Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1998, Síða 2
LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1998 I>"V
2 'Géttir
Enn eitt málið í hestaútflutningnum:
Nýtt nafn og hest-
urinn yngdur upp
- Bændasamtökin grípa í fyrsta sinn til harðra aðgerða
Birna Káradóttir á hesti sínum, Örvari frá Háholti, 9 vetra, á Murneyrarmót-
inu sl. sumar.
Skipt var um nafn á hesti sem
seldur var til Sviss á síðasta ári og
hann seldur út þremur árum yngri
en hann er. í framhaldi hafa
Bændasamtök Islands skrifað selj-
anda hestsins, Ásgeiri Svan Her-
bertssyni, og tiikynnt honum að
ekki verði fleiri upprunavottorð af-
greidd til hans fyrr en hann hefur
gert hreint fyrir sínum dyrum. Er
þetta í fyrsta skipti sem Bændasam-
tökin grípa til svo harðra aðgerða af
þessu tagi.
Hesturinn sem um ræðir er gæð-
ingurinn Örvar frá Háholti í Gnúp-
verjahreppi. Eigandi hans frá upp-
hafi, Bima Kristjánsdóttir frá Há-
holti, seldi Ásgeiri hann í ágúst sl.
örvar er undan hryssunni Kilju frá
Háholti og Gassa frá Vorsabæ. örv-
ar er kastaður í mai 1988 og gaf fað-
ir Birnu henni þá folaldið. Hún
keppti á hestinum sumariö 1995, þá
7 vetra gömlum. Síðan keppti hún á
honum á Mumeyri í fyrrasumar
þar sem þau unnu B-flokk. Sl. sum-
ar keppti hún svo á honum á Murn-
eyri aftur og vann það mót. Hún
keppti einnig á Suðurlandsmótinu í
ágúst sl. Þá sömu helgi sýndi hún
hann í kynbótadómi og fékk góðan
dóm á hann. Eins og sjá má af þess-
um ferli er um þekktan og skráðan
hest að ræða. Á Suðurlandsmótinu
seldi Birna Ásgeiri Svan Herberts-
syni hestinn en hann haföi áður fal-
ast eftir honum.
„Þau skilyrði fylgdu sölunni að
hesturinn héldi sama nafni. Ég
sagði við Ásgeir að ég vildi fá að
DV-mynd E.J.
fylgjast með hestinum og afdrifum
hans. Ásgeir sagði það ekkert mál.“
Engin skýring
Næst frétti Bima af Örvari á
Sýnarmótinu sem haldið var í sept-
ember sl. Þar var hann hins vegar
skráður sem Baldur, fæðingarstað-
ur óþekktur, móðir óþekkt, faðir-
inn Gassi og hesturinn orðinn sex
vetra í stað níu, að sögn Bimu. Vin-
ur Bimu spurði Ásgeir á mótinu
hvort þetta væri ekki Örvar frá Há-
holti. „Hann sagði það vera en nýi
eigandinn hefði viljað skipta um
nafn. Ásgeir hafði þó hringt i stjúp-
foöur minn upp í Háholt til að fá
ættina á hestinum. Ég hringdi í Ás-
geir eftir mótið en þá hafði hann
enga viðhlítandi skýringu á þessu.“
Síðan var hesturinn seldur úr
landi. Með eftirgrennslan komst
Bima að því að hann hefði farið út
til Sviss. Bróðir Bimu er búsettur í
Sviss og hann komst að því að
þangað væri hesturinn kominn,
imdir nafninu Baldur, og sagður 6
vetra. Samkvæmt ættfærslu var
hann albróðir Örvars. Þessi „nýi“
hestur er nú kominn inn í Feng,
þótt hann sé ekki til, sagður undan
Kilju og Gassa og fæddur árið 1991
en það ár kastaði hryssan ekki.
Birna sagði að kaupandinn hefði
ekki viljað trúa því að brögð væm
í tafli. Hann hefði staðið i þeirri trú
að hann væri með ungan hest í
höndunum, sem ætti eftir að stór-
bæta sig, en ekki fúllmótaðan hest.
-JSS
Viöbrögð Bændasamtakanna:
Upprunavottorð ekki af-
greidd til seljandans
- stórskaöleg uppákoma, segir Kristinn Hugason
„Ég sendi Ásgeiri Svan Herberts-
syni bréf, fyrir hönd Bændasamtak-
anna. Þar kom m.a. fram að ekki
yrðu fleiri upprunavottorð afgreidd
til hans vegna útflutnings á hrossum
fyrr en hann hefði skýrt þetta mál.
Það er alveg rétt að þessi hestur er
kominn inn í Feng,“ sagði Kristinn
Hugason hrossaræktarráðunautur.
Kristinn sagði að enginn lagabók-
stafur væri til sem gerði Bændasam-
tökunum beinlínis kleift að setja fólk
út af sakramentinu, þótt grunur væri
um misferli í sölu hrossa til útlanda.
I þessu tilviki yrði
ekki tekið trúan-
legt það sem um-
ræddur seljandi
kæmi með héðan í
frá fyrr en hann
væri búinn að gera
hreint fyrir sínum
dyrum. Hann gæti
þvi ekki flutt hross
út í eigin nafni Kr|st|nn Huga.
fyrr en hann væri son hrossarækt-
búinn að ganga frá arráðunautur.
þessu máli.
„Viö erum að berjast fyrir því aö
örmerki verði tekin upp tíl að koma
í veg fyrir mál af þessu tagi. Auk
þess erum við búnir aö gera að til-
lögu okkar að örmerking allra út-
flutningshrossa verði tekin upp sem
þýðir að ekki er hægt að víxla upp-
runavottorðum eftir aö hrossið hefur
á annað borð fengið slíkt vottorð. Þá
höfum við hert eftirlit með eigenda-
skiptum. Við erum hættir að gefa út
upprunavottorð fyrir hross sem er
skráð á annan eiganda en seljanda,
nema þá aö það berist vitnisburður
frá fyrsta eiganda þess efnis að hann
hafi selt gripinn. Þetta er gert í kjöl-
far mála sem upp hafa komið.
Skýrsluhaldi er og verður ábóta-
vant þar til tekin verður upp skyldu-
skráning allra hrossa í landinu, eig-
andaskipti vottuð og rakin og engin
hross flutt út önnur en þau sem hafa
verið örmerkt sem folöld. Það er
tímaspursmál hvenær útflutningur
hreinlega stöðvast ef menn taka sig
ekki á. Uppákomur sem þessi eru
stórskaðlegar."
-JSS
Vissi ekki alveg hvað
hesturinn var gamall
„Ég fór sjálfur með hestinn til heil-
brigðisskoðunar til ákveðins dýra-
læknis sem sagði hann vera sjö
vetra. Kaupandinn fór síðan með
hestinn til annars dýralæknis, vegna
trygginga, og sá sagði hann vera sex
vetra," sagði Ásgeir Svan Herberts-
son seljandi Örvars frá Háholti.
„Ég sagði við kaupandann að hest-
urinn væri eldri en hann sagði að
fyrst dýralæknirinn hefði sagt að
hann væri sex vetra þá stæði það.
Viðskiptavinurinn ræður hvort hann
breytir nafni hests sem hann kaupir.
Ef eitthvað hefði veriö í spilunum
með það að yngja þennan hest upp þá
hefði maður breytt ættinni á hon-
um.“
Ásgeir sagði að kaupandinn úti
hefði einnig farið með hestinn tO
tveggja dýralækna í Sviss og þeir
hefðu báðir sagt hann 6 vetra.
„Ég kem að sjálfsögðu tU með að
svara bréfi Bændasamtakanna. En ég
hef þegar leiðrétt þetta við þá sem
keyptu hestinn."
Ásgeir var spurður hvers vegna
hann hefði fariö með rangar upplýs-
ingar tU að fá upprunavottorð hjá
Bændasamtökunum og látið kaup-
andann þar með ráða ferðinni úr því
að hann vissi sjálfur betur. „Ég vissi
ekki alveg hvað hesturinn var gamaU
þegar ég keypti hann. Þetta verður að
sjálfsögðu leiðrétt og hefur aldrei
annað komið tU greina af minni
hálfu.“
Helgi Sigurðsson dýralæknir var
einn þeirra sem skoðuðu Örvar.
Hann sagðist hafa skoðaö brúnan
hest sem hét Baldur. Af tönnunum
hefði mátt ráða að hann væri 6 vetra
en tannaldur væri einungis nálgun á
sannleika, eins og hann hefði marg-
oft tekið fram, en engin trygging fyr-
ir réttum aldri á hesti. -JSS
Erfiðleikar í útborg-
un atvinnuleysisbóta
Fiöldi atvinnulausra fékk ekki út-
borgaðcU1 atvinnuleysisbætur sinar í
fyrradag á útborgunardegi bótanna
og heldur ekki í gær. Ástæða þess er
að ný lög hafa tekið gUdi um greiðsl-
ur atvinnuleysisbóta. í samræmi við
þau hefur úthiutunarnefndum í
Reykjavík verið fækkað úr níu í tvær
og þar meö greiðslustöðum atvinnu-
leysisbóta.
Annar útborgimarstaðurinn er nú
hjá Verslunarmannafélagi Reykjavík-
ur i Húsi verslunarinnar en hinn hjá
Dagsbrún í Skipholti 50 og mUli
þeirra skiptast þeir 3000 manns sem
nú þiggja atvinnuleysisbætur. HaUd-
ór Bjömsson, formaður Dagsbrúnar,
segir í samtali við DV að fyrst í gær
hafi greiðslukerfí og tækjabúnaöur
vegna starfseminnar komið inn í hús-
næði Dagsbrúnar. Unnið hafi verið
fram undir morgun við að koma bún-
aðinum í gang en vandamál komið
upp í gærdag í sambandi við kerflð
eins og títt er um slíkan búnað eftir
gagngerar breytingar.
HaUdór Bjömsson sagði að aUt
hafi verið gert tU að aöstoða aiia þá
sem ekki tókst að afgreiða í gær, t.d.
með því að semja við viðskiptabanka
þeirra um yfirdráttarheimUdir o.fl.
og viö stéttarfélög þeirra um fyrir-
greiöslu og aðstoð. Það hafi tekist
vonum framar.
HaUdór kvaðst í gær vonast tU
þess að þetta nýja fyrirkomuiag verði
komið í fuUt lag á næsta útborgunar-
degi atvinnuleysisbóta þann 22. jan-
úar og í síðasta lagi fimmtudaginn 29.
janúar. Þá ættu aUir byijunarörðug-
leikamir að vera yfirunnir.
Hjá Verslunarmannafélagi Reykja-
víkur fengust þær upplýsingar í gær
að bætur hefðu ekki verið greiddar
út þar í gær. Þær yrðu greiddar út á
þriðjudaginn kemur. -SÁ
stuttar fréttir
Engar sættir
Þau GísU PáU Pálsson, Alda
Andrésdóttir, Hafsteinn Bjama-
son og Aldís Hafsteinsdóttir, bæj-
arfúUtrúar D-list-
ans í Hveragerði,
taka ekki alvar-
lega ákvörðun
stjómar Sjálfstæð-
isfélagsins Ingólfs
um að taka brott-
vikningu þeirra
frá aprfi sl. tíl baka. Þau hafa
ákveðið að bjóða fram lista fyrir
næstu sveitarstjórnarkosningar
undir nafni Bæjarmálafélags
Hveragerðis.
Styðja oddvitann
Sveitarfundur í Skorradal lýsir
vanþóknun sinni á vinnubrögðum
meirihluta hreppsnefhdar varð-
andi sameiningarmál hreppsins
sem hafa mikið verið i fféttum
undanfarið. Oddviti hreppsins
nýtur hins vegar fúlis stuðnings
sveitarfundarins. RÚV sagði frá.
Sjö sækja um
Umsækjendur um stöðu ríkis-
lögreglustjóra em alls sjö talsins.
Þeir era: Arnar Guðmundsson,
skólastjóri Lögregluskólans, Ge-
org Kr. Lárasson, sýslumaður í
Vestmannaeyjum, Haraldur Jo-
hannessen, varalögreglustjóri f
Reykjavík, Hjördís B. Hákonar-
dóttir héraðsdómari, Stefán Hirst,
skrifstofústjóri hjá Lögreglunni í
Reykjavík, Valtýr Sigurðsson hér-
aðsdómari og Þórir Oddsson vara-
ríkislögreglustjóri.
Gagnrýna skattinn
Davíð Oddsson gagnrýndi
skattayfirvöld á málþingi um
skattamál í gær. Hann sagði dæmi
um að skatt-
heimtumenn
misnotuðu
vald sitt og
gengju of
harkalega
ffam við ein-
staka skatt-
greiðendur án
þess það liggi
fyrir að þeir hafi brotið af sér.
Fulltrúi skattsins vísaði þessu
hins vegar á bug. RÚV sagði frá.
Læknar bíða
• Heiisugæslulæknar hafa beðið
eftir úrskurði kjaranefndar um
launakjör í rúmt ár og vill Katrín
Fjeldsted, formaður félags þeirra,
meina að á annan tug lækna hafi
hrakist úr starfi á þessum tíma.
Ekki er vitað um hvenær úr-
skurðurinn loksins kemur, en
Katrín vonast til að það verði fyr-
ir mánaöamót, að sögn RÚV.
Ráðherra sýknaður
Sjávarútvegsráöherra var sýkn-
aður af kröfum útgerðarfélagsins
Siglfirðings um að ógiltur verði úr-
skurður sjávar-
útvegsráðuneyt-
isins um afla-
heimildir skips-
ins Siglis á
Reykjaneshrygg.
Ráöuneytíð
hafði staðfest
aflaheimild sem
tók ekki tiilit til afla sem nýttur
hafði verið til bræöslu.
Hagkaup í Borgarnesi
Hagkaup opnar í fyrramálið nýja
verslun í Borgarnesi. Hún mun
heita Hraðkaup og verða nokkuð
ffábrugðin öðrum Hagkaupsversl-
unum vegna þess að í henni veröur
sjálfsafgreiðsla. Mikii samkeppni
verður á þessum markaði þar sem
Kaupfélag Borgfirðinga rekur vöru-
hús á staðnum.
Þjóðskjalavörður
rannsakar
Þjóðskjalavörður ætlar að rann-
saka hvort Ólafur Skúlason, fyrr-
verandi biskup íslands, hafi eyði-
lagt með pappírstætara skjöl sem
hann mátti ekki koma fyrir katt-
arnef. Stöð 2 sagði ffá.
-KJA