Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Síða 33
JÉJ"V LAUGARDAGUR 14. MARS 1998
OBðtal 33
LAUGAVEGI 174, SÍMI 569 5660
r
Eg sat á öðrum bekk 1 söngsal Söng-
skólans í Reykjavík. Raddir söngvar-
anna gældu við skynjunina og gáfu
vitundinni heilnudd. Það kannast allir við
háa staccatotónana í aríu næturdrottning-
arinnar í Töfraflautu Mozarts en þeir eru
eflaust margir sem ekki vita úr hvaða
verki þeir eru komnir. Tónunum verður
ekki lýst með orðum.
Næturdrottningin á leikskól-
anum
Margar persónur óperunnar eru mjög
kómískar en það er ein sem sker sig algjör-
lega úr: Næturdrottningin. Geðveikin í
augum hennar, fegurðin, raddböndin þan-
in, tónarnir á mörkum hins veraldlega.
Hún skipar dóttur sinni að myrða. Það er
ekki laust við að það setji að manni hroll,
sambland af ánægju og hryllingi.
Ég hitti hana skömmu síðar, nætur-
drottninguna. Geðveikin var horfin úr
augum hennar en fegurðin lifði: Hrafnhild-
ur Björnsdóttir. Hún vinnur með söng-
náminu á leikskóla í Garðabæ. Syngur fyr-
ir börnin. Syngur öðruvísi segir hún, háu
tónamir myndu hræða börnin. Óperan er
hennar líf og hennar yndi. Hún er i söng-
námi, syngur í Ástardrykknum í íslensku
ópemnni, syngur í Óperukórnum. Draum-
urinn er að lifa á söngnum.
Hvernig er næturdrottningin? „Þetta er
drottning næturinnar. Hún er ofsalega
köld og grimm og frekar geðveik. Hún
skipar dóttur sinni að drepa Sarastró
æðstaprest," segir Hrafnhildur og bætir
við „Maður náttúrlega gerir það ekki.
Maður biður ekki dóttur sína um að drepa
einhvern.“ Hún segist ekki hitta sjálfa sig
Hrafnhildur Björnsdóttir söngkona:
Hrafnhildur Björnsdóttir syngur hlutverk næturdrottningarinnar í
uppfærslu Söngskólans á Töfraflautu Mozarts.
DV-mynd E.ÓI.
verkið sé ekki mjög stórt en er
samt mjög ánægð. „Það er alveg
sama hversu lítil hlutverk eru,
þau gefa manni alltaf eitthvað. Og
einhvers staðar verður maður að
byrja.“ Draumahlutverk Hrafn-
hildar er Violetta í La Traviata.
„Það verður aö bíða aðeins. Maður
verður að vera dramatískari og að-
eins þroskaðri til að takast á við
það.“
„Ég er í mjög góðum
höndum"
Þótt meginástríða Hrafnhildar
sé óperan þá hefur hún líka sung-
ið söngleikjatónlist og popptónlist
en hún var bakraddasöngkona í
hljómsveitinni 1000 andlit. „Ég
uppgötvaði strax að þetta var ekki
rétta tónlistin fyrir mig. Það var
gaman að prófa þetta. Maður verð-
ur að prófa allt. Ég er alæta á tón-
list og maður verður að geta sung-
ið flestallt,“ segir hún en bætir svo
við hlæjandi, „ég segi nú kannski
ekki þungarokk". Hún segir að
núna sé gott tækifæri til að kynn-
ast óperunni því að verið sé að
sýna tvö mjög skemmtileg og að-
gengileg verk: Ástardrykkinn og
Töfraflautuna.
Útlönd heilla Hrafnhildi ekki
sem stendur og hún stefnir ekki
utan til náms strax. Hún var í
listaháskóla í Berlín i þrjá mánuði
en fannst það kerfi ekki henta sér.
„Ég er í mjög góðum höndum,"
segir Hrafnhildur. Kennarinn
hennar er Ólöf Kolbrún Harð-
ardóttir og hún vonast til að geta
verið áfram hjá henni.
-sm
fyrir í næturdrottningunni. „En
samt, þegar maður er söngvari og
leikari verður maður að eiga þetta
allt til. Svo verður maður að ýkja
dálítið.“
Tónelsk fjölskylda
Hrafnhildur er 26 ára gömul og
er fædd í Reykjavík en uppalin í
Garðabæ. Hún féll fyrir söngnum í
barnakór í Garðabæ. Foreldrar
hennar eru mjög tónelskir og það
hefur sannarlega haft áhrif því að
systumar fjórar syngja allar og
dansa. Ein systir Hrafnhildar er
Selma Björnsdóttir, söngvari,
dansari, leikari. „Pabbi spilaði
aUtaf á gítar fyrir okkur og tók
upp á tæki það sem við sungum og
okkur þótti það voðalega gaman.
Þau svona ýttu okkur út í þetta án
þess þó að þvinga okkur til þess.
Ég er þeim ofsalega þakklát."
Hrafnhildur byrjaði að syngja í
Óperunni þegar hún var 9 ára og
hefur verið með annan fótinn þar
síðan. Hún hefur sungið í fjölda
uppfærslna, til dæmis í Valdi ör-
laganna í Þjóðleikhúsinu. Henni
þótti of mikið að vera í söngskóla,
framhaldsskóla og jafnvel að
vinna með náminu að auki. Hún
ákvað að helga sig söngnum og sér
ekki eftir því. Hún sagði að hlut-
verk næturdrottningarinnar væri
draumahlutverk. „Það er æðislegt
að fá svona tækifæri," segir hún.
Hún syngur líka í Ástardrykknum
eftir Donizetti. Hún segir að hlut-
Úr uppfærslu Söngskólans á Töfraflautu Mozarts.
DV-mynd Pjetur
Drottning
næturinnar
RÚNA C2865 ÆJÓSM.: ARIMAGG