Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1998, Síða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 1998
Neytendur
Þjófavarnarkerfi á heimilum:
Verjumst innbrotum
Nú nálgast páskar og þá ætla
sjálfsagt margir að leggja land und-
ir fót og fara í fri.
En alls kyns hátiðum þar sem
fólk bregður sér af bæ fylgir sú
hætta að brotist verði inn í híbýli
fólks.
Neytendasíða DV fór á stúfana og
kannaði þjófavarnarkerfi fyrir
heimili.
Eftir því sem næst verður komist
bjóða þrjú fyrirtæki á höfuðborgar-
svæðinu vaktaða gæslu fyrir heim-
ili. Þau eru Securitas, Vari og Ör-
yggismiðstöð Islands.
Þessi fyrirtæki selja eða leigja
þjófavamarkerfí til heimila. Kerfin
eru tengd við stjómstöðvar fyrir-
tækjanna sem bregðast við ef þau
fara í gang.
Talsvert úrval
Það eru hins vegar fleiri fyrir-
tæki en þessi þrjú áðurnefndu sem
selja þjófavamarkerfi. Fyrirtækin
Einar Farestveit og co., Ólafur
Gíslason og co. og Skaftfell eru öll
fyrir 4.056 krónur á mánuði og er
það sett upp viðkomandi að kostn-
aðarlausu. Allt viöhald og útköll er
innifalið í leigugjaldinu.
Við kerfið er hægt að bæta skynj-
urum eftir þörfum hvers og eins.
Hægt er að setja hluta kerfisins í
varðstöðu þegar gengið er til náða.
Einnig er hægt að kaupa þetta kerfi
og kostar það uppkomið, miðað við
þrjá skynjara, 90-100 þúsund krón-
ur. Securitas býður einnig skamm-
tímaleigukerfi. Uppsetning á slíku
kerfi og leiga fyrstu tvær vikurnar
kostar 9.800 krónur en 1.100 krónur
bætast við fyrir hverja viðbótar-
viku.
Alls kyns skynjarar
Öryggismiðstöð Islands býður
þrjár grunngerðir af þjófavarnar-
kerfum fyrir heimili.
í fyrsta lagi má nefna svokallaða
einfalda stjórnstöð með hreyfi-,
vatns-, reykskynjara og sírenu. Sá
búnaður er ekki tengdur við Ör-
yggismiðstöð íslands. Það kerfi
Öryggismiðstöðin býður fólki
einnig að leigja kerfi sem tengd eru
miðstöðinni. Þau kerfi innihalda
þrjá skynjara og stjórnborð. Leiga
fyrir slíkt kerfi er 4070 krónur á
mánuði. Uppsetning kerfanna er
innifalin.
Þráðlaust eður ei
Öryggisfyrirtækið Vari býður
viðskipavinum sínum tvær grunn-
gerðir af þjófavamarkerfum.
Annars vegar er um að ræða
þráðlaust kerfi með hreyfi- og reyk-
skynjurum, hurðarrofa og þráð-
lausri fjarstýringu með neyðar-
hnappi. Slíkur búnaður kostar um
70.000 krónur með uppsetningu.
Hins vegar býður Vari upp á kerfi
með hreyfi- og reykskynjara, hurð-
arrofa og talnaborð. Það kerfi er
ekki þráðlaust og kostar það um
65-75 þúsund með uppsetningu.
Bæði kerfin em tengd við stjóm-
stöð Vara. Húsráðendur geta síðan
látið setja upp viðbótar hreyfi-,
vatns- og reyksskynjara. Algengt er
14.900 og inniheldur m.a.
hreyfiskynjara, segulhurðar-
skynjara, innisírenu ogneyðar-
hnapp. Ódýrara kerfið kostar 6400
krónur og samanstendur af
hreyfiskynjara, segulhurðaskynjara
og innisírenu. Einar Farestveit býð-
ur einnig upp á tvenns konar þráð-
laus kerfi á 22.100 krónur og 35.900
krónur. Þau kerfi eru talsvert full-
komnari en kapalkerfin.
Uppsetning kerfanna er ekki inni-
falin í verðinu hjá Einari Farestveit
og co.
Einföld kerfi
Hjá Ólafi Gislasyni og co. eru til
sölu þrjár gerðir af þjófavamarkerf-
um. Kerfin eru öll það einfóld að
gerð að fólk á sjálft að geta sett þau
upp. Ódýrasta kerfið kostar 3940
krónur og er þar um að ræða ein-
falda gerð með tökkum og sírenum.
Dýrasta kerfið kostar 6953 krónur
og þvi fylgja þrír hurðarsegulrofar,
stjómstöð, hreyfiskynjari og sírena.
Hjá fyrirtækinu Skaftfell er boðið
Mikiö úrval er af alls kyns þjófavarnarkerfum á markaönum og því er rétt aö kanna alla möguleika áöur en slíkt kerfi er keypt eöa leigt.
með þjófavamarkerfi. Fyrirtækið
Glói býður einnig þjófavöm fyrir
heimili í formi öryggisfilma sem
gerir glerið í gluggum 300%
sterkara en venjulegt gler.
Leiga á kerfum
Að sögn Þrastar Sigurðssonar, ör-
yggisráðgjafa hjá Securitas, býður
fyrirtækið upp á svokallaða Heima-
vöm sem samanstendur af tveimur
hreyfiskynjumm og einum reyk-
skynjara. Kerfið er hægt að leigja
kostar um 50.000 krónur með upp-
setningu. Hægt er að bæta við
hringibúnaði sem tengir kerfið við
Öryggismiðstöðina. Þá er að auki
innheimt svokallað þjónustugjald
sem er 2800 krónur á mánuöi.
I þriðja lagi býður Öryggismið-
stööin upp á þráðlaust kerfi með
hreyfi-, vatns-, og reykskynjuram,
sírenum og hringibúnaði tengdum
við stjómstöð. Sá búnaður kostar á
milli 60 og 70 þúsund krónur auk
2800 króna í þjónustugjald.
að vatnsskynjurum sé bætt við
þvottavél og baðkar og gasskynjur-
um við gashellur og gasarna.
Þannig útbúin kerfi kosta uppkom-
in um 120 þúsund krónur.
Aðrir möguleikar
Raftækjcifyrirtækið Einar Farest-
veit og co. býöur til sölu nokkrar
gerðir af þjófavarnarkerfum.
í boði era tvær gerðir af kapal-
kerfum. Kerfin era misjafhlega full-
komin. Fullkomnara kerfið kostar
upp á nokkrar gerðir af þjófavam-
arkerfum. Grunnkerfi sem inniheld-
ur m.a. stjómstöð, stjórnborð
hreyfi-, vatns-, og reykskynjara og
innbyggðan hringibúnað sem hægt
er aö tengja við vaktfyrirtæki kost-
ar u.þ.b. 35.000 krónur.
Skýrt skal tekið fram að kerfin í
þessari umfjöllun era mjög ólík og
því er ekki um eiginlegan verðsam-
anburð að ræða heldur örlitla kynn-
ingu á því sem í boði er.
-glm
1000
500
!
Tæknival
Laus við
reykingalykt
Fáum þykir reykingalykt góð
og ekki batnar lyktin daginn eft-
ir góðan gleðskap. Látið vatn
standa í fati í stofunni yfir nótt
og þá verður lyktin horfin að
morgni.
Umhverfisvænir
blettahreinsar
í verslunum era á boðstólum
alls kyns efni til blettahreinsun-
ar. Þeim sem er annt um um-
hverfið skal hins vegar bent á
nokkra náttúrulega bletta-
hreinsa.
Ávaxtablettir: Notið blöndu
með sítrónusýru, hálfa tsk. af
sítrónusýru á móti 1 dl af vatni.
Berjablettir: Hvítu taui má
dýfa í sjóðandi vatn. Gamla bletti
má bleikja í sól. Strjúkið þá með
saft úr sítrónu nokkrum sinnum
á meðan.
Blóðblettir: Leggið í kalt salt-
vatn (1 msk. af salti á móti 5 dl af
vatni).
Eggjablettir: Kalt vatn
Fitublettir. Stráið volgu kart-
öflumjöli yfir blettinn. Látið
liggja næturlangt, þvoið svo í
volgu sápuvatni. Einnig er hægt
að nota rauðspritt.
Grasgræna: Notið spritt
Kaffiblettir: Nýja bletti má fjar-
lægja með köldu vatni. Eldri
bletti má fjarlægja með mjólk.
Mjólkurblettir: Kalt vatn eða
sápuvatn.
Myglublettir. Leggið flíkina í
súrmjólk næturlangt. Gott er að
láta bita af piparrót út í mjólk-
ina.
Olíublettir: Nuddið smjöri í og
þvoið í volgu sápuvatni.
Rauðvínsblettir: Stráið salti
yfir og leggið í kalt vatn.
Ryðblettir: Sítrónusýralausn
eða óblönduð vínsýra.
Súkkulaðiblettir: Þvoið í köldu
vatni eða nuddið með sápu eða
súrmjólk.
Teblettir: Dýfið í sjóðandi vatn
eða þvoið með mjólk.
Tyggigúmmí: Frystið flíkina og
myljið tyggigúmmiið svo úr.
(Heimild: Græna bókin).
ísinn bætir
bragð
Lyf bragðast oft illa og erfitt
getur verið að fá lítil böm til að
kyngja þeim. Gefðu barninu
svolítinn ís í byrjun. ísinn lamar
bragðlaukana svo lyfjabragðið
finnst ekki.
Gljáandi silfur
Ef þú þarft að fægja silfur í
skyndi en hefur ekki fægiefni við
höndina skaltu smyrja svolitlu
tannkremi á rakan klút eða bóm-
ull.