Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Blaðsíða 12
12
LAUGARDAGUR 14. MARS 1998 !D"V
•étt/r
Prófkjör Alþýöuflokks í Hafnarfirði:
Tryggvi og Jóna Dóra
setja stefnuna hátt
- Jafnaðarmannafélagiö snlðgengur prófkjörið
Töluverðra sviptinga er að
vænta í opnu prófkjöri sem Al-
þýðuflokkurinn í Hafnarfirði
heldur nú um helgina. Tryggvi
Harðarson bæjarfulltrúi, sem síð-
asta sumar lýsti yfir vantrausti á
samstarf flokksins við Jóhann
Bergþórsson í klofningsbroti
Sjálfstæðisflokks, hyggst keppa
um fyrsta sætið við Ingvar Vikt-
orsson bæjarstjóra. Jóna Dóra
Karlsdóttir, eiginkona Guömund-
ar Árna Stefánssonar alþingis-
manns, sem nú býður sig fram,
segist stefna á 2.-3. sæti í próf-
kjörinu.
„Það kæmi mér ekki á óvart þó
að miklar breytingar yrðu á fram-
Tryggvi Harðarson.
boðslistanum. Mér heyrist á fólki
að það vilji sjá ný andlit. Það
verður mikið af ungu fólki í fram-
boði og mér heyrist það fá mjög
góðan hljómgrunn,11 sagði Jóna
Dóra í samtali viö DV í gær. „Þá
vilja menn gjarnan fá fleiri en
eina konu inn á listann og nái
tvær konur inn þýðir það tvö ný
andlit því Valgerður Guðmunds-
dóttir ætlar ekki fram að þessu
sinni.“
Því er fjarri að sátt sé um próf-
kjör Alþýðuflokksins í Hafnar-
flrði. Jafnaðarmannafélag Hafnar-
fjarðar, eitt af fjórum félögum
Hafnarfjarðarkrata, hefur lýst því
yfir að félagar þess muni snið-
Jóna Dóra Karlsdóttir.
ganga prófkjörið en þess í stað
taka þátt í sameiginlegu prófkjöri
með öðru félagshyggjufólki.
„Við munum halda okkur að
þeim aðila sem býður fram sam-
eiginlegan lista jafnaðarmanna.
Þegar hefur um það bil helmingur
félagsmanna í Alþýðuflokknum í
Hafnarfirði lýst yfir áhuga á að
bjóða fram slíkan lista, auk fjölda
fólks í Kvennalista, Alþýðubanda-
lagi og hjá óháðum sem unnið
hafa að verkalýðsmálum. Á næstu
dögum verður farið í að stofna
formlega félag um þetta framboð,"
sagði Sverrir Ólafsson, varaform-
aður Jafnaðarmannafélagsins.
-Sól.
Ný sterkstraumstækni:
Háspennurafalar
sem spara
spennistöðvar
Sænsk-svissneska stórfyrirtækið
ABB hefur í samvinnu við sænska
orkufyrirtækið Vattenfall þróað nýja
gerð af rafólum fyrir raforkuver.
Rafallinn er frábrugðinn þeim rafól-
um sem nú eru í notkun í heiminum
og byggja á 100 ára gamalli tækni, því
að hann framleiðir háspennu beint
inn á flutningsnetið í stað þess að
framleiða lágspennu sem síðan er
spennt upp og svo send út á flutnings-
línur.
Samkvæmt frétt sem birtist á Net-
inu nýlega segir Göran Lindahl, tals-
maður ABB í Svíþjóð, að fyrsti rafall-
inn af þessari nýju gerð verði settur
upp í vatnsaflsvirkjun í Porjus í Sví-
þjóð. Talsmaðurinn segir að um sé að
ræða byltingu á sviði sterkstraums-
tækni. Hún muni spara verulega ijár-
muni þegar ekki þurfl lengur að setja
upp rándýrar spennistöðvar til að
breyta lágspennunni úr rafólunum í
háspennu svo hægt sé að senda hana
eftir flutningslínum langar vegalengd-
ir með viðunandi hagkvæmni og lág-
marks orkutapi.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýsinga-
fulltrúi Landsvirkjunar, sagði í sam-
tali við DV að stöðugt væri verið að
leita leiða til að auka hagkvæmni,
bæði í framleiðslu raforkunnar og
dreifíkerfi. Þannig væri búið aö
skipta um túrbínuhjólin í nokkrum af
virkjunum Landsvirkjunar og sem
dæmi þá hefði orkuframleiðsla Búr-
fellsvirkjunar aukist verulega, eða
sem næmi allri orkuþörf fyrir stækk-
un ísals í Straumsvík.
Þorsteinn sagði aö þar sem spennar
væru við allar virkjanir sem nú eru í
notkun lægi beinna við að setja hina
nýju háspennurafala í nýjar virkjanir
reynist þeir uppfylla væntingar. -SÁ
Á fimmtudaginn var kosið í stjórn Stúdentaráös Háskóla íslands. Ásdís Magnúsdóttir laganemi var kjörin formaöur
og Katrín Júlíusdóttir mannfræöinemi framkvæmdastjóri. Þetta er í fyrsta skipti sem tvær konur skipa þessi emb-
ætti á sama tíma. Á myndinni sjáum við Ásdisi og Katrínu taka við lyklunum aö skrifstofu SHÍ úr höndum Haralds
Guöna Eiössonar og Döllu Ólafsdóttur. DV-mynd ÞÖK
Alþjóðadag-
ur neyt-
enda
Næstkomandi sunnudagur er
alþjóðadagur neytenda.
í fréttatilkynningu frá Neyt-
endasamtökunum kemur fram
að dagurinn sé haldinn hátíðleg-
ur víða um heim til að minnast
yfirlýsingar Johns F. Kennedys,
fyrrum Bandaríkjaforseta, frá
15. mars 1962 um grundvallar-
réttindi neytenda. Yfirlýsing
Kennedys leiddi til alþjóðlegrar
viöurkenningar ríkisstjórna og
Sameinuðu þjóðanna á grund-
vaflarréttindum neytenda. -glm
ísafjörður:
Löggan dreifir
punktum
Lögreglan á ísafirði hefur haft
nóg að gera við að dreifa punktum á
ólöghlýðna ökumenn síðustu tvo
daga.
Þrír ökumenn hafa verið sviptir
ökuskírteininu fyrir hraðakstur.
Voru þeir allir vel á öðru hundrað-
inu. Þá fengu margir ökumenn
punkta fyrir hraðakstur og ýmis
fleiri umferðarlagabrot í gær. Svo
virðist sem „vorfiðringur“ sé kom-
inn í ökumenn fyrir vestan. -RR
Verðbólgan á íslandi:
Bætt afkoma ríkissjóðs
vopnið sem dugar
- segir forstjóri Þjóðhagsstofnunar
Verðbólgan það sem af er þessu
ári er um 4,5% á ársgrundvelli.
Undanfarna 12 mánuði hefur hún
verið 2,2% sem er það næsthæsta í
Evrópu. Þórður Friðjónsson, for-
stjóri Þjóðhagsstofnunar, segir í
samtali við DV að við þær aðstæður
sem nú eru í efnahagslífinu sé það
hlutverk stjómvalda að hamla á
móti því að verðbólga nái að grafa
um sig. Til þess hafi þau eina ör-
ugga leið. Hún sé sú að bæta af-
komu ríkissjóðs þannig að hann sé
rekinn með tekjuafgangi. Þannig
verði komið böndum á þenslu og
verðbólgu í kjölfarið.
Forstjóri Þjóðhagsstofnunar segir
að ekki sé sanngjarnt að benda sér-
staklega á heimilin í landinu þegar
rætt sé um viðskiptahallann við út-
lönd. Heimilin bregðist einfaldlega
við efnahagsástandi á hverjum tíma
eins og þau telja sér hagkvæmast.
Stjómvöldum beri einfaldlega að
hafa eigin fjármál i góðu horfi. Með
þeim hætti sé hægt að stuðla að
jafnvægi í þjóðarbúskapnum.
Þórður segir að Þjóðhagsstofnun
hafi gert ráð fyrir að verðbólga sé
einu til tveimur prósentum meiri
hér á landi tímabundið vegna mik-
illa launahækkana og almennra
kostnaðarhækkana en hún sé vissu-
lega í efri mörkunum. En meðan
henni er haldið tryggilega innan við
3% markið þá sé ástandið í sjálfu
sér ekki alvarlegt þó hættumerkið
sé augljóst. Helsta sérkenni efna-
hagsástandsins undanfarið segir
Þórður vera hversu rykkjótt það er,
ekki síst síðustu vikurnar. Verð-
bólga hafi verið mjög mikil í janúar,
lækkað í febrúar en aftur tekið kipp
í mars. „Það er vert að hafa í huga
að við eram komnir á það stig hag-
sveiflunnar að framleiðslugeta þjóð-
arbúsins er fullnýtt og við þær að-
stæður er mikilvægt að halda aftur
af þjóðarútgjöldum eins og hægt er.
Þau hafa verið að aukast um 6% á
Þóröur Friöjónsson, forstjóri Þjóö-
hagsstofnunar.
ári og einkaneyslan er í 5-6% vaxt-
artakti. Þetta er meiri vöxtur en er
samrýmanlegur stöðugleika í verð-
lagi þegar til lengri tíma er litið.
Flestir eru þeirrar skoðunar að eðli-
legur jafnvægisvöxtur í þjóðarbú-
inu sé í kring um 3%.“
Ástæða fyrir því að ekkert hefur í
sjálfu sér farið úrskeiðis þótt vöxt-
urinn hafi verið þetta mikill sl. þrjú
ár segir Þórður þá að framan á hag-
sveiflunni er framleiðslugetan van-
nýtt og það er atvinnuleysi. Síðan
þegar líður á vaxtarskeiðið eykst
nýting framleiðsluþátta sem birtist
m.a. í því að atvinnuleysi minnkar.
Hanna segir þvi nauðsynlegt að
freista þess að draga úr uppsveifl-
unni en jafnframt að framlengja
hana og ná þannig mjúkri lendingu
við 3% hagvaxtarmarkið og fram-
lengja jafnframt hagvaxtarskeiðið
en Þjóðhagsstofnun vænti þess að
það takist á árunum 1999-2002.
-SÁ