Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1997, Síða 52
60
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 JjV
BAD
BOYS
NÝR
HERRA-
ILMUR
Með Ara og Birki í a-v og Tryggva
Ingason og Hlyn Magnússon í n-s
skák
íslandsmeistarar
(h)eldri spilara 1997:
Stefán Guöjohnsen og
Guömundur Pétursson.
Benedikt íslandsmeistari í netskák
N/Allir
íslandsmeistarar yngri spilara 1997: Ari Már Arason og Birkir Jonsson.
Varist sagnhörku ungu
Siglfirðinganna!
Eins og kunnugt er af fréttum
urðu Birkir Jónsson og Ari Már
Arason íslandsmeistarar yngri spil-
ara á dögunum en þeir eru báðir
ættaðir frá Sigluflrði.
Siglufjörður hefir frá alda öðli
getið af sér marga góða bridgemeist-
Umsjón
....Á—
Stefán Guðjohnsen
ara og er frægust á seinni árum
íjöldskylda Jóns Sigurbjörnssonar.
gengu sagnir á þessa leið:
Norður Austur Suður Vestur
2 é dobl pass 3 é
pass 3 Gr pass pass
pass
Birkir spyr um spaðafyrirstöðu
með þremur spöðum og það er í
rauninni það eina sem Ari á.
Suður spilaði út hjartasexi, kóng-
ur frá norðri og tían til baka. Birk-
ir setti gosann og suður drap á
drottningu. Hann tók síðan hjartaás
og spilaði meira hjarta. Ari fékk
slaginn á níuna, tók síðan sex slagi
á lauf, svínaði spaðagosa og fékk 10
slagi. Það voru 630.
Það var samt ekki toppur því
toppinn fékk annar ungur Siglflrð-
ingur, Ingvar Jónsson, bróðir Birk-
is. Hann spilaði líka þrjú grönd í
austur en þau voru dobluð og
redobluð sem gerði slétt þúsund
með yfirslagnum.
Áður fyrr var fjöldskylda Sigurðar
Kristjánssonar frægust og allir
kannast við bræðurna Þráin og Vil-
hjálm Sigurðssyni. Þá er ónefndur
Jóhann Jónsson frá Siglufirði, oft-
ast nefndur „Jói Sigló“.
Eins og gengur er yngri kynslóð-
in óagaðri í sögnum en þeir eldri og
þvi ber andstæðingum þeirra að
varast sagnhörku þeirra og vera vel
á verði í vörninni.
Spilið í dag hjálpaði Birki og Ara
að næla í íslandsmeistaratitilinn og
í rauninni var ekki auðvelt að verj-
ast í því.
é 74
74
•f D32
é ÁD9832
* D108653
V K10
f Á87
é 65
é ÁKG2
•é G953
♦ G54
* K4
é 9
V ÁD862
* K1096
* G107
HUE
Blúndu-
sokkabuxur
og sokkar
Kjólföt og
jakkaföt á
stráka
Prinsessujólakjólar
á 1/2 árstil lOára.
Margir litir og gerðir
Miðvangi 41 220 Hafnarfirði
simi 5652177 (við hliðina á Samkaupum)
----------
jjrval
- í stuttu máli sagt
Benedikt Jónasson sigraði glæsi-
lega á íslandsmótinu i netskák sem
taflfélagið Hellir stóð fyrir á sunnu-
daginn var í samvinnu við EJS.
Benedikt gerði jafntefli í fyrstu um-
ferð mótsins en eftir það héldu hon-
um engin bönd og hann vann allar
átta skákimar sem eftir voru.
Þetta er í annað sinn sem íslands-
meistaramót í skák á Internetinu er
haldið en skákiðkun á netinu á nú
sífellt meiri vinsældum að fagna. í
vor voru 135 íslendingar skráðir í
stærsta skákklúbinn á netinu - Int-
emet Chess Club - en þar eru yfir
10 þúsund félagar. Að jafnaði tefla
yfir eitt þúsund manns þar á kvöldi,
frá öllum heimsins þjóðlöndum, eða
því sem næst. E.t.v. ætti að vara
skákunnendur við þvi að byrja á
þessu, þvi aö dæmin sanna að sum-
ir hafa orðið svo fangaðir að jaðrar
við fíkn. Jafnhliða taflmennskunni
skiptast menn á orðum og svo má
einnig fylgjast með skákum annarra
og ræða málin við aðra áhorfendur,
án þess að keppendumir verði þess
varir.
Keppendur á íslandsmótinu vora
28 en nokkrir heltust úr lestinni
vegna tæknilegra örðugleika. Fyrir-
komulag mótsins var spennandi að
Gerið ciœðci-
og verðsamanburð
BFGoodrich
All-Terrain T/A 1/erð stgr.
225/75R-16 11.679,-
30x9,5-15 12.191,-
245/75R-16 13.392,-
31 x/10,50-15 13.627,-
33x/í 2,50-15 14.984,-
35x/12,50-15 17.834,-
■■■■■■ DEKK
Jeppadekk
SUDURSTROND 4
S: 5614110
- mögnuð skák frá Invest-bankamótinu í Belgrad
því leyti að þátttakendur tefldu und-
ir dulnefnum. Því var engin leið að
vita hver mótheijinn var nema það
sæist á taflmennskunni sjálfri. Dul-
nefni sigurvegarans „HBzimsen“
hefúr kannski átt að beina athygli
andstæðingsins að nýlegum kostn-
aðarhækkunum netverja, sem voru
ofarlega á baugi þegar mótið fór
fram.
Benedikt gerði jafntefli við Gunn-
ar Björnsson í fyrstu umferð og eins
og áður sagði vann hann allar skák-
ir sínar eftir það. Nokkrum sinnum
var hann þó hætt kominn eins og
gengur og gerist. íslandsmeistarinn
frá því í fyrra, Þráinn Vigfússon,
varð nú að láta sér vel líka deilt 8.
sætið.
EJS gaf þrenn verðlaun til móts-
ins til handa íslandsmeistaranum,
sterkasta áhugamanninum (undir
1800 stigum) en þau hreppti Sverrir
Unnarsson og loks besta stigalausa
keppandanum, sem Sigurgeir Hö-
skuldsson varð aðnjótandi. Halldór
G. Einarsson hafði umjón með
keppninni.
Staða efstu manna
varð þessi:
1. Benedikt Jónasson
(Hbzimsen) 8,5 v.
2. Hlíðar Þór Hreinsson
(Nonni Naggur) 7,5 v.
3. Arnar Þorsteinsson
(kallikles) 7 v.
4. Bogi Pálsson (gorgias) 6,5 v.
5. Kristján Eðvarðsson
(Aggressive) 6 v.
6. -7. Rikharður Sveinsson
(Heuriger) og
Jóhann Þorsteinsson (EVG) 5,5 v.
8.-12. Gunnar Björnsson (Hrellir),
Þráinn Vigfússon (Jordan),
Sverrir Unnarsson (mila),
Sigurgeir Höskuldsson
(Risky Monster) og Aron
Bjamason (Bat) 5 v.
Mögnuð skák í Belgrad
Stórmóti Investbankans í Belgrad
lýkur nú um helgina. Þetta er í 6.
sinn sem mótið er haldið en svo
virðist sem skáklíf sé að færast í
samt lag aftur i „gömlu Júgóslavíu"
enda er skákáhugi óvíða meiri. Sér-
lega var reynt að vanda val kepp-
enda í ár þar eð mótið er haldið í til-
efni af 135 ára afmæli bankans.
Eftir 7 umferðir af 9 var staðan
þessi:
1.-3. Vassily Ivantsjúk,
Viswanathan Anand og
Alexei Sírov, 5 v.
4.-5. Joel Lauter og Vladimir
Kramnik, 4 v.
6. Boris Gelfand 3,5 v.
7. Alexander Beljavsky 3 v.
8. Kiril Georgiev 2,5 v.
9. Ljubomir Ljubojevic 2 v.
10. Alexander Kovacevic 1 v.
Ivantsjúk hafði einn fomstima
fyrir 7. umferð en gerði þá jafntefli
við Gelfand. Anand vann hins vegar
Ljubojevic og Sírov vann Georgiev
og þeir félagar komust því upp að
hlið hans.
———-
Lítum á ótrúlega skák Kramniks
og Anands sem tefld var í 2. umferð.
Kramnik hefur átt mikilli velgengni
að fagna á árinu og fyrir skákina
við Anand hafði hann aðeins tvíveg-
is þurft að leggja niður vopn - gegn
Kasparov í Linares og Short í Novg-
orod. Þá hafði Kramnik sloppið tap-
laus frá tveimur síðustu mótum sín-
um, og þar að auki hafði Anand
ekki tekist að vinna hann síðan í
apríl 1996. Nú var röðin sem sagt
loksins komin að Anand en sigur-
inn var ekki átakalaust.
Hvítt: Vladimir Kramnik
Svart: Viswanathan Anand
Meran-vörn.
1. Rf3 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 d5 4.
d4 c6 5. Bg5 h6 6. Bh4 dxc4 7. e4
g5 8. Bg3 b5 9. Be2 Bb7 10. e5 Rh5
11. a4 a6 12. Rxg5!
Fórn í anda gömlu meistaranna.
Hvítur nær að tvístra svörtu kóngs-
stöðunni og ljóst er að svartur má
hafa sig allan við til að koma skipu-
lagi á vamir sínar.
12. - Rxg3 13. Rxf7 Kxf7 14.
fxg3 Kg8 15. 0-0 Rd7 16. Bg4
Einnig kemur 16. Bh5 til greina.
16. - De7 17. Re4 Hh7 18. Rd6
Hb8 19. b4!? h5! 20. Bh3 Bh6 21.
Khl Bg5 22. Dc2 Hg7 23. De2 Ba8
24. Dxh5 Hf8 25. Re4
Með laglegum 19. leik sínum tókst
svörtum að losa um stöðuna og
koma biskupnum á framfæri. En nú
virðast ýmsar blikur á lofti. Næstu
tveir leikir svarts era meistaralegir.
25. - c5! 26. Rxg5 Bd5!!
Svartur skilar fengnum með góðu
og treystir stöðuna. Hann stólar á
frelsingjana drottningarmegin og
byggir áætlunina á óvirkum mönn-
um hvíts á kóngsvæng - sérstaklega
biskupnum á h3.
Á hinn bóginn var 26. - Hxg5 27.
Bxe6+ Kg7 28. Dh4 hættulegt svört-
um. T.d. 28. - cxd4 29. Bxd7 Hxfl+
30. Hxfl Dxe5 31. Be6 o.s.frv.
27. Rf3?
Hvítur varð að láta slag standa og
reyna 27. Rxe6 Hxfl+ 28. Hxfl Bxe6
29. Bxe6+ Dxe6 30. bxc5 með sóknar-
færam.
27. - cxc4 28. axb5 axb5 29. Rh4
Dg5 30. HxfB+ RxfB 31. De8 Hf7
32. Rf3 Dg6 33. Dxb5 b3 34. Hfl
Dd3 35. Kgl De3+ 36. Khl c3 37.
Bxe6 Bxe6 38. d5 Hxf3! 39. gxf3
Bh3
Laglegur lokahnykkur. Hvítur er
nú vamarlaus.
40. Dc4 Bxfl 41. Dg4+ Kh7 42.
e6 Rg6
- og hvítur gafst upp.