Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1998, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1998, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 1998 Ð'V 10 menning Þar geta allir leikið í Þingeyjarsýslum eru nú tveir söng- leikir í fullum gangi og verið að æfa þann þriðja - og enginn hörgull á hæfileikafólki þótt tugir manna taki þátt í þessum upp- færslum. Sigurður Hallmarsson, leikari og leikstjóri, æfir Ólíver í Aðaldalnum, frammi í sveit gengur Kabarett undir stjórn Arnórs Benónýssonar og um sið- ustu helgi var verkið Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson frumsýnt á Húsavík undir stjórn Sigrúnar Valbergsdóttur. „Þetta er kannski ótrúlegt en ég gat val- ið um þrjá leikara í hvert og eitt af þess- um átján hlutverkum - og þeir gátu allir leikið og sungið!" segir Sigrún. „í raun og veru er Leikfélag Húsavíkur ólaunað at- vinnumannaleikhús." Og ekki er hljóðfæraleikurinn til vand- ræða, á sviðinu er sex manna hljómsveit úrvalsmanna. „Allur söngur er til fyrir- myndar en kvartettsöngurinn hjá okkur er sérstaklega góður,“ segir Sigrún. Ekki eiga þátttakendur heldur í erfið- leikum með að hreyfa sig. í einu atriði eru átján manns í húlahoppi á sviðinu! Leiklistin skipar stóran sess í lifi Hús- Snædís Gunnlaugsdóttir (systir Tinnu) leikur Diddu sem fer til Ameríku - og kem- ur aftur. Kristján Halldórsson ieikur Einar mág hennar. Húlahoppið nemur land í vesturbænum í Reykjavík seint á sjötta áratugnum. Myndir úr sýn- ingu Leikfélags Húsavíkur á Þreki og tárum. víkinga og nágranna. Bæði heimamenn og nærsveitungar eru duglegir að sækja sýn- ingarnar enda er al- menn þátt- taka og áhugi nauð- synleg und- irstaða frjós menningar- lífs hvar sem er. Næstu sýningar á Þreki og tár- um á Húsa- vík eru 27., 28. og 31. mars. Gunni gæ og Magga, leikin af Kristjáni Þór Magnús- syni og Mar- gréti Sverris- dóttur. Holl háskólanum „Að hluta til eru þessi hollvinasamtök mynduð eftir amerískri fyrirmynd en þar eru þau samtök fjársterkra styrktarmanna há- skólastofnana. Reyndar væri mjög gott ef slíkt kerfi kæmi upp hér því ekki eru stjórnvöld allt of örlát við þetta óskabam sitt. En hvað heim- spekideild varðar sé ég fyrir mér i framtíðinni býsna fjölmenn samtök áhugafólks um efni sem þar eru kennd,“ segir Þorleifúr Hauksson íslenskufræðingur, einn í níu manna undir- búningsnefnd að stofnun Hollvinafélags heim- spekideildar Háskóla íslands. Það var stofnað á laugardaginn var við hátíðlega athöfn í Hátíða- salnum í aðalbyggingu skólans. Þetta félag er hið ellefta í röð hollvinafélaga háskólans sem sameinast undir einum hatti í Hollvinasamtök- um Háskóla íslands. „Þeim er ætlað að efla tengsl háskólans og al- mennings og gera þau fræði sem stunduð eru í háskólanum aðgengileg almenningi,“ segir Þor- leiíúr. „Ástæðan til að undirbúningurinn tók svona langan tíma hjá okkur var hve heim- spekideild er stór; stærsta deildin við háskól- ann. Við vissum ekki hvort rétt væri að stofna sérstakt hollvinafélag fyrir hverja námsbraut eða setja nokkrar saman í hópa eða hvað. Þama em öll tungumálin, íslenska, bæði bók- menntir og málfræði, sagnfræði og auðvitað heimspeki. Við byrjuðum á að undirbúa félag fyrir hverja braut en Páll Skúlason, þáverandi forseti deildarinnar, tók í taumana og vildi að félagið yrði aðeins eitt.“ Á miðjum undirbúningsstofnfundi í Nor- ræna húsinu á sínum tima fór rafmagnið af og á stofnfúndinum á laugardaginn lagði Páll Skúlason háskólarektor út af þeirri uppákomu og sagði að í því myrkri hefði orðið til það ljós sem nú legði birtu af löngu seinna! En hvernig á það að lýsa almenningi? „Við byrjum á fyrirlestrahaldi," segir Þor- leifur, „þar sem ýmis fræðasvið verða kynnt. Svo er hægt að hugsa sér að félögum í hollvina- félaginu verði veittur aðgangur að sérstökum námskeiðum við deildina. Hugsanlega mætti þá fella niður innritunargjöld eða lækka þau. Fögin sem shmduð eru við deildina eiga mjög stóran áhugamannahóp utan skólans svo að líklega myndu margir notfæra sér slík tilboð.“ Hver sem er getur gengið í félagið og fyrir- lestramir eru ætlaðir öllum áhugamönnum um efnið, ekki sérfræðingum. Á fundum nú i vor geta nýir félagar skráð sig og allir sem skrá sig fyrir maílok teljast stofnfélagar. Félagar fá svo send gögn og tilboð frá félaginu." Er heimurinn enn að far- ast? Næsta fyrirlestur heldur Þorsteinn Gylfason á laugardag- inn kemur kl. 14 í Hátíða- salnum. Hann Þorleifur Hauksson íslenskufræðingur - vill efla tengsl milli almennings og háskólans. DV- mynd E.ÓI. heitir „Er heimurinn enn að farast?" og er í til- efni af greinum Kristjáns Kristjánssonar um póstmódemisma í Morgunblaðinu og deilum sem af þeim hafa sprottið. Kristján kemur á fundinn og tekur þátt í runræðum. Aðrir fyrirlestrar í vor verða sem hér segir: Gunnar Karlsson talar 18. april um íslenska þjððemisvitund á óþjóðlegum öldum og fjallar um viðhorf íslendinga til þjóðemismála á 16. og 17. öld. 23. apríl er sumardagurinn fyrsti og af- mælisdagur Halldórs Laxness og þá held- ur Vésteinn Ólason fyrirlestur um Hall- dór Laxness og íslenska sagnahefð. Hann talar á vegrnn hollvmafélagsins en fyrirlesturinn verður i tengslmn við aðra viðburði í tilefni dagsins. Fyrirlestraröðinni lýkur svo laug- ardaginn þar á eftir með fyrirlestri Önnu Agnarsdóttur sem heitir „Bylt- ingin 1809?“ og flallar um byltingu Jör- undar hundadagakonungs. Á stofnfundi var kosin stjóm Hollvinafé- lags heimspekideildar. Formaður þess er Ólafur Ragnarsson bókaútgefandi, ritari er Armann Jakobsson, Auður Hauksdóttir gjaldkeri og meðstjómendur eru Pétur Gunnarsson og Vigdís Finnboga- dóttir. SAM sjötugur Sigurður A. Magnússon rithöfundur pistlahöfundur DV með mefru verður sjötugur 31. mars. Þann dag verður hann staddxu á alheimsráðstefnu UNESCO um menningarmál í Stokkhólmi þar sem hann flytm- erindi um kjör lista- manna í nútímanum. Þess vegna verðm afmælisdegin- um flýtt og efnt til veislu 27. mars kl. 20 í „Rúgbrauðsgerðinni", Borgar- túni 6, 4. hæð. Þar taka Sigurður og Sigríður kona hans á móti ættingjum, vinum og velunnurum. Blóm era vinsamlega afþökkuð. í tilefni afinælisins gefur Háskólaútgáfan út bókina í tima og ótíma með ræðum og ritgerð- mn eftir Sigurð ásamt ritaskrá hans 1944-1998, alls 461 bls. Inngang skrifar Ást- ráður Eysteinsson prófessor. Kannski er það líka í tilefni af afrnælinu sem stærsta bók- menntatímarit Úkraínu, VSESVIT, tímarit um heims- bókmenntir, birtir í nýju hefti grein eftfr SAM um þjóð sína, „íslendingar: hveijir eru þeir“, og ijölda ljóða eftir hann í þýðingu tveggja þarlendra skálda. Um aldamótin ekki neitt ég segi... Klukkan 15.03 í dag verður endurtekinn fjórði þáttur Þórunnar Valdimarsdóttur sagn- fræðings í röðinni „Horfmn heimur - alda- mótin 1900“. Þar rekur Þórunn hvemig ald- arfar þess tíma birtist í landsmálablöðunum íslensku og spekúlerar út frá ýmsu sem hún finnur þar. í þessum þætti, sem frumfluttur var síðast- liðinn sunnudag, ræðir hún um erlendar frétt- ir í íslenskum blöðum þessi ár áður en siminn gerði fréttaöflun svo fáránlega auövelda og birtir skondnar skyndimyndir af ritstjórum blaðanna á snöpum niðri viö höfn þegar er- lend skip lögðust að, sníktu út- lend blöð, spjölluðu við skip- verja og spurðu almæltra tíð- inda úr heimalandi þeirra. Eftir að símskeytin gera slíkt spjall óþarft þá finna sumir ritstjóramir til saknað- ar. Gamla leiðin var vissulega persónulegri og skemmtilegri þótt hiin væri hvorki eins snögg né traust. Tveir þættir era enn eftir af rannsókn Þór- unnar á aldarfari aldamótanna. Lesari með henni er Haraldur Jónsson myndlistarmaður. Róttækur blaðamaður Framlag Islensku óperunnar til Listahátíð- ar í vor er rokk-popp-salsa óperan Carmen Negra, útfærsla Stewarts Trotter og Callum McLeod á Carmen eftir Bizet. Frést hefur að Bubbi Morthens muni stíga sin fyrstu skref á söngleikjasviöi í þessu verki og eigi að leika og syngja hlutverk Remendados, blaðamanns og eldheits kommúnista. Bubbi er þekktur talsmaður þess að syngja á íslensku og var þess vegna ef- ins um hvort hann gæti tekið þátt I sýningunni - sem öll verður flutt á ensku. En Garðar Cortes róaði hann með því að engin íslenskumælandi stúlka hefði getað sungið hina svörtu Carmen og ekki hefði verið forsvar- anlegt að láta liðið syngja á islensku þegar aðalsöngkonan syngi á ensku. Sú heitir Caron og er brotin af bergi Sioux- indíána í Norður-Ameríku. Önnur stór hlutverk syngja Egill Ólafsson, Garðar Thor Cortes, Helgi Bjömsson og Val- gerður Guðnadóttir. Frumsýnt verður 29. maí. Heita þær allar Vala? Vala fjögurra ára er ástfangin af nöínu sinni Flosadóttm- og hefúr fyllst brennandi áhuga á stangarstökki undanfarið. Kannski frnnst henni jafnvel að framtíð hennar sé hér með ráðin, því á dögunum þegar hún horfði hrifm á hóp af stúlkum stökkva á stöng í sjón- varpinu sagði hún áhugasöm: „Heita þær ekki allar Vala?“ Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir *^^~***.*

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.