Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1998, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1998, Side 33
LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1998 imm 41 Það era gömul og ný sannindi að erfitt er að ná fram bættri heilsu eingöngu með því að stunda meiri hreyfingu. Gæta verður þess að borða jafnframt holla og næringar- ríka fæðu, sem má ekki vera of fit- andi. Laufey Steingrímsdóttir, nær- ingarfræðingur hjá Manneldisráöi, hefur lengi lagt áherslu á nauðsyn þess að samtvinna hreyfingu og mataræði. „Þeir sem ætla að ná fram bættu heilsufari setja sér yfir- leitt einhver markmið. Flestir vilja grenna sig og það gæti reynst erfitt ef mataræðinu er ekkert breytt. Auðvitað geta menn grennst og auk- ið styrk sinn með mikilli hreyfingu einni saman, en mun betri árangur næst jafnan með því að huga einnig að samsetningu fæðunnar. Heilsu- farið er ekki bara styrkur og þol, því mataræðið er mjög sterkur áhrifavaldur um heilsufar okkar,“ sagði Laufey. Ef við tökum til dæmis mann- eskju sem setur sér það markmið að léttast um 25 kíló, þá er það nánast útilokað verk án þess að miklar breytingar verði á mataræði, þvi þannig markmiði er erfitt að ná ein- göngu með mikilli hreyfingu. Til þess að ná sér niður í þyngd er eig- inlega meira atriði að breyta matar- æðinu heldur en að auka hreyfing- una. Hins vegar eru miklar líkur á að góður árangur náist ef þessi tvö at- riði haldast í hendur. Þá er ekki endilega nauðsyn á því að borða einungis meinlætalegt megrunar- fæði og setja af stað svakalegt æf- ingaprógramm. Það er hægt að ná miklum árangri með því einu að breyta ákveðnum þáttum í fæðu- vali. Þar skiptir viðbitið miklu máli, sérstaklega hjá fullorðnu fólki. Hjá sumum er sú breyting á fæð- unni að smyrja lítið eða ekkert á brauðið nægileg til að losna við öll óþörf kíló. Einnig reynist það árang- ursríkt ef menn borða léttari mjólk- urvörur, sneiða hjá sælgæti og feit- um sósum. Umsjón ísak Öm Sigurðsson Menn geta aflað sér upplýsinga um hollar fæðutegundir meðal ann- ars hjá Manneldisráði, eða aflað sér fróðleiks úr bókum eins og mat- reiðslubókinni Af bestu lyst sem Manneldisráð gaf út, þar sem öllum hollum mataruppskriftum fylgja upplýsingar um kaloríuinnihald," sagöi Laufey. Af öðrum bókum um heilbrigðar fæðutegundir og holla lifnaðarhætti má nefna bækurnar Mataræði og Betri línur. Þaö skiptir ekki öilu máli hvaða íþróttagrein menn stunda heldur er það lykilatriði aö menn hafi ánægju af hreyfing- unni. að við séum nálægt meðaltalinu samanborið við aðrar vestrænar þjóðir. Hjá sumum þeirra er ástand- ið betra og verra hjá öðrum. Það er engin spurning að alltaf má betur gera og auðvitað þarf að gera átak í þessum málum. Einfaldlega til þess að minna fólk á að hreyfa sig og ekki síður til þess að styðja fólk í því sem það er að gera. Það er þessi stuðningur sem er svo mikilvægur svo fólk finni samhljóm með öðram. Svona átak eins og það sem DV og Bylgjan standa fyrir er ekki einung- is til að ýta við þeim sem aldrei gera neitt og eru alltaf að hugsa um að fara að gera eitthvað heldur ekki síður til að hvetja þá sem hafa ver- ið að hreyfa sig til áframhaldandi hreyfingar." í skoöanakönnun Gallup kemur fram að um fjórðungi fleiri landsmenn stunda reglulega hreyfingu nú en fyrir fimm árum. Aldursdreifing „Það er nokkuð forvitnfiegt að velta fýrir sér hlutfalli þeirra sem hreyfa sig með tilliti til aldurshópa. Regluleg hreyfing dettur nokkuð niður i aldurshópnum 45-50 ára, en eykst siðan hlutfallslega í næsta ald- urshópi fyrir ofan. Á sama hátt er hlutfallið óvenjulágt í aldurshóp- unum 22-26 ára og hjá þeim sem era á milli 30 og 40 ára. Þessir aldurs- hópar eru „brauðstritsaldurinn" og mikil vinna kemur oft í veg fyrir að menn stundi reglulega hreyfingu. Það er hins vegar gríðarlega mikil- vægt fyrir alla að skipuleggja tíma sinn þannig að þeir geti hreyft sig á einhvern hátt. Fólk endumærist algerlega lík- amlega með því að stunda reglulega hreyfingu, almenn starfsgeta eykst og fólk verður jákvæðara. Ef hreyf- inguna vantar á fólk einfaldlega erf- iðara með að glíma við dagleg vandamál. Það skiptir alveg gríðar- lega miklu máli hvaða hreyfingu*' fólk velur sér, ekki íþróttarinnar vegna, heldur fyrst og fremst ánægj- unnar vegna. Það skiptir ekki öllu máli hvort menn fara út að skokka, hjóla, í gönguferð, í líkamsrækt eða aðrar greinar. Aðalatriðið er að menn hcifi gaman af þeirri hreyf- ingu sem þeir stunda." Grípa til afsakana „Ef menn hafa enga ánægju af hreyfingunni nota menn allar afsak- anir til þess að sleppa henni. Hvatn- ingin verður engin, til dæmis ef veð- ur er vont, þá er það notað sem af- sökun til að sleppa skokkinu, eða ef menn finna fyrir slappleika, þá er hægt aö nota það sem afsökun. Þannig er allt tínt til tfi að sleppa ef ánægjan er ekki fyrir hendi. Ef menn hins vegar hafa gaman af hreyfingunni láta þeir nánast ekk- ert koma í veg fyrir hana. Það er hægt að grípa til ýmissa ráða tfi að koma sér af stað. í fyrsta lagi að taka frá ákveðinn tíma til hreyfingarinnar og mikilvægt er að tengja hann vinnunni. Það er erfitt að koma heim úr vinnunni, segja . hæ við fjölskylduna og hlaupa strax ' út til að hreyfa sig. Því er hagstætt, ef menn hafa tækifæri til, aö stunda sína hreyfingu í hádeginu eða jafn- vel áður en vinnudagurinn hefst. Annars verður hver og einn að finna sér þann tíma sem honum hentar. Síðan er hægt að spila nokkuð á sálfræðina í sjálfum sér. Hafa alltaf íþróttatöskuna tilbúna við dyrnar þannig að hún bíði þegar farið er af stað til vinnu. Einnig gefst það vel að setja sér ákveðin markmið og verðlauna sjálfan sig á einhvem hátt þegar takmarkinu er náð, fara út að borða, kaupa sér geisladisk eða umbuna sér á annan hátt. Það er einnig gifurlega mikfivægt að ætla sér ekki um of og setja sér raunhæf og skynsamleg markmið. Sígandi lukka er alltaf best í þessu sambandi og sinna þarf stoðkerfi líkamans af kostgæfni með tilliti til ástandsins. Það verður að hafa það í huga að við erum að byggja okkur sjálf upp, það gerir það enginn fyrir okkur,“ sagði Þorsteinn. -ÍS Bylting á 5 árum Fjölmargir telja að Islendingar lifi almennt heilbrigðu lífemi og líi fi ástæða sé til þess að hvetja þá til að hreyfa sig meira. Þorsteinn G. Gunnarsson, annar framkvæmda- stjóra samtakanna íþróttir fyrir alla, segir að mikfi breyting hafi átt sér stað í íþróttaiðkun meðal þjóð- arinnar á síðastliðnum fimm árum. Gerð var skoðanakönnun á vegum Gallup á síðasta ári og spurt hvort menn stunduðu einhverja hreyf- ingu. í ljós kom að 51,8% lands- manna sögðust stunda reglulega lík- amsrækt af einhverju tagi (a.m.k. 2-3 i viku). „Það skal að vísu tekið fram að þetta hlutfall var mjög breytfiegt eft- ir aldursflokkum. Fyrir fimm árum sögðust um 73% landsmanna ekki stunda neina hreyfingu utan vinn- unnar í sams konar könnun og því ljóst að mikil bylting hefur átt sér stað,“ sagði Þorsteinn. „Ég hef því miður ekki sambæri- legar tölur erlendis frá, en tel liklegt Skokkhópur fyrir byrjendur - sérlega hagstætt fyrir þá sem hætta að reykja Hjá Námsflokkum Reykjavíkur er í undirbúningi að bjóða upp á skokknámskeið fyrir algera byrj- endur. Sérstaklega er stefnt að því aö það henti þeim sem eru ný- hættir að reykja eða hyggjast hætta á næstunni. Fluttur verður fyrirlestur á næstu dögum um þetta skokknámskeið. Upplýsing- ar gefur Pétur Ingi Frantzson í símum 551 4096 á skrifstofutíma eða símboða 846 1756. -ÍS KOMDU Af) ÆFA KAHATF KARATE ER ÍÞRÓTT FYRIR AULA - LfKA ÞlG Karateféiagid ÞÓKSHAMAK Brautartioiti 22 Sími 551 4003 Batna-, ungimga ByrjencfaTiámsVeid og fuiiordinsfioVVar eru að byrja núna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.