Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1997, Page 48

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1997, Page 48
60 LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1997 iö"V bridge Heimsmeistarakeppnin í Hammamet 1997: Bættu Bermúdaskálinni við ólympíumeistaratitilinn Eftir 41 árs bið unnu Frakkar Bermúdaskálina í annað sinn þegar þeir sigruðu fyrrverandi heims- meistara frá Bandaríkjunum með 328 stigum gegn 301. í fyrra unnu þeir ólympíumeistaratitilinn í ein- vigi við Indónesa og nú bættu þeir heimsmeistaratitlinum við. Hinir Stór, þykk en Vatnsvarin med Ijósi. Eiginleikar: Tími, min., sek., virkur dagur, mánaóard., mánuóur. Skeiókl. m/millitíma, vekjari m/tímamerki. Verð aðeins kr. 2.790 AXEL EIRÍKSSON Álfabakka 16, Mjóddinni, s. 587-0706 Aáalstræti 11, Ísaftríi, s. 456-3023 AUKIN ÖKURÉTTINPI LEIGUBIFREIÐ VÖRUBIFREIÐ HÓPBIFREIÐ Ökuskóli íslands býður hagnýtt nóm undir leiosögn færra og reynslumikilla Kennara. Námskeið hefst mánudaqinn 10. nóvember. GóS kennsluaöstaða og úrvals æfingabifreiðar. fþ^MENNSKA Ökuskóli Islands í FYRIRRÚMI Oll kennslugögn innifalin. Hagstætt verð og góö greiðslukjör. Mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði félaga sinna. Hafðu samband og við sendum þér allar nánari upplýsingar um leið. Dugguvogi 2 104 Reykjavík S: 568 3841 nýju heimsmeistarar eru Paul Chemla, Christian Mari, Hervé Mouiel, Alan Lévy, Michel Perron og Frank Multon. Fyrirliði án spila- mennsku var Jean-Lois Stoppa. Umsjón — Stefán Guðjohnsen Frakkarnir unnu 7 lotur af 10 og höfðu 51 impa forskot fyrir síðustu lotuna. Það var nánast útilokað að vinna upp og þótt Bandaríkjamenn- irnir spiluðu síðustu lotuna mjög vel varð það aðeins til þess að skák ________________ minnka forskot Frakkanna um 24 impa. í kvennaílokki, þar sem keppt var um Feneyjabikarinn, unnu banda- rísku konumar þær kínversku með 249 stigum gegn 184. Hinir nýju heimsmeistarar Bandaríkjanna eru Letizia Marinesa, Lisa Berkowitz, Jill Meyers, Randi Montin, Tobi So- kolow og Mildred Breed. Fyrirliði án spilamennsku var Sue Picus. Einnig var í fyrsta sinn keppt um heimsmeistaratitil í fjölþjóðasveita- keppni. Sjötíu og fjórar sveitir spil- uðu 18 umferða undankeppni, und- anúrslit og einvígi. Yfirburða sigur- vegarar og heimsmeistarar urðu sveit Leandro Burgay, Ítalíu, en ásamt honum spiluðu Dano de Falco, Italíu, Franco Mariani, Ítalíu og Martens Lesniewski, Póllandi. Þeir sigruðu pólska sveit undir for- ystu Jassems, sem gaf 48 spila ein- vígið eftir 32 spil þegar staðan var 132-40. Við skulum skoða eitt spil frá úr- slitaleiknum um Bermúdaskálina þar sem yfirhurðir Frakkanna í sögnum koma skýrt fram. S/A-V Það var áreiðanlega fljótfæmi hjá Wolff að segja ekki sex lauf í leið- inni og Hamman gat því alls ekki hækkað í sjö. í lokaða salnum sátu n-s Meckst- roth og Rodwell en a-v Levy og 4 D8 Mari. Mari kom hjartalitmnn strax ¥6 4 753 að. * K1098642 Suður Vestur Norður Austur 4 ÁKG62 N * 3 pass 1 1 4! 2 Gr «4 ÁKG8432 •'D1075 3 4- 3 4 4 4 4 <* + - + DG108643 5* 5 ♦ pass 6 * G 4 Á pass 7 * pass pass 4 109/54 ¥9 pass AK9 * D753 Grandið hjá norðri gat verið I opna salnum sátu n-s, Perron og Chemla en a-v Wolff og Hamman. Hamman varð að opna á sterku laufi: Suður Vestur Norður Austur pass 1 4 34 3 ♦ 5 4 pass pass 5 4- pass 5 * pass 6 * pass pass pass sterkt eða langur litur og veikt, tvö grönd vora krafa, vestur sýndi spaðalitinn og n/s börðust upp í fimm lauf. Mari var rétt að byrja og sagði fimm tígla og þegar Levy stökk í sex hjörtu hækkaði hann í sjö. Ekkert vandamál var í úrspilinu og Frakkar græddu 13 impa. Þjóðverjinn Keitlinghaus sigraði á alþjóðlega Hellismótinu: Jón Viktor náði áfanga til alþjáðlegs meistara Jón Viktor Gunnarsson, sem er aðeins 17 ára gamall, lagði Áskel Örn Kárason að velli í snarpri skák í lokaumferð alþjóðamóts Hellis, sem lauk sl. laugardag. Þar með krækti Jón Viktor í 2. áfanga sinn að alþjóðlegum meistaratitli. Fyrsta áfanga sínum náði Jón Viktor á Skákþingi íslands á Akureyri í sept- ember. Skammt er því stórra högga á milli hjá þessum bráðefnilega skákmanni og varla verður þess langt að bíða að hann verði útnefnd- ur alþjóðlegur meistari. Hann vant- ar aðeins einn áfanga enn til að ná því marki. Jón Viktor náði bestum árangri íslendinga á mótinu en að honum frátöldum og Saevari Bjarnasyni, voru sterkustu íslendingarnir al- gjörlega heillum horfnir. Þetta á ekki síst við um stórmeistarana þrjá - Helga Ólafsson, Helga Áss og Hannes Hlífar. Hannes varð að sætta sig við 50% vinnings- hlutfall en félagar hans fengu hálfum vinningi betur. Helgi Ólafsson náði að hjarga því sem bjargað varð með því að vinna tvær síðustu skákirnar og fór létt með það. Stórmeist- aramir virtust tefla meira cif þegnskyldu við taflfélag sitt en áhuga, sem kann auðvitað ekki góðri lukku að stýra. Sigurinn á mótinu kom í hlut Þjóðverjans Ludger Keit- linghaus en jafnir honum að vinningum - en lægri á stig- um - vom landi hans Jörg Hickl og Svíinn Jonny Hector. Keitlinghaus vann Helga Áss í lokaumferðinni sem var honum kærkominn sigur, því að ekki einasta hreppti hann með því sigurlaunin, heldur náði hann einnig lokaáfanga sínum að stórmeistaratitli. Keitlinghaus vakti töluverða athygli áhorfenda, ekki síst fyrir þá sök að tefla ætíð með dökk sólgleraugu, þótt sólar- ljósinu í annars ágætum sal- arkynnum Hellis væri lítt fyr- ir að fara. Gleraugun tók hann ekki niður fyrr en í lok skákanna og þá var öllum ljóst að hann var kominn með unn- iðtafl. Hickl lagði Danann Erling Mort- ensen að velli í síðustu umferðinni eftir langt og strangt tafl. Mortensen hafði raunar undirtökin lengstum en sá þýski sá við honum og náði að kreista fram vinning eftir klaufa- skap Danans. Jonny Hector kom engum á óvart með góðri tafl- mennsku. Menn minnast frammi- stöðu hans á Norðurlandamóti VISA, en þar var hann einn um að veita Jóhanni Hjartarsyni einhverja keppni. Hector og Hickl unnu báðir sjö skákir en töpuðu tveimur - ekk- ert jafntefli þar. Hickl tapaði fyrir Braga Halldórssyni og Jóni Viktor — Umsjón ---7--- JÉLArnason en Hector fyrir sigurvegaranum og Þjóðverjanum Wilhelmi. Bragi Halldórsson var ófarsæll að fá aðeins 5 vinninga en hann tefldi almennt vandað og vel. Hann var búinn að yfirspila Þjóðverjann Mic- hael Bezold í lokaskákinni en á ævintýralegan hátt náði Bezold að snúa taflinu við. Ef Bragi hefði unn- ið hefði hann náð í fyrsta áfanga sinn að alþjóðameistaratitli. Þetta er í annað sinn sem taflfé- lagið Hellir stendur fyrir alþjóðlegu skákmóti. Mótið tókst mjög vel í alla staði og raunar er ekkert sem skyggir þar á, nema ef vera skyldi frammistaða sterkustu íslending- anna. 1. - 3. Ludger Keitlinghaus, Jörg Hickl (Þýskalandi) og Jonny Hector (Svíþjóð) 7 v. 4. - 5. Michael Bezold (Þýskalandi) og Erling Mortensen (Danmörku) 6,5 v. 6. - 7. Jón Viktor Gunnarsson og Christian Wilhelmi (Þýskalandi) 6 v. 8. Sævar Bjarnason 5,5 v. 9. - 12. Helgi Ólafsson, Helgi Áss Grétarsson, Bragi Halldórsson og Áskell Örn Kárason 5 v. 13. - 20. Hannes Hlífar Stefánsson, Björn Freyr Bjömsson, Kristján Eð- varðsson, Jóhann Ragnarsson, Heikki Westerinen (Finnlandi), Se- bastian Schmidt-Shaeffer (Þýska- landi), Thomas Engquist og Tiger Hillarp-Persson (Svíþjóð) 4,5 v. o.s.frv. Keppendur vora 32 talsins og skákstjóri var Gunnar Bjömsson. Skoðum sigurskák Jóns Viktors í lokaumferðinni sem tryggði honum áfanga að titli alþjóðlegs meistara. Áskell Öm teflir hið alræmda drekaafbrigði af Sikileyjarvörn en kemur ekki að tómu húsi. Jón Vikt- or hafði rannsakað þetta afbrigði mjög gaumgæfilega með félögum sínum í Skákskóla íslands. Hann vann glæsilega og þurfti ekki aö nota nema 20 mínútur af umhugs- unartíma sínum. Hvítt: Jón Viktor Gunnarsson Svart: Áskell Öm Kárason Sikileyjarvöm. 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 g6 6. Be3 Bg7 7. f3 Rc6 8. Dd2 0-0 9. Bc4 Bd7 10. h4 Hc8 11. Bb3 h5 12. 0-0-0 Re5 13. Bg5 Hc5 14. g4 hxg4 15. f4 Rc4 16. De2 Dc8 17. h5 Rxh5 18. f5 e6 19. Bxc4 Hxc4 20. fl6 Rxf6 21. Bxf6 BxfB 22. Dh2 Hd8 23. Dh7+ KÍ3 24. Hdfl Dc5 25. Rd5! Hxc2+ 26. Rxc2 Hc8 27. Dh6+ Bg7 28. Hxf7+! - og svartur gafst upp. íslandsflugsdeildin íslandsflug og Skáksamband íslands hafa gert með sér samning um að lækka ferða- kostnað vegna deildakeppn- innar sem er fjölmennasta inn- lenda skákmót ársins. Þessi samningur er því mjög mikil- vægur fyrir skákhreyfmguna og í tilefni af þessu ber keppn- in í 1. deild því heitið „ÍS- LANDSFLUGSDEILDIN". Samhliða þessu stefna Skák- sambandið og íslandsflug að því að leita áfram leiða til að lækka ferðakostnað skákiðk- enda vegna skákmóta innan- lands og stuðla þannig að auknu skákmótahaldi um land allt. Fyrri hluti deildakeppninn- ar fer fram nú um helgina í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12. Teflt er í fjórum deildum og munu 232 skákmenn, víðs vegar að af landinu, sitja að tafLi í Faxa- feni, auk þess sem einnig er teflt á Akureyri. I íslandsflugs- deildinni tefla sveitir Taflfé- lagsins Hellis, Skákfélagi Akureyr- ar, Skákfélagi Hafnarfjarðar, Taflfé- lagi Garðabæjar, Taflfélagi Hólma- víkur, Taflfélagi Garðabæjar og a- og b-sveit Taflfélags Reykjavikur. Nokkrir íslensku stórmeistaranna tefla nú með nýjum sveitum: Helgi Ólafsson er genginn til liðs við Helli, Margeir Pétursson er aftiu’ kominn i Taflfélag Reykjavikur og Jóhann Hjartarson teflir nú á fyrsta borði fyrir Taflfélag Hólmavíkur, sem ætlar sér stóra hluti. Sigfús Sigfússon, markaðsstjóri íslandsflugs (t.h.) og Ágúst Sindri Karlsson, forseti Skák- sambands íslands, við undirritun tímamótasamnings skákhreyfingarinnar og íslandsflugs. I I ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( < (

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.