Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1998, Side 23
MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 1998
mm
Bólfarir Pamelu
seljast mjög vel
Hjónaband þeirra Pamelu And
erson og Tommys Lees heyrir nú
sögunni til en hiö sama er ekki
hægt að segja um upptöku af
bólförum þeirra. Upptaka þessi,
sem óprúttnir kaupahéðnar settu
á markað, hefur selst eins og heit-
ar lummur að undanförnu, meira
en nokkurt annað sambærilegt
myndband. Að sögn kunnugra er
upptakan ansi svæsin, ef nota má
það orð. Sem sé, allt sést.
Bílaframleiðandi
veðjar á Clapton
Þeir eru sjálfsagt margir sem
hafa veðjað á breska blúsarann og
rokkarann Eric Clapton um dag-
ana. Nú hefur japanski bílafram-
leiðandinn Lexus bæst í hópinn.
Lexus styrkir væntanlega tón-
leikaferð Claptons um Bandaríkin
í þeirri von að kappinn geti gert
bílana eftirsóttari í augum unga
liðsins, meira töff.
Sviðsljós
Madonna komst yfir tvær óskarsverðlaunastyttur í Hollywood I fyrrakvöld.
Ekki mátti hún þó eiga þær heldur haföi henni verið faliö að afhenda þær
höfundum besta lagsins. Það reyndist að sjálfsögðu vera úr Titanic.
Leikstjóri stormyndarinnar Titanic, James Cameron, aðalleikkona
myndarinnar, Kate Winslet, og framleiöandinn Jon Landau fagna velgengni
kvikmyndarinnar sem fékk alls 11 óskarsverðlaun. Símamynd Reuter
Boðin bárust of seint til Hong Kong:
Alexandra komst
ekki í jarðarförina
Celine Dion söng lagiö My Heart
Will Go on úr Titanic á óskarshátíð-
inni. Lagið hlaut óskarinn.
Símamynd Reuter
Helena Bonham Carter var tilnefnd
til verðlauna en fékk engin. Hún er
hér á leið á óskarshátíðina.
Leikkonurnar Kim Basinger og Helen Hunt með óskarsstytturnar sem þær
hlutu á mánudagskvöld. Basinger var kjörin besta leikkona í aukahlutverki
og Hunt besta leikkona í aðalhlutverki. Símamynd Reuter ' -
Alexandra prinsessa, eiginkona
Jóakims prins í Danmörku, komst
því miður ekki i jarðarför föðurafa
eiginmannsins, greifans Andrés de
Monpezat, í Frakklandi á dögunum
þar sem boðin um andlátið bárust
henni svo seint tO Hong Kong.
„Alexandra sendi hins vegar fal-
legan blómvönd og nokkur huggun-
arorð til móður minnar. Og hvoru
tveggja náði í tíma fyrir jarðarför-
ina,“ upplýsti Frangoise Bardin,
systir Hinriks prins, drottningar-
manns í Danmörku.
Jóakim prins frétti ekki af andláti
afa síns fyrr en hann lenti á flug-
vellinum í Kaupmannahöfn. Alex-
andra var þá farin frá Hong Kong til
Taílands i frí með systrum sínum.
Og því fór sem fór.
Alexandra var farin í frí þegar afi
Jóakims lést í Frakklandi.
Jack Nicholson óður
í ungt kvenfólk
„Allir vita að ég er óður í kven-
fólk,“ sagði Jack Nicholson nýlega
í viðtali. Sagt er að Nicholson, sem
á mánudaginn fékk þriðju ósk-
arsverðlaunin sín fyrir aðalhlut-
verk í myndinni As Good as it Gets,
sé stöðugt á eftir ungum konum og
neiti að nota gúmmíverjur. Þess
vegna eigi hann að minnsta kosti
átta böm utan hjónabands.
í myndinni As Good as it Gets
reynir Nicholson við Helen Hunt
sem er 27 árum yngri en hann. í
raunveruleikanum er hann með
Rebeccu Broussard sem einnig er 27
árum yngri en Nicholson og móðir
tveggja yngstu barna hans. Rebecca
er jafngömul elstu dóttur kvik-
myndaleikarans sem er eina barnið
hans sem er fætt í hjónabandi.
Rebecca og Jennifer voru vinkon-
ur og Jack Nicholson hefur viður-
kennt að það hafi verið svolítið erfitt
að segja dótturinni að Rebecca ætti
von á barni. Það hafl verið næstum
erfiðara að segja dótturinni fréttirn-
ar heldur en Anjelicu Huston sem
hann hafði verið með í 17 ár.
Nicholson hafði logið að Anjelicu
á meðan hann hélt fram hjá henni
með Rebeccu. Þegar Rebecca var
orðin kærastan hans fór hann að
ljúga að henni. Rebecca, sem á börn-
in Lorraine, 8 ára, og Raymond, 6
ára, með Nicholson, varð leið á
kvennafari kærastans. Hann
hringdi bara þegar honum hentaði
og þegar hann vildi sofa hjá henni,
á hún að hafa greint frá.
Rebecca varð ástfangin af öðrum
manni á hennar aldri og vildi losna
úr sambandinu við Nicholson.
Nicholson
með
sinn.
þriðja óskarinn
Sfmamynd Reuter
Hann setti henni hins vegar skil-
yrði. Ef hún ætlaði að giftast öðrum
myndi hún missa húsið sem hann
hafði keypt handa henni og börnun-
um. Hús hennar var í nokkurra
mínútna fjarlægö frá hans húsi.
Þau eru því saman á ný en búa
hvort í sínu lagi.
Nicholson notaði sömu aðferð
gegn Susan nokkurri Anspach. Þeg-
ar hún þrýsti á hann til að viður-
kenna opinberlega son þeirra Caleb,
sem nú er 28 ára, fyrir nokkrum ár-
um reyndi hann að fleygja henni út
úr húsi sem hann á. Susan neitaði
að fara og býr enn í húsinu.
Jack er orðinn 61 árs og virðist
alls ekki ómótstæðilegur. En mörg-
um þykir samt erfitt að ímynda sér
hann með sextugum dömum.