Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1998, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1998, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1998 tjgéttaljós Svo virðist sem Halldór Blöndal hafi sífellt veikari tök á ráðherra- dómi sínum. Hvert vandræöa- og hneykslismálið eftir annað hefur elt hann uppi á kjörtímabilinu og síð- ustu mánuði hefur vart liðið sú vika að embættisfærsla hans sé ekki i kastljósi fjölmiðla. Ekki skal hér fullyrt um hvort ráðherrastóllinn sé tekinn að hitna undir honum. Þegar það er borið undir þá sem lengi hafa fylgst með stjómmálum innanlands og utan virðast þeir nokkuð eindregið þeirr- ar skoðunar að eftir það sem á hef- ur gengið í samgönguráðuneytinu þá veki það nokkra furðu að Halldór skuli ekki vera búinn að taka pok- ann sinn. Þar beri nú síðast þrjú mál hæst og eru hvert um sig full- gild ástæða fyrir afsögn hans, hvað þáöU: Hið fyrsta þessara mála er fram- ganga samgönguráðherra í málum Pósts og síma í haust þegar gjald- skrárbreytingar vora gerðar á síma- þjónustunni og síðan afturkaUaðar að hluta eftir að forsætisráðherra hafði tekið HaUdór Blöndal á beinið. í öðru lagi er það Æsumálið: í því hefur ráðherrann þvælst fyrir því að orsök slyssins þegar skelveiði- skipinu Æsu hvolfdi á lognkyrrum sumardegi verði upplýst. Þegar blaðaö er í ítarlegum fréttaflutningi DV af Æsumálinu koma upp í hug- ann orö eins og ofstopi, yfirgangur, vankunnátta, áhugaleysi og ráð- Innlent fréttaljós Stefán Ásgrímsson leysi, en meira um það síðar. í þriðja lagi er þaö nýjasta málið, - upplýsingabann á meðlimi flug- ráös vegna fréttaviðtals við einn flugráðsmanna. Þaö mál er raunar þríþætt, sjálft upplýsingabannið, mismunun við innheimtu eldsneyt- isgjalds vegna Ameríkuflugs tveggja flugfélaga og ríkisstyrkur til Flugfé- lags íslands vegna Raufarhafnar- flugs þvert ofan í gild lög á Evr- ópska efnahagssvæðinu sem ráð- herrann sjálfúr staðfesti með undir- ritun sinni. Davíð ræður Hvort þessi mál verði til þess að Halldór Blöndal verður að yfirgefa ráðherrastólinn áöur en kjörtíma- bilið rennur út er undir forsætisráö- herra komið. Davíð Oddsson er þekktur af mjög glöggu pólitísku nefi og - veöurskyni. Sumir sem DV hefúr rætt við segja ólíklegt að hann hætti á að hafa Halldór öllu lengur innanborðs í ríkisstjóminni. Davíð hljóti að vilja tryggja vinsældir sín- ar og flokksins með því að fóma þeim sem mestum usla veldur - Halldóri Blöndal. Davíð hefur lýst því yfir að hann fyrirhugi breytingar á ríkisstjóm- inni. Samkvæmt heimiidum DV em þær fyrirhugaðar í byrjun næsta mánaðar. Gangi það eftir getur dregiö til tíðinda með hverjir það verða sem fara úr ríkisstjórn og hverjir koma inn nýir. Upplýsingabannið Það upplýsingabann sem Halldór Blöndal hefur orðið uppvís að að hafa sett á flugráð skömmu fyrir jól- in er afar sérkennilegt þótt vart sé hægt að segja að það komi blaða- og fréttamönnum á óvart sem fylgst hafa með íslenskum stjómmálum undanfarin ár. Forsaga upplýsinga- bannsins er sú að af vöruflugfélag- inu Cargolux hefur verið innheimt eldsneytisgjald sem lagt hefur verið á eldsneyti félagsins frá Keflavík til Bandarikjanna. Eldsneytisgjald var fellt niður á flugi milli íslands og Bandaríkjanna til að styrkja sam- keppnisstöðu Flugleiða á flugleið- inni á sínum tíma. Það er hins vegar brot gegn samkeppnislögum að innheimta gjald af einum aðila en ekki öðrum. Cargolux kærði þessa innheimtu til Samkeppnisráðs þcir sem elds- neytisgjaldið er ekki innheimt af Flugleiðum á Ameríkuleiðum. Ráð- ið úrskurðaði skömmu fyrir jól að innheimtan bryti í bága við sam- keppnislög og sam- gönguráðuneytið hefði mismunað flug- rekendum við inn- heimtuna og í raun veitt Flugleiðum rík- isstyrk með þessum hætti. Þegar einn flug- ráðsmaður rak augun í að þetta gjald væri innheimt af Cargolux en ekki Flugleiðum taldi hann að vem- lega vantaði upp á þessa innheimtu og lét það í ljósi í viðtali við dagblaðið Dag. Halldór Blöndal segir I samtali við DV að í orðum flugráðs- mannsins í blaðavið- talinu hefðu falist óviðurkvæmilegar aðdróttanir í garð embættismanna Flug- málastjómar. Þess vegna hefði hann bannað fjármála- stjóra Flugmála- stjórnar þann 18. des. að láta af hendi upp- lýsingar úr bókhaldi Flugmáiastjórnar til flugráðs. Jafnframt bannaði hann skrif- stofústjóra sínum og sérlegum fulltrúa í ráðinu aö mæta á fundi flugráðs. Þetta bann olli því að flug- ráð varð í raun óstarfhæft og ófært um að gegna skyldum sínum sem yfirstjóm Flugmálastjómar, m.a. þeirri að yfirfara reikninga stofnunar- innar og ganga frá níu mánaða uppgjöri. „Fyrir mér vakti einungis að -flugráö áttaði sig á því aö hvort það teldi aö um stórfellda vanrækslu væri að ræða í starfi embættismanna flug- málastjómar," sagði ráðherra við DV að- spurður um hvers vegna hann hefði skellt þessu banni á yfirleitt. Skylt að bjóða út ríkisstyrkt flug Fyrir skömmu missteig Halldór Blöndal sig á reglum um flugsam- göngur á Evrópska efnahagssvæð- inu sem hér hafa lagagildi, þegar hann ákvaö að styrkja Flugfélag ís- lands til þess að halda áfram áætl- unarflugi frá Akureyri til Raufar- hafnar. Styrkinn átti að greiöa af sérstökum lið í fjárlögum. Sá leggjabrjótur sem ráðherrann þama hrasaði um er laga- og reglu- gerðabálkur sem hann sjálfur und- irritaði fyrir nokkmm misserum. Bálkurinn er m.a. um ríkisstyrktar samgöngur til jaðarsvæða og gekk í gildi um mitt sl. sumar samhliða lögum um frelsi í flugi og bann við úthlutun sérleyfa í innanlands- og millilandaflugi. Samkvæmt ákvæð- um þessara laga og reglna er skylt að bjóða út allt ríkisstyrkt flug á öllu hinu Evrópska efnahagssvæði. Þessu virðist ráðherrann hafa gleymt. Samkeppnisstofnun hefur nú kall- að eftir upplýsingum úr samgöngu- ráðuneytinu um hvemig staðiö hafi verið að því að veita flugfélögum styrki þar sem allt bendi til þess að ráðuneytið hafi brotið samkeppnis- lög með því að bjóða ekki út ríkis- styrktar flugsamgönguleiöir. Guð- mundur Sigurðsson, forstöðumaður hjá Samkeppnisstofnun, sagði við RÚV að ráðuneytið yrði krafið um svör við því hvemig ætlunin væri að standa að þessu framvegis. Allt flug í útboð Aðspurður um málið sagði Hall- dór við DV: „Við höfum ekki gert samning við Flugfélag íslands um ríkisstyrk á Raufarhafnarflugleið- inni.“ Hann sagði að athugasemdir um málið hefðu komið fram og sér skildist að íslandsflug hefði áhuga á að taka flugið að sér og sagði síðan: „Það er alveg ljóst að það ber að bjóða út allt flug sem er styrkt sér- staklega með beinum framlögum. Fram aö þessu hefur veriö friöur um það að félög sem höfðu þjónust- að þessa staði gerðu það áfram og keppinautar blönduðu sér ekki í það mál. Ég hélt satt að segja að það væri þegjandi samkomulag um það.“ Hann sagði að þar sem svona væri í pottinn búið fyndist sér sjálf- sagt að bjóða út bæði flug sem nú er á hendi íslandsflugs og FÍ. „Mér finnst ekki rétt að binda mig ein- ungis við FÍ í þeim efnum og það verði boðið í bæði Gjögur, Grímsey og Raufarhöfn. Þá finnst mér sjálf- sagt að það verði boðið út með sama hætti hverjir vilji þjónusta sjúkra- flug en það era hærri fjárhæðir veittar tÚ slíks stuðnings en em veittar til áætlunar- flugs og ég hygg að það falli einnig inn- an þessara sömu reglna," sagði Hall- dór. Hált á EES- svellinu Halldóri Blöndal hefur áður skrikað fótur á þeim við- skiptareglmn EES sem nú orðið hafa lagagildi á íslandi og er gjaldskrármál Pósts og síma í haust dæmi um það. Um það mál allt var fjallað ítarlega í DV og öðrum fjölmiðl- um. Meginatriði þessara breytinga vora þau aö sím- gjöld innanlands hækkuðu verulega en útlandasímtöl lækkuðu. Hvers vegna þetta var gert skýrði Halldór með þessum orðum fyrir lesendum DV: „Það er ekki hægt að leggja niður gjald- svæði og það er ekki hægt að lækka símtöl til annarra landa nema hækka innanlandssímtöl. Þessi orð túlkuðu margir, þ.á m. tals- menn neytenda, þannig að með hækkunimum inn- anlands væri verið að niðurgreiða sím- töl til útlanda sem bryti gegn ákvæð- um laga bæði inn- anlands sem og á hinu Evrópska efna- hagssvæði. Sem fyrr hefur verið sagt tók for- sætisráðherra HaU- dór Blöndal og stjómendur Pósts og síma inn á teppið til sín og að þeim fundi loknum til- kynnti Halldór um að hækkanir innan- landssímtala yrðu teknar til baka að veralegu leyti. í samtali við DV var Ijóst að ráð- herranum komu viðbrögð almenn- ings við símagjaldskrárhækkunum innanlands og lækkunum á útlanda- símtölum á óvart. „Mér kom ekki á óvart að það skyldi verða óánægja út af hækkuninni en mér datt aldrei í hug að viðbrögðin yrðu svo sterk," sagði hann. Hann sagðist hins vegar ekki hafa verið tekinn inn á teppið til Davíðs heldur átt sjálfur fram- kvæði að fundinum sem fyrr var nefndur. Æsumálið Meðferð Æsumálsins af hálfu samgönguráðuneytis og ráðherra hefur verið afar sérkennileg. Skip- inu hvolfdi skyndilega á lognkyrr- um sumardegi í Amarfirði í júlí 1996. Fjórir af áhöfninni komust af í slysinu en tveir fórast. Engin afger- andi skýring hefur enn fengist á or- sök slyssins enda rannsókn brota- kennd. Ekkja skipstjórans á Æsu og dótt- ir stýrimannsins, sem báðir fórast með Æsu, Kolbrún Sverrisdóttir, hefur þurft að heyja ótrúlega harða baráttu fyrir því sjálfsagða mark- miði að orsakir slyssins verði rann- sakaðar og upplýstar. Sú barátta Kolbrúnar hefur enn ekki borið ár- angur þótt henni hafi sannarlega áunnist talsvert - ekki síst það að varpa óþægilega skýra ljósi á hvemig þau yfirvöld sem um málið áttu að fjalla hafa bragðist. Þegar um hálft ár var liðiö án þess að nokkur rannsókn af viti hefði farið fram, ekkert verið gert til að reyna aö ná skipinu upp né sækja lík þeirra sem fórast með Æsu, ritaði Kolbrún Sverrisdóttir öllum ráðherram og þingmönnum bréf og vakti athygli á því í hvaöa farvegi máliö væri. í kjölfarið fór fram utandagskrárumræða á Al- þingi. Að henni lokinni sá Halldór Blön- dal ástæðu til þess að hella sér yfir Kolbrúnu meö skömmum og skæt- ingi í vitna viðurvist. Hann reið að vísu ekki feitum hesti frá þeirri við- ureign því að Kolbrún lét sér hvergi bregða og las ráðherranum rök- studdan pistil um allt Æsumálið og meðferð hans og embættismanna hans á því af þeirri einurð og ís- kaldri kurteisi að ráöherrann setti hljóöan. Breskir kafarar fengnir - íslenskir hunsaðir Rúmum níu mánuöum eftir að Æsa fórst heimilaði HaUdór Blöndal loks að fengiö yrði til landsins breskt köfunargengi sem kafaði nið- ur að Æsu þar sem hún enn liggur á 76 m dýpi. Árangurinn varð sá að lík skipstjórans, eiginmanns Kol- brúnar Sverrisdóttur, fannst. Ekk- ert upplýstist hins vegar um orsak- ir slyssins. Kostnaður vegna Æsumálsins, þar á meðal heimsókn- ar bresku kafaranna er orðinn hátt í 30 milljónir króna. íslenskir kafarar og köfunarfyrir- tæki höfðu bæði áöur en Bretamir komu og eins síðar boöist til þess að lyfta Æsu af hafshotni og færa á land. Tvö íslensk fyrirtæki hafa gert samgönguráðuneytinu tilboð um að sækja skipið en hvoragt verið virt svars. Tilboð annars fyrirtækisins var upp á 18 milljónir. Það vildi fá 9 milljónir þegar búið væri að lyfta skipinu og flytja af 76 m dýpi á rúm- lega 30 m dýpi. Síðari hluta kostnað- arins vildi fyrirtækið fá þegar Æsa væri komin í slipp á ísafirði. Ráðu- neytið svaraði aldrei tilboðinu. Óskiljanleg framganga Öll framganga ráðherrans í Æsu- málinu er iliskiljanleg. DV hefur frá upphafi fylgst mjög vel með fram- vindu þess. í fréttaljósi um það snemma í júlí í fyrra segir: „Hvað varöar klúðrið í kringum rannsókn Æsumálsins þá er vitað að sjóslysa- nefnd vildi láta taka skipið á þurrt og rannsaka þannig hvað gerst hefði. Þar stóð samgönguráðherra í vegi þótt hann heimilaði síðar fjár- útlát til breska leiðangursins. Hvaða ástæður hann hafði til þess skal ósagt látið en einn heimildar- manna DV segir áhugamál ráðherr- ans ekki liggja á þessu sviði sam- göngumálanna. Hans áhugasvið séu fyrst og fremst samgöngur á landi og í lofti. Það sé því fyrst og fremst þekkingarskortur og slæmir ráð- gjafar sem valdi því í hvaða farveg málið hefur farið.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.