Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1997, Qupperneq 16
16
LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1997 JjV
viðtaj
Aldís Baldvinsdóttir er farin að leika á ný eftir að hafa eignast dótturina Tatjönu.
DV-mynd E.ÓI.
Aldís Baldvinsdóttir á leiksvið á ný og tilbúin í slaginn:
Aldís Baldvinsdóttir er komin aft-
ur á leiksviðið eftir fæðingarorlof.
Þessa dagana tekur hún þátt í vin-
sælli uppfærslu í Kaffileikhúsinu er
nefnist Revían í den. Þar kemur
hún fram ásamt Hákoni Leifssyni,
Carli Möller og tveimur af okkar
ástsælustu leikurum, þeim Rúrik
Haraldssyni og Guðrúnu Ásmunds-
dóttur. Guðrún átti frumkvæði að
sýningunni og hóaði í Aldísi.
„Það er mjög gaman að fá að taka
þátt í revíunni, sem er mín fyrsta á
leikferlinum. Svona farsi er stöðugt
í mótun á æfingum og er ekki full-
mótaður fyrr en á fyrstu sýningum.
Það er síðan ekki sama hvaða hóp
áhorfenda þú ert með í salnum.
Sumir hlæja meira en aðrir. Það er
til dæmis hræðilegt aö sýna fyrir
fullum sal af leikurum eins og ég
lenti einu sinni i á forsýningu. Það
var í eina skiptiö sem enginn hló.
Annars er stemningin í Kaffileik-
húsinu allt öðruvísi, mjög þægileg
og rómantísk," segir Aldís í upphafi
viðtals á heimili hennar á dögun-
um.
Meiriháttar tækifæri
Henni finnst það meiriháttar
tækifæri að fá að vinna með lista-
mönnum á borð við Rúrik og Guð-
rúnu. Þau séu hreint yndisleg.
„Manni líður vel í kringum þau.
Þau eru ekki aðeins frábærir lista-
menn heldur einnig fyrsta flokks
manneskjur. Þau litu á okkur Há-
kon sem jafningja sína og maður
fann aldrei til vanmáttar gagnvart
þeirn."
Aldís eignaðist dótturina Bryndísi
Tatjönu fyrir tæpum tveimur árum,
og af skiljanlegum ástæðum hefur
bamið tekið allan hennar tíma.
Vil vera góð móðir
„Ég einsetti mér að vera alveg
með barninu minu fyrstu árin. Ég
vil vera góð móðir. Nú þegar Tanja
er komin í leikskóla er ég tilbúin í
slaginn," segir Aldís. Hún segist
hafa fengið fimm atvinnutilboð á
tíu dögum með því aðeins að svara
í símann. 1 þessu grípur Tanja inn í
samtalið með því að sýna blaða-
manni mynd af pabba sínum,
Dimitri, sem er erlendis.
„Hann sendir okkur kort og
hringir reglulega en hann fer nú
bráðum að koma,“ segir Aldís bros-
andi. Þá brosir sú litla út að eyrum
sem ennþá heldur á myndinni af
pabba.
„Ég hef nóg að gera en fyrst og
síðast er ég hamingjusöm yfir að
vera orðin móðir. Tanja er algjört
kraftaverk," segir Aldís og smellir
kossi á kinn dótturinnar.
Úr lögfræði í leiklist
Aldís lauk leiklistarnámi í
London fyrir sjö árum en þar áður
kláraði hún lögfræðina frá Háskóla
íslands. Segist hún hafa uppgötvaö í
miöju laganámi, þá er hún lék með
Stúdentaleikhúsinu, að leiklistin
átti hug hennar allan og þvi ásett
sér að læra hana að laganámi
loknu.
Eftir aö náminu lauk í London
hefur Aldís leikið árlega ef
síð-
ustu tvö ár eru und-
anskilin. Hún hefur
leikið í kvikmyndum,
þannig muna eflaust
margir eftir henni í
sjónvarpsmyndinni
Hvíta dauðanum sem
Einar Heimisson gerði
um líf berklasjúklinga
á Vífilsstöðum. Einnig
hefur hún leikstýrt
áhugamannaleikfélög-
um úti á landi. Segir
það mjög góða reynslu.
Þar sé fólk lífsglatt og
heilt og að mörgu leyti
betri manneskjur en
höfuðborgarbúar.
Af öðrum verkefn-
um má nefna að Aldis
er með í undirbúningi
handrit að kvikmynd
sem hún byggir á
ævintýralegri lífsreynslu sinni í ísr-
ael fyrir tíu árum. Þar lenti hún í
klóm harðsvíraðra glæpamanna og
mátti teljast heppin að sleppa lif-
andi frá þeirri viðureign. Þetta seg-
ir Aldís vera efni í æsispennandi
urra bama þeirra Jóns Bald-
vins og Bryndísar Schram og
ólst þvi upp í mjög pólitísku
umhverfi. Hún segist vel
hafa getað hugsað sér
að fara út í pólitík.
„Ég var mjög
pólitísk þegar ég
var í framhalds-
skóla og háskóla,
reyndar hápóli-
tisk, alveg þar
til ég fór utan.
Þegar heim
kom fannst
mér að hér
væri arg og þras
um ekki neitt,
samanborið við
hinn mikla vanda
sem við er að
glíma úti í hin-
um stóra
heimi,“ segir
Aldís, en útilok-
ar þó ekki að
hún eigi eftir
að skipta sér
af pólitík aftur.
Aldrei að segja
aldrei í þeim
efnum. Núna
DV-mynd BG sinnir hún
leiklistinni og
segist vera tilbúin að sinna fleiri
listagyðjum í framtíðinni.
„Síðan gæti ég vel hugsað mér
annað bam,“ segir Aldís og þær
mæðgur knúsa hvor aðra, „það er ef
Guð lofar.“ -bjb
Hér er Aldís á æfingu á Revíunni í den ásamt Hákoni Leifssyni,
Ásmundsdóttur og Carli Möller (í barnavagninum). Rúrik Haraldsson
ur einnig með þeim en var ekki viðstaddur er myndin var tekin.
bíómynd án þess að hún vilji fara
nánar út í þá sálma.
Var hápólitísk
Aldís er sem kunnugt er elst ijög-