Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1997, Síða 27
JO"V LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1997
27
___________________________________________________________%éttaljós
Baráttan um eftirmann Rússiandsforseta komin í algleyming:
Borís Jeltsín Rússlandsforseti er
enn ekki dauður úr öllum æðum.
Ekki er nema rétt ár liðið síðan
hann lá undir hnífi hjartaskurð-
lækna í Moskvu. Nú hefur hann
sjáifur brugðið kutanum á loft og
rekið dyggan stuðningsmann sinn
úr áhrifamiklu embætti í Kreml.
Það gerðist á miðvikudag þegar
kaupsýslumaðurinn og auðkýfing-
urinn Borís Berezovskí var látinn
flúka úr embætti varaformanns ör-
yggisráðs forsetans.
Hinn 51 árs gamli Berezovskí,
sem byggir ríkidæmi sitt og völd sín
meðal annars á olíuvinnslu og fjöl-
miðlarekstri, var einn nokkurra
auðugra kaupsýslumanna sem
lögðu állt í sölurnar til að tryggja
endurkjör Borísar Jeltsíns í forseta-
embættið á siðasta ári. Honum sinn-
aðist hins vegar við ungu umbóta-
sinnana í stjórninni, aðstoðarfor-
sætisráðherrana Anatóli Tsjúbaís
og Borís Nemtsov, sem fengu forset-
ann til að reka hann. Berezovskí tel-
ur brottreksturinn sér til tekna, seg-
ir hann lýsa veikri stöðu forsetans.
Erlent
fréttaljós
Stjórnmálaskýrendur eru ekki al-
veg á sama máli. Þeir segja brott-
reksturinn skýrt dæmi um hversu
langt Jeltsín er reiðubúinn að ganga
til að viðhalda jafnvægi milli stríð-
andi fylkinga stuðningsmanna
Misvindasamt
Ekki eru nema tveir mánuðir síð-
an Jeltsín lýsti því yfir að hann sæi
enga ástæðu til að reka Berezovskí,
sem hefur verið umdeildur maður
allt frá því hann tók sæti í öryggis-
ráði Rússlands fyrir ári. Talsmaður
Kremlarbónda staðfesti það hins
vegar á miðvikudag að Berezovskí
hefði aðeins verið rekinn af því að
Tsjúbaís og Nemtsov fóru fram á
það.
Berezovskí sagði að atburðirnir
væru til marks um það gífurlega
vald sem Tsjúbaís hefði yfir forset-
anum. Þeir voru þó
^lj|ÉgSjs& fleiri þeirrar skoð-
' L unar í Moskvu að
I þetta sýndi bara
fi| að Jeltsín heföi
tögl og hagldir í
Moskvu.
skýrendur líta
stuðningsmanna sinna sem þegar
eru famar að búa sig undir að velja
eftirmann forsetans fyrir forseta-
kosningamar árið 2000.
„1 hvert skipti sem Jeltsín gerir
svona, eins og þegar hann rak
Tsjúbaís í janúar 1996, er það til að
láta líta svo út að það sé hann sem
stjórni en ekki öfugt,“ segir Viktor
Kremenjúk sem starfar við stofnun
sem skoðar málefni Kanada og
Bandaríkjanna. Hann bendir einnig
á að svona aðgerðir af hálfu forset-
ans falli í góðan jarðveg hjá stjóm-
arandstöðunni.
Ekki áhrifalaus
Enda þótt Berezovskí hafi verið
rekinn úr opinberu embætti er ekki
þar með sagt að hann verði um leið
áhrifalaus í rússneskum stjómmál-
um. Hreint ekki. Margir stjórnmála-
skýrendur segja að Berezovskí, sem
hóf kaupsýsluferil sinn sem bílasali
á síðustu árum sovésku pere-
strojkunnar, muni áfram verða
áhrifamaður í rússneskum stjórn-
málum vegna eignarhalds síns á
fjölmiðlum, auðs og klókinda.
„Það mun alls ekki draga úr
áhrifum hans þótt hann hafi glatað
formlegri stöðu sinni í ríkisstjóm-
inni,“ segir Borís Makarenkó, að-
stoðarforstjóri pólitískrar ráðgjafar-
stofnunar í Moskvu.
„Berezovskí verður áfram áhrifa-
mikill stjórnmálamaður þar sem
hann er hæfileikaríkasti stjórn-
kænskumaðurinn sem til er,“ segir
stjórnmálaskýrandinn Lilíja Sjevts-
ova. „Hann mun líka halda í ORT-
sjónvarpsstöðina og aðra fjölmiðla.
Þeir geta því ekki losað sig við
hann.“
Aðrir era ekki alveg jafn vissir.
Viktor Kremenjúk segir: „Óvinir
hans munu eiga auðveldara með að
koma á hann höggi þegar hann
missir opinbera stöðu sina.“
Berezovskí, sem er gyðingur, átti
heiðurinn að friðarsamkomulaginu
milli rússneskra stjómvalda og upp-
reisnarmanna í Tsjetsjeníu. Þar
þykir hann hafa staðið sig með ein-
dæmum vel. Mikilvægt atriði í þeim
friðarsamningum var samkomulag
um að dæla olíu úr nýjum olíulind-
um í Kaspíahafi um Tsjetsjeníu.
Það eru tvær meginfylkingar
stuðningsmanna Jeltsíns forseta
sem berjast um að koma sínum
manni að á forsetastóli. Anatólí
Tsjúbaís fer fyrir öðram hópnum.
Hann er hins vegar svo óvinsæll
meðal almennings vegna efnahags-
þrenginganna undanfarin misseri
að hann styð-
ur nú fram-
boð Borís-
ar
Nemtsovs **"
í embætti %
forseta.
þykir
Anatólí Tsjúbaís, sem hér tekur í höndina á Borís Jeltsín Rússlandsforseta,
getur hrósaö sigri f baráttunni viö fjandmenn sína innan stuðningsmanna-
hóps forsetans, í bili aö minnsta kosti. Hann fékk forsetann til aö reka
næstæðsta mann öryggisráösins. Símamynd Reuter
Borís Berezovskí
hefur kannski misst
opinbera valdastööu
sína en allir eru sam-
mála um aö hann sé
hreint ekki orðinn
áhrifalaus fyrir vikiö.
lofum í Dúmunni, neðri deild rúss-
neska þingsins, málamiðlun í deilu
þeirra við Tsjúbaís um fjárlaga-
frumvarpið og skattaumbótatillög-
ur. Tsjúbaís ræður ferðinni í efna-
hagsumbótstefnu ríkisstjórnarinn-
ar.
líka myndast betur.
Hin fylkingin er miklu dreifðari.
í henni era kaupsýslumenn eins og
Berezovskí sem virðast heldur vilja
menn á borð við Viktor Tsjemo-
myrdín forsætisráðherra og Júrí
Lúzkhov, borgarstjóra í Moskvu.
„Jeltsín hefur það fyrir sið að
reyna að styrkja hlutverk sitt
með því að ráðast sitt á
hvað á stuðnings-
menn sína,“
segir Lilíja
Sjevtsova. „Hann barði á Tsjúbaís
fyrir fjárlagafrumvarpið og umbóta-
tillögurnar i skattamálum. Jeltsín
hefur enn einu sinni leikið í þessu
pókerspili."
Svo virtist sem stjama Tsjúbaís
hefði dofnað eitthvað i síðasta mán-
uði þegar Jeltsín neyddist til að
bjóða kommúnistum,
sem ráða lögum og
Skammvinn kæti
Brottrekstur Berezovskís ætti því
að vera sigur Tsjúbaís.
„Tsjúbaís getur verið kátur af því
að helsti óvinur hans hefur verið of-
urliði borinn. Gleði hans verður þó
skammvinn," segir Sjevtsova.
„Þetta er upphafið að nýrri umferð
breytinga á starfsliði forsetans sem
eiga að styrkja stöðu Jeltsíns og
löngun hans til að halda um
valdataumana."
Jeltsín hefur sagt formlega að
hann muni ekki sækjast eftir endur-
kjöri árið 2000. Hann hefur hins
vegar ekki lokað fyrir þann mögu-
leika. Ráðgjafar hans í Kreml hafa
þegar bent opinberlega á tvírætt
orðalag stjórnarskrárbanns við
því að einn og sami maðurinn
gegni forsetaembættinu í meira
en tvö kjörtímabil.
| „Atburðirnir þetta haust,
1 það er Jeltsín sem segist ætla
að bjóða sig fram og ætla
ekki að gera það, sigur
Tsjernomyrdíns í
deilunni í Dúmunni
og stöðuhækkun
Nemtsovs, hníga allir
í þá átt að draga það
eins lengi og hægt er
að velja eftirmann,“
segir Makarenkó.
„Það kemur Jeltsín
best.“
Reuter
mm. ypPíOD
SUNNUDA6SKVÖLD KL. 80.30
Húsgðgn - teppi - postulín - smávara - listmunir
Sýning uppboðsmuna í dag kl. 12-18
á morgun, sunnudag kl. 14-18
BOEG
Síðumúla 34 Sími 581-1000
HÖFUM HAFIÐ MÓTTÖKU FYRIR NÆSTA MÁLVERKAUPPBOÐ