim upp á borð við hliðina á tölvunni og lesi engar þeirra í strikklotu. Tvær bækur hafa þó tekið mestan hans tíma að undanfórnu, annars vegar Utanrík- isþjónusta Islands og utanríkismál eftir Pétur J. Thorsteinsson og Út- varp Reykjavík, saga Ríkisútvarps- ins eftir Gunnar Stefánsson. Útvarp og utanríkismál „Bókin um utanríkisþjónustuna hefur komið mér á óvart hvað hún er skemmtileg. Hún er hafsjór af fróðleik, kemur líklega mest á óvart hvað íslendingar hafa verið uppá- tektarsamir í þessum málaflokki og hvað lítið hlutfall útgjalda ríkisins fara til hans. Bók Gunnars um Ríkis- útvarpið er mjög fróðleg og skemmti- leg aflestrar. Skemmtilegast þykir mér hversu nákvæmar heimilda- skrár eru eftir hvern kafla. Saga Rík- isútvarpsins er geysilega merkileg. Um leið og maður les bókina koma Jón Ormar Ormsson segist vera alæta á bækur en í seinni tíð hafa ævisögur og sagn- fræðibækur heillað hann mest. DV-mynd ÞÖK upp ýmsar sviptingar í þjóðmálum, fróðlegt að sjá hvemig menn hugs- uðu þennan miðil í upphafi. Ef mað- ur horfir til þeirrar upplýsingaaldar sem nú er þá er þetta eins og að lesa fornsögumar. Mér fmnst Gunnar hafa komið vel frá þessu verki,“ segir Jón Ormar. Skáldskapur er einnig á borði hans og oftast hefur dúkkað upp skáldsagan 101 Reykjavík eftir Hallgrím Helgason. „Hún er sögð fyndin en mér finnst hún harmsöguleg á köfl- um. Það er gaman að lesa hana en ég gæti sennilega aldrei les- ið hana í heilu lagi. Orðgnótt er í þessari bók og mér skilst að hugmyndir séu uppi um að kvikmynda hana. Það verður skemmtilegt að fylgj- ast með því.“ Jón Ormar skorar á Unn- ar Ingvarsson, sagnfræðing og skjalavörð í Héraðsskjalasafni Skagfirðinga, sem næsta bókaorm helgarblaðsins. -bjb METSÖLUBÆKUR 8RETLAND SKÁLDSÖGUR - KIUUR: 1. Helen Fleldlng: Bridget Jone’s Diary. 2. Danlelle Steel: Silent Honour. 3. Ken Follett: The Third Twin. 4. Mlchale Crlchton: Airframe. 5. Davld Baddle: Time for Bed. 6. Wilbur Smlth: Birds of Prey. 7. Dean Koontz: Sole Survivor. 8. Stephen Fry: Making History. 9. Ruth Rendell: The Keys to the Street. 10. Margaret Atwood: Alias Grace. RIT ALM. EÐLÍS - KIÚUR: 1. Blll Bryson: Notes from a Small Island. 2. Paul Wllson: The Little Book of Calm. 3. Nick Hornby: Fever Pitch. 4. Frank McCourt: Angela’s Ashes. 5. John Gray: Men are from Mars, Women are from Venus. 6. Monty Roberts: The Man Who Listens to Horses. 7. Ted Hughes: By Heart. 8. Mr Nlce: Howard Marks. 9. Griff Rhys Jones (ed.): The Nation's Favourite Poems. 10. Scott Adams: The Dilbert Principle. INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR: 1. Patrlcla D. Cornwell: Unnatural Exposure. 2. Arundhatl Roy: The God of Small Things. 3. Dlck Francls: 10-lb Penalty. 4. Cllve Cussler: Flood Tide. 5. Bemard Cornwell: Excalibur. 1. Andrew Morton: Diana: Her true story in Her Own Words. 2. Mlchael Palln: Full Circle. 3. Dlckie Blrd: My Autobiography. 4. Kevln Keegan: My Autobiography. 5. Stephen Fry: Moab is my Washpot. (Byggt á The Sunday Times) BANDARÍKIN SKÁLDSÖGUR - KIUUR: 1. James Patterson: Jack & Jill. 2. Mlchael Crlghton: Airframe. 3. Jonathan Kellerman: The Clinic. 4. Nora Roberts: The McGregor Brides. 5. Ernest J. Galnes: A Lesson before dying. 6. Mary Hlgglns Clark: My Gal Sunday. 7. James Patterson: Kiss the Girls. 8. Rlchard N. Patterson: Silent Witness. 9. Patricla Cornwell: Cause of Death. 10. Scott Turrow: The Laws of our Fathers. RIT ALM. EÐLIS - KIUUR: 1. Rlchard Carlson: Don’t Sweat the Small Stuff. 2. Ýmsin Chicken Soup for the teenage Soul. 3. Rlc Edelman: The Truth about Money. 4. Robert Atkln: Dr. Atkin's new Diet Revolution. 5. Frances Mayes: Under the Tuscan Sun. 6. Stephen A. Ambrose: Undaunted Courage. 7. Ýmslr: Chicken Soup for the Moter's Soul. 8. James McBrlde: The Colour of Water. 9. Jonathan Harn A Civíl Action. 10. Andrew Morton: Diana: Her True Story. INNBUNDNÁR SKÁLDSOGUR: 1. Anne Rice: Violin. 2. Charles Frazler: Cold Mountain. 3. Robert Ludlum: The Matarese Countdown. 4. Cllve Cussler: The Hood Tide. 5. Dlck Francls: 10 Ib. Penalty. INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS: í. Andrew Morton: Diana: Her True Story. 2. Fran McCourt: Aangela’s Ashes. 3. Kltty Kelley: The Royals. 4. Richard Carlson: Don't Worry, Make Money. 5. James Redfleld: The Celestine Vision. (Byggt á Washlngton Post)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.