Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1997, Side 27
JL>V LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997
%étta!jós *
Kaupsýslumenn gefa háar fjárhæðir í sjóði breska Verkamannaflokksins:
Milljónirnar til vandræða
- Tony Blair í vanda vegna tóbaksauglýsinga á kappakstursbrautum
Tony Blair hefur ekki komist í
hann krappari síðan hann varð for-
sætisráðherra Bretlands í kjölfar
kosningasigurs Verkamannaflokks-
ins í vor.
Allt hefur verið á öðrum endan-
um síðan ríkisstjórn hans veitti
Formúla I kappakstrinum undan-
þágu frá banni við tóbaksauglýs-
ingum. Og ekki batnaði ástandið
þegar svo upplýstist að Bemie
Ecclestone, maðurinn að baki
kappakstrinum, hafði gefið eina
milljón sterlingspunda í kosn-
ingasjóði Verkamannaflokks-
ins fyrir þingkosningarnar í
maí. Deilan þykir hafa skaðað
Blair og ímynd hans sem um-
bótasinnaðs stjórnmála-
manns. Hætt er við að hún
spilli nokkuð fyrir ástum
þeirra samlyndu hjóna
sem ríkisstjórn hans og al-
menningur eru.
mannaflokksins leituðu ráða hjá sir
Patrick Neill, formanni eins konar
siðanefndar opinberra starfsmanna,
vegna gjafar Ecclestones. Neill
hvatti flokksmenn til að skila fénu,
sem og var gert, mörgum háttsett-
Reynt að skýra
málið
Skoðanakönnun
sem birt var í vikunni
sýndi fram á að bilið
milli Verkamanna-
flokksins og íhalds-
flokksins hefði minnk-
að nokkuð, þótt enn
væri það breitt.
Blair hefúr ekki haft
undan við að reyna að
útskýra gjörðir ríkis-
stjómarinnar og róa
andstæðinga sína. Á
miðvikudag hvatti
hann af því tilefni alla
stjórnmálaflokka á
Bretlandi til að skýra
frá fjárgjöfum í flokks-
sjóðina undanfarin
fimm ár sem era
hærri en fimm þúsund
pund. Hann sagði
þingheimi að Paddy
Ashdown, leiðtogi
frjálslyndra
demókrata hefði fallist
á það og spurði William
Hague, nýjan leiðtoga
Ihaldsflokksins hvort
hann mundi gera slíkt
hið sama. Þegar Hague, sem hafði
ekki sparað gagnrýni sína á ríkis-
stjómina, neitaði að fallast þegar í
stað á tillögu forsætisráðherrans,
henti Blair það á lofti og sagðist
ekki taka mark á gagnrýni hans á
meðan svo væri.
Blair og aðrir leiðtogar Verka-
Bernie Ecclestone, sem rekur Formúla I kappaksturinn og gaf milljón
pund í sjóöi breska Verkamannaflokksins, var ekkert hrifinn af því aö
láta mynda sig þegar deilurnar um gjöf hans voru hvaö háværastar.
um flokksmönnum til sárrar
gremju. Flokkurinn skuldar jú
hundruð milljóna íslenskra króna.
Rætt um meira fá
Ekki nóg með það. Skömmu síðar
var svo upplýst að embættismenn
Verkamannaflokksins hefðu rætt
við undirmenn Ecclestones um frek-
ari fjárgjafir kappakstursformanns-
ins til flokksins. Það gerðist á sama
tíma og ríkisstjórnin ræddi hvort
veita ætti formúlu 1 kappakstrinum
undanþágu frá tóbaksaug-
lýsingabanninu.
Blair sá þann kost-
inn vænstan að
koma fram í
sjónvarpi til að
| reyna að
greiða úr öllu
moldviðrinu.
í viðtali við
BBC baðst
hann afsök-
unar á máls-
? meðferðinni.
Hann viður-
kenndi að ríkis-
stjómin hefði ekki
verið eins hrein-
skilin og hún hefði
átt að vera en neitaði
að nokkuð hefði ver-
ið rangt Við
ákvörðun henn-
ar um að veita
undanþág-
una.
„Það hef-
ur ekki
verið hald-
ið vel á
þessu máli.
Ég ber á því
full? ábyrgð
og biðst af-
sökunar fyrir
það,“ sagði
Blair í sjón-
varpsviðtal-
inu.
Blair lét sér
þó ekki nægja
að biðjast af-
sökunar, held-
ur gerði hann
fundargerð
fundarins með
Ecclestone opin-
bera, nokkuð
sem þykir harla
óvenjulegt.
Fundargerðin
bendir til að Bla-
ir hafi fyrir fund-
inn verið móttækilegur fyrir því að
veita kappakstrinum undanþágu frá
auglýsingabanninu en að hann vildi
engu að síður ftnna leiðir til að
banna tóbaksauglýsingar. Enda var
slíkt bann eitt af helstu kosningalof-
orðum hans.
Ekkert rangt
—
Erlent
fréttaljós
Rökin fyrir undanþágunni eru
meðal annars þau að kappakstur-
inn þurfi á auglýsingatekjunum að
halda. Ef hann fengi ekki að njóta
þeirra væri hætta á að rekstur
keppninnar yrði fluttur frá Bret-
landi. Við það myndu margir missa
vinnu sína.
„Ég er ekki að segja að það hafi
verið rangt að þiggja fé af Bernie
Ecclestone. Ég er ekki að segja að
það hafi verið rangt að hitta Bemie
Ecclestone og ég er ekki að segja að
það hafi verið
rangt að leita
ráða hjá sir Pat-
rick Neill,“
sagði Blair í
sjónvarpsviðtal-
inu á sunnudag.
Ecclestone
skrifaði bréf til
Lundúnablaðs-
ins Times í fyrri
viku þar sem
hann sagðist
sjálfur hafa
skrifað Patrick
Neill og beðið hann um að breyta
þeirri ákvörðun sinni að skipa
Verkamannaflokknum að skila pen-
ingunum. Hann lýsti yfir hneykslun
sinni á þeirri stöðu sem hann væri
kominn í.
Hann sagði að það mundi aldrei
hvarfla að sér að móðga Blair með
því að leggja til að hann breytti um
stefnu gegn fjárframlögum í kosn-
ingasjóði Verkamannaflokksins.
Hann varði einnig þann rétt sinn að
gefa fé hverjum þeim stjómmála-
flokki sem honum sýndist.
„Allt annað gefur í skyn að ég
hafi gert eitthvað af mér og eru
freklegar og móðgandi hömlur á
frelsi mínu,“ skrifaði Ecclestone til
Times.
í sunnudagsútgáfu þessa sama
Times frá 16. nóvember síðastliðn-
um kemur fram að fleiri milljóna-
mæringar en kappakstursforstjór-
inn hafi lagt fé í sjóði Verka-
mannaflokksins. Hér er um að
ræða kaupsýslumenn sem
kunna að hagnast gífurlega á
ákvöröunum ráðherra ríkis-
stjórnarinnar í umdeildum
skipulagsmálum.
Matarkóngurinn
líka
Sunday Times hefur eftir
heimildarmönnum innan Verka-
mannaflokksins að Sainsbury lá-
varður, einhver ríkasti maður Bret-
lands og stjórnarformaður stór-
markaðakeðju sem ber nafn hans,
hafi gefið flokknum eina milljón
punda. Fyrirtæki lávarðsins hefur
fengið leyfi stjórnvalda til að byggja
umdeildan stórmarkað nærri
Richmond-upon-Thames í Surrey,
suðvestur af Lundúnum. Þá segist
blaðið vita til þess að Sainsbury
hafi tryggt sér lóðir undir tvo mark-
aði til viðbótar. Stjórnvöld munu
þurfa veita samþykki sitt fyrir þeim
á næstu mánuðum.
Annar kaupsýslu-
maður, Robert
Devereux, mágur
Richards Bransons,
r forstjóra Virgin
samsteypunnar, gaf
100 þúsund pund í
sjóði Verkamanna-
| flokksins. Beðið er
—----——— eftir ákvörðun yfir-
valda um leyfi til
byggingar á stóru
kvikmyndahúsi
Virgin í Eastleigh í
Hampshire.
Talsmaður Virgin samsteypunn-
ar sagði Sunday Times að gjöf
Devereux hefði verið persónuleg,
hún hefði ekki komið fyrirtækinu
neitt við, enda hefði Devereux verið
búinn að segja stöðu sinni hjá kvik-
myndadeild Virgin upp þegar hann
gaf féð. Enginn þeirra sem gaf
Verkamannaflokknum fé hefur látið
að því liggja að neitt sé gruggugt við
það.
Byggt á
Reuter, Was-
hington Post
og Sunday
Times.
Tony Blair forsætisráöherra.
Glæsileg norræn hönnun
FATNAÐUR ÚR MOKKA, LEÐRI OG FISKROÐI.
tt
ÍUNNEVA
>ESION
Sölustaðir: Leðuriðjan Atson Laugavegi 15 Rvík. Veiðimaðurinn Hafnarstræti 5 Rvík. Sunneva Design Hvannavöllum 14 Ak.