Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1997, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1997, Page 24
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 24 ^lgarvjðtalið Hemmi Gunn segir árið sem senn líður vera eitt það erfiðasta í sínu lífi: Kominn á beinu brautina Sjónvarpið tók sem kunnugt er þátt Hemma Gunn af dagskrá í vetur eftir aö hafa verið nær látlaust í loftinu tíu vetur í röð. Enginn innlendur þáttur í sögu Sjónvarpsins hefur náð öðru eins áhorfi, um 70 prósentum þegar mest lét, samkvœmt könnun- um. „Hvar er Hemmi Gunn?“ hafa margir verið að spyrja sig að undanförnu, nú þegar hann sést ekki lengur á skjánum. Hans er greinilega saknað og því við hœfi að helgarblað DV kannaði málið. Eftir nokkra umhugsun samþykkti Hemmi við- tal og hitti blaðamann yfir kaffisopa á Humarhúsinu í vikunni. Var þá nýbúinn að snæða þar með gömlu félögum sínum sem hafa hist reglulega til fjölda ára í hádeginu og fengið sér eitt- hvað gott að borða. „Alveg magnaðir strákar, “ segir Hemmi þegar við setjumst niður í þægilega barrokksófa. „Meðal annarra hluta sem ég er að gera í dag er að skoða hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór,“ segir Hemmi í upphafi spjalls okkar með sínum geðþekka, smitandi hlátri. Aldrei sótt um vinnu „Ég hef aldrei sótt um vinnu og alltaf látið aðra ýta mér útí allt. Samt hef ég ætíð talið mig vera að stjóma eigin lífi. Svona hefúr þetta verið frá upphafi. Endaði í Verslun- arskólanum en ætlaði í MR. Stadd- ur á balli á Hótel Sögu þegar ég var allt í einu ráðinn blaðamaður á Vísi, aldeilis út úr kortinu. Þá eins og oft síðar á lifsleiðinni sagði ég: Nei, þetta get ég ekki. Á mánudags- morgni var ég mættur á Vísi.“ Atburðarásin var svipuð þegar hann fór í útvarp að vinna við Lög unga fólksins, í atvinnumennsku í fótbolta, þjálfun á Akureyri eftir það og loks íþróttafréttamennsku í Ríkisútvarpinu vorið 1977. Hemmi var i íþróttafréttunum hjá RÚV í nærri átta ár, eða til ársins 1985. Frá RÚV fór hann yfir á Bylgjuna. Stjómaði þar vinsælum sunnudags- þætti sem náði frábærri hlustun strax í upphafi. Á sviðuðum tíma var hann kominn í Sumargleðina og fararstjóm víða um heim. Einnig var hann „plataður" til að skrifa bamabækur og raula inn á plötur. Síðan kom örlagaríkt símtal frá Hrafni Gunnlaugssyni sumarið 1987 um að Hemmi stjórnaði viðtalsþætti í Ríkissjónvarpinu í anda Johnny Carsons. Hemma segist ekki hafa litist á blikuna. Þú ÁTT að gera þetta! „Ég man eftir því að Hrafn sagði við mig að ég ÆTTI að stjórna við- talsþætti í Sjónvarpinu. Svona hef- ur þetta alltaf verið. Þú ÁTT að gera þetta og þú ÁTT að gera hitt. Ég sagði bara já, já, þótt þetta kitlaði ekki hégómagimdina. Hafði verið í þóknunarhlutverkinu í áratugi svo þetta var ekkert nýtt. Hrafn sagðist treysta mér best til að fara út i þetta. Hann sló mér gullhamra og henti mér út í. Sagði að ef þetta gengi gæti ég runnið niður ána eins lengi og ég vildi. Þetta fannst mér gott, var ögrun, sem alltaf hefur átt við mig. Síðan fór þátturinn í loft- ið,“ segir Hemmi þegar hann rifjar upp byrjunina á sjónvarpsævintýr- inu. Hemmi var fyrst ráðinn frá ári til árs hjá Sjónvarpinu í þættina, hann segist hafa verið orðinn vanur því að yfirmennirnir hóuðu í sig á haustin og sögðu: Verður þetta ekki bara eins og síðast? Þetta fyrir- komulag entist til ársins 1992 þegar Hemmi gerði fyrst ráðningarsamn- ing við við Ríkisútvarpið, þá til tveggja ára, um dagskrárgerð í út- varpi og sjónvarpi. Halaði inn milljónir „Síðan treystu yflrmenn Ríkisút- varpsins sér ekki til að endurnýja samninginn fyrir tveimur árum. Innan stofnunarinnar eru margar aðskildar deildir og það kom í ljós að þetta lenti allt á dagskrárdeild Sjónvarpsins. Þetta var skipulags- leysi, tel ég, því við vorum að hala inn margar milljónir árlega í nettó- tekjum af þáttunum sem runnu í stóra auglýsingahít. Síðan fór ekki nema brot af þvi til dagskrárgerðar. Þetta er ákaflega kjánalegt. Svona þáttur á auðvitað að vera á dagskrá þótt ég sé ekki við stjómvölinn. Það er til fúllt af öðru góðu fólki. Þörfin fyrir svona þátt er greinilega fyrir hendi,“ segir Hemmi ákveðið." Már brá svolítið Hann segist hafa tekið þeim tíð- indum bæði vel og illa i sumar þeg- ar honum var tilkynnt að þáttur hans yrði ekki lengur á dagskrá. Hann hefði ekki gert ráð fyrir öðru en að vera áfram með þáttinn í vet- ur. Sér hefði skilist á dagskrárstjór- um sl. vor að svo yrði. „Ég hafði samband við Sigurð Valgeirsson dagskrárstjóra og þá sagðist hann vilja hvíla þáttinn. Ég viðurkenni að mér brá svolítið. Þetta var búinn að vera fastur liður hjá sjálfum mér svo lengi. Að því leyti kom þetta mér á óvart. Þrátt fyrir að vera með 40 mínútna þátt vomm við með helming þjóðarinn- ar fyrir framan tækin. Þegar frá leið hugsaði ég með mér hvað það var gott að hvíla þjóðina á mér en þá hefði átt að gefa einhverjum öðrum tækifæri,“ segir Hemmi en tekur fram að hann sé langt því frá sár út í Sjónvarpið, heldur þvert á móti. Þangað liggi sterkar taugar. Þegar hann mætti ekki Hemmi hefur til margra ára ekki verið að fela þá staðreynd að hann eigi við áfengisvandamál að stríða. Hefur ólíkt mörgum öðmm getað tjáð sig opinskátt um áfengið en fyr- ir vikið verið stöðugt á milli tann- anna á fólki. Ótrúlegustu sögur fóru t.d. á kreik þegar hann mætti ekki í einn þáttinn og Vala Matt var feng- in í hans stað. „Ég var búinn að vera með um hundrað þætti í átta eða níu ár þeg- ar kemur þáttur sem ég mæti ekki til leiks. Það þætti á flestum stöðum ekki tíðindum sæta ef maður mætir ekki í vinnuna í einn dag á tæpum tiu árum. Þetta var um páska og ég orðinn yfirkeyrður. Var búinn að undirbúa þáttinn allan þegar ég gleymdi mér og fékk mér í glas. Ég var ekki með þaö góða heilsu til að stjórna þessum þætti og Vala hljóp í skarðið af röggsemi og myndarbrag. Sögimnar fóru af stað og ég átti að hafa gert ótrúlegustu hluti, sem því miður bitna á bömunum mínum. Ég held að ég sé fyrsti maður sem þurfti að mæta í Dagsljós til að svara fyrir það að hafa drukkið vín. Það gerði ég eingöngu barnanna minna því þau voru farin að fá ótrúlegustu sög- ur frá foreldrum skólasystkina sinna. Þau vora óvarin en ég orðinn brynjaöri. Eðlilega hefði ég átt að fá gula spjaldið fyrir að mæta ekki til leiks en síðdegis þann dag sem þátt- urinn var sýndur fékk ég risablóm- vönd með undirskrift hvers einasta starfsmanns Sjónvarpsins með ósk- um um skjótan bata. Þetta var hlut- ur sem ég kunni að meta,“ segir Hemmi og hugsar hlýtt til fyrrum samstarfsmanna sinna. Hremmingar í einkalífi Áhorfendur sakna hans ef marka má þjóðarsál og lesendasíður blað- anna. Allir spyrja sig „Hvar er Hemmi?“ Hann segist flnna fyrir þessu hvar sem hann kemur. Þetta ylji sér um hjartarætur. Margir hafa spurt sig hvað Hemmi hefur verið að gera frá hann var síðast á skjánum í vor. Hann segir að á þeim tíma hafi hann gjör- samlega verið að þrotum kominn eftir látlausa vinnu síðasta vetur. „Frá þeim tíma hef ég lent í rosa- legum hremmingum í mínu einka- lífl. Vinir og fjölskylda hafa lent í mótlæti sem ég hélt að myndi aldrei dynja á mér. Við þessum hremming- um kunni ég ekki aðra leið en að reyna að deyfa mig. Fór að sötra bjór og það dugði til að ég datt. Með hjálp góðra vina tók ég mér tak, leit- aði hjálpar hjá SÁÁ og hef verið að hlaða batteríin á nýjan leik. Það er hið besta mál og miðað við allt sem á mig hefur dunið þá líður mér mjög vel. Þetta er eitt erfiðasta ár sem ég hef lifað en er sterkur og stór í dag. Kominn á beinu brautina sem mér líður vel á. Líklega aldrei verið eins yfirvegaður og jákvæður. Þetta er bara mótlæti sem maður verður að sigrast á,“ segir Hemmi. Lifum í landi kjaftasög- unnar Hann segir það skipta sig minna máli i dag að heyra slúður um að nú sé hann Hemmi dottinn, þegar hann viti betur sjálfur. Að hafa verið á milli tannanna á fólki í þrjá áratugi hlýtur hins vegar að hafa bitið hann inn að kviku. Hemmi viðurkennir að svo sé. í seinni tíð sé umtalið orð- ið miskunnarlausara. Það bitni ekki á honum lengur heldur á börnunum hans. „Það er nú einu sinni þannig að við lifum í landi kjaftasögunnar. Við erum býsna lokaðir, íslendingar, það

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.