Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1998, Side 24
MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 1998 JjV
56 ikyikmyndir
Kýidu á þær
Hnefaleikamyndir eru ein vin-
sælasta undirgrein íþróttamynda.
Þær eru svo fjölbreytilegar að erhtt er
að sjá í þeim nokkra heild. Þær geta
verið tilfmningaþrungnar, dramatísk-
ar eða kómískar, og kannski eiga þær
það aðeins sammerkt að í flestum til-
vikum hverfast þær um leikinn sjáif-
an.
Fáar eftirminnilegar gamanmyndir
hafa verið gerðar um hnefaleika-
keppni og ástæðan er eflaust sú að
erfitt er að skoða íþróttina í kómísku
ljósi. Að mínu mati hefur enginn leik-
stjóri náð að draga upp kostulegri
mynd af hnefaleikum en Charles
Chaplin gerði i The Champion (1915),
en þar stigur flækingurinn í hringinn
gegn mun þyngri andstæðingi sem
hann virðist í fljótu bragði ekkert eiga
í. Sidney Poitier gerði 60 árum síðar
gamanmyndina Let’s Do It Again
(1975) um horrenglu sem er dáleiddur
af tveimur svindlurum (Sidney Poiti-
er og Bilí Cosby) en þeir ætla að
græða fúlgur meö því að veðja á hann.
Jimmie Walker er ffábær í hlutverki
hnefaleikarans sem hegðar sér eins og
þungavigtarmaður en litur út fyrir að
vera of léttur til þess að geta barist í
' fluguvigtarflokki.
Ein frægasta hnefaleikamynd allra
tíma er The Champ (1931) í leikstjóm
Kings Vidor. Hér flæða tiifinningam-
ar hömlulaust, en myndin segir frá
drykkfellda hnefaleikakappanum
Andy Purcell (Wallace Beery) sem býr
með ungum syni sínum (Jackie
Cooper). Andy hefur ekki tekið þátt í
bardaga um nokkurt skeið en gefst
kostur á að stíga inn í hringinn aftur.
Hann vill tryggja framtíð sonar síns
en bardaginn endar með ófyrirsjáan-
legum afleiðingum. Beery fékk óskar-
inn fyrir ffammistöðu sína í mynd-
inni en leikur þeirra feðga er með
ágætum. Myndin var endurgerð af
ítalanum Franco ZefFireOi árið 1979 og
léku þá Jon Voight og Rick Schroder
feðgana. Báöar útgáfur era margra
vasaklúta myndir og aðeins fyrir
mestu hörkutól. Mynd Sylvesters
Stallone Rocky (1976) á ýmislegt sam-
eiginlegt með þessum myndum, en
þar fær ungur hnefaleikari eitt tæki-
færi til að sigra heiminn.
Aðrar myndir lýsa þeirri spillingu
sem einkennir hnefaleikaheiminn og
í þeim er dregin upp hvöss mynd af
boxi sem villimannlegri íþrótt.
Nokkrar noir-myndir snúast um
hnefaleikakappa, t.d. 99 River Street
(1953) sem segir frá þungavigtar-
Chaplin gerði The Champion 1915.
Ein frægasta hnefaleikakvikmynd allra
myndinni er Robert De Niro í hlutverki
? ® P P % %
í Bandaríkjunum
- aðsókn dagana 20.-22. mars. Tekjur i mllljónum dollara og helldartekjur
Ellefu óskarsverðlaun
ogenn
Það fór eins og flestir spáðu, Titanic var yfir
burðasigurvegari við afhendingu óskarsverð-
launanna í fyrrakvöld. Uppskeran var ellefu
óskarar og þar meö jafnaði hún met Ben Hur frá árinu 1959. Titanic gefur
ekkert eftir í aðsókn. Undirritaður hafði spáð því í síöustu viku aö „forseta-
myndin" Primary Colors myndi ná efsta sætinu. Það gekk ekki eftir heldur
styrkti Titanlc stööu sína á listanum og er þetta fjórtánda vikan í röö sem
hún skipar efsta sætiö. Auk Primary Colors kemur ný inn á listann táninga-
tryllirinn Wild Things og nýjasta kvikmynd slagsmálaleikarans Jackies Chans,
Mr. Nice Guy, en aösóknartölur sýna aö vinsældir Chans í Bandaríkjunum
fara dvínandi. Ein mynd er búin aö vera oftar á listanum en Titanic. Er það
L.A. Confidental sem hefur veriö meira og minna á listanum frá þvt síöast-
liöiö sumar. Voru aöstandendur myndarinnar gagnrýndir fyrir slæma mark-
aössetningu á myndinni sem flestir gagnrýnendur hafa sett efsta á blað yfir
lestu myndir síftasta árs.-HK Tekjur Helldartekjur
i. (i) Titanlc 17.165 494.514
2. (-) Primary Colors 12.045 12.045
3. (2) The Man in the Iron Mask 11.077 34.483
4- (-) Wild Things 9.622 9.622
5. (3) U.S. Marshall 7.225 43.556
6. (-) Mr. Nice Guys 5.250 5.442
7.(4) Good Wlll Huntlng 4.026 115.579
8. (5) As Good as It Gets 3.260 125.803
9. (5) The Wedding Singer 3.254 68.391
10. (6) The Big Lebowskl 1.830 13.771
11. (7) Twlllght 1.624 13.192
12. (11) L.A. Confldental 1.496 57.505
13. (8) Hush 1.250 12.622
14. (13) The Apostle 1.169 16.636
15. (12) The Borrowers 1.041 20.601
16. (19) Everest 0.620 2.360
17. (10) Dark City 0.415 13.562
18. (15) Caught up 0.369 5.966
19. (-) The Full Monty 0.364 44.288
20. (16) Dangerous Beauty 0.356 2.965
rCTi
manni sem
ekur leigubíl
eftir að hafa
verið sleginn
út úr hringn-
um. Harðari
ádeilu á
hnefaleika-
lifið má
fmna í Body
and Soul
(1947), en þar
leikur John
Garfield
hnefaleika-
kappann
Charley
Davis sem
smám sam-
an tapar átt-
um eftir því
sem vegur
hans innan
hringsins
vex. Þetta er
ein besta
hnefaleika-
mynd allra
tíma og
Martin Scor-
sese viður-
kennir að
hafa orðið
fyrir miklum áhrifum frá henni við
gerð myndar sinnar Raging Bull
(1980). Síðasta mynd Humphreys Bog-
art, The Harder They Fall (1956), gekk
jafnvel enn lengra í því að lýsa ítök-
um þeirra glæpamanna sem kaupa og
selja útkomu leikja með það í huga að
græða á veðmálum.
Síðast en ekki síst má nefna mynd-
ir sem lýsa lífsferli goðsagna í hnefa-
leikaheiminum. Gentleman Jim (1942)
segir frá fyrsta þungavigtarmeistar-
anum, „Gentleman Jim“ Corbett, sem
leikinn er af Errol Flynn. Joe Louis,
einn mesti hnefaleikari alira tíma, er
tekinn fyrir í The Joe Louis Story
(1953) og Jake La Motta í Raging Bull
(1980). Að lokum má minna á heimild-
armyndina When We Were Kings
(1996) sem nýkomin er út á mynd-
bandi. Hún segir frá frægum bardaga
Muhammeds Ali og George Forman í
Saír 1974, en hinn hárprúði Don King
markaðssetti leikinn undir nafhinu
frumskógargnýr (Rumble in the
Jungle). ge
tíma er Raging Bull. A
Jake La Motta.
Heimildarmyndin When We were Kings, þar
sem fylgst er meó Muhammed Ali, hefur feng-
ið mjög góðar viötökur og meðal annars ósk-
arsverölaun sem besta heimildarmynd.
/AOL/lI
Sambíóin taka á næstu vikum og
mánuðum nokkrar myndir til sýn-
ingar sem eiga það sammerkt að
fjalla um baráttu við óhræsi af öllum
stærðum og gerðum. Þar má meöal
annars ftnna raðmorðingja, geimver-
ur, djöfla sem nærast á mannakjöti
og síðast en ekki sist lifsseiga mús
með jafnmörg líf og meðalköttur.
Fallen
í Fallen, sem tekin verður til sýn-
ingar á næstu dögum, eltast tveir
leynilögreglumenn í Chicago við
raðmoröingja. Hann næst og er leidd-
ur fyrir dóm þar sem hann er sak-
felldur og dæmdur til dauða. Það
kemur þvi lögreglunni á óvart þegar
morðin halda áfram með sama hætti
og áður. Með aðal-
hlutverk i myndinni
fara Denzel Was-
hington, John
Goodman og Don-
ald Sutherland.
iere
Sphere,
sem gerð er eftir
skáldsögu Michaels Cricht-
ons, finnst 300 ára gamalt geimfar á
botni Kyrrahafsins. Þegar visinda-
menn eru sendir um borð taka að
berast skilaboð sem verða sifellt
óhugnanlegri. Áður en langt um líð-
ur taka þeir að týna tölunni. Mynd-
inni er leikstýrt af Barry Levinson
og í helstu hlutverkum eru Dustin
Hofiman, Samuel L. Jackson, Sharon
Stone og Peter Coyote.
Mousehunt
Godzilla er án efa stærsta óhræsið
sem þrammar inn á hvíta tjaldið
næsta sumar. Það minnsta er mús
sem gerir allt vitlaus í húsi bræðr-
anna Emie og Lars
Smuntz. Mousehunt
er gamanmynd sem
hefur verið kölluð
Home Alone með
mús I aðalhlut-
verki. Þetta er
fyrsta mynd
leikstjórans
Gore Verbinski
og með aðal-
hlutverk fara Nathan
Lane, Lee Evans og
Walken.
Eaters of the Dead
Snemma í sumar verður önnur
kvikmynd byggð á skáldsögu Mich-
ael Crichton (höfúndur Jurrasic
Park) frumsýnd. Eaters of the Dead
gerist snemma á 10. öld og segir frá
arabíska hirðmanninum Ahmad Ibn
Fadlan sem er rænt af víkingasveit
sem flytur hann til sinna heima-
slóða. Þar verður hann að hjálpa
þeim í baráttu við dularfulla djöfla
sem nærast á mannakjöti. Með aðal-
hlutverk í myndinni fara Antonio
Banderas, Omar Sharif og Arnold
Schwarzenegger. ge
s
Háskólabíó-The Boxer
Hnefaréttur
Irski leikstjórinn Jim Sheridan er þekktur fyrir skarpar
samfélagslýsingar sínar en hann hefur dregiö upp óvæga
mynd af lifinu á Norður-írlandi i skugga borgarastríðsins.
Hnefaleikarinn er fjórða myndin sem hann leikstýrir en
þekktastur er hann án efa fyrir In the Name of the Father
(1993) sem útnefhd var til sjö óskarsverðlauna. 1 nafni föður-
ins er að minu mati langt frá því að vera gallalaus mynd og
stendur Hnefaleikaranum að baki í áhrifamætti og yfirveg-
aðri lýsingu á pólitískum hræringum norður-irsks samtima.
Skyldari Hnefaleikaranum er Some Mother’s Son (1996) sem
leikstýrt var af Terry George en hann skrifaði handritið að
myndinni ásamt Sheridan. Þeir George og Sheridan eru hér
enn að verki og sem fyrr tekst þeim ágætlega.
Some Mother’s Son fjallar um hungurverkfall IRA-fanga
en 10 létust áður en komið var til móts við kröfur þeirra.
Mæður fanganna höfðu vald til þess að neyða ofan í þá nær-
ingu en með þeirri ákvörðun hefðu þær svipt þá réttinum til
þess að deyja fyrir pólitíska sannfæringu sína. í Hnefaleikar-
anum eru konumar meira i bakgrunni því þar segir frá fang-
anum Danny Flynn (Daniel Day-Lewis) sem sleppur úr fang-
elsi eftir 15 ára vist og snýr aftur á heimaslóðimar þar sem
hann hefur æfingar á hnefaleikum aftur. Æskuástin Maggie
(Emily Watson) er gift kona sem á 10 ára gamlan son en eig-
inmaður hennar situr inni fyrir störf sín í þágu írsku lýð-
veldissamtakanna. Hún er eiginkona fanga en fjölmargar
★★★
konur úr nágrenn-
inu deila því hlut-
skipti með henni.
Hvort sem þeim er
það ljúft eða leitt
verða þær að sýna
mönnum sinum stuðning í verki; þær verða að bíða þeirra og
hverri konu sem misstígur sig á hinum mjóa vegi dyggðar-
innar er refsaö harðlega. Þeir karlar sem taka saman viö eig-
inkonu fanga geta jafnvel átt það á hættu að týna lífinu.
Stuttu eftir að Danny kemur heim tekur ástin að kvikna milli
hans og Maggie en málin em enn flóknari fyrir þá sök að fað-
ir hennar (Brian Cox) er háttsettur maður í samtökum lýð-
veldissinna. Hann er á kafi í friðarviðræðum og vopnahlé
kemst á milli hinna striðandi fylkinga. Aðstoðarmaður hans,
Harry (Gerard McSorley), vill halda uppi vopnaðri baráttu
viö ensku kúgarana og gerir allt sem hann getur til þess að
ala á úlfúð. Hann hatar Danny og reynir að klekkja á honum
með því að ráðast gegn sambandi hans við Maggie.
Þrátt fyrir að mér þyki handrit þessarar myndar ekki
jafnagað og handrit þeirra Sheridans og Georges af Some
Mother’s Son er það ágætlega unnið. Leikur Daniels Day-
Lewis er til fyrirmyndar og hnefaleikaatriöin vel úr garði
gerð. Aðrir leikarar standa sig einnig með stakri prýði og
ekki verður annað sagt en að Hnefaleikarinn sé enn ein fjöðr-
in í leikstjómar- og handritshatt Sheridans.
Leikstjóri Jim Sheridan. Aðalhlutverk: Daniel Day-Lew-
is, Emily Watson, Ken Stott, Gerard McSorley, Brian
Cox og Ciaran Fitzgerald. Guðni Elísson