Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1998, Síða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 1998
MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 1998
49
Iþróttir
Krisíján Brooks hefur skrifað undir
tveggja ára samning við úrvalsdeild-
arlið ÍR í knattspyrnu. Kristján varð
markakóngur 1. deildar í fyrra með
ÍR-ingum en eins og fram hefur kom-
ið í DV voru á tímabili nokkrar líkur
á að hann færi til norska félagsins
Lyn.
ÍR-ingar hafa þar með samið við alla
sína leikmenn til tveggja ára. Þeir
fara æfingaferð til Skotlands um
páskana til að búa sig sem best undir
sitt fyrsta tímabil i efstu deild.
Hallsteinn Arnarson, knattspymu-
maður úr FH, leikur með skoska 2.
deildar liðinu Clydebank það sem eft-
ir er tímabilsins í Skotlandi. Hann
kemur síðan heim og leikur með FH
í 1. deildinni í sumar. Framkvæmda-
stjðri Clydebank er Ian McCall sem
lék nokkra leiki með FH á síöasta
tímabili.
Douglas Hall og Freddy Shepard,
tveir af aðalstjómendum Newcastle,
hafa sagt af sér í kjölfar frétta í bresk-
um blöðum um sukk og svínarí
þeirra félaga á Spáni fyrir skömmu.
John Hall mun stýra félaginu það
sem eftir er tímabilsins en hann
hætti sem kunnugt í upphafi tíma-
bilsins.
Lars Bohinen er á leið frá Blackbum
til Derby. Bohinen, sem er norskur
landsliðsmaður, hefur ekki náð að
festa sig i liöi Blackbum sem keypti
hann frá Nottingham Forest. Derby
greiðir 180 milljónir króna fyrir
Bohinen.
Paul Gascoigne er genginn í raðir
Middlesbrough frá Glasgow Rangers.
Gascoigne gerði þriggja og hálfs árs
samning viö Middlesbrough sem
greiddi Rangers 360 milljónir króna
fyrir kappann.
Stjórn HSÍ hefur tilnefnt nýja menn
til starfa í dómstól HSt í kærumáli
Vals og Fram en sem kunnugt komst
dómstóll ÍSÍað þeirri niðurstöðu að
þeir þrir menn sem skipuðu dómstól
HSÍ væm vanhæflr til að dæma í
málinu. Hinn nýja dómstól HSÍ skipa
Andri Ámason, formaður, Gísli
Gislason og Jóhannes Sigurðsson.
Jonathan Greening 19 ára gamall
framheiji, sem leikið hefm- með York
City, er genginn til liðs við Manchest-
er United. Pilturinn þykir mikið efni
en hann var til reynslu hjá United í
nóvember.
Talant Duschebaev, besti hand-
knattleiksmaður heims, mun leika
með Minden í þýsku 1. deildinni I
handknattleik á næsta tímabili. Spán-
vetjinn snjalli leikur nú með Nettel-
stedt.
Víkingur vann fyrsta úrslitaleikinn
gegn Þrótti N. í úrslitum 1. deildar
kvenna í blaki í Víkinni í gær, 3-0
(15-6, 15-12, 15-12).
Skallagrimur sigraði Ægi, 5-0, i
deildabikarkeppninni í knattspymu í
gær. Haraldur Hinriksson skoraði 3
marka Borgnesinga og þeir Kristján
Baldursson og Valdimar K. Sigurös-
son sitt markið hvor.
-GH
Úrslitakeppnin í handknattleik
Fram-ÍBV..................20.00
FH-Haukar.................20.30
Úrslitakeppnin í körfuknattleik
KR-Tindastóll.............20.00
Úrslitakeppnin í blaki karla
Þróttur-Stjaman...........19.30
NBA-DEIIDIN
Toronto-Charlotte..............
Camby 20, - Rice 24, Phills 17.
Atlanta-Orlando...........85-73
Smith 28, Blaylock 11.
Cleveland-SA Spurs........85-86
Ilgauskas 21 - Robinson 27, Duncan 18.
Utah Jazz-Phoenix.........92-73
- Malone 19, Foster 12.
Milwaukee-Houston .... 118-108
Allen 33, Gilliam 29, - Olajuwon 22.
Portland-Washington.......87-99
- Howard 24, Murray 23.
Golden State-NY Knicks . . . 75-88
Jackson 19, - Johnson 23, Houston 19.
Frábær endasprettur
Þaö leit allt út fyrir að FH-
stúlkur myndu hafa sigur á
Víkingi á heimavelli sínum í
Kaplakrika í gærkvöld. Þær voru
yfir nánast allan leiktímann en i
stöðunni 20-18 fyrir FH náðu
Víkingar frábærum endaspretti,
þéttu vöm sína og spiluðu
skynsamlega í sókninni. Þær
skoruðu 4 mörk gegn engu síðustu
átta mínútur leiksins og náðu að
sigra, 22-20.
FH-stúlkur
hljóta að naga
sig i handar-
bökin yfir að klúðra unnum leik.
Auk tækifæra í lokin fengu þær
mörg tækifæri til að stinga
Víkingsliöið af en nýttu þau ekki.
Mikið býr þó í þessu liði og má
vænta þess að það nái lengra á
næsta timabili. Hrafnhildur
Skúladóttir var langbest i liði
þeirra. Hjá Víkingsstúlkum lék
Guðmunda vel og Halla María
sýndi mikið öryggi á vítalínunni.
Kristín María varði einnig vel, en
hún lék aðeins síðari háifleikinn.
Mörk FH: Hrafnhildur Skúladóttir
8/2, Guðrún Hólmgeirsdóttir 3, Dagný
Skúladóttir 3, Björk Ægisdóttir 3,
Þórdís Brynjólfsdóttir 2, Drífa
Skúladóttir 1. Varin skot: Vaiva
Drilingate 9.
Mörk Vikings:
Halla M. Helgadóttir
8/6, Guðmunda Ósk
Kristjánsdóttir 4,
Kristín Guðmundsdóttir 4, Heiða
Erlingsdóttir 3, Heiðrún
Guðmimdsdóttir 2, Anna Kristín
Árnadóttir 1. Varin skot: Halldóra
Ingvarsdóttir 2, Kristín M.
Guðjónsdóttir 8. -HI
FH - Víkingur 1-2
Jóhann í Watford
- skrifar undir 2ja ára samning á morgun
Jóhann B. Guðmundsson, knattspyrnumaður úr Kefla-
vfk, skrifar á morgun undir tveggja ára samning við
enska 2. deildar liðið Watford. Hann hélt utan til Eng-
lands í morgun og að lokinni læknisskoðun mun hann
ganga frá samningnum. Watford er í efsta sæti 2. deildar-
innar en framkvæmdastjóri liðsins er Graham Taylor,
fyrrum landsliðseinvaldur Englendinga.
Jóhann var til reynslu hjá félaginu í haust og lék nokkra
leiki meö varaliðinu en fýrir 10 dögum settu forráðamenn
Watford sig í samband við Jóhann um buðu honum samning. Jóhann er 22
ára gamall, hefur leikið hefur 49 leiki með Keflvíkingum í efstu deild og á
síðasta ári lék hann í fyrsta skipti með íslenska landsliðinu.
-GH
Ice Cup í handbolta:
Slóðaskapur
íslensku liðanna
Eins og undanfarin ár hyggj-
ast FH-ingar standa fyrir alþjóð-
legu handknattleiksmóti um
páskana, svonefndu Ice Cup
móti.
Sex erlend kvennalið hafa til-
kynnt þátttöku, frá Svíþjóð og
Hollandi og 3 karlalið frá Svíþjóð
en fá íslensk lið hafa skráð sig til
leiks og eru FH-ingar mjög ósátt-
ir viö það. Geir Hallsteinsson,
sem hefur hefur haft umsjón
með mótinu, segir að ef þátttaka
íslensku liðanna skili sér ekki
fyrir fostudaginn verði mótið
lagt niður og segir Geir að það
yrði mjög sorgleg niðurstaða
Þátttöku ber að tilkynna í fax-
númer 565 4714. -GH
Aftureld. (9)19
Valur (9)22
0-1, 1-4, 4-5, 6-6, 7-7, (9-9). 10-10,
12-12, 14-14, 16-16, 16-19, 17-20, 19-20,
19-21, 19-22.
Mörk Aftureldingar: Jason Ólafs-
son 6/5, Einar Gunnar Sigurðsson 5,
Gunnar Andrésson 4/1, Páll Þórólfs-
son 2, Magnús Már Þórðarson 2.
Varin skot: Bergsveinn Berg-
sveinsson 17/1.
Mörk Vals: Jón Kristjánsson 7/2,
Valgarð Thoroddsen 5, Daníel Ragn-
arsson 4, Ingi Rafn Jónsson 2, Sigfús
Sigurðsson 2, Theodór Valsson 1,
Davið Ólafsson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafn-
kelsson 18/1.
Brottvísanir: Afturelding 8 mín,
Valur 2 min.
Dómarar: Einar Sveinsson og Þor-
lákur Kjartansson. Ósamræmis gætti
í dómum þeirra.
Áhorfendur: Um 700.
Maður leiksins: Guðmundur
Hrafnkelsson, Val.
Óskar Kristjánsson stjórnaði KR-liöinu í gær í stað þjálfarans Chris
Armstrong sem var að stjórna unglingaliöi KR á sama tima. Hilmar Þór
Einar Gunnar Sigurðsson gnæfir hér yfir vörn Valsmanna og skorar eitt marka sinna aö Varmá í gærkvöld. Það dugði skammt því Valsmenn voru sterkari og innbyrtu
þriggja marka sigur. Liöin mætast í öörum leiknum að Hlíðarenda á morgun. DV-mynd Pjetur
- Guðmundur varði mark Vals stórkostlega í sigri á Aftureldingu
Valsmenn hófu úrslitakeppnina
með góðum sigri á Aftureldingu í
Mosfellsbænum í gærkvöld, 19-22, og
geta með sigri á heimavelli annað
kvöld tryggt sér sæti í undanúrslitum.
Valsmenn léku sem sterk liðsheild í
gærkvöld en ekki er hallað á neinn
þótt Guðmundur Hrafnkelsson mark-
vörður sé nefndur til sögunnar sem
maður leiksins. Hann varði geysilega
vel á mikilvægum augnablikum í síð-
ari hálfleik sem lagði öðru fremur
grunninn að sigri Valsmanna.
Af þessum leik af dæma býr meiri
kraftur í Val en Aftureldingu sem
ekki hefur unnið leik eftir að liðið féll
úr Evrópukeppninni. Mosfellingar
leika ágæta vörn en sóknin er ekki að
sama skapi einbeitt. Allt skipulag
vantar í hana, hún
er keyrð á ein-
staklingsframtaki,
sem kann ekki
góðri lukku að stýra. Homaspil er
alveg bitlaust og kom ekkert mark
þaðan i leiknum. Mosfellingar verða
að laga sóknina ef þeir ætla eiga
raunhæfa möguleika á sigri á sterk-
um heimavelli Valsmanna.
„Þetta er alls ekki búiö“
„Liðið lék vel á köflum en við verð-
um að hafa í huga að aðeins fyrri hálf-
leik er lokið, sá síðari er eftir. Þetta er
því alls ekki
búið en sigur-
inn hér var
mikilvægur
upp á framhaldið. Ég náði mér ágæt-
lega á strik en liðið getur samt gert
betur en þetta,“ sagði Guðmundur
Hrafnkelsson í samtali við DV eftir
leikinn.
Vöm Valsmanna var lengstun sterk
og í sókninni stjómaöi Jón Kristjáns-
son sínum mönnum eins og herfor-
ingi. Hinn bráðefhilegi Daníel Ragn-
arsson komst vel frá sínu.
Förum Krýsuvíkurleiðina
„Vömin var ágæt en sóknin er að
hiksta. Við fórum þessa gömlu Krýsu-
víkurleiö og klárum þetta I oddaleik
að Varmá á laugardaginn," sagði
Bergsveinn Bergsveinsson, markvörð-
ur, Aftureldingar, við DV en hann átti
bestan leik Mosfellinga ásmat Einari
Gunnari Sigurðssyni.
-JKS
Afturelding - Valur 0-1
Úrslitakeppni 1. deildar kvenna í körfuknattleik:
KR kom fram hefndum
- KR skoraði 50 stig í seinni hálíleik gegn Keflavík
„Það þurfti bara einhvern til að
segja þeim aö þær gætu unnið því
þær hafa alveg í fullu tré við Kefla-
vík,“ sagði Óskar Kristjánsson sem
stjórnaði KR-liðinu í 75-65 sigri á
Keflavík í 1. deild kvenna.
KR-stúlkur hafa þar með jafnað
einvígið við Keflavík og svarað mörg-
um röddum sem töldu Keflvíkinga
ætla að klára þetta í þremur leikjum.
Það sem öðru fremur lagði gmnninn
að sigri KR-stúlkna var frábær kafli
þeirra i upphafi seinni hálfleiks er
þær breyttu stöðunni úr 35-31 i 48-31.
Mest komust þær síðan í 20 stiga for-
ustu áður en Keflavíkurliðið náði að
saxa á þær í lokin.
Ekki tilbúnar í þennan leik
„Við spiluðum mjög illa, áttum lé-
leg skot og þegar við náðum að byrja
að spila okkar bolta var það oröið of
seint. Við komum ekki tilbúnar í
þennan leik en þær voru tilbúnar.
KR - Keflavík 1-1
Þetta kennir okkur kannski eitthvað
og við ætlum að vera tilbúnar í næsta
leik,“ sagði Anna María, þjálfari
Keflavíkur, eftir leik.
Hjá KR átti Tara Williams góðan
leik og þá sérstaklega í seinni hálf-
leik. Mest munaði þó um framlög
Hönnu Kjartansdóttur, sem skoraði
14 stig, og Helgu Þorvaldsdóttur sem
var með 12 stig og áttu 8 stoðsendingar.
Léleg hittni hjá
Keflavíkurstúlkum
Keflavíkurliðið hitti mjög illa í
þessum leik, sem dæmi aðeins 15 af
44 tveggja stiga skotum og liðið, sem
var búið að vinna 11 leiki í röð, sýndi
á sér afar slaka og sjaldgæfa hlið í
þessum leik. Hjá því sýndu mestan lit
Erla Þorsteinsdóttir, Jennifer og
Anna María. Mikið munaði um að
Erla Reynisdóttir og Kristín Blöndal
voru í djúpum dvala í þessum leik.
-ÓÓJ
KR (25) 75
Kefíavík (22) 65
2-0, 2-6, 6-6, 8-13, 14-13, 20-19, 25-19,
(25-22), 27-22, 29-27, 35-31, 48-31,
50-35, 58-38, 62-48, 63-53, 65-58, 67-62,
72-62, 73-63, 75-65.
Stig KR: Tara Williams 26, Hanna
Kjartansdóttir 14, Helga Þorvaldsdótt-
ir 12, Kristín Jónsdóttir 8, Linda Stef-
ánsdóttir 8, Guðbjörg Norðfjörð 7.
Stig Keflavíkur: Jennifer Boucek
18, Anna María Sveinsdóttir 16, Erla
Þorsteinsdóttir 16, Erla Reynisdóttir
6, Kristín Blöndal 5, Harpa Magnús-
dóttir 4.
3ja stiga skot: KR 1/11, Kefl. 7/15
Vítanýting: KR 19/23, Kefl. 12/16
Vamarfráköst:KR 21, Keflavík 14
Sóknarfráköst: KR 7, Keflavík 10
Dómarar: Antonio Ciullio og
Björgvin Rúnarsson. Hörmuleg
dómgæsla, mikið ósamræmi í dómum
og ýmist dæmt á minnstu smáatriði
eða sleppt augljósum brotum.
Áhorfendur: 100
Maður leiksins: Helga Þorvalds-
dóttir KR. Leiddi lið sitt á mikil-
vægum tíma er þær komust í 20 stiga
forustu i byrjun seinni hálfleiks.
_______________________íþróttir
Meistaraheppni?
- æsilegar lokamínútur þegar KA lagði Stjörnuna með marki á lokasekúndu
DV, Akureyri:
„Maður hugsar ekkert í þessari
stöðu nema það að koma tuðrunni í
markið, annað kemst ekki að. Ætli
það megi ekki líka segja að það hafi
fylgt þessu heppni, hún er oft með
þeim bestu. Það verður rosalega
erfitt að fýlgja þessu eftir með sigri
í Garðabænum fyrst við vorum í
vandræðum með þá hér með þús-
und manns á pöllunum" sagði Hall-
dór Sigfússon, hetja íslandsmeistara
KA, eftir að hafa skorað sigurmark
KA í 21-20 sigri á Stjörnunni í KA-
heimilinu í gærkvöld. Sigurmarkið
kom þegar 4 sek. voru eftir af leikn-
um og var það eina markið sem
kom síðustu 4 mín. leiksins.
Það er óhætt að segja að úrslita-
keppnin hafi byrjað með miklum
látum á heimavelli meistaranna í
gærkvöld. Stjörnumenn komu
geysigrimmir til leiks og KA-menn
KA (12) 21
Stjarnan (9)20
0-1, 3-2, 7-3, 8-5, 9-8 (12-9), 13-9,
13-12, 14-14, 14-15, 17-15, 19-16, 19-18,
20-20, 21-20.
Mörk KA: Björgvin Björgvinsson
6, Halldór Sigfússon 5/1, Karhn Yala
4, Leó Ö. Þorleifsson 3, Hilmar
Bjarnason 2/2, Sverrir Bjömsson 1.
Varin skot: Sigtryggur Albertsson
15/2.
Mörk Stjörnunnar: Valdimar
Grimsson 7/3, Magnús A. Magnússon
5, Hilmar Þórlindsson 4/2, Amar
Pétursson 2, Heiðar Felixson 1,
Hafsteinn Hafsteinsson 1.
Varin skot: Jónas Stefánsson 14/1,
Ingvar Ragnarsson 2/2.
Brottvisanir: KA mín. 8 mín,
Stjaman 10 min.
Dómarar: Valgeir Ómarsson og
Bjami Viggósson. Sluppu þokkalega
frá geysierflðum leik, sérstaklega þó
Valgeir.
Ahorfendur: 1036.
Maður leiksins: Halldór
Sigfússon, KA.
DV, Suðurnesjum:
Teitur Örlygsson var óstöðvandi
þegar Njarðvik sigraði, KFÍ, 88-67,
í oddaleik liðanna í 8-liða úrslitun-
um. Þegar Teitur er í slíkum ham
stenst enginn leikmaður honum
snúning og gerði hann 10 glæsilegar
3ja stiga körfur í leiknum og alls 35
stig.
Njarðvíkingar eru til alls líklegir
í baráttunni um titilinn og greini-
legt að Friðik Rúnarsson er með lið
sitt á toppnum á réttum tíma enda
margsannað að þar fer góður þjálf-
ari.
„Ég fann mig
mjög vel. Friðrik
þjálfari bað mig
að skjóta mikið í
byrjun leiks og koma liðinu inn í
leikinn. Ég skaut mig í stuð. Þegar
maður fær slíka skipun verður mað-
ur að sýna traust sitt og standa und-
ir þvi og áhorfendur voru frábærir.
Þaö var frábær barátta í liðinu og
við spiluðum góða vöm. Þetta er
allt á uppleið hjá okkur,“ sagði Teit-
ur Örlygsson sem setti persónulegt
met í 3ja stiga körfum.
Njarðvíkingar spiluðu frábæra
liðsvöm sem KFÍ náði ekki að
brjóta á bak aftur og á eftir fylgdi
hraður og skemmtilegur sóknarleik-
gefa aldrei þumlung eftir á heima-
velli. Úr varð hörkuleikur, ekki vel
leikinn, en taugaspennan og „titr-
ingurinn" sem fylgir úrslitakeppn-
inni allsráðandi. KA-menn höföu
framkvæðið lengst af, 12-9 í hálfleik
og komust síðan 4 mörkum yfir.
Stjarnan náði síðan að jafna og
komast yfir 14-15 en KA náði
KA - Stjarnan 1-0
þriggja marka forskoti að nýju.
Stjaman jafnaði síðan þegar 4 mín.
voru eftir, 20-20. Eftir það vörðu
Ingvar Ragnarsson og Sigtryggur
Albertsson sitt vítið hvor og þrír
menn vom reknir út af undir lokin.
Síðustu mínútuna vom KA-menn
einum færri, vora með boltann cill-
an þann tíma og 4 sek. fyrir leikslok
sneri Halldór á vöm Stjömunnar,
fór inn af línunni og skoraði sigur-
markið.
Halldór var þvi maður leiksins,
en sá sem lék best var Sigtryggur
Albertsson. Hann hreinlega lokaði
markinu síðari hluta síðari hálf-
leiks. Björgvin Björgvinsson átti
stórleik og Karim Yala lék mjög vel
í fyrri hálfleik. Liðið í heild getur
betur en taugaspennan tekur sinn
toll.
Björgvin Björgvinsson - 6 mörk.
ur. Njarðvíkingar gerðu út um leik-
inn i síðari hálfleik þegar staðan
var 48-43 eftir rúmar 3 mínútur. Þá
sýndu Njarðvíkingar frábæran
kafla og breyttu stöðunni í 68-51 á 9.
minútna kafla. Eftir það voru Njarð-
víkingar með leikinn í hendi sér.
„Það er agalegt að vera teknir í
bakaríið. Þeir spiluðu sterkan varn-
arleik og náðu að ýta okkur út úr
okkar leik. Það er gríðarlega svekkj-
andi að tapa með svona mun hér og
vera slegnir út. En ég óska þeim
góðs gengis," sagði Guðni Guðna-
son, þjálfari og leikmaður KFÍ, en
hann hefur verið að gera góða hluti
með liðið í vetur.
Eins og áður sagði
átti Teitur stór-
leik, Petey
Sessoms átti einnig frábæran leik
með Njarðvík og tók hann 22 fráköst
og hélt Friöriki Stefánssyni algjör-
lega niðri í leiknum, Páll Kristins-
son hélt Bevis í strangri gæslu,
Friðrik Ragnarsson og Guðjón
Gylfason áttu báðir frábæran vam-
arleik og spiluðu skynsamlega í
sókninni.
Lykilmenn KFÍ náðu sér einfald-
lega ekki á strik og munar um
minna þegar Bevis og Friðrik ná sér
ekki á strik í sóknarleiknum. -ÆMK
Valdimar Grimsson, þjálfari og
leikmaöur Stjömunnar, getur nagað
sig í handarbökin eftir þennan leik.
Hann gerði ítrekað óvenjuleg mis-
tök í sókninni og kórónaði svo allt
með að láta verja frá sér víti í lokin.
Jónas Stefánsson markvörður var
besti maður liðsins og hélt því á
floti þegar á leið. Þá átti Magnús
Magnússon mjög góðan leik. Liðið í
heild sýndi að það getur betur en 8.
sætið í deildinni segir til um, og
KA-manna bíður erfitt verkefni í
Garðabæ annað kvöld.
„Kem aftur noröur"
„Þetta var erfitt eins og við átt-
um von á og KA-menn voru heppn-
ir. Við fengum fullt af tækifærum í
lokin til að gera út um þetta en því
miður, svona fór þetta. En þetta er
ekki búið, ég verð aftur hér i KA-
heimilinu á laugardaginn" sagði
Brynjar Kvaran, liðsstjóri Stjörn-
unnar í leikslok.
Ætlum aö Ijúka þessu í
Garðabænum
Atli Hilmarsson, þjálfari KA, var
var um sig eftir leikinn. „Þetta verð-
ur mjög erfitt, en við ætlum að gera
allt til að ljúka þessu í Garðabæn-
um“ sagði Atli. -gk
Valdimar Grímsson - 7 mörk.
Njarðvík (46)88
KFÍ (37) 67
0-2, 5-2, 7-6, 13-6, 23-14, 32-19,
36-24, 36-31, 42-31, (46-37), 4941,
5M3, 54-45, 59-45, 64-51, 68-51, 71-53,
77-58, 82-62, 88-67.
Stig Njarðvíkur: Teitur örlygs-
son 35, Petey Sessoms 21, Páll Krist-
insson 13, Guðjón Gylfason 5, Ragnar
Ragnarsson 5, Örvar Kristjánsson 3,
örlygur Sturluson 2, Friðrik Ragn-
arsson 2, Kristinn Einarsson 2.
Stig KFf: David Bevis 17, Marcos
Salas 17, Friðrik Stefánsson 9, Magn-
ús Gíslason 8, Baldur I. Jónasson 7,
Finnur Þórðarson 5, Ólafur J. Orms-
son 2, Guðni Guðnason 2.
Fráköst: Njarðvík 39, KFÍ 46.
Vítanýting: Njarðvik 13/19, KFÍ
10/23.
3ja stiga körfur: Njarðvik 14/31,
KFÍ 7/24.
Áhorfendur: Um 650, fullt hús.
Dómarar: Leifur Sigfinnur Garð-
arsson og Jón Bender, frábærir.
Maður leiksins: Teitur örlygs-
son, Njarðvík.
Teitur Örlygsson átti stórleik og
skoraöi 10 þriggja stiga körfur.
Teitur
heitur
- Njarðvík í undanúrslitin
Njarðvík-KFÍ 2-1