Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1997, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1997, Síða 25
25 LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1997 þókarkafli Móní Petrakí, klaustrið í Aþenu sem Sigurður dvaldi í. tölulega fáir í Aþenu og talsverður samgangur milli þeirra, var ég feng- inn til að kenna dóttur sænsks forn- leifafræðings, Ákerströms, enska tungu tvisvar í viku og áskotnaðist þannig lítilsháttar skotsilfur auk hádegisverða sem voru aldeilis vel- þegnir. Ákerström var forstjóri sænsku fornleifastofnunarinnar í Aþenu, refEilegur maður og nokkuð ráðgjarn, en viðmótshlýr og raun- góður. Stjórnmálaskoð- anir hans voru mjög íhaldssamar og ollu stundum orðahnipp- ingum við matborðið, en þær höfðu aldrei nein eftirköst. Það sem helst amaði að forstjóranum var doktorsritgerð sem hann hafði unnið að rúman áratug og ekki fengið við- urkennda. Camilla dóttir hans var á gelgju- skeiði, holdug stúlka og hýr í bragði, en áhugalítil um námið, vildi heldur tala um nýjustu tísku eða strákana í Plaka en læra enskar sagnbeyging- ar. Við urðum góðir kunningjar, en ólíklegt þykir mér að kennslan hafi orðið henni að miklu gagni. Apaköttur upp vatns- rennu Sömuleiðis gerðist Christopher King mjög örlátur á kvöldverðar- boð í ýmsum góðum veitingahúsum borgarinnar þarsem ég var í góðu yfirlæti meðal glaðværra vina. Voru það sannkallaðar hátíðar- stundir, en vandinn var að komast inní klaustrið að hátíð lokinni. í þeim vanda hugkvæmdist mér að klifra einsog apaköttur upp vatns- rennu og komast innum klósett- glugga á þriðju hæð þarsem við Petros bjuggum, en það mun brátt hafa borist til eyma biskupi og kló- settglugginn uppfrá því kirfilega læstur. Var þá ekki annað til ráða en semja við Petros sem gerðist samsærismaður um að opna kló- settgluggann hvenær sem ég kast- aði steinvölu i klefagluggann okk- ar. Sennilega umbar biskup þennan útslátt, sem var skýlaust brot á klausturreglum og frómum sálum skaðsamt fordæmi, fyr- ir þá sök að ég var eini útlendingur- inn og þaráof- an af annarri kirkjudeild. Þó Grígórís biskup væri strangur og siðavandur, var hann oftlega glettinn og gam- ansamur, enda fór yfirleitt vel á með okkur og við skildum vinir að vetrarvist lokinni. Annað happ þennan vetur var að enski fornleifaskól- inn var í næsta ná- grenni við klaustrið. Þangað var ég velkom- inn hvem dag tU tedrykkju síðdeg- is og fékk þá gjarna smákökur til bragðbætis sem sefuðu sárasta hungrið. Þar kynntist ég aðstoðar- forstjóranum, Philip Sherrard, sem var mér ráðhollur um bækur varð- andi Grikkland og gríska sögu. Eft- ir dvölina í Epíros hafði kviknað hjá mér hugmynd um að semja bók um Grikkland. Var ég þegar farinn að leggja drög að henni. í fomleifa- skólanum var vandað bókasafn sem ég átti greiðan aðgang að, enda sat ég löngum stundum við þann Mím- isbrunn og bergði á þeim margvís- legu fróðleiksveigum sem í boði voru.“ (Millifyrirsagnir eru blaðsins.) TRIDON t* ■■* varahlutir Vatnshosur Tímareimar og strekkjarar Bensíndælur Bensínlok Bensínslöngur Álbarkar Hosuklemmur Kúplingsbarkar Æ Ð U R N I Lágmúla 9 • Sími: 533 2800 • Fax: 533 2820 BOSCHverslur|in> aðkeyrsla frá Háaleitisbraut THIDONt^Söluaðilar: tsfæðið, r ixupmiyðwai nai GH verksiæðið, Borgarnesi. Vélar og þjónusta, Akureyri. og undirvagnsgormar. Víkingur, Egilsstöðum. Vélsmiðja Hornafjarðar, Hornafirði. á nýrri tölvustýrðri þvottavél, sem er ein sú fuilkomnasta og hlióðlátasta í heirrti. RONNING ifójgfírjjttirft S/ó/a/ep/'fy/Z’/'/ff/fsfS. frá 20. nóvember. Helgarkvöld (föstudagar og laugardagar) Verb 3.390 kr. Onnur kvöld Verb 2.890 Hadegi, 12., 13. og 14. des Verb 2.890kr. r l(e/u//t/' Þakkargjörbarhlabborb 27.-30. nov. (Thanks giving)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.