Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1997, Síða 2
2 *
fréttir
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 I>"V
5 ára barni sent innheimtubréf frá íslandsbanka:
„Það er mikill misskilningur og þekkingar-
leysi fólgið í þeirri gagnrýni sem fram kemur í
frétt DV í gær og höfð er eftir ónafngreindum
starfsmönnum Lögreglustjóraembættisins í
Reykjavik. Hið rétta er að þessi þáttur í umferð-
areftirliti borgarinnar hefur sannað gildi sitt.
Það er samdóma niðurstaða starfshóps Lög-
reglustjóraembættisins sem fór með fram-
kvæmd málsins," segir Haraldur Johannessen,
starfandi lögreglustjóri í Reykjavík.
„Þetta álit kemur glöggt fram í skýrslu starfs-
hópsins sem kynnt hefur verið dómsmálaráð-
herra. Starfshópurinn bendir hins vegar á
ákveðna hnökra sem þarf að laga áður en lengra er hald-
ið eins og gengur og gerist þegar um ný verkefni er að
ræða. Því má hæta við að nýrri tækni verður í ríkari
mæli beitt á sviðum umferðarmála á næstunni.
Má sem dæmi nefna færanlegar hraðaeftirlits-
myndavélar og sérstök tæki verða notuð til að
taka öndunarsýni vegna gnms um ölvunarakst-
ur, í stað blóðsýna eins og tíðkast hefur.“ -
Hvernig skýrir þú þá gagnrýni sem fram kom í
þessu máli í DV frá starfsmönnum embættis-
ins? „Mér finnst það skjóta skökku við ef starfs-
menn embættisins eru að koma fram nafnlaust
í fjölmiðlum með gagnrýni á þetta löggæsluúr-
ræði eins og i DV i gær. Mér hefði þótt nær að
ábendingar þessara manna hefðu borist til yfir-
stjórnar lögreglunnar, að því gefnu að gagnrýn-
in sé sett fram í því skyni að bæta löggæslumálin í höf-
uðborginni,“ segir Haraldur Johannessen.
-Ótt
Haraldur
Johannessen
Algert siðleysi
- segir Þráinn Stefánsson, faðir barnsins
„Mér fmnst það algert siðleysi að
bankinn og foreldrafélagið, sem kröfu-
hafi, skuli stíla þetta bréf á 5 ára bam.
Það hefði ekki verið neitt vandamál ef
þetta hefði verið stílað á annað hvort
foreldrið. Þetta er ekkert annað en hót-
unarbréf og að það skuli vera sent á
bamið flnnst mér mjög slæmt mál. Það
væri fróðlegt að vita hvort fleiri böm-
um hefúr verið sent svona bréf,“ sagði
Þráinn Stefánsson, faðir Rebekku Sifl-
ar Þráinsdóttur, 5 ára stúlku, í spjalli
við DV.
Rebekka litla fékk sent innheimtu-
bréf frá íslandsbanka í fyrradag.
Kröfúhafi er foreldrafélag leikskólans
Lindarborgar. í bréfinu kemur fram ít-
rekun vegna innheimtukröfu sem var
að upphæð 3 þúsund krónur en var í
Áfram
Óli
í gær var úthlutað verðlaun-
! um í smásagnasamkeppni Sam-
j taka móðurmálskennara á árleg-
um Skammdegisfúndi samtak-
anna í Kennarahúsinu við Lauf-
: ásveg. Um 140 sögur bárust í
: keppnina. í dómnefhd sátu Þórð-
J ur Helgason lektor, Kristín Jóns-
! dóttir kennari og Hildur Her-
í móðsdóttir, barnabókaritstjóri
; Máls og menningar.
Fyrstu verðlaun hlaut ung
; kona, Brynhildur Þórarinsdóttir,
| fyrir söguna Áfram Óli. Hún hef-
ur ekki sent frá sér skáldverk
: áður en hefur starfaö sem blaða-
: maður og pistlahöfúndur, meðal
; annars hjá Stúdentablaðinu og
í DV, og er nýráðin ritstjóri Vinn-
j unnar.
önnur verðlaun fékk Emelía
I Baldursdóttir fyrir söguna
Grímsi bróðir og þriðju verð-
= laun hlaut Úlfar Harri Elíasson
I fyrir sögu sína, Græna jakkann.
Hann er ungur höfundur sem
! sendi frá sér fyrstu skáldsögu
! sína í fyrra, barnabókina Sól
yfir Dimmubjörgum.
Kristín Jónsdóttir sagði að
: verölaunasögumar væru allar
fyrir stálpuð böm og unglinga.
Þær em væntanlegar á bók frá
' Máli og menningu ásamt úrvali
sagna úr samkeppninni. Bókin
verður ætluð krökkum í efri
bekkjum grunnskólans. SA
Rebekka Sif Þráinsdóttir, fimm ára,
með innheimtubréfið frá íslands-
banka. DV-mynd ÞÖK
vanskilum þann 17. nóvember og inn-
heimtufiárhæðin þvi 3.516 krónur.
Rukka fyrir fram
„Foreldrafélag leikskólans er að
rukka fyrir fram vegna ferða bam-
anna. Eindaginn var 4. nóvember og
nú er strax farið að senda hótunarbréf.
Þetta hefur ekki verið gert svona áður.
Við, foreldrar bamsins, höfum alltaf
borgað allar ferðir þess um leið eða
strax eftir að þær hafa verið famar.
Við foreldramir erum mjög ósátt við
þessa framkomu íslandsbanka og for-
eldrafélags leikskólans. Okkur finnst
líka skrítið að foreldrafelagið skuli
vera að fara í gegnum bankann þar
sem við komum á hverjum degi með
bamið í leikskólann," sagði Þráinn.
„Bankinn er einungis að veita þjón-
ustu og það era þeir sem nota þjónust-
una sem ákveða hveijum er send til-
kynning og hvort og þá hvenær ítrek-
un er send,“ sagði Sigurveig Jónsdótt-
ir, upplýsingafúiltrúi íslandsbanka, að-
spurð um máhð. -RR
Hörður Askelsson, organisti í Hallgrímskirkju, æfði af kappi tónverk eftir
Þorkel Sigurbjörnsson, bróður tilvonandi biskups, í gær. Biskupsvígslan
fer fram við hátíðlega athöfn í kirkjunni á sunnudag. DV-mynd BG
Norræna flutningaverkamannasambandið skammar forsetann:
Svíakóngur skammaður
vegna grænfriðunga
- annars einsdæmi, segir Borgþór Kjærnested
Sú áminning sem stjórn Nor-
ræna flutningaverkamannasam-
bandsins sendi forseta íslands
vegna hóls sem forsetinn lét frá
sér fara um Atlanta-flugfélagið
er nánast einsdæmi, að sögn
Borgþórs Kjærnested, stjómar-
manns í sambandinu. í blaði Atl-
anta sem dreift er víða um heim
sagði Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti íslands, í tilefni 10 ára af-
mælis félagsins, að Atlanta væri
„þróttmikið félag, einkafyrirtæki
eins og best gerist." Borgþór seg-
ist ekki þekkja nema eitt tilvik
þar sem sett hafi verið ofan í við
þjóðhöfðingja áður.
„Svíakóngi var eitt sinn send
athugasemd vegna yfirlýsinga
hans um grænfriðunga. Önnur
dæmi um að yfirlýsingar eða
gjörðir þjóðhöfðingja hafi orðið
tilefni til ályktana þekki ég
ekki,“ segir Borgþór.
Hann segir gagnrýnina snúa
að því að Atlantaflugfélagið sé
meðal þeirra félaga í flugi sem
Karl Gústaf Svíakonungur hefur hlotið
gagnrýni frá Norræna flutningaverka-
mannasambandinu.
jafna megi, hvað varðar starfs-
mannahald, við hentifánaskip í
sjóflutningum. Hann segir hlið-
stæð vandamál eiga sér stað I
landflutningum án þess að þjóð-
höfðingjar sjái ástæðu til að
hampa þeim fyrirtækjum sér-
staklega og nefnir alls kyns
vandamál á þjóðvegum í Evrópu
þar sem rússnesk flutningafyrir-
tæki séu sívaxandi vandi.
„Það hefur ekki nokkrum
manni dottið í hug að hampa
þessum fyrirtækjum; hvað þá að
forseta Rússlands detti í hug að
óska slíkum fyrirtækjum til
hamingju með afmæli. Sama á
við á sjónum þar sem alls kyns
fyrirkomulag er varðandi mönn-
un og þess háttar. Það dettur
engum þjóðhöfðingja í hug að
segja að þar fari einkafyrirtæki
eins og best gerist. Mér sem ís-
lendingi þótti mjög leiðinlegt að
sjá þessar yfirlýsingar forset-
ans,“ segir hann. -rt
stuttar fréttir
Góð loðnuveiði
Loðnuveiði er að glæðast.
Nokkur skip hafa landað í Vopna-
firði og stendur frysting þar sem
hæst. Von var á öðra skipi að
landi þar í nótt.
Ábyrgð sveitarfélaga
Bjöm Bjamason menntamála-
ráðherra segir að leikskólar séu á
ábyrgð sveitarfélaga. Hann svarar
þannig orðum Áma Þórs Sigurðs-
sonar borgarfulltrúa sem sagði að
helmingur bama sem þyrftu á sér-
kennslu að halda fengi hana ekki.
RÚV sagði frá.
Afnán leigukvóta
Fiskiþing samþykkti í gær að
afnema leigu á kvóta. Einnig var
samþykkt að verð á sjávarafla
myndi ráðast af frjálsum
markaði. RÚV sagði frá.
Sameinist sem fyrst
Fundur í Verkamannafélaginu
Hlíf skorar á bæjaryfirvöld í Hafn-
arfirði og Garðabæ og sveitar-
stjómir Bessastaðahrepps að hefla
sem fyrst viðræður um samein-
ingu ofangreindra sveitarfélaga.
Fundurinn telur að miklir hags-
munir séu í veði.
Gagnrýni á löggæslumyndavélar:
Þekkingar-
leysi á málinu
- segir Haraldur Johannessen