Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1998, Page 47
LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1998
afmæli
55 <
■ ■
Elvar Orn
Unnsteinsson
Elvar Örn Unnsteins-
son, Krókamýri 74, Garða-
bæ, er fertugur í dag.
Elvar er fæddur á Höfn
í Hornafirði en uppalinn í
Hafnarfirði og Garðabæ.
Hann varð stúdent frá VÍ
1978, lauk lögfræðiprófi
frá HÍ 1984 og öðlaðist
réttindi sem hæstaréttar-
lögmaður árið 1995.
Elvar starfaði sem full-
trúi á lögfræðistofu Hjalta
Steinþórssonar hrl.
1984-87 en hefur síðan þá
rekið lögfræöiskrifstofu
sína, Lögrúnu sf., ásamt Hjalta Stein-
þórssyni hrl. og Magnúsi Guðlaugs-
syni hdl.
Elvar situr nú í nefnd á vegum
samgönguráðuneytisins sem vinnur
að endurskoðun á ákvæðum siglinga-
laga um örorkubætur o.fl. handa sjó-
mönnum vegna slysa á sjó. Hann er
jafnframt stjórnarformaður hugbún-
aðarfyrirtækisins Navís.
Elvar sat í stjórn nemendafélags VÍ
1977-78, var fulltrúi Vöku, félags lýð-
ræðissinnaðra stúdenta, í stúdenta-
ráði HÍ og háskólaráði HÍ 1979-81, sat
tvívegis í kjörstjórn vegna rektors-
kjörs við HÍ og var fulltrúi Orators á
deildarfundum lagadeildar HÍ1983-84.
Elvar sat einnig í ritnefnd Viljans,
málgagns Verslunarskólanema,
1975-76 og var ritstjóri blaðsins
1977-78.
Fjölskylda
Elvar kvæntist 24.11. 1979 Þyri
Rafnsdóttur, f. 28.12. 1958,
leikskólakennara. Foreldr-
ar hennar eru Rafn Hafn-
fjörð, prentsmiðjustjóri og
ljósmyndari í Reykjavík,
og kona hans, Kristín
Björg Jóhannsdóttir skrif-
stofumaður.
Börn Elvars og Þyriar
eru: Unnsteinn Örn, f. 17.1.
1983; Edda María, f. 10.10.
1987; Hugrún, f. 24.7. 1994.
Systkini Elvars eru: Atli
B., f. 18.7. 1956, flugstjóri í
Hafnarfirði; Jóhann, f.
12.2. 1959, löggiltur endur-
skoðandi í Garðabæ; Steinunn, f. 17.8.
1961, sjúkraþjáifari i Garðabæ.
Foreldrar Elvars eru: Unnsteinn
Þorfinnur Jóhannsson, f. 3.9.1931, að-
stoðaryfirlögregluþjónn í Garðabæ, og
María Atladóttir, f. 25.10. 1935, hús-
freyja í Garðabæ.
Ætt
Foreldrar Unnsteins voru: Jóhann
Bjarnason, f. 26.4.1902, d. 5.2.1969, sjó-
maður á Reyðarfirði, og kona hans,
Guðný Einarsdóttir, f. 29.10. 1900, d.
10.6. 1978, húsfreyja.
Foreldrar Maríu voru: Atli Bald-
vinsson, f. 31.10. 1905, d. 17.8. 1980,
framkvæmdastjóri á Hveravöllum í
Reykjahreppi, og kona hans, Steinunn
Ólafsdóttir, f. 27.9. 1904, d. 25. 9. 1988,
húsfreyja, ættuð frá Hvitárvöllum í
Borgarfirði.
Faðir Steinunnar var Ólafur Dav-
íðsson, bóndi á Hvítárvöllum.
Elvar Örn Unnsteins-
son.
FRÍSTUNDANÁM í MIÐBÆJARSKÓLA OG MJÓDD
ÍSLENSKA (10 vikur)
ISLENSKA FYRIR ÚTLENDINGA. ISLENSKA FYRIR ÍSLENDINGA
Dag- og kvöldnámskeiö. Islensk málfræöi og stafsetning. Upprifjun frá grunni og framhaldsflokkur.
íslenska fyrir útlendinga 1.-4. flokkur.
(slenska - talflokkar fyrir útlendinga
ERLEND TUNGUMÁL
byrjenda- og framhaldsnámskeiö (8-10 vikur)
Danska
Norska
Sænska
Þýska
Enska
Franska
Hollenska
Rússneska
ítalska
Portúgalska
Spænska
Serbó-Króatíska
TALFLOKKAR (8-10 vikur)
Áherslajögö á tjáningu daglegs máls, lesnar skáldsögur, smásögur, blaöagreinar o.fl.
Enska. (talska. Rússneska. Spænska.
Arabíska
Japanska
Lettneska
VERKLEGAR GREINAR - MYNDLIST (8 -10 vikur)
Fatasaumur Bókband
Prjón Glerlist
Myndprjón Skrautskrift
Húsgagnaviögeröir. (Aö gera upp gömul húsgögn)
Teikning 1 og 2
Olíumálun
Vatnslitamálun
Matreiösla fyrir karlmenn.
ÝMIS NÁMSKEIÐ (10 vikur)
Listasaga. Fjallaö um tímabil listasögunnar.
Samskipti og sjálfsefli: Námskeiö fyrir konur
Ritlist. Að skrifa fyrir börn.
Danska ítalska
Norska Víetnamska
Sænska Þýska
Leiklist fyrir börn, 9-12 ára.
NÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN (10 vikur)
Tungumál: Fyrir 7 -10 ára gömul börn
Danska ítalska
Norska Víetnamska
Sænska Þýska
AÐSTOÐ VIÐ SKÓLAFÓLK (4 vikur)
Nemendur mæta með eigið námsefni og fá aöstoö eftir þörfum. Hámark 5 í hóp.
Stærðfræðiupprifjun og aðstoö fyrir nemendur í grunnskóla
Stæröfræðiaðstoö fyrir nemendur á framhaldsskólastigi.
INNRITUN STENDUR YFIR í Miöbæjarskóla, Fríkirkiuvegi 1.
Upplýsingar í sfma 551 2992. Netfang: nfr@ rvk. is http://www.rvk.is/mr
Námskeiösgjald miöast viö kennslustundafjölda og er frá kr. 6.000 -10.000 Námskeiösgjald greiðist áöur en kennsla hefst.
NÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN (10 vikur)
Tungumál: Fyrir 7 -10 ára gömul börn
til aö viöhalda kunnáttu þeirra í málunum.
Svo lengi lærir sem lifir
ER I FULLUM GANGI
11 vlldarstálar - Slólar Svcfusófar - Sófar
Aivcrísk rúi
Lampar - Púðar
Sæiujiirföt
ILöfdagaflar - ná tth.
Vertu vel hvílA/ur á nýju ári
* Rúmteppasett
•Rúr
• Sjónvarpssófar
• KommóÓur
• Vœrðarvoðir
• HandUlœði
• Dýnuhlífar
•Lök - Pífulök o.fl.
Mörkinni 4 • 108 Reykjavík
Sími: 533 3500 • Fax: 533 3510
AFSLATTUR
1 OPIÐ í DAG FRÁ 11-18 L Viö styðjum viö bakiö á þér ^ OPIÐ í DAG FRÁ 11-18 |