Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Síða 2
2
LAUGARDAGUR 14. MARS 1998
*★'
Eitt fyrirtæki um gasinnflutninginn:
Sextíu prósent verð-
hækkun á rúmu ári
Propangas hefur hækkað í verði
um 60% á því rúma ári sem liðið er
síðan olíufélögin stofnuðu með sér
nýtt félag, Gasfélagiö, til að annast
innflutning, geymslu og dreifingu á
gasi. Áður fluttu olíufélögin hvert
um sig inn gas og dreifðu til við-
skiptavina sinna. Gasnotkun hefur
vaxiö verulega hér á landi síðustu
ár. Bæði er það notaö í iönaði en
einnig í vaxandi mæli á heimilum
og í sumarbústööum.
„Við höfum heyrt af þessu og
olíufélögin mega um það vita að
mikillar óánægju gætir meðal við-
skiptavina þeirra. Menn tala um
hagræöingu við sameiningu og
samvinnu og ég spyr hvar hagræð-
ingin er þegar verðið hækkar en
ekki lækkar," sagði Jóhannes
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Neytendasamtakanna, viö DV.
Hann sagði olíufélögin starfa á fá-
keppnismarkaði og sameinast um
ákveðna þjónustu. „Ég tel að þetta
hljóti aö falla undir samkeppnislög
og tel eölilegt að samkeppnisyfir-
völd skoði það,“ sagöi Jóhannes enn
fremur.
Þórir Haraldsson, stjórnarform-
aður Gasfélagsins, segir meginá-
stæðu hækkunarinnar þá aö reglur
um innflutning, geymslu og dreif-
ingu á gasi séu breyttar og mun
strangari nú en áöur var og kalli á
annan og mun dýrari tækjabúnað
en áður var krafist. „Ég mótmæli
því að stofhun Gasfélagsins hafi
leitt til hækkunar á gasi. Ég vil
frekar segja svo að hefði Gasfélagið
ekki verið stofnað, hvað hefði þá
þurft að hækka verðiö á gasinu?"
sagöi Þórir. -SÁ
Samkeppnislög í fimm ár:
SíFkaupir
franskt fisk-
sölufyrirtæki
Sölusamband íslenskra fiskffam-
leiðenda hefur keypt öll hlutabréf í
hinum franska keppinaut sinum
Delpier og var kaupverðið 60 milljón-
ir króna.
Með kaupunum verður SÍF fjórfalt
stærra í sölu og framleiðslu á fersku
og kældu sjávarfangi I Frakklandi en
næststærsta fyrirtækið á þessu sviði
þar í landi. Á síöasta ári velti
franska fyrirtækið um funm mill-
jöröum króna. -JHÞ
Sigurbjörn Bárðarson, hinn landsfrægi hestamaður, sést hér gefa hestinum Frama AB mjólk til að flýta fyrir
meltingarstarfseminni og byggja upp flórustarfsemina í hestinum. Sigurbjörn segir að það að gefa hestunum
AB mjólk sé gott húsráð. DV-mynd GVA
Þýskur dýralæknir gefur ráð við hitasótt í hrossum:
Vill láta sprauta
hesta með bóluefni
- sem pantað var erlendis frá með hraði í gær
Dr. Karl Heinz Rettich, þýskur
dýralæknir sem er sérhæfður í
hrossasjúkdómum, telur að
sprauta eigi hesta með bóluefninu
Baypamun til að stemma stigu við
hitasótt í fjölmörgum hrossum á
suðvesturhomi landsins. Meö því
að sprauta þá meö þessu bóluefni
telur Rettich að byggja megi upp
ónæmiskerfi þeirra og styrkja mót-
stööuna gegn veirusýkingum.
Rettich er hér á landi í heim-
sókn hjá Sigurbirni Bárðarsyni
hestamanni. Rettich fundaði með
dýralæknum á Keldum á fimmtu-
dag vegna hitasóttarinnar. Rettich
segist ekki þekkja til sjúkdóms í
Þýskalandi sem lýsi sér með þess-
um hætti.
íslenskir dýralæknar tóku mjög
vel í tillögu Rettich og stefnt er aö
því að bólusetja veika hesta meö
bóluefninu. Það er ekki til á ís-
landi en í gær var brugðið á það
ráð að panta það meö hraði til
landsins.
-RR
Samkeppnisstofnun:
Segi
ekkert
að sinni
- segir Guðmundur
„Ég vil ekkert um þetta mál segja
að svo stöddu," sagði Guðmundur
Sigurösson, yfírmaður samkeppnis-
sviðs Samkeppnisstofnunar, í gær
þegar DV bar undir hann ummæli
forstjóra Eimskips um sto&unina
og verk hennar sem væru atvinnu-
lífmu til trafala og vandræða.
Þann 4. mars sl., á aðalfundi
Sambands ísl. tryggingafélaga,
sagöi Ólafur B. Thors, fráfarandi
fonnaöur, starfsaðferðir Samkeppn-
isstofhunar afar ógeðfelldar og
starfsmenn hennar ryddust inn á
vinnustaði, grömsuöu og hefðu á
brott með sér upplýsingar nánast af
handahófi og virtist sem ráöist væri
í þessar aðgerðir á grundveEi dylgja
og órökstuddra fúllyrðinga. DV
spuröi Guðmund um þessa gagn-
týni og gagnrýni á stofhunina á að-
alfundi Eimskips í fyrradag og
hvort hann teldi aö um skipulagðan
skæruhemað helstu viöskiptgjöfra
landsins á hendur stofiiuninni væri
að ræða. Hann kvaðst ekki viija
ræöa þaö aö sinni. -SÁ
Skilið milli stofnunar og ráðs
Andri Ámason hæstaréttarlög-
maður sem átt hefur sæti í áfrýj-
unarnefnd samkeppnismála telur
að skiija eigi á mOli Samkeppnis-
stofmmar og Samkeppnisráðs til
þess að jafnræði gagnvart ráðinu
sé með Samkeppnisstofnun og
þeim sem stofnunin rekur mál
gegn.
Þetta kom fram á málþingi Lög-
mannafélags íslands í gær þar sem
fjallað var um samkeppnislögin og
framkvæmd þeirra þau fimm ár
sem lögin hafa gilt. Ásgeir Einars-
son, yfirlögfræðingur Samkeppnis-
stofnunar, var þessu ekki sam-
mála. Hann sagði að líta bæri á
Frá málþingi lögmanna um samkeppnislögin.
DV-mynd ÞÖK
Samkeppnisstofnun og -ráð sem
eitt og hið sama. Starfsmenn stofn-
unarinnar væru í raun starfsmenn
ráðsins.
Andri Árnason hafði framsögu
um málsmeðferðarreglur og sjón-
armið um valdmörk samkeppnisyf-
irvalda en auk hans hafði Ásgeir
Einarsson, yfirlögfræðingur Sam-
keppnisstofnunar, framsögu um
málsmeðferðarreglur og sjónarmið
um valdmörk samkeppnisyfir-
valda og Jónas Fr. Jónsson, aðstoð-
arframkvæmdastjóri Verslunar-
ráðs, um gagnrýni á störf Sam-
keppnisyfirvalda. -SÁ
stuttar frétlir
Alnet kvartar
Fyrirtækið Alnet hefur kvartað í
2. sinn tO Samkeppnisstofhunnar
vegna tregðu Landssímans við að af-
henda gagnagrunn símaskrárinnar.
Alnet hyggst gefa út símaskrá á
tölvutæku formi og krefst nú að
Landssímanum veröi gert aö bíða
með að senda sams konar vöru fiá
sér á markað í fimm mánuði, eða
þann tima sem Alnet segir að Land-
síminn hafi tafið málið.
Þormóður Rammi hagnast
Hagnaður Þormóðs ramma - Sæ-
bergs nam 240 miiijónum króna á
síöasta ári. Þaö er 7% af veltu fyrir-
tækisins og jukust rekstrartekjur
fyrirtækisins um 84%, voru 3.544
milijónir á síðasta ári.
Hagnaður Veröbréfastofu
Rekstur Verð-
bréfastofunnar
hf. skOaði tæp-
lega 52 milijóna
hagnaði á árinu
1997 en það ár
var jafhframt
fyrsta heUa
rekstrarár fyrir-
tækisins. Eigið fé fyrirtækisins
jókst um 7,2 mUljónir og er nú 94
mUljónir. Framkvæmdasfjóri þess
er Jafet S. Ólafsson.
Netverk gerir stórsamning
Tölvufyrirtækiö Netverk hefur
gert samning við erlent fiarskipta-
fyrirtæki um aö Netverk selji hug-
búnað sem notaður er í fjarskipta-
þjónustu í gegnum gervihnetti.
Samningurinn færir Netverki 250
mUijónir fyrstu níu mánuði gUdis-
tima hans.
Vilja hærrí laun
Stjómarfundur í Verkamannafé-
laginu Hlíf, sem haldinn var á
fimmtudag, samþykkti ályktun þar
sem segir að brýnt sé aö verkafólk
fái sambærUegar launahækkanir og
aörir þjóðfélagshópar hafi fengið að
undanfómu. Stjómin segir mUcU-
vægt að næstu samningar verka-
fólks taki betur miö af launum ann-
arra hópa en þeir síðustu gerðu.
Halldór í Serbíu
HaUdór Ás-
grímsson utan-
rikisráðherra
ræddi á miðviku-
dag við forsætis-
ráöherra Bosníu-
Serbía um
Dayton-friöar-
samninginn,
framsal stríösglæpamanna og verk-
efni sem fslendingar munu hugsan-
lega styðja í Bosníu. Þar á meðal var
rætt um að íslendingar aðstoöuðu
við nýtingu á jaröhita. Ríkisútvarp-
ið greindi frá þessu.
Hlýr sjór
Samkvæmt mælingum sem gerðar
voru í nýafstaðinni ferð rannsóknar-
skipsins Bjama Sæmundssonar er sjór
fyrir Suður- og Vesturlandi 6-8 gráða
heitur sem er í góðu meðailagl Einnig
var sjór heitur út af Vestfjöróum og úti
fyrir Norðurlandi og Austurlandi.
Svend- Aage Malmberg var leiöangurs-
stjóri í ferðinni.
Kópavogur styrkir Völu
Bæjarráö
Kópavogs sam-
þykkti í gær að
styrkja Völu
Flosadóttur
stangar-
stökkvara um
250 þúsund krón-
ur fyrir afrek
hennar í stangarstökki.
greindi frá þessu.
Bylgjan
Ásta vill umönnarbætur
Ásta B. Þorsteinsdóttir, þingkona
jafnaðarmanna, hefur lagt fram
frumvarp á Alþingi þar sem kveðið
er á um að heimUt veröi að greiöa
umönnunarbætur ásamt greiðslum
í fæðingarorlofi.
Barnið var lögreglumaöur
íslenskur bamaníöingur, sem
taldi sig vera ræöa við barn á Net-
inu, var í raun að tala við banda-
riskan alrikislögreglumann. Frá
þessu var greint á blaöamannafundi
Alrfkislögreglunnar nýlega en ekki
var haft samband við íslensk lög-
regluyfirvöld vegna málsins. Ríkis-
útvarpið sagði frá. -JHÞ