Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1997, Qupperneq 60

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1997, Qupperneq 60
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 BTili jilyjiil mu ÍIKit'e. r.lÚJUU “ugju&juuilu ilu uaffijiiöu Ujliu, Ijel ALVORll 610! ^polby STAFRÆNT HLJÓOKtRFI I | j i X ÖLLUMSÖLUM! , 'jA, STEPHEN FRY VÁNESSA REDGRAME Synd kl. 9 og 11. u------ Ráðabruggið My Best FRIEND’S ÍHX SIMI mm ick+ck 4S Daqsliós J DV rULLM HUSN OborganlC}; ln\ aösókn i i n ganiaiiinynd scin hciur lcngiö liabæra ncli sínu sem oi* 1 Bandan'kjununi/’ Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. lilltsllll JTrfelttif luíniov npp A clll liocln. nppr.voilía lirerlua Ramnnnisairia Imlflnr rifiam mofi “nlinnllnp ritir. “ÍJinotinn ritli” er lniiii aii pnia ■ jiaft jnJflpjjnil í nréilánrii.;Elrtri mir.ta af Jinfsafi. Fjrilimr tftnliEt nnrin pinn aftilar ojr rftu nm EtnnCranlngri tftnllctar I “Traiiirpnttíiiit''. Sýnd kl. 7, 9 og 11. Sýnd kl. 5. Laugavegi 94 551 6500 Feigðarförin Event Horizon, sem Háskólabíó hefur frumsýnt, er mikiU visindatryllir sem ger- ist í framtíöinni. Árið er 2047. Um borð í geimstöðinni Dagsljós, sem er á braut um- hverfis jörðu, vaknar visindamaðurinn William Weir upp eftir að hafa haft martraðir um látna eiginkonu sína. Tvennt hefur haft afgerandi áhrif á líf hans, sjáifsmorð eiginkonu hans og hvarf geimskipsins Event Horizon, sem hann hannaði og átti að komast að endimörk- um Vetrarbrautarinnar. Sjö árum eftir að geimskipiö hvarf ber- ast boð frá því þar sem það liggur nálægt Neptúnusi. Það er einhver lifandi um borð, á þvi er enginn vafi. Leiðangur er sendur til að nálgast skipið og gá hvort einhverjir af áhöfninni eru á lífi. í skip- stjórnarsætinu er reyndur geimskipstjóri, Miller. Hann og áhöfn hans eru litt hrifin af ferðalaginu en taka skipunum eins og vera ber. Með i förinn er Weir. Það er fyrst þegar geimskipið er komið langa leið i átt að Event Horizon að Weir segir áhöfninni að allt sem þau hafi heyrt um Event Horizon sé lygi. Geimskipið hafi verið fyrsta geimskipið sem hannaö var til að geta ferðast með Geimskipiö Event hraða ljóssins. Horizon kannaö. Þegar skipið var komið á ijóshraða hafi það horfið og aldrei neitt heyrst til þess fyrr en nú og til að gera áhöfina enn meira undrandi segir hann að skilaboðin sem áhöfninnni hafi verið sagt frá að væru frá einhverj- um úr áhöfninni séu ekki frá mennskum ... 1 aðalhlutverkum eru Laurence Fishburne, sem leikur skipstjór- ann, og Sam Neil, sem leikur vís- indamanninn Weir. í hlutverkum áhafnarmeðlima eru Joely Ric- hardson, Kathleen Quinlan, Ric- hard T. Jones, Sean Pertwee og Jack Noseworthy. Leikstjóri Event Horizon er Paul Anderson, sem áður hafði leikstýrt Mortal Kombat. Ander- son er enskur, fæddur i Newcastle og lauk háskólaprófi frá Warwick- háskólanum áður en hann sneri sér að kvikmyndum. Hann starfaði í nokkur ár við breska sjónvarpið áður en hann brá sér vestur um haf þar sem allt hefur gengið hon- um i haginn. Næsta kvikmynd hans verður, eins og fyrri tvær myndir, framtiðarkvikmynd sem nefhist Soldier.- Hilmar Karlsson Áhöfn björgunarskipsins þarf aö takast á viö ósýnilegan óvin. \ fijinjaimjj Laugarásbíó - Wilde: Allir drepa yndið sitt Kvik- mynd Bri- ans Gil- berts segir sögu breska rit- höfundar- ins Oscars Wilde (1854-1900) síðasta áratuginn í lífi hans, allt frá þeim tíma sem hann er vinsæll og dáður rithöfundur og fram yfir hneykslið mikla. Handrit myndarinnar er byggt á frægri ævisögu Richards Ellmanns sem kom út fyrir réttum 10 árum og með aðalhlutverkið fer Stephen Fry sem, eins og svo margir hafa bent á, er fullkominn í hlutverk Wildes. Einnig er túlkun Judes Law á Alfred Douglas afbragös- góð, en Bosie, eins og hann kallaði sig, var um langt skeið elsk- hugi Wildes. Nokkuð þótti mér þó vanta á að vel væri unnið úr þeim miklu heimildum sem til eru um Wilde og stundum mátti finna mjög ergjandi rangfærslur og einfaldanir. Faðir Bosies, 9. markgreif- inn af Queensberry, var t.d. margbrotnari persónuleiki en fram kemur í myndinni og þær reglur sem viðhafðar eru í hnefaleik- um nútímans frá honum komnar. t túlkun Toms Wilkinsons er honum lýst sem hálfgerðum bjána og þannig gert lltið úr þeirri ógn sem Wilde stóð af þessum hættulega og athyglissjúka manni sem hleypti upp sýningu á einu af leikritum Tennysons vegna þess að guðleysingja var lýst háðulega i verkinu. Ekki er heldur fyllilega skýrt af hverju Wilde fór ekki úr landi meðan þess var kostur, eins og svo margir af skáldbræðrum hans höfðu gert und- ir svipuðum kringumstæðum, t. d. Beckford árið 1785 og Byron lávarður 1816. Það var ekki fyrr en 1861 að refsingar viö samkyn- hneigð vcru mildaðar úr dauðadómi í ævilangt fangelsi og Wilde gat verið þess fullviss að almenningsálitið myndi snúast gegn honum. Wilde og Bosie sýndu fádæma dómgreindarleysi þegar þeir drógu markgreifann fyrir dómstóla og ásökuðu um meið- yrði. Wilde var sekur og við yfirheyrslur tókst verjanda mark- freifans að sýna fram á að ásakanirnar ættu við rök að styðjast. réttarhaldinu sem fylgdi í kjölfarið tókst Wilde ekki þrátt fyrir hetjulega baráttu að hreinsa nafn sitt og var dæmdur til tveggja ára þrælkunarvinnu fyrir „kynvillu". Þegar honum var sleppt lausum var hann einangraður og forsmáður. Eiginkona hans, Constance (Jennifer Ehle), lést ári síðar og syni sína tvo sá hann aldrei framar. í niðurlagi myndarinnar er dregið úr smán og út- skúfun Wildes. I einni af lokasenunum gengur hann að gröf Con- stance og les af legsteininum orðin: „Kona Oscars Wilde". Sann- leikurinn er kuldalegri þvi að á legsteininn var fóðumafn henn- ar aðeins letrað þar sem nafn Wildes var ósegjanlegt líkt og glæp- ur hans. Wilde andaðist í París þremur árum eftir fangelsisvist- ina í algjörri örbirgð, þrátt fyrir að Bosie, sem erft hafði 20.000 pund eftir fbður sinn, lifði eins og greifi í sömu borg. Wilde er vönduð mynd með ágætis leik, en nokkuð vantar á að handritið skili dramatísku lífshlaupi Wildes á sannfærandi máta. Ég mæli þó með henni. Leikstjóri: Brian Gilbert. Aðalhlutverk: Stephen Fry, Jude Law, Vanessa Redgrave, Jennifer Ehle, Judy Parfitt, Michael Sheen og Tom Wilkinson. Guðni Elísson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.