Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Síða 36
LAUGARDAGUR 14. MARS 1998 JjV
. 48
*imm
Ráðleggingar úrvalshlaupara
Y
f
Þeir eru ekki margir hlaupóirarn-
ir sem unnið hafa Londonmaraþon
tvisvar sinnum, en það hefur þó
Portúgalinn Antonio Pinto afrekað.
í síðara skiptið sem hann vann sig-
ur i Londonmaraþoni hljóp hann á
mettíma, 2:07:55 (heimsmetið í
maraþoni er 2:06:50, sett árið 1988).
Antonio hefur einnig unnið sigur í
öðru þekktu borgarhlaupi, Berlínar-
maraþoni, en þekktastur er hann þó
fyrir að hafa hlaupið fjögur mara-
þonhlaup í röð, öll undir tímanum 2
klukkustundir og 9 mínútur. Þessi
fjögur hlaup afrekaði Pinto á tímun-
um 2:08:31, 2:08:48, 2:08:57 og 2:08:38.
Pinto stefnir ótrauður að því að
vinna sigur í þriðja sinn í næsta
London maraþonhlaupi.
Þessi afrek gera það að verkum
að Antonio Pinto er meðal frækn-
ustu maraþonhlaupara veraldar.
Pinto ætti því að vera töluverður
sérfræðingur um langhlaup og taka
mætti mark á ráðleggingum hans. í
nýjasta hefti breska hlaupatímarits-
ins „Today’s Runner" (apríl 1998)
gefur Pinto lesendum blaðsins 7 góð
ráð til þess að ná góðum árangri í
langhlaupum.
Jarðbundinn hlaupari
Margir af þeim langhlaupurum
sem standa hvað fremst í dag eru
allt árið í æfingabúðum og gera fátt
annað en hlaupa og stunda aðrar
æfmgar til að ná árangri. En þannig
er Pinto ekki, lif hans mætti segja
að væri í raun og veru mjög eðlilegt.
Antonio Pinto hefur alla sína ævi
búið í litlum bæ við vesturströnd
Portúgals, rétt hjá borginni Porto í
norðurhluta landsins. Foreldrar
hans eru vínframleiðendur, en í
frekar smáum stil. Þegar Pinto er
ekkí að hlaupa aðstoðar hann við
vínframleiðsluna eða reynir að
hvíla sig undir átökin á næstu æf-
ingu. Antonio Pinto er því ósköp
venjulegur maður og á fátt skylt
með mörgum af atvinnulanghlaup-
urum nútímans. Skoðum hér ráð-
leggingar Antonios Pintos.
Takið tillit
til aðstæðna
Antonio bendir á að bestu tímarn-
ir í maraþonhlaupum náist yfirleitt
þegar lofthitinn er á milli 15 og 17
gráður. Því er ekki raunhæft að
ætla sér góðan hlaupatima ef hitinn
er miklu hærri - eða lægri - en
15-17 gráður. Pinto segir að London
bjóði oft upp á hagstætt hitastig og
því sé líklegt að afrek verði unnin í
því hlaupi. Hins vegar sé oft vinda-
samt í London og því sé jafnvel
betra að hlaupa í Berlín, en þar er
hægviðri mjög algengt. Pinto telur
líklegt að þegar heimsmetið í mara-
þonhlaupi falli verði það í Berlín.
Vinnið að sálarstyrk
Hverjum hlaupara er mjög mikil-
vægt að vinna að sálarstyrk sínum.
Þeir sem fylgdust með Londonmcira-
þoni á síðasta ári sáu að Pinto virt-
ist ekki líklegur til afreka þegar 7
km var ólokið af hlaupinu. Þá var
hann í fimmta sæti og virkaði
þreytulegur. En Pinto neitaði að gef-
ast upp, honum tókst að komast
fram úr fjórða manni með miklu
harðfylgi og það hafði svo jákvæð
áhrif á sálina í honum að hann fékk
aukaorku til þess að draga hina
uppi. Hann skaust fram úr fremsta
manni á lokasprettinum og var 2
sekúndum á undan í markið. Pinto
þakkar það fyrst og fremst miklum
sálarstyrk. „Stundum er það sem
Ráðleggingar hins þekkta portúgalska maraþonhlaupara, Antonios Pintos, koma mörgum hlaupurum eflaust að
góðum notum.
sonarins væru algjör tímasóun, en í
dag er faðirinn hjálparhella hans og
styrktaraðili. fbúarnir í heimabæ
Antonios töldu að hann væri hálf-
ruglaður að vera alltaf að hlaupa
eins og vitleysingur. Antonio lét
gagnrýnisraddir og háðsglósur ann-
arra aldrei hafa áhrif á sig. Nú eru
sömu aðilar og gerðu grín að Anton-
io fullir aðdáunar á afrekum hans.
Flestir langhlauparar kannast við
neikvætt álit annarra sem ekki hafa
kynnst þessari skemmtilegu íþrótt.
Langhlauparar eru oft taldir vera
furðufuglar. Hlaupin eru fyrst og
fremst fyrir hlauparann sjálfan og
enginn ætti að láta misvitra ein-
staklinga draga úr sér með
kjarkinn.
Borða - sofa - borða
Hverjum langhlaupara er nauð-
synlegt að tvinna þessa þætti sam-
an. Hvað gerir Antonio Pinto þegar
hann er ekki að hlaupa? Jú, hann
einbeitir sér að hvíldinni og neytir
hollrar fæðu á vissum tímum. Það
er auðvelt að gleyma því hve góð
hvíld er mikilvægur þáttur í æf-
ingaáætlun langhlaupara.
Bestu tímarnir í maraþonhlaupum nást yfirleitt þegar lofthitinn er 15-17
gráður á Celsíus.
skapar sigur í maraþonhlaupi ekki
fætur hlauparanna heldur vilja-
styrkur þeirra,“ segir Pinto.
Byggið upp rútínu
Antonio Pinto segir að það sé eng-
in ástæða til þess að ferðast veröld-
ina á enda til að ná árangri i lang-
hlaupum. Hann hefur oftast nær æft
í heimaþorpi sínu og nágrenni frá
því hann var stráklingur. Að vísu
þykir Pinto erfitt að æfa í miklum
sumarhitum, en hann hefur þó
aldrei skipt um umhverfi til æfinga.
Árangursrík langhlaup byggjast
miklu fremur á því að æfa samfellt
í ótruflaðri rútínu, frekar en að
vera sífellt að eltast við fullkomnar
aðstæður.
Lærið af öðrum
NETSLÓÐ MARAÞONHLAUPARA:
http://rvik.ismennt.is/@gisasg/.
Þrátt fyrir að Pinto sé án efa
fremsti langhlaupari Portúgala nú
hvarflar ekki að honum að setja sig
á háan hest og þykjast yfir aðra haf-
inn. Pinto æfir mestallt árið á
heimaslóðum en fáeinar vikur á ári
æfir hann með „landsliði" Portú-
gala í langhlaupum. Tilgangurinn
er fyrst og fremst að læra af öðrum
hlaupurum, auk þess sem það gefur
ákveðna tilbreytingu. „Sérhver
hlaupari hefur sinn sérstaka stíl
sem frábrugðinn er annarra,“ segir
Pinto. Hann segist hafa lært mikið á
því að fylgjast með öðrum langh-
laupurum.
Leiðið gagnrýni
hjá ykkur
Ef Antonio Pinto hefði einhvern
tíma látið úrtölur föður sins hafa
áhrif á sig hefði hann aldrei orðið
langhlaupari í fremstu röð. Faðir
hans taldi i fýrstu að hlaupaæfingar
Víndrykkja!?
Síðasta ráðlegging Antonios Pin-
tos er víndrykkja, en í hófi þó og
alltaf létt vín. Hætt er við að sú ráð-
legging sé ekki vænleg fyrir alla.
Antonio Pinto drekkur hins vegar
töluvert af léttu víni með mat og
áætlar að meðalneysla sín á léttum
vínum sé 5 flöskur á viku! „Léttvín-
ið er fullt af vítamínum og hefur
góð áhrif á heilsuna og árangur-
inn,“ segir Pinto. Gleymum því ekki
að fjölskylda Pintos er vínframleið-
endur. Hugsunin á bak við þessa
ráðleggingu Pintos er sú að lang-
hlaupurum er ekki nauðsynlegt að
láta frá sér lystisemdir lífsins þó að
þeir séu að keppa í fremstu röð.
Pinto viðurkennir að hann láti ekki
eftir sér að drekka létt vín þegar
nær dregur mikilvægum mótum.
Aðalatriðið er hins vegar að engin
ástæða er til þess að gerbylta lífs-
stílnum til þess að ná árangri i lang-
hlaupum.
Framundan...
21. mars:
Flóahlaup UMF
Samhygoar
Hlaupið hefst klukkan 14.00
í við Félagslund, Gaulverjabæj-
arhreppi. Vegalengdir eru 3
km, 5 km og 10 km með tíma-
I töku. Flokkaskipting eftir kynj-
í um. Verðlaun fyrir þrjá fyrstu í
j hverjum flokki. Upplýsingar
j gefur Markús ívarsson í síma
! 486 3318.
28. mars:
Marsmaraþon
Hlaupið hefst klukkan 11.00 á
Seltjarnarnesi. Upplýsingar um
hlaupið gefur Pétur Frantzson í
| síma 551 4096.
23. apríl:
Víðavangshlaup ÍR
( Hlaupið hefst klukkan 13.00
j við Ráðhús Reykjavíkur. Vega-
j lengd er 5 km með timatöku.
j Flokkaskipting eftir kynjum.
; Keppnisflokkar í sveitakeppni
j eru íþróttafelög, skokkklúbbar
S og opinn flokkur. Allir sem
Ijúka keppni fá verðlaunapen-
j ing. Verðlaun fyrir fyrsta sæti í
® hverjum aldursflokki. Boðið
verður upp á kaffihlaðborð eftir
hlaup. Skráning í Ráðhúsinu
frá klukkan 11.00. Upplýsingar
| gefa Kjartan Ámason í síma
587 2361, Hafsteinn Óskarsson í
j s. 557 2373 og Gunnar Páll
Jóakimsson í s. 565 6228.
23. apríl:
Víðavangshlaup
Hafnarfjarðar
Hlaupið hefst á Víðistaðatúni
í Hafnarflrði. Vegalengdir em 1
Ikm, 1,4 km og 2 km með tíma-
töku og flokkaskiptingu bæði
kyn. Sigurvegari í hverjum
flokki fær farandbikar. Upplýs-
ingar gefur Sigurður Haralds-
son í síma 565 1114.
23. apríl:
Víðavangshlaup Vöku
Upplýsingar um hlaupið gef-
ur Áðalsteinn Sveinsson i síma
j 486 3304.
26. apríl:
ísfuglshlaup UMFA
j Hlaupið hefst við íþróttahús-
j ið að Varmá, Mosfellsbæ.
Skráning og búningsaðstaða
Ivið sundlaug Varmár frá kl.
9.30. Vegalengdir 3 km án tima-
töku (hefst klukkan 13.00) og 8
km með tímatöku og sveita-
keppni (hefst kl. 12.45). Sveita-
keppni: opinn flokkur, 3 eða 5 í
hverri sveit. Allir sem ljúka
keppni fá verölaunapening. Út-
; dráttarverðlaun. Upplýsingar
- gefur Kristín Egilsdóttir í síma
566 7261.
Umsjón
ísak Ötn Sigurðsson
Áskrifendur
aukaafslátt af
smáauglýsingum
DV
Smáauglýsingar
550 5000